Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.06.2005, Blaðsíða 51
Frá leikstjóra Bourne Identity    Sýnd kl. 8 og 10  Ó.Ö.H. DV  MBL 553 2075☎ - BARA LÚXUS INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍINNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ Eru allir klárir í ævintýralega fyndið ferðalag? Það sem getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis! Sýnd kl. 3 og 5.30 Frábær gamanmynd fyrir alla fjölskylduna sem fór beint á toppinn í USA Blaðið  ÞÞ - FBL „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV    „Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM Bourne Identity „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV Blaðið  Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára Blaðið  ÞÞ - FBL Miðasala opnar kl. 14.30 Hinn eini rétti hefur aldrei verið eins rangur! Frábær gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. FRUMSÝNING Bourne Identity Missið ekki af svölustu mynd sumarsins með heitasta pari heims! Blaðið  Sýnd kl. kl. 3.45, 6, 8.30 og 10.40 „Skotheld frá A-Ö Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  Missið ekki af svölustu mynd sumarsins með heitasta pari heims! YFIR 24.0 00 GESTIR YFIR 24.000 GESTIR AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  MORGUNBLAÐIÐ x-fm Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.i 10 ÁRA kl. 3.20, 5.40 og 8 B.i 16 ÁRA JENNIFER LOPEZ FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRA LEGALLY BLONDE JANE FONDA J I „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  „Skotheld frá A-Ö Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM ÞÞ - FBL Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 áraSýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch r fr l i t t kl. 10.10 B.i 16 ÁRA Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af þessari TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU Kevin Costner og Joan Allen fara á kostum í hættulega fyndinni og mannlegri gamanmynd. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 51 Hljómsveitin Hölt hóra gaf á dögunum útsex laga stuttskífu sem ber heitið Loveme like you elskar mig. Hljómsveitin vakti verðskuldaða athygli í fyrra fyrir lögin, Vændiskona og Muddy Rokk og ról, en þau fengu allnokkra spilun, bæði í útvarpi og sjón- varpi. Einnig verður að reikna með því að ein- hverjir hafi hnotið um nafnið sem seint verður flokkað með pólitískri rétthugsun. Hins vegar ber einnig að minnast orða rithöfundarins og nóbelsverðlaunahafans Saul Bellow sem kallaði pólitíska rétthugsun hinn eina sanna kúgara okkar tíma. Hljómsveitin Hölt hóra er svo að segja öll af Suðurlandi; Drangsnesi, Biskupstungum og Selfossi og hefur verið starfrækt í á þriðja ár. Atli Fannar, söngvari hljómsveitarinnar, kom óforvarandis í heimsókn og ræddi við undirrit- aðan um skífuna og hljómsveitina. Hafið þið verið að sýsla við tónlist lengi? „Já, flestir okkar. Ég byrjaði reyndar mjög seint að pæla í tónlist. En við komum úr mörg- um áttum. Einn okkar er til dæmis Brit- poppari, annar venjulegur poppari, einn hugsar of mikið um tónlist og svo framvegis.“ Af hverju pönktónlist? „Ég myndi ekki segja að þetta væri pönk ef frá er talið nafnið á sveitinni. Að vísu er smá pönk-fílingur en ég myndi miklu frekar kalla þetta rokk. Hins vegar kann ég ekki að syngja svo að þetta verður aldrei of fágað.“ Þið hafið tekið Rúdolf með Þeysurunum á tónleikum. Eruð þið kannski að fara meira í þá átt? „Kannski. Við elskum að spila Rúdolf en er- um nýbúnir að fá nýjan bassaleikara og höfum ekki getað æft lagið með honum. Þessi plata hefur eiginlega verið fyrir okkur í hálft ár en núna getum við loksins farið að einbeita okkur að því að æfa, spila Rúd- olf og semja fleiri lög.“ Atli segir að hljóm- grunnarnir að plötunni hafi verið teknir upp í Bláfjöllum þar sem hljómsveitin leigði skála og setti upp hljóðver. Upptökurnar gengu þó ekki áfallalaust fyrir sig því í miðju upptöku- tímabilinu bilaði proto- ols-upptökuforritið. Eft- ir það fór platan í biðstöðu en var svo klár- uð hægt og bítandi í æf- ingahúsnæði hljómsveit- arinnar sem hún deilir með upptökumanninum Magnúsi der og hljómsveit hans Benny Crespo’s Gang. „Platan átti fyrst að vera fjögurra laga skífa en á þessu ferli sömdum við önnur tvö lög sem við vorum ánægðir með svo að þau fengu að fljóta með. Hvorki Vændiskona né Muddy Rokk og ról eru á plötunni. Okkur fannst þau vera orðin gömul og ákváðum að hafa þau ekki með.“ Þið hafið ekki viljað bíða aðeins lengur og gefa út heila plötu? „Nei. Persónulega finnst mér – ég er svolítið frekur – það ekki rökrétt fyrir svona lítið og ungt band að demba sér út í að gefa út breið- skífu. Þessi plata er bara til að kanna áhugann en þó hún sé bara sex laga, leggjum við heil- mikið í útgáfuna. Skífan mun einungis kosta 1.000 kall í plötubúð svo að við erum að tapa á hverju seldu eintaki. En ef þetta gengur vel vit- um við að það er áhugi fyrir bandinu og það skiptir okkur miklu máli til þess geta haldið áfram. Sá grunur leitar stundum á mann þegar maður spilar fyrir fullan stað af drukknu fólki, hvort einhver sé í raun og veru að hlusta.“ Eruð þið kannski pirraðir á tónleikasenunni? „Nei, nei. Það getur verið fjör að spila fyrir blindfullt fólk sem er að fíla sig en það skilur stundum lítið eftir sig. Þetta er oftast tvískipt, fulla fólkið er fremst en hinir hanga fyrir aftan og súpa á bjórnum. Það er frekar að það fari í taugarnar á manni að fólk krefst þess að fá fría tónleika en kemur svo ekki fyrr en um eitt leyt- ið. Svo er fólk til í að borga 2–3.000 kr. inn á Skítamóral og mæta á slaginu.“ Um hvað eruð þið að yrkja á plötunni? „Það er eins konar ástarþema í öllum lög- unum. Mismunandi birtingarmyndir ástar- innar. Venjuleg kærustuparaást, þráhyggja, ánægjan með að vera ástarlaus, partíást en svo er líka eitt lag um það þegar djöfullinn fer til sálfræðings.“ Hvað er svo framundan? „Við ætlum að spila eins mikið og við getum og kynna plötuna og útgáfutónleikar verða fljót- lega eftir Hróarskeldu. “ Stór plata á næsta ári? „Nei, eða ég veit það ekki. Við erum ekkert að stressa okkur á þessu. Þetta gerist þegar það gerist. Við gerum þetta á okkar hraða og hann er ekki mjög hraður.“ Tónlist | Hljómsveitin Hölt hóra sendir frá sér plötuna Love me like you elskar mig Afslappaðir rokkarar Ljósmynd/Hörður Sveinsson Hölt hóra gaf nýverið út plötuna Love me like you elskar mig. Höskuldur Ólafsson hoskuldur@mbl.is BJÖRK Guðmundsdóttir verður helsta stjarnan á Live 8 góð- gerðartónleikunum í Japan 2. júlí næstkomandi, að því er Reut- ers-fréttastofan skýrir frá. Þar segir að tvö ár séu liðin frá því Björk söng síðast á tón- leikum. Skipuleggjendur tónleikanna segja markmið þeirra að þrýsta á þjóðarleiðtoga heimsins að grípa til aukinna aðgerða til þess að minnka fátækt í Afríku. Meðal annarra sem koma fram á Live8 í Japan verða bresku rokkararnir McFly, bandaríska sveitin Good Charlotte og jap- önsku tónlistarmennirnir Dreams Come True, Def Tech og Rize. Tónleikarnir verða haldnir í tónleikahöll í námunda við Tókýó, höfuðborg Japans. Þar er rúm fyrir 10.000 gesti. Björk á Live8 í Tókýó Björk lætur gott af sér leiða í Japan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.