Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í
utanverðum Húnaflóa, rétt
norðan við Blönduós, hefur
undanfarna mánuði mátt sjá
stóran og mikinn borgarísjaka
strandaðan. Vilhjálmur Hall-
grímsson kafari og Pálmi
Dungal neðansjávarljósmynd-
ari héldu ásamt höfundi á dögunum í
leiðangur til þess að skoða þetta fer-
líki, bæði ofan sjávar og neðan. Ísjak-
ann rak inn á Húnaflóann í byrjun
aprílmánaðar en þá var hann marg-
falt stærri en nú.
Samkvæmt upplýsingum frá Þór
Jakobssyni, veðurfræðingi og sér-
fræðingi Veðurstofunnar um hafís, er
borgarísinn úr skriðjöklum Græn-
lands. En frá árinu 2001 hefur ísinn
við Grænland minnkað mikið og losn-
að um hann og stóra ísfleka þannig
rekið frá landi og þeir átt greiða leið
með straumum og vindum.
Flestir niður með austanverðu
Grænlandi á meðan sumir hafa ratað
norður fyrir Ísland og strandað þar.
Erfitt er að geta sér til um aldur íss-
ins en hann getur verið allt frá nokk-
ur hundruð ára gamall og upp í tugi
þúsunda ára, jafnvel hundrað þús-
unda ára.
Veit Þór ekki til þess að menn hafi
áður kafað við borgarísjaka hér við
land.
Líklegast 80 metra hár
Ísjakinn reis rúma 7 metra úr hafi
og var augljóslega botnfastur því
kröftugar öldurnar náðu ekki að
hreyfa hann til. Dýpið á þessum slóð-
um er um 75 metrar þannig að allt
bendir til að ísinn hafi verið rúmum
tíu metrum hærri en Hallgríms-
kirkja, eða um 80 metrar.
Hitastig sjávar í flóanum hafði náð
u.þ.b. 8°C en líkt og ísmoli í volgum
drykk hefur jakinn náð að kæla sjó-
inn í kringum sig niður í 4° C.
Við urðum að velja vandlega þann
stað sem best væri að fara niður við
ísjakann því að á sumum stöðum
mátti sjá sprungur í honum sem ekki
var hægt að vita hvenær myndu
bresta.
Úr jakanum gátu því fallið stór
stykki og eftir að hafa gert athugun á
því hvort hætta væri á því að hann
myndi kollsteypast á meðan á köf-
uninni stæði var ákveðið að stökkva
út í sjóinn.
Við tók veröld, að hluta til drunga-
leg og dimm en töfrar þess að svífa
um í þyngdarleysi vatnsins og berja
augum kynjamyndir íssins urðu öll-
um hugsunum um drunga og dimmu
yfirsterkari.
Rétt undir yfirborðinu kom í ljós
stór og mikil sylla sem skagaði út frá
honum tvo til þrjá metra.
Þarna mátti sjá undursamlegt
samspil ljóss og skugga.
Hvítur ísinn endurkastaði sólar-
ljósinu út í grænan sæinn en við þess-
ar aðstæður sköpuðust miklar and-
stæður við dimmt og svart hyldýpið
sem við horfðum niður í til hliðar við
ísinn.
Heyra mátti þungan niðinn þegar
aldan brotnaði á þessari fyrirstöðu
sem ísinn var.
Öndun íssins
Það var líkast því að ísinn væri að
anda – því upp frá honum streymdi
gríðarlegur fjöldi örsmárra loftbóla.
Loftbólurnar hafa pressast saman
fyrir löngu undan fargi jökulsins og
leysast nú úr læðingi þegar þrýsting-
urinn minnkar og ísinn bráðnar.
Í köldum sjónum mátti sjá ógrynni
af smáum marglyttum – svo nefnda
lirfuhala – og svo virtist sem þær
hefðu fangað loftbólurnar því gegn-
sær hjúpurinn sem umlykur lirfuhal-
ann var líkt og mettaður smáum loft-
bólum. Kannski er þetta enn ein
sönnun þess að allt er í heiminum
hverfult. Vatnið og loftið sem fast var
í viðjum frera, mögulega í þúsundir
ára, losnar nú úr læðingi. Á örlitlu
broti af ævi jakans fá forvitnir land-
krabbar séð hvar hann umbreytist,
bráðnar og hverfur.
Ljósmynd/Einar Magnús Magnússon
Undir yfirborði sjávar tók við veröld sem var að hluta til drungaleg og dimm þó
kynjamyndir íssins hafi orðið öllum slíkum hugsunum yfirsterkari.
Ljósmynd/Einar Magnús Magnússon
Ljósmynd/Vilhjálmur HallgrímssonLjósmynd/Vilhjálmur Hallgrímsson
Vandlega varð að velja þann stað þar sem fara átti niður að ísjakanum, vegna
hættu á að úr honum féllu stór stykki.
Úr skriðjöklum
Grænlands
Á veturna láta íslenskir sportkafarar sig dreyma um hlýjan sjó sumarsins. Það skýtur því skökku við að nú í blíðviðri sumars og hækkandi hita gerðu
þrír sportkafarar úr Reykjavík sér ferð norður í Húnaflóa til að kafa í ríki íss og kulda. Einar Magnús Magnússon var með í för og segir frá ævintýrinu.
Höfundur er sportkafari.
Jakinn hefur minnkað umtalsvert frá því hann strandaði í utanverðum Húna-
flóa, rétt norðan við Blönduós, fyrir nokkrum mánuðum.