Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ertu göngugarpur?
edda.is
Nú færð þú þessar
einstöku gönguleiða-
bækur eftir Pál Ásgeir
Ásgeirsson á sérstöku
sumartilboði - Hér er sagt
frá því helsta sem fyrir
augu ber og leiðbeint um
útbúnað og kost. Að
fjölmörgu er að hyggja
áður en lagt er í slíkar
ævintýraferðir!
Tilboðsverð
1.490 kr.
Fullt verð
2.990 / 2.490
Sumartilboð
KOSIÐ UM STÆKKUN?
Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar
segir í nefndaráliti að hún kysi helst
að áform um stækkun álversins í
Straumsvík yrðu lögð til hliðar. Það
þjóni hagsmunum Hafnfirðinga best
til lengdar að ekki verði tekið meira
land svo nærri íbúðabyggð undir
mengandi stóriðju. Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að
álitið sé ekki í takt við samhljóða álit
bæjarstjórnar og skipulagsnefndar.
Hann segir að til greina komi að
Hafnfirðingar kjósi um hvort veita
eigi álverinu starfsleyfi um leið og
kosið verður um tillögu um samein-
ingu Hafnarfjarðar og Voga í haust.
Endurfundir um helgina
Björgunarafreksins þegar áhöfn
togarans Egils rauða frá Neskaup-
stað var bjargað fyrir rúmum fimm-
tíu árum verður minnst um helgina.
Togarinn strandaði að kvöldi 26. jan-
úar 1955 undir Grænuhlíð. Í áhöfn
skipsins voru 34 sjómenn. 29 var
bjargað en fimm fórust.
Engin viðskipti
Engin viðskipti hafa nokkru sinni
verið með stofnbréf í Sparisjóði
Hafnarfjarðar þrátt fyrir margítrek-
aðar óskir um kaup á bréfum. Þetta
kemur fram í tilkynningu stjórnar
SPH frá því í gær. Viðskipti með
stofnfjárbréf í sparisjóði eru, lögum
samkvæmt, háð samþykki stjórnar
hans. Stjórn SPH segist ekki munu
standa í vegi fyrir því ef stofnfjár-
aðilar vilja framselja bréf sín. Beiðni
þess efnis hafi hins vegar ekki borist
stjórn sjóðsins.
Hittust í Hvíta húsinu
George W. Bush Bandaríkja-
forseti tók á móti forsætisráðherra
Íraks, Ibrahim al-Jafaari, í Hvíta
húsinu í Washington í gær. Á blaða-
mannafundi að viðræðunum loknum
leituðust þeir við að bregðast við
vaxandi efasemdum í Bandaríkj-
unum um hernaðinn í Írak. Um
sama leyti og Bus og al-Jaafari áttu
fund í Hvíta húsinu og hétu „endan-
legum sigri“ yfir uppreisnarmönn-
um í Írak var sjálfsmorðsárás gerð
að hópi bandarískra hermanna í
borginni Fallujah.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 32/34
Úr verinu 12 Kirkjustarf 34/35
Viðskipti 16 Minningar 36/39
Erlent 18/19 Skák 39
Akureyri 22 Myndasögur 44
Suðurnes 22 Dagbók 44
Árborg 23 Víkverji 44
Listir 24 Velvakandi 45
Ferðalög 25/27 Staður og stund 46
Daglegt líf 30 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 32 Staksteinar 55
Umræðan 32/34 Veður 55
* * *
ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra segir ítrekaða áskorun meirihluta
menntaráðs Reykjavíkur um að fá að koma að
endurskoðun grunnskólalaganna makalaust upp-
hlaup og tækifærismennsku. Hún segir að í yf-
irlýsingum Stefáns Jóns Hafstein, formanns
menntaráðs Reykjavíkur, komi fram hve illa upp-
lýstur hann sé um málið.
Meirihluti menntaráðs ítrekaði í gær áskorun
sína til menntamálaráðuneytisins um að fá að
koma að endurskoðun grunnskólalaganna. Í
fréttatilkynningu frá Stefáni Jóni í gær segir m.a.
að ráðherra hafi margoft boðað endurskoðun lag-
anna en ekkert formlegt samráð hafi verið haft við
Reykjavíkurborg eða Samband íslenskra sveitar-
félaga.
Ráðherra svarar því hins vegar til að sú vinna
sem hafi átt sér stað innan ráðuneytisins um end-
urskoðun laganna hafi verið í fullu samráði við
Samband íslenskra sveitarfélaga. „Það var ekki
síst að frumkvæði þeirra sem það var ákveðið að
þessi vinna yrði unnin innan ráðuneytisins,“ segir
hún. „Þetta hefur allt verið unnið í góðri samvinnu
og hefur lögfræðingur sveitarfélaganna m.a. kom-
ið að þeirri vinnu.“
Þorgerður segir að vinnan sé komin á lokastig
og að ætlunin sé að halda fundi með hagsmuna-
aðilum á næstunni. „Það er meira að segja búið að
festa niður fund með fulltrúum sveitarfélaga út af
þessu máli í fyrstu viku júlímánaðar og ég get ekki
gert að því þótt það sé sambandsleysi þarna á
milli.“
Ráðherra segir að Reykjavíkurborg hafi óskað
eftir sérstakri aðkomu að þessu máli og að hún
velti því fyrir sér hvort það sé til marks um að það
sé stefna borgaryfirvalda að slíta samstarfinu inn-
an Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Ég verð að
hafa einhvern samráðsvettvang,“ segir hún. „Ég
ætla ekki að mismuna sveitarfélögum eftir stærð
og finnst það mikið umhugsunarefni og ekki mjög
höfuðborgarlegt ef Reykjavíkurborg vill að það
verði gert.“
Í borgarstjóraleik
Þorgerður segist telja að yfirlýsingar sínar um
að hún vilji styrkja réttarstöðu einkarekinna skóla
spili inn í þetta mál; greinilegt sé að þær hafi farið
í taugarnar á fulltrúum R-listans.
Spurð um tengsl á milli þessa máls og athuga-
semda forystumanna Kennarasambandsins við
vinnubrögð hennar fyrr í þessum mánuði segir
Þorgerður þau skýr. „Þetta er bara pólitík. Þetta
er skólabókardæmi um tækifærismennsku í póli-
tík. Stefán Jón hefur greinilega ákveðið að sæta
lagi núna bæði vegna þessa að Kennarasambandið
hefur farið á undan og til að dreifa athyglinni frá
því sem er að gerast hjá þeim. Hann er bara í
borgarstjóraleik sem hann er að byggja upp.“
Í fréttatilkynningu frá Stefáni Jóni segir að í
nóvember í fyrra hafi fengist svar frá ráðuneytinu
um að fyrir lægju drög að frumvarpi eftir vinnu
starfshóps innan ráðuneytisins. „Reykjavíkurborg
hefur ekki fengið neina aðkomu að málinu, og er
þó stærsti veitandi grunnskólaþjónustu í landinu.
Starfsmaður Sambands sveitarfélaga hefur aðeins
verið áheyrnarfulltrúi í sérfræðingahópi innan
ráðuneytis.“
Þá segir Stefán Jón: „Sem formaður mennta-
ráðs lýsi ég eftir áformum um endurskoðun
grunnskólalaga og ítreka kröfur stærsta sveitar-
félagsins sem hefur 1⁄3 allra grunnskólabarna í
landinu í skólum sínum um að koma að gerð frum-
varps áður en það er lagt fram.“
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í menntaráði
Reykjavíkur segja í bókun sem þeir lögðu fram á
fundi ráðsins í gær að staða endurskoðunar
grunnskólalaganna hafi verið kynnt í stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Þar eigi m.a. sæti
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri
Reykjavíkur, og Árni Þór Sigurðsson borgar-
fulltrúi.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins undrast að for-
maður menntaráðs og fulltrúi R-listans sé ekki
upplýstur um starf sem fram fer á vettvangi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og hafi ekki rætt um
málið við borgarstjóra heldur búi sér til pólitíska
stöðu sem formaður menntaráðs,“ segir m.a. í bók-
uninni.
Meirihluti menntaráðs Reykjavíkur vill koma að endurskoðun grunnskólalaganna
Upphlaup og tækifæris-
mennska segir ráðherra
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur og Örnu Schram
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær rúmlega þrítugan
mann, Óla Hauk Valtýsson, í 6 og
hálfs árs fangelsi fyrir stórfelld
fíkniefnabrot og meðákærða,
Tryggva Lárusson, 26 ára, í 6 ára
fangelsi. Þá var þriðji maðurinn
dæmdur í 6 mánaða fangelsi og kona,
sem einnig var ákærð í málinu, í 4
mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá
var fimmti sakborningurinn dæmd-
ur í 40 þúsund kr. sekt.
Stærstu ákæruliðirnir vörðuðu
smygl á tæpum 8 kg af amfetamíni
frá Hollandi með Dettifossi í fyrra,
og 2 þúsund skömmtum af LSD auk
þess sem ákært var fyrir vörslu á 4
þúsund skömmtum af LSD í Hol-
landi.
Talið var sannað með gögnum og
skýlausri játningu þess sem þyngst-
an dóminn hlaut að hann hefði gerst
sekur um amfetamínsmyglið. Hann
var talinn hafa tekið einn ákvörðun
um flutningsleiðina til landsins.
Framburður hans var talinn mjög
mikilvægur við að upplýsa sakarefn-
ið og var það virt honum til refsi-
lækkunar auk játningar hans.
Sá sem fékk 6 ára dóm neitaði sök
en framburður hans fyrir dómi þótti
út í hött. Sannað þótti að hann hefði í
fylgd með óþekktum vitorðsmanni
keypt amfetamínið í Hollandi og
áformað að taka við því á Íslandi.
Málið dæmdi Guðjón St. Mar-
teinsson. Verjendur voru Jón Magn-
ússon hrl., Jón Egilsson hdl., Guð-
bjarni Eggertsson hdl., Brynjar
Níelsson hrl. og Róbert Árni Hreið-
arsson hdl. Málið sótti Sigríður E.
Kjartansdóttir fyrir ákæruvaldið.
6½ árs fangelsi
fyrir smygl
Selfoss | Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður á Selfossi bauð Forn-
bílaklúbbinn velkominn í Árnessýslu á
fornbílamótið á Selfossi í setningaræðu
sem hann hélt á Kambabrún þar sem
góður hópur fólks var mættur. Sævar
Pétursson formaður Fornbílaklúbbs Ís-
lands kom akandi á Kambabrún með
Ólaf Helga sýslumann í framsætinu.
Eftir ræðu Ólafs Helga fóru þeir síðan
akandi niður gamla veginn í Kömb-
unum í gamla Fordinum. Áður en lagt
var af stað notaði Ólafur tækifærið og
tók bílinn í skyndiskoðun sem Fordinn
stóðst með ágætum. Sýslumaður sagð-
ist nýta hvert tækifæri sem gæfist til
að hvetja til varfærni í umferðinni.
Hann hvatti alla fornbílaeigendur og
aðra til þess að fara varlega í umferð-
inni, sagðist vita að þeir beittu mikilli
þolinmæði við bíla sína, þessar miklu
gersemar sem þeir varðveittu og þjóð-
arsómi væri að. Fornbílasýning verður
um helgina á Selfossi, á tjaldsvæðinu
við Engjaveg.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður og Sævar Pétursson formaður Fornbílaklúbbs Íslands við gamla Ford-
inn áður en lagt var af stað niður Kamba. Áður hafði Fordinn staðist skyndiskoðun sýslumannsins.
Gamli Ford í
skyndiskoðun