Morgunblaðið - 26.06.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝR FORSETI Í ÍRAN
Mahmoud Ahmadinejad er nýr
forseti Írans, hann bar sigur úr být-
um í forsetakosningum sem haldnar
voru á föstudag. Ahmadinejad hlaut
62% atkvæða en keppinautur hans,
Akbar Hashemi Rafsanjani, aðeins
36%. Ahmadinejad tekur við af um-
bótasinnanum Mohamed Khatami
sem verið hefur forseti frá árinu
1997. Ahmadinejad er sjálfur harð-
línumaður, íhaldssamur mjög og
hefur heitið því að hefja gildi ísl-
ömsku byltingarinnar í Íran árið
1979 aftur til vegs og virðingar í
landinu. Óttast er að kjör hans hafi í
för með sér versnandi samskipti
milli Írans og Vesturlanda.
Færri inngrip í fæðingar
Mun minna var um inngrip í fæð-
ingar hjá konum í Norður-Ameríku,
sem skipulögðu heimafæðingu með
löggiltri ljósmóður árið 2000 en hjá
sambærilegum hópi kvenna sem átti
á sjúkrahúsi. Tíðni burðarmáls- og
nýburadauða var svipuð hjá hóp-
unum tveimur. Þetta eru niður-
stöður viðamikillar rannsóknar sem
birtist í British Medical Journal.
Sigurður Guðmundsson landlæknir
segir að heimafæðingar hafi verið
innan við eitt prósent allra fæðinga á
Íslandi undanfarin ár. „Í sjálfu sér
ætlum við ekki að mæla með heima-
fæðingum umfram fæðingar á stofn-
unum en við munum heldur ekki
leggjast gegn þeim því það á að vera
val foreldranna hvar barnið fæðist.“
Börnin verði sjálfstæð
Íslendingar leggja mesta áherslu í
uppeldi á heimilum að kenna börn-
um að vera sjálfstæð. 85% töldu það
mjög mikilvægt samkvæmt nýrri
Eurobarometer-viðhorfskönnun
sem gerð var í 32 Evrópulöndum.
Engin önnur Evrópuþjóð lagði jafn
ríka áherslu á þetta skv. könnuninni.
83% svarenda á Íslandi sögðu einnig
mjög mikilvægt að kenna börnum
umburðarlyndi og að bera virðingu
fyrir öðrum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 42/45
Veiðiþáttur 27 Dagbók 48/51
Sjónspegill 28 Myndasögur 48
Forystugrein 30 Víkverji 48
Reykjavíkurbréf 30 Velvakandi 49
Hugsað upphátt 32 Staður og stund 50
Ummælin 33 Menning 52/57
Umræðan 34/38 Bíó 54/57
Bréf 38 Sjónvarp 58
Auðlesið efni 39 Staksteinar 59
Hugvekja 41 Veður 59
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
auglýsingablaðið Kanarí frá
Heimsferðum.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
NÚ er miðað við að nýtt kvikmynda-
hús Sam-bíóanna í Grafarvogi verði
opnað 2. mars á næsta ári, sama
mánaðardag og Bíóhöllin við Álfa-
bakka var opnuð árið 1982. Björn
Árnason framkvæmdastjóri segir að
í bíóinu verði sætin breiðari, hallinn
á salnum meiri og lengra á milli
bekkja en áður hefur þekkst. „Það
verður hægt að hafa heilt körfu-
boltalið fyrir framan sig án þess að
það skipti nokkru máli,“ sagði hann.
Húsið verður reist af Nýsi sem er
eigandi Egilshallar og voru samn-
ingar um byggingu og leigu undir-
ritaðir á föstudag. Upphaflega stóð
til að bíóið yrði opnað um áramótin
en það frestaðist þar sem borgaryf-
irvöld ákváðu að setja húsið í
grenndarkynningu, að sögn Björns.
Hann segir að búnaður í húsinu
verði allur sá fullkomnasti sem völ
sé á í heiminum í dag og að mikið
verði lagt upp úr þægindum fyrir
bíógesti. Þá sé Egilshöll að verða
allsherjar afþreyingarmiðstöð, auk
kvikmyndahússins sem þar mun
rísa verði í sumar eða haust opnaður
þar keilusalur, þar sé skautasvell,
fjölnota íþróttasalur og stefnt sé að
því að opna aðstöðu fyrir innanhúss-
golf.
Svona mun hið nýja kvikmyndahús að öllum líkindum líta út.
Björn Árnason framkvæmdastjóri og Árni Samúelsson, forstjóri Sam-
bíóanna, og Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis, og Helgi S. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Nýsis, undirrita samning um nýja bíóið.
„Hægt að hafa
heilt körfuboltalið
fyrir framan sig“
Breiðari sæti og lengra á milli bekkja í nýju kvikmyndahúsi Sam-bíóanna
„MESTU vonbrigði mín í rektors-
starfi eru þau að ekki skuli hafa
tekist að fá stjórnvöld til að leggja
Háskólanum það lið sem hann nú
þarf til að axla fyllilega ábyrgðina
sem honum er falin lögum sam-
kvæmt í íslensku þjóðfélagi,“ sagði
Páll Skúlason, fráfarandi rektor
Háskóla Íslands (HÍ), við braut-
skráningu skólans í Egilshöll í
gær. Páll var að slíta skólanum í
24. en jafnframt síðasta sinn, en
hann benti m.a. á að í hans tíð hafi
níu þúsund kandídatar braut-
skráðst frá Háskólanum og náms-
leiðum fjölgað úr 109 í 234. Til
samanburðar má geta þess að frá
stofnun Háskólans árið 1911 og
fram til 1997 þegar Páll tók við
stöðu rektors brautskráðust sex-
tán þúsund kandídatar.
Skilningsskortur embættis-
manna fjármálaráðuneytisins
Páll sagðist í gegnum tíðina hafa
átt góð samskipti við ráðherra og
ráðamenn ríkisins og kvaðst sann-
færður um að þeir vilji Háskóla Ís-
lands aðeins vel og viðurkenni þýð-
ingu hans fyrir íslenskt þjóðfélag.
„En ég hefði kosið, nú þegar ég
læt af starfi rektors, að þeir hefðu
lagt sig enn meira fram um að
skilja og efla þá mikilvægu starf-
semi sem Háskólinn stendur fyrir í
þágu okkar allra.“
Páll benti á að mikil bjartsýni
hafi verið innan Há-
skólans þegar samn-
ingar voru gerðir á
árunum 1999 og 2000
um kennslu og rann-
sóknir. Hins vegar
hafi það valdið von-
brigðum að ekki var
lokið við samning um
eflingu rannsókna en
í honum var kveðið á
um að ríkisvaldið
tengdi framlög til
skólans við árangur í
rannsóknum og
rannsóknartengdu
framhaldsnámi.
„Fjárveitingar-
valdið virðist hafa litið svo á að sú
uppbygging og efling rannsókna
og rannsóknartengds náms sem
ætti sér stað í Háskólanum væri of
kostnaðarsöm miðað við burði rík-
issjóðs,“ sagði Páll og bætti við að
viðbrögð embættismanna fjármála-
ráðuneytisins við nýútkominni
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
starfsemi HÍ bendi til skilnings-
skorts á því hvernig standa þarf að
uppbyggingu öflugs alhliða rann-
sóknaháskóla.
Vaxinn upp úr
fermingarfötunum
Að sögn Páls kemur m.a. fram í
skýrslunni að Háskólinn hafi náð
ótrúlegum árangri í samanburði
við erlenda háskóla ef miðað er við
aðstæður og fjárhagsleg skilyrði
sem honum eru búin. „Aflið sem
knýr Háskólann hefur
fyrir löngu sprengt ut-
an af sér ramma þeirr-
ar efnislegu umgjarðar
sem honum er sett.
Hann er eins og kröft-
ugur unglingur sem
hefur vaxið upp úr
fermingarfötunum.“
Páll minnti á að það
teldist lífsnauðsyn
hverju þjóðfélagi sem
ekki vill daga uppi,
staðna og verða
gleymskunni að bráð
að búa þegnum sínum
sem allra best skilyrði
til að menntast og
þroskast sem andlega sjálfstæðir
einstaklingar.
„Ég er ekki viss um að við Ís-
lendingar höfum enn borið gæfu til
þess að smíða það mennta- og há-
skólakerfi sem við þörfnumst til
þess að verða fullgildir þátttak-
endur í þeirri heimsmenningu vís-
inda, tækni og siðferðilegrar visku
sem veröld nútímans kallar eftir
og krefst að verði að veruleika, eigi
dagar mannkyns ekki að vera tald-
ir fyrr en varir. Að ekki sé minnst
á tilvist lítillar þjóðar eins og okk-
ar sem þarf á öllum sínum styrk að
halda, eigi hún að halda menning-
arlegu, stjórnmálalegu og efna-
hagslegu sjálfstæði sínu í sam-
félagi margfalt öflugri þjóða,“
sagði Páll og ítrekaði að nú væri
brýnni nauðsyn en nokkru sinni að
hlúa að Háskóla Íslands.
Fráfarandi rektor HÍ við sína síðustu brautskráningu
Mestu vonbrigðin með
þátt stjórnvalda
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Páll Skúlason
BANDALAG háskólamanna má
birta verktakastuðul fyrir há-
skólamenn á heimasíðu sinni, sam-
kvæmt ákvörðun samkeppnisráðs í
vikunni. Verktakastuðullinn sýnir
reikniaðferð til að finna taxta út-
seldrar vinnu miðað við þau mán-
aðarlaun sem sérfræðingur teldi
eðlilegt, að því er fram kemur í
ákvörðuninni.
Samkeppnisráð féllst á ósk BHM
um að fá að birta stuðulinn á heima-
síðu sinni með skilyrðum, m.a. þeim
að hann væri vistaður á lokuðu
svæði og að félagsmenn þyrftu að-
gangsorð til að nálgast hann, hann
hefði einungis að geyma kjara-
tengda þætti eins og þeir eru skv.
lögum um starfskjör launþega og
kjara- og stofnanasamningi aðild-
arfélaga BHM og að hann innihéldi
ekki lágmarkstölur eða lágmarks-
tekjuviðmið.
BHM má birta
verktakastuðul
TÆPLEGA tvítugur pitsusendill
var rændur síma og peningatösku í
austurborg Reykjavíkur í fyrrinótt,
milli klukkan 3 og 4.
Að sögn lögreglu barst Dominos
pöntun um pitsu í ákveðið heim-
ilisfang en þegar sendillinn kom
þangað með pitsuna vatt ræninginn
sér að honum, ógnaði honum með
eggvopni og hrifsaði af honum far-
síma og peningatösku með um
5.000 krónum. Hann lét sig síðan
hverfa með hraði.
Að sögn lögreglu var töluverður
erill í miðborginni í fyrrinótt, en þó
ekki meiri en venja er til aðfara-
nætur laugardaga. Sex voru stöðv-
aðir fyrir ölvun við akstur í Reykja-
vík og þrír í Hafnarfirði.
Rændi
pitsusendil