Morgunblaðið - 25.06.2005, Page 51
Frá leikstjóra Bourne Identity
Sýnd kl. 8 og 10
Ó.Ö.H. DV
MBL
553 2075☎
- BARA LÚXUS
INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ
INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍINNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ
Eru allir klárir í ævintýralega fyndið ferðalag?
Það sem getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis!
Sýnd kl. 3 og 5.30
Frábær gamanmynd fyrir alla fjölskylduna
sem fór beint á toppinn í USA
Blaðið
ÞÞ - FBL
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Bourne Identity
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Blaðið
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára
Blaðið
ÞÞ - FBL
Miðasala opnar kl. 14.30
Hinn eini rétti
hefur aldrei verið
eins rangur!
Frábær
gamanmynd
sem fór beint á
toppinn í USA.
FRUMSÝNING
Bourne Identity
Missið ekki af svölustu
mynd sumarsins með
heitasta pari heims!
Blaðið
Sýnd kl. kl. 3.45, 6, 8.30 og 10.40
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
YFIR 24.0
00 GESTIR
YFIR 24.000 GESTIR
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
x-fm
Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.i 10 ÁRA kl. 3.20, 5.40 og 8 B.i 16 ÁRA
JENNIFER
LOPEZ
FRÁBÆR GRÍNMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
JANE
FONDA
J I
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
ÞÞ - FBL
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 áraSýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
Frá framleiðendum
Lock Stock & Snatch
r fr l i
t t
kl. 10.10 B.i 16 ÁRA
Orlando Bloom, Liam Neeson
og Jeremy Irons fara á kostum
í epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Kevin Costner og Joan Allen fara á kostum
í hættulega fyndinni og mannlegri
gamanmynd.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 51
Hljómsveitin Hölt hóra gaf á dögunum útsex laga stuttskífu sem ber heitið Loveme like you elskar mig. Hljómsveitin
vakti verðskuldaða athygli í fyrra fyrir lögin,
Vændiskona og Muddy Rokk og ról, en þau
fengu allnokkra spilun, bæði í útvarpi og sjón-
varpi. Einnig verður að reikna með því að ein-
hverjir hafi hnotið um nafnið sem seint verður
flokkað með pólitískri rétthugsun. Hins vegar
ber einnig að minnast orða rithöfundarins og
nóbelsverðlaunahafans Saul Bellow sem kallaði
pólitíska rétthugsun hinn eina sanna kúgara
okkar tíma.
Hljómsveitin Hölt hóra er svo að segja öll af
Suðurlandi; Drangsnesi, Biskupstungum og
Selfossi og hefur verið starfrækt í á þriðja ár.
Atli Fannar, söngvari hljómsveitarinnar, kom
óforvarandis í heimsókn og ræddi við undirrit-
aðan um skífuna og hljómsveitina.
Hafið þið verið að sýsla við tónlist lengi?
„Já, flestir okkar. Ég byrjaði reyndar mjög
seint að pæla í tónlist. En við komum úr mörg-
um áttum. Einn okkar er til dæmis Brit-
poppari, annar venjulegur poppari, einn hugsar
of mikið um tónlist og svo framvegis.“
Af hverju pönktónlist?
„Ég myndi ekki segja að þetta væri pönk ef
frá er talið nafnið á sveitinni. Að vísu er smá
pönk-fílingur en ég myndi miklu frekar kalla
þetta rokk. Hins vegar kann ég ekki að syngja
svo að þetta verður aldrei of fágað.“
Þið hafið tekið Rúdolf með Þeysurunum á
tónleikum. Eruð þið kannski að fara meira í þá
átt?
„Kannski. Við elskum að spila Rúdolf en er-
um nýbúnir að fá nýjan bassaleikara og höfum
ekki getað æft lagið með honum. Þessi plata
hefur eiginlega verið fyrir okkur í hálft ár en
núna getum við loksins
farið að einbeita okkur
að því að æfa, spila Rúd-
olf og semja fleiri lög.“
Atli segir að hljóm-
grunnarnir að plötunni
hafi verið teknir upp í
Bláfjöllum þar sem
hljómsveitin leigði skála
og setti upp hljóðver.
Upptökurnar gengu þó
ekki áfallalaust fyrir sig
því í miðju upptöku-
tímabilinu bilaði proto-
ols-upptökuforritið. Eft-
ir það fór platan í
biðstöðu en var svo klár-
uð hægt og bítandi í æf-
ingahúsnæði hljómsveit-
arinnar sem hún deilir
með upptökumanninum
Magnúsi der og hljómsveit hans Benny
Crespo’s Gang.
„Platan átti fyrst að vera fjögurra laga skífa
en á þessu ferli sömdum við önnur tvö lög sem
við vorum ánægðir með svo að þau fengu að
fljóta með. Hvorki Vændiskona né Muddy Rokk
og ról eru á plötunni. Okkur fannst þau vera
orðin gömul og ákváðum að hafa þau ekki með.“
Þið hafið ekki viljað bíða aðeins lengur og
gefa út heila plötu?
„Nei. Persónulega finnst mér – ég er svolítið
frekur – það ekki rökrétt fyrir svona lítið og
ungt band að demba sér út í að gefa út breið-
skífu. Þessi plata er bara til að kanna áhugann
en þó hún sé bara sex laga, leggjum við heil-
mikið í útgáfuna. Skífan mun einungis kosta
1.000 kall í plötubúð svo að við erum að tapa á
hverju seldu eintaki. En ef þetta gengur vel vit-
um við að það er áhugi fyrir bandinu og það
skiptir okkur miklu máli til þess geta haldið
áfram. Sá grunur leitar stundum á mann þegar
maður spilar fyrir fullan stað af drukknu fólki,
hvort einhver sé í raun og veru að hlusta.“
Eruð þið kannski pirraðir á tónleikasenunni?
„Nei, nei. Það getur verið fjör að spila fyrir
blindfullt fólk sem er að fíla sig en það skilur
stundum lítið eftir sig. Þetta er oftast tvískipt,
fulla fólkið er fremst en hinir hanga fyrir aftan
og súpa á bjórnum. Það er frekar að það fari í
taugarnar á manni að fólk krefst þess að fá fría
tónleika en kemur svo ekki fyrr en um eitt leyt-
ið. Svo er fólk til í að borga 2–3.000 kr. inn á
Skítamóral og mæta á slaginu.“
Um hvað eruð þið að yrkja á plötunni?
„Það er eins konar ástarþema í öllum lög-
unum. Mismunandi birtingarmyndir ástar-
innar. Venjuleg kærustuparaást, þráhyggja,
ánægjan með að vera ástarlaus, partíást en svo
er líka eitt lag um það þegar djöfullinn fer til
sálfræðings.“
Hvað er svo framundan?
„Við ætlum að spila eins mikið og við getum
og kynna plötuna og útgáfutónleikar verða fljót-
lega eftir Hróarskeldu. “
Stór plata á næsta ári?
„Nei, eða ég veit það ekki. Við erum ekkert að
stressa okkur á þessu. Þetta gerist þegar það
gerist. Við gerum þetta á okkar hraða og hann
er ekki mjög hraður.“
Tónlist | Hljómsveitin Hölt hóra sendir frá sér plötuna Love me like you elskar mig
Afslappaðir
rokkarar
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Hölt hóra gaf nýverið út plötuna Love me like you elskar mig.
Höskuldur Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
BJÖRK Guðmundsdóttir verður helsta stjarnan á Live 8 góð-
gerðartónleikunum í Japan 2. júlí næstkomandi, að því er Reut-
ers-fréttastofan skýrir frá.
Þar segir að tvö ár séu liðin frá því Björk söng síðast á tón-
leikum. Skipuleggjendur tónleikanna segja markmið þeirra að
þrýsta á þjóðarleiðtoga heimsins að grípa til aukinna aðgerða til
þess að minnka fátækt í Afríku.
Meðal annarra sem koma fram á Live8 í Japan verða bresku
rokkararnir McFly, bandaríska sveitin Good Charlotte og jap-
önsku tónlistarmennirnir Dreams Come True, Def Tech og Rize.
Tónleikarnir verða haldnir í tónleikahöll í námunda við Tókýó,
höfuðborg Japans. Þar er rúm fyrir 10.000 gesti.
Björk á Live8
í Tókýó
Björk lætur gott af sér leiða í Japan.