Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 35
KIRKJUSTARF
hlusta á útvarp Lindina fm 102.9.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkomur kl. 11 á
sunnudögum. Einnig samkomur kl. 19.30
á föstudögum.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00. „Ár altarissakra-
mentisins“: Tilbeiðslustund er haldin í
Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að
messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugar-
daga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30. „Ár altarissakra-
mentisins“: Tilbeiðslustund á mánudögum
frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölfusi:
Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðviku-
daga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jósefs-
kirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár altaris-
sakramentisins“: Tilbeiðslustund á hverj-
um degi kl. 17.15. Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga:
Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukap-
ella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnu-
daga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska
kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnu-
daga: Messa kl. 11.00. „Ár altarissakra-
mentisins“: Tilbeiðslustund á hverjum
föstudegi kl. 17.00 og messa kl. 18.00.
STAFKIRKJAN í Heimaey: Lesmessa kl.
11. Brauðið verður brotið og almennur
safnaðarsöngur. Prestur sr. Þorvaldur Víð-
isson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Sunnudaginn 26.
júní kl. 11 verður í Lágafellskirkju sameig-
inleg guðsþjónusta safnaðanna frá Akra-
nesi, Fríkirkjunni í Hafnafirði og Lágafells-
kirkju. Prédikari verður Einar Eyjólfsson,
sóknarprestur Fríkirkjunnar í Hafnafirði.
Prestar kirknanna þjóna fyrir altari og lesa
lestra. Kirkjukórar safnaðanna syngja und-
ir stjórn Jónasar Þóris, Sveins Arnars Sæ-
mundssonar og Arnars Arnarssonar, en
samstarf kóranna er hluti af dagskrá
Kirkjudaganna.
Sameiginlegir tónleikar kirkjukóranna
þriggja verða í Hallgrímskirkju þ. 25. júní kl.
14. Sjá nánar dagskrá Kirkjudaganna á
www.kirkjan.is/kirkjudagar. Skundum í
kirkju og á Skólavörðuholt. Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgunsöng-
ur kl. 10.30. Ath. breyttan tíma. Prestur sr.
Yrsa Þórðardóttir. Organisti Antonia
Hevesi.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta fellur niður á sunnudag vegna
sumarleyfis.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Sameiginleg
guðsþjónusta þriggja safnaða verður í
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ kl. 11. Auk Frí-
kirkjunnar taka þátt söfnuðir Akraness og
Mosfellsbæjar og munu kórar þessara
þriggja safnaða syngja og leiða almennan
safnaðarsöng. Einar Eyjólfsson predikar og
þjónar ásamt öðrum prestum safnaðanna.
VÍDALÍNSKIRKJA: Þótt kirkjudögum sé
lokið starfar kirkjan áfram. Guðsþjónusta
kl. 11.00. Kór Vídalínskirkju leiðir safnað-
arsönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson.
Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Allir velkomnir.
Prestarnir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingarguðsþjón-
usta kl. 11 árd. Fermd verður Sigrún Eva
Kalatschan, Bandaríkjunum, p.t.a. Heiðar-
horni 12, Keflavík. Guðsþjónusta á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja kl. 13. Prestur
sr. Ólafur Oddur Jónsson. Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir leiðir söng við athöfnina. Organ-
isti Hákon Leifsson. Meðhjálpari Helga
Bjarnadóttir. Sjá: www.keflavikurkirkja.is.
HÓLADÓMKIRKJA: Kaþólskur dagur á Hól-
um. Guðþjónusta kl. 11. Sr. Jón A. Bald-
vinsson, vígslubiskup, þjónar fyrir altari.
Ólafur H. Torfason prédikar. Organisti
Haukur Guðlaugsson. Málþing um Guð-
mund góða kl. 14. Dr. Stefán Karlsson flyt-
ur erindi, Haukur Guðlaugsson leikur org-
elverk. Verið velkomin heim að Hólum!
AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Björn
Steinar Sólbergsson.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 11. Fermd
verður Bergdís Ósk Magnúsdóttir, búsett í
Bandaríkjunum. Sr. Arnaldur Bárðarson
þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja.
Organisti er Hjörtur Steinbergsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
SAFNKIRKJAN í Árbæ: Messa nk. sunnu-
dag kl. 14:00. Tilvalið tækifæri fyrir fjöl-
skyldufólk til að kynna fyrir börnunum lát-
laust helgihald í gamalli og friðsælli kirkju.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Eftir
athöfnina verður borinn fram léttur hádeg-
isverður í Safnaðarheimilinu. Þriðjudaga til
föstudaga kl. 10.00 er evangelísk-lúthersk
tíðagjörð ásamt fyrirbænum. Að henni lok-
inni kaffisopi og spjall. Á miðvikudags-
morgnum kl. 11.00 koma foreldrar saman
í lofti Safnaðarheimilis og ráða ráðum sín-
um. Sr. Gunnar Björnsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Prestur Kristján Valur Ingólfsson.
Kirkjudagar
KIRKJUDAGAR eru í dag á Skóla-
vörðuholtinu í Reykjavík. Kirkju-
dagar eru allt í senn fjölskylduhá-
tíð með fjölbreyttri dagskrá fyrir
alla aldurshópa, vettvangur til að
skiptast á skoðunum og hug-
myndum, staður til að kynnast fjöl-
þættu starfi kirkjunnar og til að
fræðast um kirkju og trúarlíf.
Áhersla er lögð á að kynna kirkj-
una sem samfélag og efla það til
þjónustu við Guð og náungann.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig eða
tilkynna fyrirfram í hvaða dagskrá
ætlunin er að taka þátt. Það eina
sem gildir er að mæta og njóta.
Upplýsingar um dagskrá Kirkju-
daga er á kirkjan.is/kirkjudagar.
Við undirbúning var leitað eftir
samstarfi og samvinnu við sóknir,
einstaklinga, stofnanir og fé-
lagasamtök, t.d. með kynningar,
sýningar, málstofur, helgihald eða
aðra dagskrá. Sérstaklega er leitað
til prófastsdæmanna um að þau
komi með beinum hætti að und-
irbúningi og framkvæmd Kirkju-
daganna. Og þannig fæddist dag-
skrá sem samanstendur nú af 160
dagskráratriðum. Á bak við þessi
160 dagskráratriði eru að minnsta
kosti 700 manns.
Langflestir þeirra sem koma að
dagskrá og undirbúningi Kirkju-
daga sinna þessum verkefnum í
sjálfboðnu starfi. Það er rík kirkja
sem býr yfir slíkum mannauði að
fjöldi sjálfboðaliða sameinist um
eitt verkefni. Kirkjudagar er verk-
efni Þjóðkirkjunnar allrar, gest-
gjafinn að þessu sinni eru nágrann-
arnir á Skólavörðuholtinu,
Hallgrímskirkja og Iðnskólinn og
vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir
höfðinglegar móttökur og alúð í
alla staði.
Kirkjudagar eru ókeypis og öll-
um er velkomið að njóta þeirrar
fjölbreyttu dagskrár sem fjöldi
fólks hefur undirbúið fyrir alla þá
sem vilja koma og eiga samfélag
innan um stóra og smáa á Kirkju-
dögum.
Pétur Björgvin Þorsteinsson,
djákni, formaður undirbúnings-
nefndar Kirkjudaga.
Hátíðarmessur
og tónleikar í
Hallgrímskirkju
Í TILEFNI Kirkjudaganna verður
hátíðarmessa í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 26. júní, kl. 11, í sam-
vinnu við söfnuði af landsbyggð-
inni. Sr. Elínborg Sturludóttir,
sóknarprestur í Grundarfirði, pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt
Óskari H. Óskarssyni, sóknarpresti
í Ólafsvík, og staðarpresti sr. Jóni
D. Hróbjartssyni. Sameiginlegur
kór safnaðanna á norðanverðu
Snæfellsnesi, Jöklakórinn, syngur
undir stjórn Friðriks Stefánssonar
organista. Einsöngvarar Veronica
Osterhammer og Hólmfríður Frið-
jónsdóttir. Þá verður gestakór frá
Danmörku í heimsókn í Hallgríms-
kirkju, en hann heitir Christians-
kirkens Drenge- og Mandskor frá
Fredricia. Stjórnandi kórsins er
Hans Chr. Magaard og orgelleikari
með kórnum er Toft Eriksen.
Danski kórinn syngur ásamt
„Jöklakórnum“ í messunni en hefur
síðan stutta tónleika eftir messuna.
Kl. 14 verður ensk messa í umsjá
sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
Kristniboðavígsla verður kl. 16.
Fyrstu tónleikar „Sumarkvölds
við orgelið“ verða kl. 20, en Hörður
Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju,
heldur fyrstu tónleikana. Á efnis-
skránni verða verk eftir Fresco-
baldi, Bruhns, Marchand, Bach,
Franck, Jón Nordal.
Kristniboðavígsla í
Hallgrímskirkju og
kristniboðssamkoma
SUNNUDAGINN 26. júní verður
hátíðarguðsþjónusta í Hallgríms-
kirkju kl. 16 þar sem biskup Ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, vígir
hjónin Helgu Vilborgu Sigurjóns-
dóttur og Kristján Þór Sverrisson
til kristniboða. Séra Sigurður Páls-
son sóknarprestur þjónar fyrir alt-
ari. Undanfarið ár hafa þau hjónin
dvalið í Noregi til undirbúnings
fyrir störf sín. Þau munu síðan í
byrjun ágúst halda til Eþíópíu og
starfa í Addis Abeba, við presta- og
leiðtogaskóla Mekane Yesu-
kirkjunnar sem er samstarfskirkja
Kristniboðssambandsins í landinu.
Meðal vígsluvotta verður Paulos
Shune frá Eþíópíu, en hann er einn
af forsetum kirkjunnar. Hann er
staddur hér á landi sem sérstakur
gestur Kirkjudaga. Paulos mun síð-
an tala á samkomu í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg kl. 20 um
kvöldið. Allir eru hjartanlega vel-
komnir bæði í vígsluna og á sam-
komuna.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
Á SUNNUDAG, 26. júní nk., kl. 14
verður haldin ensk messa í Hall-
grímskirkju. Prestur verður sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Kári Þormar. Guðrún Finn-
bjarnardóttir mun leiða almennan
safnaðarsöng.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja)
26th of June, at 2 pm. Holy Comm-
union. The fifth Sunday after Trin-
ity. Celebrant and Preacher: The
Revd Bjarni Þór Bjarnason. Org-
anist: Kári Þormar. Leading sin-
ger: Guðrún Finnbjarnardóttir.
Árbæingar og
Dalamenn bjóða
til sameiginlegrar
guðsþjónustu
SUNNUDAGINN 26. júní kl. 11
munu góðir gestir úr Dölunum og
nærsveitum heiðra Árbæjarsöfnuð
með nærveru sinni. Þessi heimsókn
er einn liðurinn í kirkjudögum sem
haldnir eru 24.–25. júní. Sókn-
arpresturinn í Búðardal og nær-
sveitum, Óskar Ingi Ingason, pré-
dikar í guðsþjónustunni og sr. Þór
Hauksson, sóknarprestur Árbæj-
arsafnaðar, þjónar fyrir altari.
Gestir úr Dölunum lesa ritning-
argreinar og flytja almenna kirkju-
bæn ásamt heimafólki í Árbænum.
Viljum við hvetja Dalamenn nær og
fjær og Árbæinga til að koma á
sunnudag og eiga góða stund í
kirkjunni og á eftir að þiggja léttar
veitingar sem sóknarnefnd Árbæj-
arkirkju býður til.
Sumar messur
eru á kvöldin
SÍÐASTA kvöldguðsþjónusta
Laugarneskirkju fyrir sumarleyfi
starfsfólks kirkjunnar verður á
morgun, sunnudag, kl. 20. Sig-
urbjörn Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri safnaðarins, leiðir
stundina, flytur hugvekju kvöldsins
og bænir. Nokkur orð og vitnisburð
flytur Ásta Sóllilja Sigurbjörns-
dóttir héraðsdómslögmaður. Mun
hún m.a. segja frá unglingastarfi
sem nefnist Adrenalín gegn ras-
isma. Það er verkefni á vegum mið-
borgarstarfs KFUM og KFUK og
kirkjunnar sem hefur það að mark-
miði að vinna gegn kynþátta-
fordómum ungs fólks.
Ritningarlestra kvöldsins flytja
þær Ólöf Davíðsdóttir og Auður
Pálsdóttir. Gísli Magnason verður
við orgelið og félagar úr kór kirkj-
unnar leiða kröftugan almennan
safnaðarsöng. Fyrir guðsþjón-
ustuna leikur Hannes Guðrúnarson
á gítar og eins undir bænagjörðinni
í lok guðsþjónustunnar.
Boðið verður upp á barnagæslu á
meðan á guðsþjónustunni stendur.
Kaffi, djús og rúsínur eftir stund-
ina. Allir velkomnir.
Kanadískur
biskup í Neskirkju
RAY Schultz biskup prédikar við
messu í Neskirkju sunnudaginn 26.
júní kl. 11. Schultz er landsbiskup
lúthersku kirkjunnar í Kanada og
er hér í boði Þjóðkirkjunnar ásamt
öðrum biskupi og tveimur prestum.
Þeir eru gestir prestastefnu sem
haldin var í vikunni og kirkjudaga
sem lýkur í dag, laugardag. Séra
Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir
altari og túlkar mál biskups og út-
deila þeir sakramenti ásamt séra
Halldór Reynissyni, verkefnisstjóra
fræðslumála á Biskupsstofu, og
Hönnu Johannessen, varaformanni
sóknarnefndar. Kór Neskirkju leið-
ir safnaðarsöng undir stjórn Reynis
Jónassonar organista. Safn-
aðarfólk er hvatt til að fjölmenna
og fagna góðum gesti.
Ástin í Fríkirkjunni
í Reykjavík
ÁSTIN verður umfjöllunarefnið í
kvöldguðsþjónustu Fríkirkjunnar í
Reykjavík nk. sunnudagskvöld kl.
20. Af því tilefni munu safn-
aðarpresturinn, Hjörtur Magni Jó-
hannsson, og Ása Björk Ólafs-
dóttir, guðfræðingur og
kirkjuvörður, flytja stuttar hug-
leiðingar um ástina. Fríkirkjufólk
les ritningarlestra. Anna Sigga
Helgadóttir sér um tónlistina.
Einnig munu þrjár tónlistarkonur
frá sitthvoru heimshorninu flytja
ástardúetta. Þær eru Heiða Árna-
dóttir, sópran frá Íslandi. Noa
Frenkel, contralto frá Ísrael, og
Krista Vincent, píanóleikari frá
Kanada.
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Pétur í
Laufási messar
í Langholtskirkju
Í TILEFNI af kirkjudögum heim-
sækja Langholtskirkju góðir gest-
ur norðan úr Þingeyjarsýslu og
flytja þar hátíðamessu kl. 11 sunnu-
daginn 26. júní. Séra Pétur Þór-
arinsson, prófastur í Laufási, pre-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti, sr. Jóni Helga Þór-
arinssyni. Kirkjukórar í Laufás-
prestakalli og Ljósavatns-
prestakalli syngja. Organistar og
kórstjórar eru: Dagný Péturs-
dóttir, Petra Björk Pálsdóttir og
Björg Sigurbjörnsdóttir. Kristjana
Helgadóttir leikur á flautu. Kaffi
og kleinur eftir messuna.
Sr. Sighvatur
í Grensáskirkju
SR. SIGHVATUR Karlsson, sókn-
arprestur á Húsavík, prédikar við
guðsþjónustu í Grensáskirkju á
morgun, 26. júní, kl. 11.
Heimsókn hans í Grensáskirkju
er í tengslum við Kirkjudaga sem
haldnir eru í Reykjavík nú um
helgina. Burtfluttir Húsvíkingar og
sveitungar á faraldsfæti eru sér-
staklega hvattir til að koma og
hlýða á boðskap sóknarprestsins á
staðnum. Sr. Sighvatur situr á
kirkjuþingi fyrir presta á Norð-
austurlandi.
Æðruleysismessa
Akureyringa
í Dómkirkjunni
Í TENGSLUM við kirkjudaga kem-
ur æðruleysismessuhópur Ak-
ureyrarkirkju í heimsókn til okkar
í æðruleysissamfélagi Dómkirkj-
unnar. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson býður þau velkomin. Sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir leiðir
samkomuna og prédikar. Tónlist-
arfólkið er þau: Arna Valsdóttir og
Inga Eydal og Eiríkur Bóasson, gít-
ar, og Stefán Ingólfsson á bassa.
Þau sem koma gjarnan í æðruleys-
ismessur Dómkirkjunnar eru sér-
staklega hvött til að koma og taka á
móti samherjunum frá Akureyri.
Allir eru velkomnir.
Kvennakirkjan í
Strandarkirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Strandarkirkju í Selvogi
sunnudaginn 26. júní kl. 20.30.
Messan verður með léttu sniði að
hætti Kvennakirkjunnar.
Hugleiðingar flytja Ingibjörg
María Gísladóttir guðfræðinemi og
Þóra Björnsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri. Kór Kvennakirkjunnar leiðir
söng við undirleik Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur. Á undan og eftir
messu verður safnast saman í
handverkshúsi Sigurbjargar Eyj-
ólfsdóttur í Þorkelsgerði.
Kanadískur
biskup heimsækir
Bústaðakirkju
SR. RICHARD M. Smith, biskup frá
Manitoba í Kanada, mun predika í
Bústaðakirkju næstkomandi
sunnudag 26. júní klukkan 11.
Hann mun einnig þjóna fyrir altari
ásamt sóknarpresti og sr. Gunnari
Rúnari Matthíassyni sjúkra-
húspresti. Eftir guðsþjónustu verð-
ur kirkjugestum boðið uppá kaffi í
safnaðarheimili kirkjunnar. Rich-
ard M. Smith kemur hingað til
lands í tengslum við prestastefnu
og kirkjudaga. Viljum hvetja sem
flesta til þátttöku í guðsþjónustu
þessa sunnudags og um leið kynn-
ast starfi kirkjunnar í Manitoba.
Sr. Pálmi Matthíasson.
Paul Johnson
í Áskirkju
PAUL Johnson, prestur í Lúth-
ersku kirkjunni í Kanada, er hér í
heimsókn í tilefni prestastefn-
unnar. Hann mun predika í messu í
Áskirkju kl 11 á sunnnudaginn.
Sr. Karl V. Matthíasson mun
þjóna fyrir altari en Margrét Svav-
arsdóttir djákni mun lesa ritning-
arlestra. Boðið verður upp á léttar
veitingar að guðsþjónustu lokinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Sverrir
M