Morgunblaðið - 26.06.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.06.2005, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Inn í garðinn berast ham-arshögg úr ýmsum áttum.Alls staðar er verið aðsmíða palla. Þrastaparið ístóra grenitrénu mínu er farið að venjast hávaðanum og þarf heldur ekki að hafa áhyggj- ur af köttum því að ég keypti kattafælu í byggingavöruverslun þar sem menn voru í óðaönn að mæla út réttar stærðir í palla. Svo frétti ég af fólki sem hafði beðið lengi eftir smiði en þá var allt timbrið búið og óvíst hvort pallurinn kemst í gagnið fyrir væntanlega grill- veislu. Sumarið er í algleymingi og nú liggur fyrir úrskurður hagfræðinga um að við Íslend- ingar séum hópsálir. Þessi úrskurður kom satt að segja svolítið illa við mig. Ég er alin upp við þá kenningu að við séum einstaklingshyggjumenn, reyndar svo miklir að okkur sé ógerlegt að taka tillit til hags- muna heildarinnar. Minni kyn- slóð var innrætt að forfeður okk- ar, landnemarnir frá Noregi, hefðu verið svo sjálfstæðir að þeir hafi engan veginn getað sætt sig við yfirgang Haralds hárfagra og þess vegna hreppt Kaldbak en látið akra, eins og segir í vísu Önundar tréfótar í Grettis sögu. Og þótt maður hafi orðið svolítið hneykslaður á Bjarti í Sumarhúsum fór ekki hjá því að hinn íslenski einyrki allra tíma ætti talsvert upp á pallborðið inni í þjóðarsálinni. Það fylgdi ekki úrskurði hag- fræðinganna hvenær þjóðarsálin okkar ummyndaðist í hópsál. Það hefur þá orðið eftir að sósíalism- inn barst hingað því að vinstri flokkarnir áttu í öndverðu erfitt uppdráttar hérlendis. Afi minn, sem fór halloka í heimskrepp- unni, hafði mestu skömm á öllum félagsbúskap og sætti sig við að tolla réttum megin við núllið í litlu búðinni sinni á meðan hann gat staðið uppréttur. Hann dytt- aði að garðinum sínum og rækt- aði matjurtir til að vera sjálfum sér nógur en þótt hann væri vel lagtækur efast ég um að hann hefði smíðað sér pall þótt hann hefði heyrt hamarshögg úr öðr- um görðum. Honum hefði ekki líkað hugtakið hópsál. Kannski má rekja sálnaflakkið til þess er við fórum unnvörpum að hreiðra um okkur á mölinni án þess að hafa hugmynd um hvernig fólk hegðar sér í þétt- býli. Lengi vel var talið ógern- ingur fyrir afkomendur Bjarts gamla að búa í fjölbýli og harð- vítugar deilur spruttu út af sam- eiginlegum húsakosti og aðstöðu. Þess vegna varð það draumsýn allra að eignast eigið hús, verða eigin herra og síst minni maður en fúll á móti. Og þannig dönsum við í takt og sveiflum með okkur íslenska hagkerfinu sem tekur dýfur eftir því hvernig við end- urnýjum húsakost og bílaflota, reisum sumarhallir eða byggjum palla úr innfluttum kjörviði. Þetta greinarkorn er orðið að eins konar palladómum og ætli ástæðan sé ekki einfaldlega sú að sjálfa vantar mig spýtur í dá- lítinn pall sem vinur minn ætlaði að koma saman. Ég get sem sé ekki svarið af mér skyldleika við íslensku hópsálina. En af því að hér var minnst á fornmenn og horfnar dyggðir er ekki úr vegi að víkja að þeirri staðreynd að fátt er þjóðlegra en viðarskortur. Ýmsa örlagaríkustu atburði Ís- lendingasagna má rekja til þess að hér uxu ekki nytjaskógar, menn þurftu að hafa allar klær úti til að afla sér viðar og bárust á banaspjót út af nokkrum reka- drumbum. Við skulum vona að spýturnar mínar komist til skila og grillveisla granna minna fari fram áfallalaust þótt ekki takist að ljúka við pallinn. Hópsálir sveifla hagkerfinu HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Guðrúnu Egilson Sumarhús Tjarnholtsmýri 15 Um er að ræða glæsilegt sumarhús nýtt í landi Bjarnastaða í Grímsnesi á 10 hektara eignarlandi. Sumarhúsið er ca 90 fm auk 20 fm gestahúss. Húsið verð- ur á steyptri plötu, byggt úr timbri, þak verður með bárujárni eða torfi. Húsið afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan. Verð 17 millj. Sumarhús Háuhlíð 10 Um er að ræða 57,4 fm sumarhús í landi Vatnsholts við Apavatn. Lýsing eignarinnar: þrjú svefnherbergi, stofa og eldhús í einu rými. Falleg eldhúsinn- rétting og góður borðkrókur, nýleg heimilstæki, þ.e. ísskápur, eldvél og ýmis áhöld. Innaf forstofu er geymsla. Gott baðherbergi, 27 fm svefnloft, 70 fm pallur. Húsið stendur á 5100 fm eignarlóð. Það vantar gólfefni og hurð- ir. Annars er bústaðurinn vel hirtur og gott leiksvæði er fyrir börnin. Allt innbú fylgir. Verð 9,1 millj. Glæsileg 114 fm íbúð á 10. hæð, íb. 1002, ásamt sérgeymslu og sérstæðis í bíla- geymslu. Íbúðin skiptist í gang/hol með skápum, 2 rúmgóð herb., flísalagt baðher- bergi með þvottaaðstöðu, stórar og bjartar stofur og eldhús með góðum innréttingum. Parket á gólfum. Tvennar svalir, mikið út- sýni til norðurs, austurs og suðurs. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni og sérþvottaherb. Sameign til fyrirmyndar. Verð 36,9 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14.00-16.00. Verið velkomin. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Klapparstígur 1 - 4ra herb. útsýnisíbúð Opið hús frá kl. 14-16 Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Vorum að fá í sölu mjög fallegt og vel skipulagt 168 fm einbýlishús með bílskúr á einni hæð við Lindarflöt í Garðabæ. Húsið er teiknað af Gunnari Hanssyni. Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu og þrjú herbergi (fjögur skv. teikningu). Úr stofu er gengið út í garð. Þar er nýleg timburverönd með heitum potti. Sérstaklega fallegur garður. Nánari upplýsingar veitir Magnea fasteignasali í síma 861 8511. Verð 37 millj. Lindarflöt - Garðabæ Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 HÁSKÓLI Íslands og Trygginga- stofnun ríkisins hafa gert með sér samning sem hefur það markmið að efla kennslu og rannsóknir í al- mannatryggingarétti með sérstakri áherslu á lífeyristryggingar. Samningurinn byggir á ákvæði í samstarfssamkomulagi sem í gildi hefur verið milli Háskóla Íslands og Tryggingastofnunar frá árinu 2002. Ellefu vikna kennsla í almanna- tryggingarétti verður samkvæmt samningnum kjörgrein í framhalds- námi við lagadeild Háskóla Íslands. Námskeiðið í almannatryggingarétti er tvískipt, fyrri hlutinn byggir á meginreglum, heimildum og túlkun- um félagsmálaréttar, en síðari hlut- inn fjallar um almannatryggingarétt með áherslu á íslenska lífeyriskerfið og réttinn til elli- og örorkulífeyris. Tryggingastofnun veitir sam- kvæmt samningnum nemendum í al- mannatryggingarétti aðgang að upplýsingum og gögnum stofnunar- innar og leggur þeim til vinnuað- stöðu og leiðsögn við gerð verkefna. Fyrsta námskeiðið í almanna- tryggingarétti hófst um síðustu ára- mót í umsjón Brynhildar Flóvenz, lektors við HÍ. Fimm sérfræðingar Tryggingastofnunar fluttu erindi á námskeiðinu og luku fjórtán nem- endur náminu í vor. Samið um kennslu og rannsóknir í almanna- tryggingarétti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.