Morgunblaðið - 26.06.2005, Page 43

Morgunblaðið - 26.06.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 43 MINNINGAR ✝ Jóhann Kr. Eyj-ólfsson fæddist 12. otkóber 1914. Hann lést á Hlévangi í Keflavík hinn 18. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eyjólfur Jóhannsson skipstjóri, f. 12.2. 1881 í Melshúsum á Seltjarnarnesi, d. 5.1. 1933 í Sand- gerði, og Gíslína Gísladóttir hús- freyja, f. 19.7. 1891 í Dalbæ í Gaulverja- bæjarhreppi í Árnes- sýslu, d. 3.9. 1959 í Sandgerði. Systkini Jóhanns eru Ingibjörg Steinunn, f. 23.9. 1916, d. 18.12. 2000, Ása, f. 13.4. 1918, Gísli, f. 12.2. 1920, Ingjaldur Geir, f. 29.5. 1921, lést á unga aldri, Gyða Eyj- ólfsdóttir, f. 17.6. 1923, Skúli, f. 14.8. 1924, d. 5.12. 2000, og Garð- ar, f. 29.9. 1930, d. 6.3. 1994. Hinn 11.2. 1961 kvæntist Jó- hann Jóhönnu Kr. Einarsdóttur, f. 13.8. 1917, d. 20.1. 1997. For- eldrar hennar voru Anna Soffía Jóhannsdóttir, f. 24.9. 1870, d. 22.10. 1956 á Litlu Ásgeirsá í Víðidal í V-Húnavatnssýslu, og Einar Jónsson, f. 11.9. 1862, d. 18.1. 1931, frá Ysta- Skála undir Eyja- fjöllum. Börn Jó- hanns og Jóhönnu eru: 1) Hörður, raf- virkjameistari, f. 8.5. 1936, maki Ragnheiður Ragn- arsdóttir. Hörður á fjögur börn. 2) Erla, húsmóðir, f. 3.3. 1940, maki Maríus Gunnarsson og eiga þau fimm börn. Einnig gekk Jóhann Önnu Soffíu, f. 20.11. 1952, d. þann 17.1 2003, í föðurstað og ól hana upp, maki hennar er Konráð Sig- urjónsson og eiga þau þrjú börn, og einnig ólst upp hjá þeim hjón- um elsta barnabarnið þeirra, Jó- hann Kr. Harðarson, maki hans er Sólrún Símonardóttir. Jóhann á þrjú börn. Jóhann ólst upp í foreldrahús- um og vann við vélgæslu sem hann hafði réttindi til. Árið 2001 fluttist Jóhann að Hlévangi í Keflavík, þar sem hann dvaldist þar til að hann lést. Útförin var gerð frá Hvalsnes- kirkju föstudaginn 24. júní og fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Liðinn farsæll lífsins dagur, leiðir skilja, afi kær. Allar þínar góðu gjafir, geymi ég og blessa þær. Allt frá fyrstu æskudögum, átti ég með þér samleið hér. Kynntist ungur kærleik þínum, kynnin urðu dýrmæt mér. Þér ég þakka, elsku afi, allar ljúfar stundir hér. Leiðsögn þín á lífsins vori, lifir traust í hjarta mér. (Ingibjörg Sig.) Þráinn Maríusson og fjölskylda. JÓHANN KR. EYJÓLFSSON Það var eitt sinn þegar ég var í sveit- inni hjá ömmu og afa í Skálholti að ég kom grátandi inn til Stínu frænku um miðja nótt. Ég var með textabrotið ,,eitt sinn verða allir menn að deyja“ úr laginu Sökn- uður eftir Vilhjálm Vilhjálmsson og Jóhann Helgason, fast í huga mér og var það að brjótast um í mér. Ég var þá um tíu ára gamall og spurði Stínu hvort það væri virkilegt að afi þyrfti líka að deyja. Hún sagði að það liði undir lok hjá okkur öllum. Þetta var ein af þeim stundum sem ég fattaði alvöru lífs- ins, afi, mitt uppáhald, átti eftir að deyja. Ég svaf ekkert meira þá nóttina af ótta við þann dag er afi yrði allur. Það var svo á fjarlægum slóðum sem ég fékk þær fréttir að það væri orðið að veruleika sem ég ótt- aðist í æsku minni, afi minn dó. Tilfinningar mínar voru blendnar, BJÖRN ERLENDSSON ✝ Björn Guðmund-ur Erlendsson fæddist á Brekku í Biskupstungum 20. apríl 1924. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Skálholtskirkju 24. júní. ég var feginn að hann fór með reisn fyrst svona þurfti að fara, en söknuðurinn er mikill. Afi var og verður mín helsta fyrirmynd, fyrirmynd sem ég gæti ekki verið heppnari með. Ég held að afi hafi verið óumdeilt góðmenni, hjartahlýr maður sem vildi öllum vel, talaði vel um alla og gerði aldrei vandræði úr neinu. Afi var ótrú- lega klár, framúrskarandi náms- maður og vel að sér. Eitt sinn heyrði ég það frá manni sem til afa þekkti að hann hefði aldrei hitt mann sem var jafn vel að sér um svo ótrúlega marga hluti eins og afi. Þannig var afi, maður kom aldrei að tómum kofunum hjá hon- um. Hann vissi upp á hár hvað maður var að gera og það var hægt að tala við hann um það á vitrænum nótum hvort sem það var nám, starf eða áhugamál. Afi var hamingjusamasti maður sem ég hef kynnst, það er líklega hún amma sem átti stærsta þáttinn í því. En hann var vel giftur, mann- eskju sem geislar af fegurð að ut- an sem innan, kraftmikil og fynd- in. Afi var ótrúlega skotinn í henni ömmu, hamingjan og ástin skein úr augum hans þegar hann horfði til hennar. Afi og amma áttu óend- anlega marga vini, það var alltaf fullt hús af gestum hjá þeim bæði í Skálholti og á Selfossi. Þeim leið best innan um margt fólk, það var höfðinglegt að sækja þau heim. Afi kunni ekki að segja nei, hann hugsaði alltaf fyrst um aðra og svo síðast um sjálfan sig, eitt- hvað sem fleiri mættu taka sér til fyrirmyndar. Hann var auðmjúkur og hógvær, hann sóttist ekki eftir vegtyllum þótt honum hafi hlotn- ast þær. Hann var áhugamaður um að bæta það samfélag sem hann var hluti af og tók því að sér ýmis trúnaðarstörf. Afi var mikill fjölskyldumaður, honum leið aldrei betur en með okkur sem flest í kringum sig. Undir það síðasta kom ég nokkr- um sinnum með Maríönnu Mist dóttur mína á Selfoss. Það var ómetanlegt að sjá hvernig hann hresstist við og geislaði við að sjá okkur, en Maríanna var mjög hænd að honum, rétt eins og ég, þrátt fyrir ungan aldur. Í framtíð- inni þá mun ég segja Maríönnu sögur af langafa sínum. Frá fyr- irmynd minni sem ég er svo stolt- ur af og þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast. Afi hélt andlegum styrk sínum til dauðadags og geislaði af ham- ingju. Ég held að það sé ekki hægt að kveðja þennan heim á betri og fallegri hátt en hann gerði. Hald- andi í höndina hennar ömmu, bú- inn að kveðja alla, búinn að skipu- leggja jarðarförina, sáttur og hamingjusamur. Ingi Björn Sigurðsson. Inn í eilífðina ertu farinn, elsku vinur minn. Man er þú þig seinast kvaddir í mínum huga óma gleðiraddir. Brosið sem ætíð var á vörum þínum man ég í huga mínum. Mun ég þín ætíð sakna og af draumi slæmum ég muni vakna. Skarpi, elsku vinur minn, mundu bara að ég elskaði þig rosalega og þú varst einn fárra sem ég gat alltaf SKARPHÉÐINN KRISTINN SVERRISSON ✝ SkarphéðinnKristinn Sverris- son fæddist í Reykja- vík 25. nóvember 1981. Hann lést af slysförum 27. maí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Laugarneskirkju 8. júní. talað við og treyst. Vildi ekki trúa því þegar þú fórst og vil enn ekki trúa því. Hver á núna að vera sá sem fær mig alltaf til að brosa og hlæja? Ég mun hitta þig seinna, elsku vinur, þar til þá bið ég fyrir kveðju. Þín vinkona, Sveinbjörg Inga Leifsdóttir. Þá er komið að kveðjustund, kæri vinur. Þú ert horf- inn á braut og við erum skilin eftir með sárt hjarta og endalausar spurningar. Hvernig á maður að skilja allar þessar tilfinningar? Við bíðum alltaf eftir því að þú mætir í vinnuna og við hugsum með okkur að þetta sé allt vondur draumur eða lé- legur brandari. Þetta er víst raun- veruleikinn eins kaldur og óheflaður og hann getur verið. Skarpi, eins og hann var alltaf kallaður af okkur, var mættur á hverjum morgni með bros á vör og strax farinn að reyta af sér brand- arana. Það var alltaf gleði þar sem þú komst nálægt, og alltaf þetta stóra og mikla hvolpabros. Það var alveg sama hvað var, þú varst alltaf til staðar og tilbúinn til að hjálpa og hlátur þinn og grettur gátu alltaf breytt slæmum degi yfir í góðan. Vinnustaðurinn verður ekki sá sami án þín. Þó þú sért farinn af þessari jörð munt þú alltaf lifa í hjörtum okkar allra. Þín verður sárt saknað. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Við gætum sungið, gengið um, gleymt okkur með blómunum. Er rökkvar ráðið stjörnumál. Gengið saman hönd í hönd, hæglát farið niður á strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhj. Vilhj.) Kæri Sverrir og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Megi Guð vera ykkur stoð og styrkur. Þínir vinir í útkeyrsludeild Ís- landspósts, Inga Rúna, Haukur, Einar Ingi, Guðrún, Anna, Arnrún, Sveina og Ingunn. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS HALLGRÍMSSONAR, áður til heimils að Kleppsvegi 28, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunar- og starfsfólki Vífilsstaða og Ólafi Þór Gunnarssyni lækni. Sigurgrímur Jónsson, Sigrún Scheving, Erlen Jónsdóttir, Matthías Gíslason, Elín Jóna Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, afa og bróður, PÁLS MARELS JÓNSSONAR, Lækjasmára 4, sem lést laugardaginn 18. júní sl., fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 13.00. María Ásgeirsdóttir, Jón Pálsson, Páll Marel Jónsson Jakob Einar Jónsson, og systkini hins látna. Innlegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu hlý- hug og stuðning vegna veikinda og andláts móður minnar og ömmu, INGIBJARGAR ANDRÉSDÓTTUR (Diddu í Síðumúla), Dvergholti 4, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Landakotsspítala fyrir einstaka umönnun. Ingibjörg Eggertsdóttir, Hjalti Stefán Kristjánsson, Andrea Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.