Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 55
Nýr og betriMiðasala opnar kl. 14.30
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
HL mbl l
Sýnd kl. 6 og 9 B.I 16 ÁRA
Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 3
Frá framleiðendum
Lock Stock & Snatch
r fr l i
t t
- BARA LÚXUS
553 2075☎
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10
kl. 3.20 5.40, 8 og 10.20 B.I 16 ÁRASýnd kl. 3, 6 og 9 B.I 10 ÁRA
HEIMSFRUMSÝNING HEIMSFRUMSÝNING
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11 B.i 14 ára
Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.I 10 ÁRA
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 ára
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Frá leikstjóra Bourne IdentityFrá leikstjóra Bourne IdentityBourne Identity
Bourne Identity
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims! Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINSAÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
10.20
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 55
Sjónvarp þarf ekki að segjasannleikann en þegar sömuósannindin koma upp aftur
og aftur fara þau að líkjast sam-
særi. Gott dæmi um slíkan blekk-
ingarleik er að aldur leikkvenna í
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum
samræmist alls ekki alltaf raun-
verulegum aldri þeirra. Auðvitað
þurfa leikarar ekki að vera jafn-
gamlir sjónvarpspersónu sinni,
þetta er nú einu sinni leikið efni,
en eitthvert samræmi er nauðsyn-
legt.
Besta dæmið sem ég hef fundið
um þennan mun kemur úr sjón-
varpsþáttunum The O.C. Hjónin
Sandy og Kirsten Cohen eru ham-
ingjusamlega gift og eiga soninn
Seth. Eftir því sem ég kemst næst
kynntust þau í skóla og eiga að
vera á svipuðum aldri. Sú hugsun
vaknar þá hversu ungleg hún
Kirsten sé miðað við manninn sinn,
greinilegt að þessar Kaliforníu-
konur halda sér vel. Annar sann-
leikur kemur hins vegar í ljós þeg-
ar upplýsingavefurinn Imdb.com
er skoðaður en tólf ára aldurs-
munur er á „hjónunum“, Peter
Gallagher er fæddur 1955 en Kelly
Rowan 1967. Skólastrákinn soninn
þeirra leikur Adam Brody en hann
er fæddur 1979 og er því að leika
niður fyrir sig í aldri. Ef Rowan
hefði raunverulega alið Brody
hefði hún þurft að vera tólf ára til
að gera svo.
Þetta er ekki eina dæmið umtólf ára sjónvarpsmóður því
ein slík er í þáttunum Nip/Tuck.
Joely Richardson leikur Juliu
McNamara en hún fagnar fertugs-
afmæli sínu í ár. John Hensley
leikur Matt, son hennar en hann er
fæddur 1977. Ég þekki engar tólf
ára mæður og held að það þætti
saga til næsta bæjar. Enda reynist
raunveruleikinn allt annar. Hann
er sá að Hensley og Richardson
áttu í ástarsambandi. Í okkar sam-
félagi er áreiðanlega algengara að
tólf ára aldursmunur sé á elsk-
endum en mæðginum og er langt
frá því sjálfgefið að karlmaðurinn
sé eldri.
Bæði Rowan og Richardson eiga
að vera frekar náttúrulegar týpur
í þáttunum og hafa ekki gengist
undir neinar skurðagerðir. Með
því að gefa í skyn að leikkonurnar
séu eldri en þær eru í raun er ótví-
rætt verið að setja pressu á konur.
Þær þurfa að vera unglegar fram
eftir öllum aldri til að standast
þessar kröfur samfélagsins.
Gervilegasta konan í The O.C.,
sem frekar er gefið
í skyn að hafi látið
eiga eitthvað við
sig, er án efa Julie
Cooper, sem Mel-
inda Clarke leikur.
Hún er fædd árið
1969, er 36 ára með
ungling í mennta-
skóla. Reyndar leik-
ur yngsta leikkona
þáttanna, Mischa
Barton, dóttur
hennar. Mischa, eða
Marissa Cooper, er
fædd 1986 og er því
aðeins raunsærri
aldursmunur á
þessum mæðgum en
öðrum. Það breytir
því ekki að besta vinkona hennar,
Rachel Bilson í hlutverki Summer
Roberts, á að vera jafn gömul
henni en hún er fædd árið 1981. Ef
Julie væri móðir Summer væri
komin enn ein tólf ára móðirin …
Furðulegasta dæmið um svona
aldursmun kemur frá Angelinu
Jolie og Colin Farrell, sem leika
mæðgin í stórmyndinni Alexander.
Angelina er heilu ári eldri heldur
en Colin og hlýtur því að vera ein-
hver yngsta móðir kvikmyndasög-
unnar. Hefði Isabella Rossolini
ekki verið jafn góð í þetta hlut-
verk með sína tímalausu fegurð?
Þetta er ekki sami hluturinn ogmaí-desember rómans, eins og
það hefur verið kallað. Þar er
karlmaðurinn mun eldri og konan
á að vera yngri, ekki bara líta út
fyrir að vera yngri. Margar leik-
konur hafa verið í þessu hlutverki
eins og til dæmis Audrey Hepburn
í Sabrina en Humphrey Bogart var
heilum þremur áratugum eldri en
hún. Þó slíkur aldursmunur geti
verið leiðigjarn á hvíta tjaldinu er
þessi nýja tilhneiging ennþá verri.
Tólf ára sjónvarpsmæður
’Með því að gefa í skynað leikkonurnar séu
eldri en þær eru í raun
er ótvírætt verið að
setja pressu á konur.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Mæðginin Angelina Jolie og Colin Farrell í hlut-
verkum sínum í Alexander.
ingarun@mbl.is
Reuters
FIMMTA myndin í
Stjörnustríðs-bálk-
inum, sú önnur sem
framleidd var, The
Empire Strikes Back
frá 1980, er sú besta
af þeim öllum. Sú er
niðurstaða óform-
legrar könnunar sem
staðið hefur yfir síð-
ustu vikur á Fólkinu
á mbl.is. Alls tóku
2304 þátt í könn-
uninni og skiptust at-
kvæði nokkuð jafnt á milli myndanna.
Þó fékk The Empire Strikes Back
áberandi bestu kosninguna; 22,7%
töldu hana bestu myndina af þeim öll-
um, eða 523. Næstbesta Stjörnu-
stríðs-myndin að mati gesta á Fólk-
inu er þriðja myndin í röðinni og sú
nýjasta, The Revenge Of The Sith,
sem hlaut 18,9% atkvæða eða 436. Í
þriðja sæti lenti fjórða myndin og sú
fyrsta sem gerð var, A New Hope
með 16,5%, þá kom Kafli I: The
Phantom Menace með 14,7%, svo
Kafli II: The Attack of the Clones
með 13,7%. Kafli VI: Return Of The
Jedi þykir svo síst af þeim öllum í
könnuninni, en hún fékk 13,4% eða
308 atkvæði.
Niðurstöður könnunarinnar eru
mjög í samræmi við aðrar sambæri-
legar kannanir sem gerðar hafa verið
erlendis en þar hefur sama mynd,
The Empire Strikes Back, jafnan
hafnað í efsta sæti. Í henni gerist það
m.a. að Svarthöfði upplýsir Loga
geimgengil um að hann sé faðir hans.
Kvikmyndir | Niðurstöður könnunar á mbl.is
The Empire Strikes
Back besta Stjörnu-
stríðsmyndin
Dramatíkin rís hvað hæst í The Empire Strikes
Back, eftirlætismynd flestra Stjörnustríðs-unnenda.