Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 1
Enn ein
fjöður í hatt
Hamrahlíðarkórinn gerir storm-
andi lukku | Úr vesturheimi
Lesbók | Af músum og mönnum Batman innblásinn af Íslandi
Börn | Sól, sól skín á mig Gaman í Húsdýragarðinum
Íþróttir | Langt ferðalag hjá FH-ingum Þriðji meistaratitill Spurs
HINN 13. ágúst hefur ný sjónvarps-
stöð útsendingar hér á landi, Enski
boltinn, en eins og nafnið gefur til
kynna verður hún
eingöngu til-
einkuð ensku
knattspyrnunni.
Nýja sjón-
varpsrásin, sem
er í eigu Íslenska
sjónvarpsfélags-
ins sem einnig
rekur Skjá einn,
gerir áhuga-
mönnum um
enska boltann
kleift að sjá alla
heima- og útileiki síns liðs og fylgjast
með gangi mála hjá keppinautunum.
Stöðin áformar að sýna yfir 350 leiki
í vetur eða 250 fleiri en áður, auk
þess að sýna ýmsa aðra dagskrárliði
tileinkaða ensku knattspyrnunni.
Útsendingar Enska boltans verða
fluttar um dreifikerfi Símans, Sím-
inn Sjónvarp, bæði gegnum ADSL
og Breiðbandið.
Að sögn Jóns Hauks Jenssonar
framleiðanda er einungis ein önnur
stöð í Hollandi, að vitað er, sem sýnir
jafn marga leiki og íslenska stöðin.
350 leikir í
boði í enska
boltanum
Eiður Smári
Guðjohnsen
Somerset. Reuters. | Hátíðargestir á tónlistarhá-
tíðinni í Glastonbury í Englandi létu rok og
rigningu ekki á sig fá og komu sér „vel“ fyrir í
sínum útilegutjöldum er hátíðin hófst form-
lega í gær. Hún mun standa fram yfir helgi.
Þeir sem höfðu tekið forskot á sæluna vöknuðu
upp í gegnblautum tjöldum í gærmorgun og
við blasti eitt stórt moldarflag og sumstaðar
fóru tjöldin á bólakaf og óðu gestir vatns-
flauminn sem náði þeim í mitti. Talið er að yfir
150 þúsund manns sæki hátíðina í ár. Hún er
fjölmennasta tónlistarhátíð sem haldin er á
Bretlandi. Spáð er áframhaldandi skúrum á
svæðinu um helgina.
600 lögreglumenn verða á vakt á svæðinu þá
þrjá daga sem hátíðin stendur yfir og er kostn-
aður við löggæslu vel yfir 100 milljónum
króna.
Hljómsveitir á borð við Coldplay, White Stri-
pes, The Doves og The Killers koma fram á há-
tíðinni.
Glastonburyhátíðin er haldin í Somerset á
Englandi. Fyrirhugað er að flytja hana um set
á næsta ári.
Reuters
Flóð í fjörinu í Glastonbury
ENGIN viðskipti hafa nokkru sinni
verið með stofnbréf í SPH þrátt
fyrir margítrekaðar óskir um kaup
á bréfum. Þetta segir í tilkynningu
sem stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarð-
ar, SPH, sendi frá sér í gær.
Viðskipti með stofnfjárbréf í
sparisjóði eru, lögum samkvæmt,
háð samþykki stjórnar hans. Stjórn
SPH segist ekki munu standa í vegi
fyrir því ef stofnfjáraðilar vilja
framselja bréf sín. Beiðni þess efnis
hafi hins vegar ekki borist stjórn
sjóðsins. „Berist slík beiðni verður
hún að sjálfsögðu tekin fyrir og full-
nægi hún skilyrðum laga mun sitj-
andi stjórn væntanlega taka hana
til greina,“ segir stjórn SPH.
Stjórnin lýsir jafnframt yfir vilja
sínum til að fjölga stofnfjáraðilum,
sem nú séu 47 talsins. Til þess þurfi
hins vegar stuðning 2/3 hluta at-
kvæða á aðalfundi en þann styrk
hafi stjórnin ekki í stofnfjáraðila-
hópnum. „Með hliðsjón af þeirri
þróun sem orðið hefur hjá þeim
fjórum sparisjóðum sem farið hafa
út í það að auka stofnfé sitt og setja
viðskipti með stofnbréf jafnframt
frjáls er ekkert óeðlilegt við það að
fjárfestar sýni bréfum í SPH
áhuga,“ segir í tilkynningu stjórn-
arinnar.
Fjármálaeftirlitið, FME, sendi í
gær öllum stofnfjáreigendum í
SPH bréf þar sem minnt er á að að-
ilum sem hyggist eignast virkan
eignarhlut í fjármálafyrirtæki beri,
lögum samkvæmt, að leita sam-
þykkis Fjármálaeftirlitsins fyrir-
fram.
Óskar FME eftir upplýsingum
frá stofnfjáreigendunum um hvort
þeir hafi selt stofnfé sitt í SPH,
þeim borist tilboð í það eða hvort
þeir hafi gerst aðilar að samkomu-
lagi um beitingu atkvæðisréttar á
aðalfundi sjóðsins í apríl sl. Segist
FME hafa til skoðunar hvort virkur
eignarhlutur [10% eða meira] sé til
staðar í sparisjóðnum og hvort fyr-
irætlanir séu um sölu stofnfjár í
sparisjóðnum eða hvort slík sala
hafi átt sér stað.
Fjármálaeftirlitið óskar svara frá stofnfjárfestum
Engin viðskipti
með stofnbréf SPH
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
Vilja fjölga |16
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti tók
á móti forsætisráðherra Íraks í Hvíta hús-
inu í Washington í gær. Á blaðamanna-
fundi að viðræðunum loknum leituðust þeir
við að bregðast við vaxandi efasemdum í
Bandaríkjunum um
hernaðinn í Írak.
„Markmið óvinarins
er að bola okkur út úr
landinu áður en Írakar
ná að koma sér upp
öruggri, lýðræðislegri
ríkisstjórn. Það skal
þeim ekki takast,“ sagði
Bush forseti eftir fund-
inn með Ibrahim al-Ja-
faari.
Bush sagði ógerlegt
að ræða áætlun um hugsanlega heim-
kvaðningu herliðsins í Írak. „Það stoðar
ekkert að smíða tímaáætlun. Hvað eigum
við að gera, rétta óvininum áætlunina og
segja: „Hér er áætlunin, gjörið svo vel að
bíða þangað til við erum farnir“?“
Al-Jaafari tók í sama streng og sagðist
vonast til þess að „herra Bush [myndi]
reyna að taka upp einhvers konar Mars-
hall-aðstoð í Írak og hún [yrði] nefnd Bush-
áætlunin.“ Hann sagði ennfremur að Írak-
ar myndu aldrei gleyma þeim stuðningi
sem Bandaríkjamenn hefðu veitt þjóðinni.
Ráðist á bandaríska hermenn
Um sama leyti og Bush og al-Jaafari
hétu „endanlegum sigri“ yfir uppreisnar-
mönnum í Írak var sjálfsmorðsárás gerð að
hópi bandarískra hermanna í borginni
Fallujah. Tveir létu lífið og þrettán særð-
ust. Fjögurra er saknað, og er gert ráð fyr-
ir að þeir séu látnir. Annar þeirra sem lét-
ust var kona, sem og ellefu þeirra sem
særðust. Al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin
gengust við ódæðinu. Þrjátíu og sex banda-
rískar konur hafa dáið í Írak frá því að
Bush blés til herfarar gegn stjórn Sadd-
ams Hússein.
Heita
„endanleg-
um sigri“
36 bandarískar konur
meðal látinna í Írak
George W. Bush
Harðlínumaðurinn Mahmood Ahmadinejad
virtist seint í gærkvöldi hafa sigrað í for-
setakosningunum í Íran. „Þetta er búið
spil,“ hafði AFP-fréttastofan eftir nánum
aðstoðarmanni Akbar Hashemi Rafsanjani,
fyrrum forseta, sem talinn hafði verið nán-
ast öruggur um sigur. Tölurnar sem birtar
voru í gærkvöldi komu því mjög á óvart.
Heimildir hermdu að Ahmadinejad hefði
fengið 60% greiddra atkvæða þegar 13
milljónir þeirra höfðu verið taldar. Opinber-
ar tölur innanríkisráðuneytisins sem birtar
voru um miðnætti kváðu á um að hann hefði
hlotið 58% greiddra atkvæða.
Kosningarnar eru taldar hinar mikilvæg-
ustu frá því að hreintrúarmenn tóku völdin í
Íran árið 1979. Rafsanjani hafði lagt áherslu
á að hann væri fulltrúi umbótaafla í landinu
en svo virtist sem málflutningur Ahmadin-
ejad hefði náð til kjósenda, einkum það lof-
orð hans að nýta olíuauðinn í þágu hinna fá-
tæku.
Óvænt úr-
slit í Íran ?
♦♦♦
Lesbók, Börn, Íþróttir og Lifun í dag
STOFNAÐ 1913 169. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is