Morgunblaðið - 25.06.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.06.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 23 MINNSTAÐUR Selfoss | „Núna er þetta allt saman að koma upp og landið er að breyt- ast og taka á sig nýjan svip,“ segir Sigurður Hermannsson, skógar- bóndi í Gerðakoti í Ölfusi, sem byrjaði skógrækt fyrir átta árum. Skógræktarsvæði Sigurðar er á Neðrafjalli, í landgræðslugirðingu fyrir ofan Hjallahverfið í Ölfusi. Þar er hann búinn að planta um 60 þús- und trjám af mörgum gerðum. „Ég hef plantað á hverju ári nokkur þúsund trjám,“ segir Sig- urður sem er með nokkrar tegundir í takinu og plantar ekki bara skógartrjám heldur líka berja- runnum til að fá tilbreytingu í skóginn. Hann kveðst annast útplöntunina sjálfur og enda sé þetta starf sem hann hafi kosið sér eftir að hann lenti í slysi. „Ég sá að þetta var nokkuð sem hentaði mér og hef gert þetta allt einsamall. Það er nóg fyrir mig að gróðursetja nokkur hundruð plöntur á dag enda er þetta vinnan mín og þetta heldur í mér heils- unni.“ Hann segist taka daginn snemma og er búinn að skapa sér ákveðið verklag við gróðursetningu og umhirðu á landinu. „Ég hef mjög gaman af þessari ræktun,“ segir Sigurður sem er einn af fyrstu nem- endunum sem útskrifuðust úr skógarverkefninu Grænni skógar í maí í fyrra. Tilraunir með áburðargjöf Auk þess að planta út trjám í landið stendur Sig- urður að tilraunum í samstarfi við Hrein Óskarsson á Selfossi en þær ganga út á að rannsaka áhrif mismun- andi áburðargjafar. Landinu er skipt niður í blokkir og þeim síðan skipt í marga reiti. „Við erum núna að sjá ákveðinn árangur af þessum til- raunum,“ segir Sigurður sem er mikill náttúruunnandi. „Mér hefur alltaf verið annt um landið. Þegar maður fer af stað sér maður auðvitað fyrir sér að þetta verði skógur sem gefi af sér timbur. Landið mun gefa margfalt til baka kostnaðinn við plönturnar en þetta verkefni er hluti af Suðurlandsskógum og því kerfi,“ segir Sigurður og bendir einnig á að þess sé í raun ekki svo langt að bíða að skóg- urinn verði til. Það séu víða 20 til 30 ára gamlir reitir sem farn- ir séu að gefa af sér og nefnir Snæfoksstaði í Grímsnesi í því efni. „Þetta er ræktun inn í framtíðina. Ég mun sjá eitthvað af þessu en þetta er fyrst og fremst fyrir jörðina gert,“ segir Sigurður sem fer reglulega um landið allt árið og tekur myndir sem verða góð heimild um land- mótunina sem skógræktin veld- ur. Verður eftirsótt svæði Hvert sem litið er inni á Neðrafjalli má sjá plöntur koma upp úr móanum en landið hefur verið unnið með skógarherfi til að skapa betri aðstæður fyrir plönturnar. Af fjallinu sér yfir Ölfusið og ósa Ölfusár og vel má gera sér í hugarlund að þetta verði eftirsótt svæði þegar trén hafa náð nokkurra metra hæð. Það er greinilegt að Sigurði er annt um landið og þessa framkvæmd sem fer vel af stað þrátt fyrir áföll fyrsta árið en þá lenti hann í frosti með plönturnar og margar drápust. „Það er gaman að rækta skóg, maður getur ekki sagt annað og þetta er gott verkefni,“ segir Sigurður. Sigurður Hermannsson er með 60 ha skógræktarland Þetta er allt að koma upp og taka á sig svip Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Skógarbóndi Sigurður Hermannsson í Gerðakoti í Ölfusi með myndarlega unga ösp í skógræktinni á Neðrafjalli. Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | Skrifað hefur verið undir samstarfssamning til fjögurra ára um starfsemi Íslensku körfubolta- akademíunnar í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Um er að ræða þríhliða samning milli skólans, Sideline Sports sem framleiðir hugbúnað til íþróttaþjálfunar og Sveitarfélagsins Árborgar. Verkefnið byggist á því að sextán afrekspiltar í körfubolta stundi nám í FSu en njóti jafnframt sérstakrar þjálfunar í körfuknattleik frá þjálf- urum Sideline Sports og keppi síðan sem lið í mótum Körfuknattleiks- sambands Íslands. Skólinn leggur til æfingaaðstöðu í Iðu, nýju íþróttahúsi skólans, og tekur frá íbúðir í nýju nemendagörðunum Fosstúni. Æfing- ar piltanna fara fram snemma á morgnana áður en kennsla hefst en einnig verður skapað rými í stunda- töflunni til æfinga yfir daginn. Iða verður heimavöllur liðsins. Meginmarkmið þessa verkefnis er að gera afreksíþróttamönnum það kleift að ná samtímis bestum árangri í námi og íþróttinni, að flétta saman nám og þjálfun við bestu aðstæður. Gert er ráð fyrir að meðlimir aka- demíunnar næsta vetur komi frá Reykjavíkursvæðinu, Akranesi, Reykjanesbæ, Stykkishólmi og Sel- fossi og nágrenni og að fjórir ein- staklingar verði í hverjum árgangi skólans. „Mér finnst þetta mjög spennandi verkefni. Þessir strákar verða eins og hverjir aðrir nemendur hérna. Mér líst vel á að sérþörfum þessara nem- enda sé sinnt á þennan hátt og það er líka rík áhersla á að strákarnir standi sig vel í námi,“ sagði Sigurður Sigur- sveinsson skólameistari FSu. Samvinna Einar Njálsson bæjarstjóri, Sigurður Sigursveinsson skóla- meistari og Brynjar Karl Sigurðsson frá Sideline Sports handsala samning. Körfuboltaakademía tekur til starfa við Fjölbrautaskóla Suðurlands Akademían send- ir lið í mót KKÍ Hveragerði | Kristján Runólfsson hefur flutt minjasafn sitt frá Sauðár- króki til Hveragerðis. Við opnun safnsins sagði Kristján að þegar hann opnaði safn sitt á Sauðárkróki hefði forseti lýðveldisins opnað þar. Hér yrði það ekki minni maður sem klippti á borðann. Fyrir valinu varð barnabarnið Elís Aron Sigfússon, sem er á öðru ári, en honum til að- stoðar var móðir hans, Hugrún Ómarsdóttir. Þegar fréttaritari leit vinn í safnið var rólegt og þægilegt andrúmsloft og tíminn virtist stöðvast um stund. Það er einkar fróðlegt að ganga um safnið með Kristjáni því hann kann sögu allra hluta og getur rakið ættir eigenda þeirra. Það er með ólíkindum að hlusta á hann segja frá öllu því sem fyrir augu ber. Allt verður svo lifandi og áhugavert. Byrjaði þriggja ára að safna Kristján ólst upp að Brúarlandi í Deildardal í Skagafirði, fór 13 ára að heiman, og var á Eyrarbakka til 17 ára aldurs. Haustið 1973 fór hann aft- ur norður og bjó á Sauðárkróki þang- að til í nóvember sl. þegar hann flutti til Hveragerðis. Spurður af hverju hann hafi flutt í Hveragerði segir Kristján að það hafi verið vegna þess að þau hjónin, hann og Ragnhildur Guðmundsdóttir, hafi átt hús hér í bænum og hann var bú- inn að ímynda sér að hér væri gott að búa. „Það hefur komið á daginn, hér er gott mannlíf.“ Einnig skiptir máli að kona Kristjáns er úr Hveragerði. Þau Ragnhildur eiga þrjú börn hvort og sameiginlega eiga þau sjö barna- börn, ef vel er talið, eins og Kristján komst að orði. – Hvernig hófst áhugi á söfnun gamalla muna? Kristján segist ekki muna hversu gamall hann var þegar hann hóf söfn- un hluta. „Mér er sagt að ég hafi ver- ið þriggja ára, en það var auðvitað bara í smáum stíl. Þetta vildi þannig til að æskuheimili mitt, Brúarland, er landnámsjörð og þar var rofinn gam- all öskuhaugur. Það var grafin súr- heysgryfja í hauginn, sem var þá hola í jörðina og ég eins og aðrir krakkar var að leika mér í mold og drullu. Þarna fór að finnast ýmislegt gamalt dót sem ég tók til handargagns. Ég var því alla mína barnæsku að grafa í þessum haug og leika fornleifafræð- ing og stundum með mann á launum. Bróðir minn, Ásgeir var ráðinn átta ára gamall til að grafa með mér og fékk 25 aura á tímann. Þá hef ég verið tólf ára sjálfur. Svo smitaðist ég seinna enn frekar af þessari bakteríu þegar ég kynntist manni á Eyrarbakka sem hét Sigurð- ur Guðjónsson og var forgöngumað- ur að sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Þannig fékk ég hugmyndina að því að setja einhverntíma upp safn í minni heimasveit og horfði þá til gamla barnaskólans sem ég gekk sjálfur í. Það varð reyndar ekki. En ekki er öll nótt úti um það enn, því það húsnæði er ekkert notað í dag og gæti orðið að safni. Hver veit.“ – Urðu kaflaskil í söfnuninni á ein- hverjum tíma? „Þegar ég ákvað að nota bílskúrinn minn undir draslið, þá varð vendi- punktur í söfnuninni. Það var ekki fyrr en upp úr 1985. Safnið var ekki mikið að vöxtum þegar þarna var komið en jókst hröðum skrefum upp frá því. Og litlu síðar fór ég að safna handritum, skjölum og ljósmyndum. Þegar fólk var að koma með gamalt dót til mín þá leyndist allt mögulegt inni á milli. Oft var það þannig að fólk kom með kassa með dóti í og sagði þá gjarnan „Hirtu það sem þú vilt og hentu hinu.“ Meira að segja eftir að ég kom hingað í Hveragerði hefur fólk komið með kassa með dóti til mín.“ – Er allt nýtilegt eða er einhverju hent? „Ég hendi helst ekki miklu, ég hendi kannski ef ég fæ slitur úr ein- hverjum tímaritum og á jafnvel ann- að eintak heilt. Annars má segja að ég hafi safnað öllu sem tengist ís- lenskri menningu, nema því sem tengist nútíma tækniminjum, þvotta- vélum ísskápum og þess háttar hlut- um.“ Einyrki en til í samstarf Kristján var í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga á Sauðár- króki, en í Hveragerði vinnur hann allt á eigin forsendum. Hann sér þó möguleika á því að hefja samstarf við Grunnskólann í Hveragerði og jafn- vel fleiri skóla. Nemendur kæmu í safnaheimsókn og kynntust lífi for- feðranna. Þannig mætti vinna verk- efni í skólanum eftir heimsókn á safn- ið. Kristján horfir í forundran á fréttaritara þegar hann spyr hvort í nýja safninu séu allir gripirnir hans. „Nei, það eru um 1500 munir á þess- ari sýningu, en alls á ég skráða dálítið á þriðja þúsund muni. Myndirnar sem ég er búinn að skrá eru á fjórða þúsund og samt á ég eftir að skrá æði margar myndir ennþá. Minjasafnið í Austurmörk 2 er opið frá klukkan 14 til 18 alla daga og Kristján stendur sjálfur vaktina, auk þess sem hann vinnur í Hverabakaríi á morgnana. Kristján Runólfsson flytur minjasafn sitt milli landshluta og hefur opnað það í Hveragerði Hendi helst ekki neinu Eftir Margréti Ísaksdóttur Saumar Fjöldi gamalla saumavéla er á safni Kristjáns í Hveragerði. Hér sést ein gömul og góð. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Á nýjum stað Hjónin Ragnhildur Guðmundsdóttir og Kristján Runólfsson við opnun safnsins í Hveragerði. Safnið á Kristján og rekur sjálfur. ÁRBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.