Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 2.40 og 5.20 B.i 10 ÁRA
Bourne Identity
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 & 10.20
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir
Miðasala opnar kl. 13.30
INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ
INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍINNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ
Blaðið
ÞÞ - FBL
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Eru allir klárir í ævintýralega
fyndið ferðalag?
Það sem getur
farið úrskeiðis,
fer úrskeiðis!
Frábær gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna
sem fór beint
á toppinn
í USA
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8
Missið ekki af svölustu
mynd sumarsins með
heitasta pari heims!
kl. 2, 5, 8 og 10 B.i 10 ÁRA
kl. 2 og 5
Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.30 B.i 14 ára
Fréttablaðið
MORGUNBLAÐIÐ
SJ. blaðið
x-fm
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Frá leikstjóra Bourne Identity
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Blaðið
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari
heims!
kl. 8 og 10.30
YFIR 24.0
00 GESTIR
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
SÖNN ÁST HEFUR
ALDREI
VERIÐ EINS
SVÖRT!
Frábær gamanmynd með Aston Kutcher
sem fór beint á toppinn í USA
FRUMSÝNING
Hinn eini rétti
hefur aldrei verið
eins rangur!
Frábær
gamanmynd
sem fór beint á
toppinn í USA.
Blaðið
ÞÞ - FBL
Frá leikstjóra
Bourne Identity
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i 14 ára
I I
Blaðið
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
YFIR 24.0
00 GESTIR
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
ÞÞ - FBL
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
FYRIRHUGAÐIR tónleikar banda-
rísku þungarokkshljómsveitar-
innar Megadeath fara sem kunnugt
er fram næstkomandi mánudags-
kvöld.
Lengst af stóð til að halda tón-
leikana í Kaplakrika en nú hafa
herlegheitin verið færð niður á
Austurvöll, nánar tiltekið á Nasa.
Það verður sem fyrr hljómsveitin
Drýsill sem hita mun upp fyrir
Megadeath.
Að sögn Ragnheiðar Hansson,
tónleikahaldara, var ákvörðunin
tekin síðastliðinn fimmtudag í sam-
ráði við fjórmenningana í sveitinni.
„Þeir voru alveg sáttir við breyt-
inguna og finnst voða gaman að
spila á minni klúbbum,“ sagði
Ragnheiður og bætti við að hljóm-
sveitin hefði lofað kröftugum tón-
leikum.
„Þetta eru síðustu tónleikar
Megadeath á tónleikaferð þeirra og
svo eru þeir að hætta að henni lok-
inni svo þeir segjast ætla að leggja
allt í tónleikana.“
Ragnheiður segist ekki halda að
flutningurinn muni draga úr
stemningu á tónleikunum, nema
síður sé.
„Megadeath-aðdáendur hafa
sagt mér að þeim lítist vel á breyt-
inguna og telji að sveitin eigi eftir
að njóta sín betur á Nasa,“ sagði
Ragnheiður.
Sigurgeir Sigmundsson, liðs-
maður Drýsils, segist einnig
ánægður með breytinguna á tón-
leikastaðnum.
„Ég er fegin að þetta var flutt því
ég held að það verði meiri nálægð
við áhorfendur á Nasa,“ sagði Sig-
urgeir í samtali við Morgunblaðið.
„Það er miklu meiri stemning í
að spila í minna húsi fyrir fullan sal
í staðinn fyrir hálfan sal í stóru
húsi.“
Áhugasamir geta enn keypt miða
á tónleikana í útibúum Íslands-
banka í Kringlunni og í Smáralind
og einnig á heimasíðunni
www.midi.is.
Tónlist | Tónleikar Megadeath hér á
landi á mánudag
Hljómsveitin Megadeath leikur fyrir landsmenn næstkomandi mánudag.
Úr Kaplakrika á Nasa
Tónleikar Megadeath fara fram á
Nasa næstkomandi mánudags-
kvöld. Húsið opnar klukkan 19.
Á DÖGUNUM fór fram í tuttug-
asta sinn keppnin um sterkasta
mann Íslands. Keppendur reyndu
með sér í trukkadrætti, axl-
arlyftu, hleðslugreinum og
Herkúlesarhaldi, svo fátt eitt sé
nefnt, og Kristinn Óskar Haralds-
son stóð að lokum uppi sem sig-
urvegari. Hann ber nú titilinn
sterkasti maður Íslands og fékk
að launum 25 kílóa verðlauna-
styttu sem ætti að vera lítið mál
fyrir hann að bera.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
sterkasta manns landsins.
Sæll og til hamingju með tit-
ilinn. Eru búinn að vera lengi í
þessum bransa?
„Já, takk fyrir það. Það eru
komin um fimm ár. Ég keppti
fyrst í kraftlyftingum árið 2000 og
þá varð ég Íslandsmeistari í flokki
unglinga. Þetta er svo í annað
sinn sem ég tek þátt í keppninni
um sterkasta mann Íslands.“
Æfirðu mikið?
„Já, frekar mikið, fjórum til
fimm sinnum í viku. Við erum
mest að æfa í líkamsræktarstöðv-
unum en á sumrin förum við
meira út að hlaupa og æfum okk-
ur í þessum aflraunaþrautum.
Þetta snýst þó aðallega um að
taka á því í líkamsræktarstöð-
inni.“
Getur hver sem er orðið sterk-
asti maður Íslands með réttri
þjálfun?
„Nei, það held ég ekki. Þetta hent-
ar mönnum misvel og spilar þar lík-
amsbygging inn í og annað. Ég er til
dæmis 183 sentimetrar og er talinn
frekar lágvaxinn fyrir þessa íþrótt
en það er talið best að vera um og yf-
ir 190 sentimetrar. Ég reyni að bæta
það upp með meira afli.“
Hefurðu alltaf verið sterkur?
„Já, ég hef alltaf verið mjög þrek-
inn og þegar ég var yngri var fólk
alltaf að hvetja mig til að taka þátt í
keppni af þessu tagi til að nota kraft-
ana í eitthvað að viti. Ég lét til leið-
ast á endanum og hef ekkert séð eft-
ir því.“
Hefur lífið eitthvað breyst eftir að
þú varðst sterkasti maður Íslands?
„Nei, það eina sem breytist er
að ég hef meiri möguleika á að
fara erlendis og keppa. Ég held að
ég hafi opnað fleiri dyr með sigr-
inum en mitt daglega líf hefur nú
ekki breyst mikið.“
Ertu sem sagt á leið í ein-
hverjar keppnir erlendis?
„Já, það er verið að vinna í því
núna. Ég er líklega á leið til Pól-
lands 16. júlí að keppa í Super
Series sem er undankeppni fyrir
Sterkasta mann heims. Að öllum
líkindum fer ég svo í lands-
liðakeppni í byrjun september þar
sem Íslendingar keppa við Eng-
lendinga. Við förum sennilega
fjórir frá Íslandi og keppnum við
jafnmarga Breta í liðakeppni.“
Hvað gerirðu utan þess að vera
sterkasti maður landsins?
„Ég hef lengi starfað sem
einkaþjálfari og það hentar mér
mjög vel því þá næ ég að stjórna
vinnunni minni svolítið sjálfur og
næ að æfa eins og mér hentar. Ég
hef einnig verið viðloðandi í dyra-
vörslu og í sumar vinn ég svo við
verðkannanir fyrir Bónus.“
Þú hefur tekið þér viðurnefnið
Boris. Hvernig kom það til?
„Þegar ég var 16 ára vann ég
sem messagutti hjá Landhelgis-
gæslunni þar sem við þurftum að
vera í einkennisbúningum. Kokk-
urinn fann einhverja gamla og
skítuga mussu sem messagutt-
arnir voru í á stríðsárunum og skip-
aði mér að fara í hana í gríni. Mönn-
um fannst ég líkjast kokk á
rússneskum togara í þessari mussu
og einhver tók upp á að kalla mig
Boris, sem hefur síðan festst við
mig.“
Sterkustu menn Íslands kepptu í tuttugasta sinn
Að nota kraftana í
eitthvað af viti
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristinn Óskar Haraldsson, sterkasti mað-
ur Íslands, hampar hér syni sínum sem og
verðlaunagripnum góða.
birta@mbl.is