Morgunblaðið - 26.06.2005, Síða 41

Morgunblaðið - 26.06.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 41 FRÉTTIR Maður er nefndurSakaría. Hann varprestur í Jerúsal-em, af sveit Abía,einnar af 24 sem þjónuðu við musterið. Kona hans var Elísabet. Hún var „óbyrja, og bæði voru þau hnigin að aldri“ eins og segir í 1. kafla Lúkasarguð- spjalls. Dag einn, þegar Sakaría er að færa reykelsisfórn birtist hon- um Gabríel erkiengill með þau tíð- indi, að Guð hafi bænheyrt þau hjónin, Elísabet muni verða þung- uð og fæða son og eigi hann að fá nafnið Jóhannes. Þetta gekk eftir, og hefð sem rekja má a.m.k. til ársins 530 e.Kr. getur meira að segja þorpsins, Ein Karem í Júdeu. Og „sveinninn óx og varð þrótt- mikill í anda“. Ekkert spyrst til hans í ritheim- ildum (sem eru guðspjöllin fjögur, Postulasagan og verk sagnfræð- ingsins Jósefusar, Saga Gyðinga- þjóðarinnar) fyrr en 27/28 eða 28/ 29 e.Kr., þegar hann fær spámann- lega köllun og er þá búinn að vera eitthvað í óbyggðum Júdeu, bíð- andi eftir merki frá Guði. Hann gekk um í klæðum úr úlfaldahári, gyrtur leðurbelti, nærðist á engi- sprettum og villihunangi, og „fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda“. Hann eignaðist fljótt marga lærisveina, og þar voru á meðal einstaklingar, sem áttu eftir að verða í postulahópi Jesú, s.s. Andrés og Pétur. Í Markúsarguðspjalli segir að Jóhannes hafi prédikað svo: Sá kemur eftir mig, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. Ég hef skírt yður með vatni, en hann mun skíra yður með heilögum eldi. Frægð Jóhannesar berst meist- aranum til eyrna í Nasaret og kem- ur hann til að hitta þennan frænda sinn, og er talið að fundi þeirra hafi borið saman við ána Jórdan, nærri þeim stað er heitir Deir Mar- Yuhanna (Qasr el-Yehud). Þeir ræðast við og Jesús tekur loks skírn af honum, og fer síðar um hann miklum viðurkenningar- orðum. Með þessum atburði urðu tímamót, algjör þáttaskil; Jóhann- es hafði áttað sig á því, að hér var Messías kominn, og sjálfur yrði hann því að „minnka“, víkja fyrir hinum boðaða konungi, sem mætt- ur var þar til ríkis síns. Gagnrýni Jóhannesar á Heród- es, fjórðungsstjóra í Galíleu, varð til þess að hann var settur í fangelsi í Makaerusvirkinu í Pereu, og háls- höggvinn nokkrum mánuðum síð- ar, að undirlagi Heródíasar, konu Filippusar, bróður hins. Yngri heimildir tengja Salóme, 14 ára dóttur þeirra, við málið. Þetta gerðist skömmu fyrir páska. Er talið að spámannlegur tími Jóhann- esar í óbyggðunum hafi einungis verið um hálft ár. Ýmsir hafa viljað tengja hann við essena, stranga gyðinglega trúar- reglu sem til varð á 2. öld f.Kr. en hvarf af sjónarsviðinu undir lok 1. aldar e.Kr, og aðra af svipuðum toga, og margt í orðfærinu líkist vissulega því, sem fannst í ritum í Kúmran við Dauðahafið árið 1947. En erfitt er samt að fullyrða nokk- uð um þá hluti, af eða á. Legstaður Jóhannesar hefur allt frá árinu 360 verið talinn í Sebaste. Jóhannes skírari og María guðs- móðir eru einu kaþólsku dýrling- arnir sem eiga fæðingardaga sína að messudögum; dánardagur, upp- tökudagur beina eða skrínlagning hefur ráðið vali í dæmum annarra. Jóhannes varð einnig fyrsti alþjóð- legi dýrlingur kirkjunnar í austri og vestri, þegar á 4. öld. Hann er verndardýrlingur frönskumælandi hluta Kanada, og þar heita tvær borgir eftir honum, Saint John í New Brunswick og St. John’s á Nýfundnalandi, auk þess sem 24. júní er afmælisdagur Quebecfylkis. Einkennistákn hans eru m.a. lamb, kross, býkaka, kornax og skinnserkur. Eitthvað af því sést á myndinni sem hér fylgir og er frá því um 1600, eftir Domenikos Theotocopoulos, öðru nafni El Greco (1541-1614). Í Íslam, sem og í Mandaeanisma (trúarbrögð um 15.000 einstak- linga í Írak og suðvesturhluta Ír- ans; urðu líklega til á fyrstu öldum kristninnar), er Jóhannes einnig talinn spámaður. Margar kirkjur á Íslandi voru fyrrum helgaðar Jóhannesi skír- ara, ýmist einum eða með öðrum; hann var m.ö.o. nafndýrlingur sautján guðshúsa og verndar- dýrlingur tíu. Mætti sem dæmi nefna hér Stað í Grunnavík, Bægisá í Hörgárdal, Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og Viðey. Einn- ig voru myndir af honum í um tutt- ugu kirkjum hér á landi. Áður fyrr nefndist hann í ís- lenskum heimildum Jóan baptisti eða skírari, og einnig Jón, með sömu viðurnefnum. Í bókinni Nöfn Íslendinga, eftir Guðrúnu Kvaran og Sigurð Jóns- son frá Arnarvatni, segir um Jó- hannes: Nafnið er sótt til Biblíunnar og er hebreskt að uppruna [...] og merkir eiginlega „guð hef- ur sýnt miskunn“ [...] Af þessu nafni eru leidd nöfnin Jón, Jóhann, Jens, Hannes, Hans. Og um nafnið Jón segir þar: Það er stytting af Jóhannes eða Jóhann. Það má hugsa sér þróunina þannig: Jóhann- es>Jóhann>Jóan>Jón. Að lokum er þess að geta, að Jó- hannes á sér aðra messu, nánar til- tekið á dánardegi sínum, höfuð- degi, 29. ágúst. Og í rétttrúnaðar- kirkjunni er hans að auki minnst 23. september, 7. janúar, 24. febr- úar og 25. maí. Jóhannes skírari sigurdur.aegisson@kirkjan.is Jónsmessa var 24. júní, og eins og kom fram í síðasta pistli dregur hún nafn af Jóhannesi skírara; þetta var og er talið fæðingardagur hans. Sigurður Ægisson er hér með nánari fróðleik um þennan brautryðjanda meistarans frá Nasaret. Akranes Ófeigur Gestsson 431 4383 892 4383 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236 Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849 Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207 Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjánss. 4366925 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987 Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644 Hveragerði Úlfar Andrésson 483 4694 893 4694 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904 Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 456 1349 Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464 Sandgerði Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir 423 7330 821 7330 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488 Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338 Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945 Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655 Vestmannaeyjar Guðrún Kristín Sigurgeirsd. 481 3293 699 3293 Vík í Mýrdal Æsa Gísladóttir 867 2389 Vogar Una Jóna Óafsdóttir 421 6910 663 0167 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438 Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515 DREIFING MORGUNBLAÐSINS Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer NÝVERIÐ bauð Kiwanishreyfingin heimilisfólki á Hrafnistu í fertugustu sumarferðina, en fyrsta ferð- in var farin árið 1965. Í ár tóku 160 manns þátt í ferð um Vesturland. Í Kiwanisferðinni var komið við í Saurbæjar- kirkju á Hvalfjarðarströnd þar sem séra Kristinn Jens Sigurþórsson sóknarprestur tók á móti hópn- um. Þaðan var haldið á Akranes, en þar tók Kiwanis- klúbburinn Þyrill á móti gestunum og bauð m.a. í skoðunarferð um markverðustu staði bæjarins. Kiwanis bauð í sumarferð BRAUTSKRÁNING frá Tækniháskóla Íslands fór fram laugardaginn 11. júní sl. í Grafarvogskirkju. Að þessu sinni útskrifuðust 59 nemendur frá öllum deildum skól- ans. Þar af útskrifuðust 25 nemendur frá frumgreina- deild, 20 frá heilbrigðisdeild, 2 frá rekstrardeild og 12 frá tæknideild. Brautskráning frá Tækniháskólanum GRAFARVOGSKIRKJA vill árétta eftirfarandi vegna umfjöllunar um steindan glugga í kirkjunni í Morgunbaðinu í gær: „Í umfjöllun í Morgun- blaðinu, laugardaginn 25. júní, um Kirkjuþing unga fólksins, bendir Friðþjófur Þorsteinsson, starfsmaður þingsins, á að ríkið hafi gefið sextíu milljóna króna steindan glugga í Grafarvogs- kirkju, sem gjöf til unga fólksins, á Kristnihátíð- arári. Hið rétta er að glugginn kostaði milli sextán og sautján milljónir. Listaverkið, eftir Leif Breið- fjörð, hefur af mörgum verið nefnt sem eitt af þjóðargersemunum. Þess má geta að mjög fjöl- breytt æskulýðsstarf fer fram í Grafarvogskirkju og fimm skólum sóknarinnar.“ 16 milljónir en ekki 60 HUGVEKJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.