Morgunblaðið - 25.06.2005, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 25.06.2005, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Notaðu daginn til þess að kaupa eitthvað hagnýtt fyrir heimilið sem mun endast um aldur og ævi. Fasteignaviðskipti sem gerð eru í dag reynast skynsamleg fjár- festing. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið lumar á alvarlegum ráðlegg- ingum handa einhverjum í dag, jafnvel systkini. Það vill deila hagsýni sinni með öðrum og kannski tekst það. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn fær jarðbundnar og skynsam- legar hugmyndir um ráðstöfun fjármuna í dag. Hann vill fá nokkuð fyrir sinn snúð. Notaðu tækifærið, borgaðu reikn- inga og grynnkaðu á skuldum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn er alvörugefinn í dag. Kannski vill hann bæta færni sína á skapandi sviði. Æfingin skapar meistarann, nú sem fyrr. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Notaðu daginn til þess að gera áætlanir svo lítið beri á. Veltu því fyrir þér í ein- rúmi hvað það er virkilega sem þig lang- ar til þess að gera. Ákafi þinn ýtir undir hugrekki. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hlustaðu á ráð frá þér eldri og reyndari manneskju í dag. Kannski kemstu á snoðir um eitthvað dýrmætt. Sýndu þol- inmæði og vertu með opinn huga. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gamalkunnar aðferðir virðast koma að mestu gagni í dag. Aðrir dást að þér fyr- ir að að virða það og kunna að meta hefð- ir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Allt sem viðkemur útlöndum, æðri menntastofnunum, útgáfu, fjölmiðlun og langferðum ætti að ganga vel í dag. Langtímaáætlanir á einhverjum þessara sviða líta vel út. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmanninum tekst að koma einhverju í verk með fulltingi annarra. Hann fer létt með að klára verkefni tengd dánarbúum, erfðamálum og sameiginlegum eigum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Notaðu daginn til þess að gera langtíma- samkomulag eða skrifa undir samninga. Þú ert í góðu jafnvægi og að sama skapi jákvæð og áhugasöm. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gamaldags og hefðbundnar aðferðir sanna gildi sitt í dag fram yfir tækninýj- ungar. Maður þarf enn spilastokk til þess að leggja kapal. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn verður hugsanlega skotinn í eldri manneskju. Þú dáist að fólki sem býr yfir meiri þekkingu en þú, þessa dagana. Nú er lag að ræða ábyrgðar- hlutverk gagnvart börnum. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbarn dagsins: Þú kannt að gera það besta úr því sem þú hefur og gerir það reyndar betur en flestir. Einbeittur vilji þinn og raunsætt mat á því hvað til þarf eru eiginleikar sem munu auðvelda þér að ná árangri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Tónlist Café Rosenberg | Hrafnaspark spilar í kvöld kl. 22.30–1. Jómfrúin | Brasilíu–kvartett Óskars og Ife Tolentino á Jómfrúnni. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Smekkleysa plötubúð – Humar eða frægð | Tónlistarmaðurinn Stranger spilar fyrir gesti í Gallerí Humar eða frægð kl. 15. Myndlist 101 gallery | Ólafur Elíasson til 1. júlí. Austurvöllur | Ragnar Axelsson. Ljós- myndasýningin „Andlit norðursins“. Árbæjarsafn | Gunnar Bjarnason sýnir í Listmunahorninu forn vinnubrögð í tré og járn. Café Karólína | Velkomin á opnun laugar- daginn 25. júní 2005, kl. 14. Sýningin Vil- helms Antons Jónssonar (Villi naglbítur) stendur til 22. júlí. Eden, Hveragerði | Ólöf Pétursdóttir til 26. júní. Energia | Sigurður Pétur Högnason. Feng Shui Húsið | Diddi Allah sýnir olíu– og akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12– 18 um helgar. Gallerí BOX | Sigga Björg sýnir Innsetn- ingu sem samanstendur af teikningum og teiknimynd til 16. júlí. Opið kl. 14–18. Gallerí Gyllinhæð | Berglind Jóna Hlyns- dóttir - „Virkni Meðvirkni Einlægni“. Gallerí I8 | Lawrence Weiner til 6. júlí. Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn- ara II er opin virka daga frá kl. 11–17. Lokað um helgar í sumar. Sjá www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Arnór G. Bieltvedt opnar sýningu á málverkum og teikningum laugardaginn 25. júní kl. 15. Opið frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14–18. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1. ágúst. Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Benediktsson „Fiskisagan flýgur“. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce- vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir myndverk í forkirkju og kór Hallgrímskirkju. Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsdóttir sýna ljósmyndir í Hallgrímskirkjuturni. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð- ur Vésteinsdóttir. Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð- jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum. Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í Bergen. Til 4. sept. Kaffi Sel | „Ástin og lífið“. Gréta Gísladótt- ir sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum. Kling og Bang gallerí | John Bock til 26. júní. Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá nánar á www.maeja.is. Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia Pérez de Siles de Castro til 3. júlí. Listasafn Einars Jónssonar | Opið er alla daga nema mánudaga frá kl. 14–17. Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney, Gabríela Friðriksdóttir til 26. júní. Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza- dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John Latham, Kristján Guðmundsson til 21. ágúst. Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn- ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler- listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi nytjaglers og skúlptúrglers. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur Jónsson, Urs Fischert til 21. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sumarsýning Listasafns Íslands. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sumar- sýning – „Aðföng, gjafir og lykilverk“ - Safnið er opið milli klukkan 14 og 17. Norræna húsið | Andy Horner til 28. ágúst. Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó- hannsson. Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24. júlí. Safn | Carsten Höller til 10. júlí. Skaftfell | Anna Líndal til 26. júní. Skaftfell | Félagsskapur Fjallkonunnar og liðsmenn Klink&Bank verða með uppá- komur í Angró, Seyðisfirði, aðeins þetta eina kvöld. Kolbeinn Hugi opnar sýningu á Vesturvegg Skaftfells, Seyðisfirði. Beast Rider og Campfire Backtracs spila við opn- unina. Fjöllistahópurinn We Love Iceland sýnir og skemmtir í gamla SHELL og gamla ríkinu, aðeins þetta eina kvöld. Dream Machine á miðnætti í gamla ríkinu. Slunkaríki | Elín Hansdóttir, Hreinn Frið- finnsson til 26. júní. Suðsuðvestur | Sólveig Aðalsteinsdóttir sýnir þrettán ljósmyndir og tvo skúlptúra. Opið fimmtud. og föstud. frá 16–18 og um helgar frá 14–17. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi Pétursson sjá nánar www.or.is. Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers. Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga- sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru Kristjánsdóttur á listgripum frá 16., 17. og 18. öld. Þjóðminjasafn Íslands | „Skuggaföll“. Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar. Þjóðminjasafn Íslands | „Story of your life“ – ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Listasýning Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi, Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sumar frá kl. 10–17. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík, svo sem póstkortum, útgefnu efni og skjöl- um sem varpa ljósi á sýn ferðamanna á Reykjavík og það hvernig Reykjavík hefur kynnt sig fyrir ferðamönnum frá 18. öld til dagsins í dag. Aðgangur er ókeypis. Minjasafn Austurlands | Guðrún Sigurðar- dóttir og Ríkey Kristjánsdóttir kynna ís- lenskan útsaum, sögu hans og helstu gerð- ir kl. 12–16. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Katrínar og Stefáns | Sýning á batikverkum að Hlaðbæ 9, Reykjavík. Opn- að verður í dag kl. 13. Sýningin verður opin daglega til og með 3. júlí frá kl. 14–20. Söfn Árbæjarsafn | Útiminjasafn með fjöl- breyttum sýningum, leiðsögumönnum í búningum og dýrum í haga. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Á Borgar- skjalasafni Reykjavíkur stendur yfir sýn- ingin Through the Visitor’s Eyes, þar sem fjallað er um þróun ferðaþjónustu í Reykja- vík og hvernig ferðamenn upplifðu borgina. Textar á íslensku og ensku. Sýningin er á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15, og er opin alla daga. Aðgangur er ókeypis. Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljós- myndum úr fórum Kópavogsbúa af börn- um í bænum í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar í samstarfi Bókasafns og Héraðsskjalasafns Kópavogs. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóðleið- sögn um húsið, margmiðlunarsýning og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar frá kl. 9–17. Lindasafn | Lindasafn er opið í alla daga sumar. Mikið úrval af ferðahandbókum og garðyrkjubókum. Safnið er opið mánudaga frá kl. 11–19, þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 13–19, föstudaga 13–17. Minjasafn Austurlands | Guðrún Sigurðar- dóttir og Ríkey Kristjánsdóttir kynna ís- lenskan útsaum, sögu hans og helstu gerð- ir á þjóðháttadegi.Aðgangur ókeypis. Sjá: http://www.minjasafn.is. Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð- húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg- undir og furðufiska. Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð- menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin, Fyrirheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona var það. Á veitingastofunni Matur og menning er gott að slaka á og njóta veit- inganna og útsýnisins yfir Arnarhólinn og höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband 2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk eftir jafnmarga bókbindara frá Norður- löndunum. Sýningin fer um öll Norður- löndin og verður í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst. Opið frá kl. 11–17. Skemmtanir Cafe Catalina | Hermann Ingi jr. spilar og syngur í kvöld. Café Victor | DJ Gunni spilar bestu dans- tónlist bæjarins. Klúbburinn við Gullinbrú | Fimm á Ricter í kvöld. Kringlukráin | Hljómsveitin Tilþrif spilar í kvöld. Vélsmiðjan Akureyri | Rokkhljómsveit Rúnars Júl. leikur fyrir dansi í kvöld. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til miðnættis. Mannfagnaður Skógræktarfélags Reykjavíkur | Fjöl- skyldudagur í Heiðmörk í dag kl. 13.30–16. Börnum og fullorðnum býðst að tálga úr greinum, mála skógarálfa á birkidrumba, taka þátt í víkingaleikjum og ratleik en hin- um eldri býðst að fara í stafgöngu um svæðið. Að lokum fá allir að grilla pylsu á birkigrein. Skógræktarfélag Skilmannahrepps | Skógardagur verður í tilefni 75 ára afmæl- is Skógræktarfélags Íslands 25. júní kl. 14– 18. Ekið er inn í skóglendið rétt vestan vegamóta norðan Akrafjalls og er svæðið merkt. Gönguferð um eldri hluta skógarins og veitingar í boði félagsins. Jóhanna Harðardóttir vinnur í íslenskan skógarvið og sýnir hluti unna úr birki og reyniviði. Skógræktarfélag Rangæinga | Skógar- dagur í Aldamótaskóginum á Gaddstöðum í tilefni 75 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands á morgun, kl. 14–16, (innkeyrsla gegnt afleggjaranum að Gunnarsholti). Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og kaffiveitingar. Fréttir Kringlan | Hópur ungra mæðra á leið á ráðstefnu munu halda kökubasar í Kringl- unni 25. júní, til fjáröflunar. Ráðstefnan, sem er fyrir ungar mæður í Evrópu, verður haldin í Bonn, Þýskalandi í september og fara þær 8 saman á vegum Hins Hússins. Fundir Austurvöllur | Alþjóðlegur dagur til stuðn- ings fórnarlömbum pyndinga er á morgun, 26. júní. Þann dag stendur Amnesty Inter- national fyrir uppákomu á Austurvelli kl. 13–17. Verður vakin athygli á þeim aðferð- um sem beitt er gagnvart föngum í fanga- búðunum í Guantanamo á Kúbu og áskorun til bandarískra yfirvalda kynnt. OA-samtökin | OA-karladeild alla þriðju- daga klukkan 21–22, að Tjarnargötu 20, Gula húsinu, 101 Reykjavík. Málþing Hóladómkirkja | Kaþólskur dagur á Hólum, á morgun kl. 14. Málþing um Guðmund góða Arason, Hólabiskup 1203–1237. Dr. Stefán Karlsson, fyrrverandi forstöðu- maður Árnastofnunar flytur erindi. Haukur Guðlaugsson leikur orgelverk. Námskeið Árbæjarsafn | Örnámskeið í flugdreka- gerð, tálgun, þæfingu, glímu og kveðskap. Námskeiðin eru ætluð börnum í fylgd með fullorðnum og eru kl. 13–16. Flugdrekagerð: 1.7. Tálgun: 29.6, 5.7, 13.7. Glíma: 30.6., 9.7., 14.7. Þæfing: 28.6., 6.7. Kveðskapur: 23.7. Verð 1.000–2.500 á mann. Skráning í síma 411 6320. Íþróttir Göngugatan í Mjódd | Mjóddarmót Hellis fer fram í dag í göngugötunni í Mjódd kl. 14 og er mótið öllum opið. Skráning fer fram í netpósti hellir@hellir.is og í síma 866 0116. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Nánar á hellir.com. ICC | Þriðja mótið af tíu í nýrri Bikarsyrpu Eddu útgáfu og Taflfélagsins Hellis verður haldið á morgun kl. 20. Verðlaun eru í boði Eddu útgáfu. Sjá: Hellir.com. Útivist Minjasafnið á Akureyri | Gönguferð með leiðsögn um Hrísey. Gangan liggur m.a. um rústir eyðibýlisins Hvatastaða. Einnig verð- ur komið við í Gamla-Syðstabæjarhúsinu og Holti. Gangan tekur um 2 tíma og er u.þ.b. 5 km löng. Lagt verður af stað frá Árskógssandi kl. 13.30. Markaður Lónkot | Markaður verður í Lónkoti í Skagafirði sunnudaginn 26. júní kl. 13–17. Sölufólk getur pantað borð hjá Ferðaþjón- ustunni Lónkoti. Sími 453 7432. Staður og stund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 sameini, 4 hefur áhyggjur af, 7 drengja, 8 ber vitni um, 9 tek, 11 dugleg, 13 þyrma, 14 fót, 15 gjóta, 17 landa- merki, 20 muna óljóst, 22 ölum, 23 unaðurinn, 24 hófdýr, 25 koma í veg fyrir. Lóðrétt | 1 ábreiða, 2 tölu- staf, 3 svelgurinn, 4 vers, 5 auli, 6 visna, 10 styrkir, 12 nugga, 13 bókstafur, 15 lyfta, 16 hárug, 18 gjaf- mild, 19 þekkja, 20 berg- mál, 21 kvenfugl. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 allsnakin, 8 hugur, 9 iglum, 10 ann, 11 fólin, 13 norpa, 15 stans, 18 ómega, 21 ker, 22 totta, 23 aurar, 24 talsmaður. Lóðrétt | 2 legil, 3 súran, 4 arinn, 5 illur, 6 óhóf, 7 smáa, 12 inn, 14 orm, 15 sótt, 16 aftra, 17 skaps, 18 óraga, 19 eirðu, 20 arra.  TÓNLEIKAR Stranger verða í Galleríi Humri og frægð, Laugavegi 59, í dag kl. 15. Í kynn- ingu um tónleikana segir: „Stranger gaf út plötuna Paint Peace á síðasta ári, sem hlaut m.a. góðar viðtökur hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins.“ Morgunblaðið/Kristinn Stranger í Gallerí Humar og frægð Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.