Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
16 HÓTEL ALLAN HRINGINN
N†TT
HÓTEL Á
VOPNAFIR‹I
KJÖRINN ÁFANGASTA‹UR
Á AUSTURLANDI
Íkjölfar kvikmyndarinnar Nott-ing Hill, þar sem Hugh Grantog Julia Roberts fóru á kost-um, hefur Portobello-markað-
urinn í Notting Hill verið sérlega vin-
sæll hjá ferðamönnum. Fólk röltir um
og skoðar allan varninginn og undir
niðri er ávallt leitin að hinni einu
sönnu bláu hurð. En bláa hurðin er
ekki í Notting Hill, hún var seld fyrir
alllöngu þar sem eigandi hússins
þoldi ekki lengur ferðamenn sem
stilltu sér upp þar til að láta taka
myndir af sér.
En í staðinn fyrir að leggja leið
sína á Portobello-markaðinn og
skoða antík og alls lags annan varn-
ing með hinum ferðamönnunum get-
ur verið gaman að prófa aðra markaði
þar sem jafnvel minni líkur eru á að
vasaþjófar elti fólk á röndum.
Einn af flottustu mörkuðunum
Spitalfields-markaðurinn sem er
rétt hjá Liverpool Street-neðanjarð-
arlestarstöðinni er þekktur fyrir að
vera einn af flottustu mörkuðunum í
dag. Þar eru hönnuðir með vörur sín-
ar, antíksalar og alls lags glingur héð-
an og þaðan. Í kringum markaðinn er
aragrúi af litlum mörkuðum og búð-
um sem gaman er að rápa í, þar sem
ungir listamenn og hönnuðir eru með
vörur sínar. Brick Lane-markaðurinn
sem er í næsta nágrenni við Spit-
alfields er iðandi af lífi á sunnudögum
sem er reyndar einnig aðaldagur
Spitalfields. Aðallífið á markaðinum
er frá tíu til fjögur á sunnudögum.
Gaman er líka að byrja ofar í hverfinu
og fara og fá sér morgun- eða hádeg-
ismat hjá Columbia Road-mark-
aðinum sem er blómamarkaður, fikra
sig niður Brick Lane og enda á Spit-
alfields-markaðnum. Það er líka hægt
að fara í göngutúra um hverfið og sjá
svæðið þar sem Kobbi kviðrista at-
hafnaði sig. Því miður er Spitalfields-
markaðurinn að líða undir lok þar
sem byggingarverktakar og borg-
aryfirvöld hafa ákveðið að rífa þenn-
an sögulega markað og setja í staðinn
hótel, verslunarmiðstöð og skrif-
stofubyggingar. Svo nú fer hver að
verða síðastur.
Ungir hönnuðir
Camden-markaðurinn hjá Camd-
en-neðanjarðarlestarstöðinni er álíka
vinsæll hjá ferðamönnum og Porto-
bello-markaðurinn þó yfirleitt leggi
frekar fólk í yngri kantinum leið sína
upp í Camden. Tónlist, antík, fatn-
aður og í raun flest sem fólki dettur í
hug er í boði á þessum markaði, þó í
mismiklum gæðum. Fólki bregður
reyndar oft eilítið við þegar það kem-
ur á Camden-stöðina þar sem húð-
flúraðir pönkarar með hanakamba
eiga það til að dvelja þar í kring. En
ef fólk vill finna vörur frá ungum
hönnuðum þá getur þetta verið stað-
urinn til að fara á. Markaðurinn er
opinn um helgar frá hálftíu til fimm
en þar getur verið nokkuð troðið á
sunnudögum. Camden er þekkt fyrir
djassklúbba og lifandi tónlist og ef
farið er seinnipart dags getur verið
gott að enda daginn á einum slíkum
klúbbi. Ef veður er gott er líka gaman
að nota allan daginn til að rölta í
gegnum markaðinn í áttina að Chalk
Farm-stöðinni og fara svo í lautarferð
í Primrose Hill-garðinum sem er einn
aðal lautarferðastaðurinn í London,
með útsýni yfir stóran hluta borg-
arinnar. Alls lags skemmtilegar búð-
ir, kaffihús og veitingarstaðir liggja
líka við hæðina og ef förinni er heitið
niður í miðbæ eftir á þá er hægt að
labba áfram þar sem garðurinn teng-
ist Regent Park sem er rétt við
miðbæinn.
Ef fólk langar að skreppa eitthvað
lengra frá er tilvalið að halda austur
með London og taka Docklands Rail-
way-lestina á Greenwich-markaðinn
eða þá að taka ferju til Greenwich og
njóta Thames-siglingar í leiðinni.
Þessi markaður er einstaklega sætur
með vönduðum antíkvörum, listmun-
um, bókum og fötum. Flóamarkaður
fyrir þá sem vilja njóta þess að fara
eilítið út úr ösinni. Fimmtudagar og
föstudagar eru sérlega tileinkaðir an-
tík og safnmunum og er þá opið til
fimm og um helgar er markaðurinn
opinn frá hálftíu til hálfsex og bætast
þá listmunir og hönnunarvörur við
safnið. Ef ferðinni er heitið til Green-
wich gefst líka tilvalið tækifæri til að
skoða og fara um borð í Cutty Sark-
seglskipið en það er hægt alla daga
frá tíu til hálffimm fyrir um það bil
500 krónur.
Opinn á nóttunni
Bermondsey-markaðurinn við
London Bridge-stöðina er sá mark-
aður sem fæstir hafa séð. Hann er an-
tíkmarkaður og þekktur fyrir að hafa
á miðöldum verið sá staður þar sem
þjófar seldu vörur sínar. Ástæðan
fyrir því að fæstir hafa séð þennan
markað er að hann er einungis opinn
á föstudögum frá fjögur um nóttina
til tólf á hádegi og er best að koma
með vasaljós með sér eins snemma og
möguleiki er á og gera þá reyfara-
kaup.
Elsti markaðurinn
Ef fólk er á annað borð vaknað eld-
snemma á föstudegi til að kíkja á
Bermondsey-markaðinn þá er tilvalið
að fá sér hádegismat á Borough-
markaðnum. Borough er elsti mark-
aður London en ólíkur hinum mörk-
uðunum þar sem einungis er hægt að
fá mat þar. Hægt er að fá heitt að
borða eða einfaldlega kaupa í matinn
þar sem meðal annars er á boðstólum
grænmeti, bökur, brauð, nautakjöt,
strútakjöt og fiskur jafnvel alla leið
frá Íslandi. Markaðurinn er opinn á
föstudögum frá tólf til fimm og á
laugardögum frá tíu til fjögur. Ef
labbað er yfir London Bridge í átt að
Monument er hægt að finna annan
matarmarkað en það er Leadenhall-
markaðurinn. Sá markaður er mun
þekktari fyrir snobb og má aðallega
sjá kaupsýslumenn fá sér hádegismat
þar. Ef fólk vill fá sér dýran en ágætis
hádegismat gæti Leadenhall verið
staðurinn til að kíkja á. Opið á virkum
dögum frá átta til þrjú.
Í miðri London er Soho með mat-
armarkað en annars má benda á Cov-
ent Garden-markaðinn. Það versta
við Covent Garden er þó að hann er
einn vinsælasti ferðamannastaður
London ef Oxford Street er undan-
skilið og því má búast við að þar sé
nokkuð troðið. Götulistamenn eru á
hverju horni og vörurnar á mark-
aðinum er oft hægt að fá annars stað-
ar á mun lægra verði. Reglan er
reyndar sú á flestum mörkuðunum að
því fyrr sem maður kemur því meiri
möguleika á maður á að fá betri tilboð
og jafnvel betri vörur .
LONDON | Margir áhugaverðir markaðir í borginni og hver er með sínum sérkennum
Næturmark-
aður og iðandi
mannlíf
Fjölmargir Íslendingar fara í heimsókn til London
ár hvert og láta þá ekki Portobello-markaðinn
framhjá sér fara. Laila Pétursdóttir segir að það
séu þó fjölmargir aðrir markaðir í London sem
vert sé að heimsækja.
Morgunblaðið/Sverrir
Það er um að gera að taka sér frí frá Oxford stræti og skella sér á markað.
Ledenhall-markaðurinn er í dýrari kantinum og þangað kíkja gjarnan kaupsýslumenn til að fá sér hádegismat.
Borough-markaðurinn er sá elsti í London
og þar er einungis hægt að fá mat.
Spitalfields-markaðurinn er einn sá flottasti í London. Þar eru hönn-
uðir að selja vörur sínar og síðan fæst þar glingur héðan og þaðan.
Höfundur er búsettur í London.
Ljósmynd/Laila Pétursdóttir
Ljósmynd/Laila Pétursdóttir
Ljósmynd/Laila Pétursdóttir