Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Inside Deep Throat kl. 7 - 9 og 11 b.i. 16
A Lot Like Love kl. 5.45 - 8 og 10.15
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl. 5.40 - 8 og 10.20
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
aston kutcher amanda peet
Ó.H DV
H.L MBL
Ó.H.T RÁS 2
Halldóra - Blaðið Í hraða lífsins
kemur að því að
við rekumst á
hvert annað
ROGER EBERT
ROLLING STONE
S.K. DV.
Capone XFM
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar
Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
Myndin var tekin á 6 dögum fyrir 25.000 dali.
Ríkisstjórnin vildi ekki að þú sæir myndina.
Hún var bönnuð í 23 ríkjum.
Myndin halaði inn 600 milljónir dala á heimsvísu.
Hún er arðsamasta mynd kvikmyndasögunnar.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Heimildarmynd frá Óskarsverðlaunahafanum
Brian Grazer
PÉTUR ÞÓR Benediktsson útskrif-
aðist fyrir rúmu ári úr Tónlistaskól-
anum í Reykjavík. Hann hefur ekki
setið auðum höndum síðan hann út-
skrifaðist og hefur reyndar síðustu ár
verið iðinn við margvíslega tónlist-
arsköpun. Þessa dagana er hann að
einbeita sér að tónsmíðum fyrir leik-
rit og kvikmynd auk þess að vera við
upptökur á nýrri plötu og spila reglu-
lega á tónleikum. Hann gaf sér þó
tíma til að setjast niður með blaða-
manni og líta yfir farinn veg sem og
til framtíðar.
Talið berst fyrst að svotil nýloknu
námi Péturs en hann upplýsir okkur
nánar um út á hvað það gengur.
„Ég lærði í tónfræðideildinni, hefð-
bundið tónsmíðanám sem gengur út
á það að læra að útsetja og greina
verk auk þess sem ég tók ýmis
grunnfög í tónsmíðum, t.d. hljóm-
fræði og kontrapunkt. Svo reynir
maður að finna sig sem tónskáld í
þessu námi“ segir Pétur og bætir við
í gríni að hið síðastnefnda hafi ekki
tekist betur til hjá honum en svo að
hann starfi sem trúbadúr í dag.
„Nei ég lærði mikið á þessu námi
og tók auk þess tónlistarstjórnun
aukalega sem var mjög lærdómsríkt.
Mér finnst nefnilega mikilvægt að
geta sett sig í spor allra þeirra sem
koma að tónlistarsköpuninni,“ segir
hann.
Aðalgrunnurinn í námi Péturs var
klassísk tónlist þó hann fáist við ólík-
ar tegundir tónlistar í dag.
„Námið er bara eitthvað sem ég
varð að gera á sínum tíma þegar ég
hafði mikla ástríðu fyrir klassískri
tónlist. Það er svo óvíst hvenær það
kemur fram í tónlistinni minni. Það
kemur allavega ekki fram á næstu
plötu en gerir það örugglega ein-
hverntíma seinna. Ég sé fyrir mér að
ég verði trúbadúr núna kannski í eitt
ár eða tvö eða alla ævi en það getur
líka vel verið að ég fari í einhverja allt
aðra átt. “ segir Pétur.
„Námið hefur nýst mér kannski
best við vinnuna mína í því að ég hef
lært að temja mér agaðri vinnubrögð
og lært að halda mér við efnið.“
Leikhúsið lifandi
Pétur hefur sem fyrr sagði fengist
talsvert við tónsmíðar fyrir leikrit en
vinnur núna jafnframt í fyrsta sinn að
kvikmyndatónlist.
Hann samdi tónlistina við Draum-
leik í leikstjórn Benedikts Erlings-
sonar sem sett var upp í Borgarleik-
húsinu fyrr á árinu
Þessa dagana er hann ásamt
Höskuldi Ólafssyni að semja tónlist
við leikritið Örlagaeggin sem frum-
sýnt verður í Borgarleikhúsinu í
byrjun júní.
„Höskuldur samdi leikgerðina og
fékk mig til að hjálpa sér við að semja
nokkur lög,“ segir Pétur og ber sam-
starfi þeirra félaga vel söguna.
„Þetta hefur verið mjög áreynslu-
laust og skemmtilegt sem er svolítið
sérstakt finnst mér. Við vinnum mjög
vel saman og ritskoðum hvor annan
vandræðalaust.“
Kvikyndi er svo bíómynd í leik-
stjórn Ragnar Bragasonar sem hann
vinnur ásamt Vesturports-hópnum.
Það er í höndum Péturs að semja tón-
listina við myndina og hann segist
vera spenntur fyrir viðfangsefninu.
„Ég veit ekki enn hvað Ragnar vill
gera með tónlistina en hún verður að-
allega unnin í samvinnu við hann og
klipparann,“ segir Pétur.
„Ég held að þetta verði aðallega
samspil raddar, gítars og píanós og
eigi að vera svona persónuleg tónlist.
Ég er bara búinn að semja eitt lag en
hitt kemur þegar ég fæ að sjá mynd-
ina. Yfirleitt er þetta unnið þannig að
eftir klippingu er tónlistin unnin í
flýti við myndina. Í þetta sinn fæ ég,
held ég, smám saman efni sem búið
er að taka svo ég get verið að vinna
við þetta í sumar.“
Er það svipað að semja tónlist fyrir
bíómyndir og fyrir leikrit?
„Þetta er mín fyrsta bíómynd svo
það er ekki komin mikil reynsla á það
ennþá. Mér finnst mjög gaman að
vinna við leikhús og áhugavert að
fylgjast með frá fyrsta samlestri og
fram að sýningum,“ segir Pétur.
„Leikhúsið er svo lifandi, út af því
að þetta passi ekki allt saman. Með
kvikmynd er maður búinn að ganga
frá endanlegri útgáfu þegar myndin
kemur út og hún breytist svo ekkert
þannig að það er talsvert ólíkt.“
Pétur segist heillaður af fjölbreyti-
leikanum við tónlistarsköpun sína og
segist ekki vera tilbúinn til að festa
sig í einni tegund tónlistar.
„Mér finnst gaman að vita ekki
hvað ég verð að gera eftir eitt ár eða
tvö. Ég vona bara að ég verði jafn
heppinn með verkefni og ég hef verið
í ár,“ segir hann.
Ekki í Evróvisjón
En Pétur er ekki bara að semja
tónlist fyrir leikrit og kvikmyndir.
Hann er öflugur trúbador og iðinn
við að halda tónleika. Auk þess er
hann að taka upp plötu með eigin efni
sem áætlað er að komi út með haust-
inu.
„Ég er búin að taka upp tvö lög
með gömlu hljómsveitinni minni
Tristian sem verða á plötunni og svo
á ég eftir að fá fleiri hljóðfæraleikara
með mér fyrir hin lögin,“ segir Pétur.
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur
vakið mikla athygli í íslensku tón-
listarlífi að undanförnu en Pétur spil-
aði með honum á plötunni Mugi-
mama is this Monkey Music? og
samdi með honum lagið „Murr Murr“
sem var meðal annars valið lag ársins
á íslensku tónlistarverðlaunahátíð-
inni sem haldin var í febrúar síðast-
liðnum. Mugison sagði í viðtali við
Tónlist | Pétur Þór Benediktsson þykir efnilegur
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Þór: „Mér finnst gaman að vita ekki hvað ég verð að gera eftir eitt ár.
Ég vona bara að ég verði jafn heppinn með verkefni og ég hef verið í ár.“
Heillaður af fjölbreyti-
leikanum í tónlistinni
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is