Morgunblaðið - 12.06.2005, Side 40
40 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ásbúð 20 - Garðabær
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-15
Ólafur B. Finnbogason, sölumaðu
Mjög fallegt og vel staðsett ca 170 fm raðhús með innbyggðum bílskúr á frábærum, barn-
vænum og rólegum stað í Garðabænum. Húsið er nýmálað og viðgert að utan. Fjögur
svefnherbergi, eitt tölvu- og vinnuherbergi, og tvö baðherbergi. Glæsilegt útsýni yfir
Garðabæinn og í átt að Esjunni og víðar. Flísar og parket á gólfum. Góð skjólgóð baklóð í
rækt. Bílskúr með öllu þ.e.a.s sjálfvirkum hurðaopnara, heitu og köldu vatni, rafmagni og
hita. Þetta er falleg eign fyrir fjölskylduna á rólegum grónum stað í Garðabænum þar sem
stutt er í skóla og alla þjónustu á Garðatorgi.
Andri Sigurðsson sölustjóri DP FASTEIGNA tekur vel á móti væntanlegum
kaupendum í dag frá kl 13-15. Sjón er sögu ríkari.
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Páll
HöskuldssonSími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Við gatnamót Ármúla og Vegmúla höfum við til leigu sérlega
áhugavert 150 m² verslunarhúsnæði. Húsnæðið er skipt í verslun og
lagerrými með sérvöruaðgangi. Húsnæðið hentar fyrir fjölbreyttan
þjónustu- og verslunarrekstur.
Húsnæðið er laust frá og með 1. júlí.
Til leigu Ármúli 15, 108 Reykjavík
FJÓLUGATA - REYKJAVÍK - SÉRHÆÐ
Nýkomin í einkasölu sérlega
falleg 156 fm sérhæð á tveimur
hæðum í Þingholtunum. Eignin
skipist þannig, aðalhæð: Eld-
hús, snyrting, stofur, herbergi
o.fl. Neðri hæð: Tvö rúmgóð
svefnherb., baðherb., þvotta-
hús, geymslur o.fl. Mjög falleg-
ur garður. Hiti í stéttum. Frá-
bær staðsetning.
Verð 33,5 millj.
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Spóahólar 10 - 3. hæð t.h.
Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, 2 herbergi, bað og
stofu auk þvottahúss og geymslu í sameign. Nánari lýsing; komið er inn í anddyri
með skápum og á vinstri hönd er stofan sem er rúmgóð og björt með viðarrimlum og
gluggum á 2 vegu. Þaðan er gengið út á stórar svalir með miklu útsýni yfir fjallahring-
inn og Elliðavatn. Frá anddyrinu á hægri hönd er eldhús með dökkri innréttingu, kork
á gólfi, nýl. borðplötu og nýl. stáltækjum. Síðan er gengið að barnaherbergi með dúk
á gólfi, hjónaherbergi sem er rúmgott með góðum skápum og dúk á gólfi. Baðher-
bergið er rúmgott með baðkeri, flísum á gólfi og tengi f. þvottavél. Gott leiksvæði er
bak við húsið og göngustígur í skólann. Þetta er glæsileg íbúð í húsi sem er vel við
haldið. Verð 15,9 millj.
Kristín Gunný tekur á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Reykjavíkurvegur
Tvö vel staðsett skrifstofu- og þjónustubil miðsvæðis í Hafnafirði. Bilin eru
bæði á 2. hæð og hægt að fá þau keypt í einu lagi eða hvort í sínu lagi.
Bæði bilin skiptast í 4 skrifstofur. Annað bilið er 100,9 fm og hitt bilið
120,9 fm. Nánari upplýsingar og teikningar eru veittar á skrifstofu Eigna-
miðlunar.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Bakkaflöt - á einum besta stað í Garðabænum
Fallegt og velskipulagt 200 fmein-
býlishús ásamt tvöföldum 43 fm bíl-
skúr. Húsið stendur í rólegri botn-
langagötu neðst í flötunum. Húsið
skiptist m.a. í fjögur herbergi, stofu,
borðstofu, arinnstofu, eldhús,
geymslu, þvottaherbergi, gestasnyrtingu, forstofu, og baðherbergi. Lóðn
er um 1100 fm og mjög gróin og falleg. Húsið er tölvert endurnýja m.a.
eldhús, gólfefni, þak og fl. Búið að opna hús mjög mikið auk þes sem
gluggar eru mjög stórir sem gera húsið mjög bjart og skemmtilegt. 5052
SAMTÖKIN Landsbyggðin lifi hélt
nýlega árlegan aðalfund sinn á
Húnavöllum í Austur-Húnavatns-
sýslu. Ný stjórn samtakanna var
kjörin auk þess sem samþykkt var
ályktun þar sem fram kemur að
landsbyggðin eigi stöðugt í vök að
verjast gegn óblíðum lögmálum
efnahagslífsins. Því þurfi fólk í hin-
um dreifðu byggðum að sameina
krafta sína og hafa frumkvæði um
uppbyggingu nýrra atvinnutæki-
færa út frá þekkingu, reynslu og
auðlindum sem eru fyrir hendi í
hverri byggð til þess að skapa efna-
hagslegar og félagslegar forsendur
fyrir því að fólki sé kleift að búa þar
sem það fýsir til.
Þar segir jafnframt að lyfta þurfi
umræðunni um byggðamál á hærra
plan og láta rödd landsbyggðarinnar
heyrast betur á opinberum vettvangi
og glæða hana nýrri bjartsýni.
Benda samtökin á mikilvægi sam-
vinnu þvert á byggðamörk og stjórn-
málaflokka til að efla byggð og nýta
gæði landsins í sátt við íbúa og um-
hverfi.
Aðalfundur samtak-
anna Landsbyggðin lifi
Hvetja til
aukinnar sam-
vinnu þvert á
byggðamörk
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
TAFLFÉLAGIÐ Hellir er hrað-
skákmeistari taflfélaga eftir sigur á
Taflfélagi Reykjavíkur, 39–33, sem
fram fór nýlega í Hellisheimilinu.
Staðan í hálfleik var 21–15. Hellis-
menn slepptu aldrei tökunum og
höfðu tryggt sér sigur fyrir loka-
umferðina. Stefán Kristjánsson var
bestur Hellisbúa en Jón Viktor
Gunnarsson stóð sig best TR-inga.
Hellismenn eru nú fjórfaldir
meistarar en auk þess að vera hrað-
skákmeistari taflfélaga er félagið Ís-
landsmeistari, Norðurlandameistari,
og Íslandsmeistari unglingasveita,
sem er einsdæmi í skáksögunni.
Árangur Hellisbúa var eftirfar-
andi:
Stefán Kristjánsson 9 v. af 12
Helgi Áss Grétarsson 7 v. af 12
Björn Þorfinnsson 6,5 v. af 12
Ingvar Þór Jóhannesson 6,5 v.
af 12
Sigurbjörn J. Björnsson 5 v. af 12
Andri Grétarsson 4 v. af 8
Gunnar Björnsson 1 v. af 1
Sigurður Daði Sigfússon 0 v. af 3
Árangur TR-inga var þessi:
Jón Viktor Gunnarsson 7,5 v.
af 12
Þröstur Þórhallsson 6 v. af 12
Arnar E. Gunnarsson 5,5 v. af 11
Bragi Þorfinnsson 5 v. af 11
Dagur Arngrímsson 4 v. af 10
Guðmundur Kjartansson 3 v.
af 10
Benedikt Jónasson 1 v. af 3
Bergsteinn Einarsson 1 v. af 3
Hellir hrað-
skákmeistari
taflfélaga
♦♦♦
♦♦♦
SAMFYLKINGIN í Skagafirði
ákvað á félagsfundi í síðustu viku að
við næstu sveitarstjórnarkosningar,
sem fram fara 2006, mundi flokkur-
inn bjóða fram undir eigin merkjum.
Jafnframt samþykkti fundurinn að
fela stjórn félagsins að hefja undir-
búning að framboði flokksins í næstu
sveitarstjórnarkosningum m.a. með
því að skoða aðferðir við skipan
framboðslista, undirbúning málefna
og fleiri atriði.
Þessi ákvörðun þýðir m.a. að
Skagafjarðarlistinn mun ekki bjóða
fram í næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum eins og í tvennum síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Samfylkingin
ekki með í Skaga-
fjarðarlista