Morgunblaðið - 12.06.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 33
UMRÆÐAN
REYKJANESBÆR og nærliggj-
andi byggðir standa nú frammi
fyrir stórkostlegu tækifæri.
Norðurál í Hvalfirði hefur lýst yfir
áhuga á byggingu nýs álvers í
grennd við Helguvík á norðanverðu
Reykjanesi. Í Helguvík er að finna
nýja og fullkomna stórskipahöfn.
Hitaveita Suðurnesja og Orku-
veita Reykjavíkur sýndu á dög-
unum sameiginlegan áhuga fyrir
orkuöflun fyrir hið nýja álver. Nú
þegar, af hálfu Norðuráls í Hval-
firði, eru hafnar verkfræðilegar at-
huganir um framtíðarstaðsetningu
á væntanlegu álveri í grennd við
Helguvíkurhöfn. Til samanburðar
má nefna að framkvæmdir Hita-
veitu Suðurnesja á Reykjanesvirkj-
un eru hafnar og mun sú virkjun
skila u.þ.b. 100 MW. Orkan úr
Reykjanesvirkjun verður flutt til
Norðuráls í Hvalfirði. Aðkoma
Hitaveitu Suðurnesja að orkuöflun
fyrir Norðurál í Hvalfirði er í sam-
vinnu við Orkuveitu Reykjavíkur
sem er leiðandi í orkuöflun fyrir þá
stækkun sem nú er að eiga sér
stað á álverinu í Hvalfirði.
Við verkefnið sem framundan er
í Helguvík má því segja að um
stólaskipti verði að ræða hjá orku-
fyrirtækjunum tveimur. Hitaveita
Suðurnesja þarf nú á dyggum
stuðningi Orkuveitu Reykjavíkur
að halda svo tryggt verði að orku-
öflun verði fullnægjandi fyrir nýtt
álver í Helguvík. Frá viðskipta-
legum sjónarmiðum er Helguvík
einn besti kosturinn ef ekki sá
allra besti í landinu fyrir nýtt ál-
ver. Skal því engan undra að fyrir-
tækið Norðurál skuli sýna metnað
og áhuga á byggingu álvers í
Helguvík.
Útlitið er bjart en með samátaki
er hægt að afla orku fyrir álverið.
Áætluð orkuþörf fyrir 250.000
tonna álver er u.m.þ. 350 MW.
Víða á Reykjanesi eru vænlegir
virkjunarstaðir og er það sam-
merkt með þeim öllum að geta afl-
að orku með jarðvarma. Virkj-
unarframkvæmdir eru fjárfrekar
en að sama skapi er framtíðar-
ávinningur fólginn í fjárfestingum
af þessu tagi.
Það er jákvætt, í ljósi reynslu
okkar frá virkjunarframkvæmdum
við Kárahnjúka og þá uppbyggingu
sem er að eiga sér stað á Reyðar-
firði, að raunveruleg þensluáhrif
sömu framkvæmda hafa verið
langtum minni en áætlað var við
upphaf framkvæmda. Í raun hefur
þensla á fasteignamarkaði eignað
sér helming þeirrar bólgu sem
mælst hefur að undanförnu.
Það er í raun allt sem syngur
með álveri í Helguvík. Í Reykja-
nesbæ hefur verið lyft grettistaki á
allra síðustu árum. Bærinn hefur
þróast í að vera eitt eftirsóttasta
sveitarfélag landsins og hefur upp-
byggingin á síðustu árum verið til
fyrirmyndar. Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra hefur lýst
yfir velþóknun sinni á fyrirhuguðu
verkefni í Helguvík en hún heim-
sótti svæðið á dögunum í fylgd
Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í
Reykjanesbæ. Í kjölfarið fóru fjöl-
margir bæjarfulltrúar, bæjar-
stjórar og verkalýðsleiðtogar af
Suðurnesjum ásamt nokkrum al-
þingismönnum, í heimsókn til
Norðuráls í Hvalfirði. Forsvars-
menn Norðuráls gerðu þar grein
fyrir áhuga sínum og notuðu jafn-
framt tækifærið til að upplýsa
gesti nánar um álframleiðsluna,
áhrif hennar á umhverfið og mann-
lífið. Við sömu kynningu stóð Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi,
upp og lofaði með skeleggum hætti
þau miklu og jákvæðu áhrif sem ál-
verið í Hvalfirði hefur haft á nær-
liggjandi byggðir, þ.m.t. Akranes.
Með nýju álveri í Helguvík verð-
ur um stórkostlegan ávinning að
ræða fyrir nærliggjandi byggðir.
Meðallaun starfsmanna hjá stór-
iðjufyrirtækjum er töluvert hærri
en landsmeðaltal launa. Stoðfyr-
irtæki s.s. verktakar, innflytjendur,
skipafélög og fleiri fá einnig spenn-
andi verkefni á meðan á bygging-
artíma stendur og einnig samhliða
rekstri álvers eftir uppbyggingu.
Í náinni framtíð mun reyna á
þverpólitíska samstöðu bæði hjá
ríki og borg um hið mikla verkefni
sem framundan er. Aðkoma Orku-
veitu Reykjavíkur er afar mikilvæg
framkvæmdunum og hefur fram-
sóknararmurinn í R-listanum í
Reykjavík sýnt með afgerandi
hætti fram á stuðning sinn til
verkefnisins. Það kemur engum
lengur á óvart þegar Vinstri græn-
ir segja nei og er því boltinn
greinilega hjá Ingibjörgu Sólrúnu
og félögum hennar í Samfylk-
ingararmi R-listans í Reykja-
víkurborg.
Norðurál í Helguvík
Gunnar Örn Örlygsson fjallar
um stóriðju ’Í náinni framtíð munreyna á þverpólitíska
samstöðu bæði hjá ríki
og borg um hið mikla
verkefni sem fram-
undan er. ‘
Gunnar Örn Örlygsson
Höfundur er alþingismaður í þing-
flokki sjálfstæðismanna.
Opið mán. - fim. frá kl. 9–18 og fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
Glæsilegt einbýlishús á einni hæð, alls um 260 fm, með innbyggðum, mjög
stórum, bílskúr með vinnuaðstöðu. Mjög stórar stofur og glæsilegt eldhús, stór
svefnherbergi ofl. Mikið útsýni. Húsið er fallega innréttað og allur frágangur
vandaður. V. 47,8 m. 6866
BRÖNDUKVÍSL - ÁRTÚNSHOLTI
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i idborg.is
59,3 fm góð 2ja herbergja íbúð á efstu
hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í hol,
eldhús, flísalagt baðherbergi, parketlagða
stofu og parketlagt herbergi. Góð sam-
eign. Nýir gluggar og gler eru á íbúðinni.
Rafmagn hefur allt verið endurnýjað.
Bergsteinn sýnir. Sími 696 5450.
Hringbraut 115
Opið hús milli kl. 14.00 og 15.00
Gnoðarvogur 40
Opið hús milli kl. 14.00 og 15.00
Fífusel 13
Opið hús milli kl. 15.30 og 16.30
74,4 fm íbúð á fjórðu hæð (efstu). Íbúin
skiptist í hol, flísalagt baðherbergi, tvö
svefnherbergi, parketlagða stofu með út-
gangi á svalir, flísalagt eldhús og
geymslu. Í sameign er þvottahús og hjóla-
geymsla. Ingi sýnir. Sími 698 4450.
106,1 fm góð 4ra herbergja íbúð ásamt
stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í hol,
eldhús, þvottahús, parketlagða stofu með
útgangi á svalir, baðherbergi, þrjú svefn-
herbergi og geymslu.
Ingi sýnir. Sími 698 4450.
Eyrarholt 16
Opið hús milli kl. 17.00 og 18.00
Veghús 1
Opið hús milli kl. 12.00 og 13.30
92,8 fm 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í
góðu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í hol,
eldhús með borðkrók og verönd til suð-
austurs, bjarta stofu með svölum til norð-
urs, baðherb. með baðkari og lögn fyrir
þvottavél og 3 svefnherbergi. Í kjallara er
sérgeymsla með hillum auk sameiginl.
hjóla- og vagnageymslu. Sérm. bílastæði
fylgir íbúð. Ingi sýnir. Sími 698 4450.
Góð 58,1 fm 3ja herbergja íbúð á efstu
hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist í hol,
dúklagt eldhús, baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, parketlögð stofu og tvö parket-
lögð herbergi með fataskápum. Í risi er
sérgeymsla og sameiginlegt þurrkher-
bergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús.
Friðrik sýnir. Sími 663 7676.
166,4 fm glæsileg þakíbúð á tveimur
hæðum við Veghús í Grafarvogi. Íbúðin
skiptist í hol, stóra stofu með mikilli loft-
hæð, snyrtilegt eldhús með borðkrók, tvö
baðherbergi, sjónvarpshol, þrjú góð
svefnherbergi. Í kjallara er sérgeymsla.
Ingi sýnir: 698-4450.
Rauðarásstígur 32
Opið hús milli kl. 14.00 og 16.00
Fell í Bakkafirði
Jörðin Fell í Skeggjastaðahreppi
stendur við norðanverðan Bakka-
fjörð við þjóðveg til Þórshafnar. Á
jörðinni er rekið sauðfjárbú með
296 ærgildi en í dag eru þar um
350 fjár á fóðrum. Á jörðinni eru
fjárhús fyrir allt að 600 fjár í tveim-
ur húsum, annars vegar steypt
fjárhús fyrir 300 fjár, byggt 1976,
stálgrindarhús byggt 1971 fyrir
200 fjár. Einnig hefur hluta af vot-
heysgryfju (flatgryfju) verið breytt í fjárhús fyrir allt að 100 fjár. Áburðarkjall-
arar eru í öllum húsum og er bæði dælt út úr þeim og mokað með dráttar-
vél. Ræktað land er 30,4 ha og fæst um 70% af því heyi sem til þarf á
þeim túnum en 30% er heyjað á næsta bæ. Stálgrindarskemma, 84,6 fm
byggð 1969, er notuð til að geyma í vélar og tæki. Jörðin er sögð vera
3.700 ha mæld upp úr korti. Landið er mólendi, mýrar og lágir ásar. Véla-
kostur er þrjár gamlar dráttarvélar og almenn heyvinnslutæki, einnig á
bóndinn 1/3 í rúllu og pökkunarsamstæðu á móti öðrum bændum í sveit-
inni. Í landi Fells er Krókavatn sem í er góð urriða- og bleikjuveiði. Við
vatnið er veiðihús með gistiaðstöðu fyrir 6-10 manns. Krókavatn er 7 km
frá Felli og er jeppavegur inn að vatninu. Einnig er rétt að geta þess að sil-
ungsveiði er fyrir landi Fells í sjónum og í Finnafjarðará sem tilheyrir Felli
var allgóð sjóbleikjuveiði og eitthvað um lax en áin hefur verið friðuð í
nokkur ár. Á haustin er gæsa- og rjúpnaveiði í landi Fells. Á Felli var rekin
bændagisting í nokkur ár og var byggt stórt og mikið íbúðarhús sem var
að hluta til notað fyrir þá starfsemi. Íbúðarhúsið er 267,1 fm, kjallari og
hæð, í kjallara eru þrjú svefnherbergi, eldhúskrókur, setustofa, tvær snyrt-
ingar og sturta, ásamt geymslu. Gólf í kjallara eru lökkuð, á hæð eru 6 her-
bergi, stofa, eldhús, búr, baðherbergi, snyrting og þvottahús, dúkur er á
öllum herbergjum nema í stofu, þar er filtteppi og lakkað gólf í þvottahúsi.
Upphitun er rafmagn (þilofnar), gler í gluggum er tvöfalt verksmiðjugler
nema í opnanlegu fögunum, þar er tvöfalt mixað. Á jörðinni er íbúðarhús,
byggt 1928, tveggja hæða steinhús, áfast við það er geymsla sem er gam-
alt fjós, byrjað er að gera húsið upp. Fell er nyrsti bær í Skeggjastaða-
hreppi við rætur Gunnólfsvíkurfjalls skammt frá sjó og stendur steinsnar
frá þjóðveginum. Hér er góð sauðfjárjörð með góðum húsakosti.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Ásmundsson hjá Hóli
fasteignasölu í Fjarðabyggð, sími 475 8000 eða 894 0559.
Þverhamar 3 - Breiðdal
Jörðin Þverhamar 3 er rétt fyrir ofan
byggðina á Breiðdalsvík, þar er rekið
sauðfjárbú með fullvirðisrétti upp á
230 ærgildi. Á fóðrum í vetur voru
300 kindur. Fjárhús eru steypt með
vélgengum áburðarkjallara og rúma
húsin 300 kindur. Áföst hlaða er við
húsin sem býður upp á möguleika til
að breyta í fjárhús ef menn vilja, 120
fermetra góð véla- og verkfærageymsla, ræktað land er tæpir 30 hektarar.
Vélakostur eru fjórar dráttarvélar ásamt heyvinnuvélum og helmings eigna-
hlutur í heypökkunarsamstæðu. Frjósemi hefur verið rétt um 2 lömb á
hverja kind, fallþungi dilka hefur verið milli 17 og 18 kg. Á jörðinni er 297
fermetra glæsilegt íbúðarhús, vel staðsett með fallegu útsýni, einnig 73
fermetra gamalt uppgert íbúðarhús. Hér er góð jörð til sauðfjárræktar og
með góðum húsakosti og í fallegu umhverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Ásmundsson hjá Hóli
fasteignasölu í Fjarðabyggð, sími 475 8000 eða 894 0559.
Spennandi kostur á góðum stað!
Til sölu er rekstur og húsnæði KK
matvæla á Hafnargötu 1, 730 Reyð-
arfirði. Fyrirtækið hefur verið starf-
rækt í 18 ár og framleitt undir merki
KK matvæla. Í dag eru 6 stöðugildi
hjá fyrirtækinu í mjög góðu húsnæði,
byggðu 1996. Húsnæðið, sem er
242,4 fm, skiptist í 100 fm vinnslu-
sal, 100 fm lageraðstöðu þar sem er frystir og kælir í um 60 fm og um-
búða- og vörumóttaka 40 fm. Skrifstofa og starfs-
mannaaðstaða er í um 40 fm, auk þess er geymslu-
loft yfir skrifstofu og starfsmannaaðstöðu. Vinnslu-
og lagerrými er allt klætt með lituðu stáli. Lóð er full-
frágengin og bílastæði eru malbikuð.
Húsið er staðsett í hjarta bæjarins.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur
Ásmundsson hjá Hóli fasteignasölu í
Fjarðabyggð, sími 475 8000 eða 894 0 559.
Sími 595 9000
Franz Jezorski, hdl. og
lögg. fasteignasali