Morgunblaðið - 26.06.2005, Page 21
beint í æð þá finnst manni þetta
stórkostlegt. Það er aldeilis búið að
kynna okkur vel. Þetta snýst ekki
bara um sölu á einhverjum tonnum
af kjöti, heldur stórkostlega land-
kynningu.“
Starfsfólk með á nótunum
Þeir félagar voru að sjálfsögðu
ólaunaðir meðan á þessari starfs-
kynningu stóð, en fengu engu að
síður innsýn í starfsemina eins og
þeir væru starfsmenn. Ólafur
kveðst hafa tekið eftir því hvað var
létt yfir öllum. „Við fórum í þrjú
fylki og þetta virtist vera eins í öll-
um búðunum sem við heimsóttum.
Það kepptust allir við að gera sitt
besta. Sölutölur lágu fyrir eins og
opin bók svo starfsfólkið vissi
hvernig það stóð sig.“
Óli Þór segir að sér hafi komið á
óvart að sjá upplýsingar um inn-
kaupsverð, hvað seldist mikið og
hvað kom inn. Launamál starfs-
manna voru einnig opinber. Salan í
þeirri verslun sem þeir kynntust
best var eins og gerist best í ís-
lensku kjötborði.
Þeir félagar mættu ásamt öðrum
starfsmönnum klukkan fimm á
morgnana. Það tók þrjá klukku-
tíma að undirbúa kjötborðið. Hver
bakki var yfirfarinn, skipt um blöð
milli stykkja og allt haft hreint og
snyrtilegt. Þegar verslunin var
opnuð kl. 8 biðu viðskiptavinir fyrir
utan og gengu beint að kjötborðinu.
Óli Þór segir að starfsfólkið í
kjötborðum Whole Foods Market
fái tveggja ára starfsþjálfun á veg-
um fyrirtækisins sem lýkur með
prófi. Prófið er skilyrði þess að
verða yfirmaður í kjötborðinu.
„Eftir tvö ár eiga þau að vita allt
um innihald kjötborðsins, eldun,
næringarinnihald vörunnar, hent-
ugt meðlæti og uppruna kjötsins.
Viðskiptavinurinn á að geta fengið
allar nauðsynlegar upplýsingar hjá
afgreiðslufólkinu.“
Ýmislegt vert til eftirbreytni
Óli Þór telur okkur geta lært ým-
islegt af Bandaríkjamönnum. „Ég
vil leggja áherslu á skammtastærð-
irnar, sem þarf að vanda miklu
meira en við höfum gert. Ég er
mjög hrifinn af þessu lokaða kjöt-
borði og eins að skilja á milli kjöt-
sneiða þannig að þær snertist ekki.
Við þurfum einnig að leggja
áherslu á að upplýsingar um vör-
una séu aðgengilegar fyrir starfs-
fólk í kjötborðum. Nú er ekki hægt
að ganga að því vísu að sá sem af-
greiðir viti meira um kjötið en þú
sjálfur, þótt víða sé þetta í mjög
góðu lagi.“
Ólafur segir að í Bandaríkjunum
ríki aðrar neysluvenjur en hér og
ekki sé ætlunin að innleiða þær.
Engu að síður þurfi að hugleiða
hvernig megi aðlaga bandarísku
aðferðirnar íslenskum kjötborðum
til að mæta enn betur kröfum ís-
lenskra viðskiptavina.
Morgunblaðið/Guðni
Kjötiðnaðarmeistararnir Óli Þór Hilmarsson og Ólafur Júlíusson við krásum
hlaðið kjötborðið í einni af verslunum Whole Foods Market.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 21
Verkefni sem flytjast á þjónustumiðstöðvar eru m.a. fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur, félagsleg ráðgjöf,
heimaþjónusta, félagsstarf og stuðningsþjónusta. Þjónustumiðstöðvar eru eftirtaldar:
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar tekur til starfa
Þann 1. júní tók Velferðarsvið Reykjavíkurborgar til starfa. Velferðarsvið tekur við af
Félagsþjónustunni í Reykjavík en nýjar þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar veita alla
þjónustu sem veitt var á hverfaskrifstofum og í félags-og þjónustumiðstöðvum Félagsþjónustunnar.
Viðfangsefni Velferðarsviðs eru:
Stefnumótun í velferðarmálum
Áætlanagerð
Samhæfing og samþætting verkefna á sviði velferðarþjónustu
Eftirlit og mat á árangri
Þróun nýrra úrræða í velferðarþjónustu
Vinnsla barnaverndarmála
Rekstur hjúkrunarheimila og heimila fyrir börn og fullorðna
Skrifstofa Velferðarsviðs er í Tryggvagötu 17, Hafnarhúsi, s. 411 9000, www. velferdarsvid.is
Vesturbær: Hjarðarhagi 45-47
Miðbær/Hlíðar: Skúlagata 21
Laugardalur/Háaleiti: Síðumúli 39
Árbær/Grafarholt: Bæjarháls 1
Breiðholt: Álfabakki 12
Grafarvogur/Kjalarnes: Langarimi 21
si
gr
un
ei
na
@
in
te
rn
et
.is
Fáðu fréttirnar
sendar í
símann þinn