Morgunblaðið - 26.06.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 26.06.2005, Síða 48
Grandi | Sigurður Harðarson, tónlistarmaður, hjúkrunarfræðingur og hug- sjónamaður, efnir til tónleika í Hellinum, TÞM, í dag kl. 18–22 í tilefni af út- komu bókarinnar „Um anarkisma“, sem Sigurður hefur þýtt. Í bókinni er reynt að útskýra hugsjónir stjórnleysingja, tilvist þeirra og drauma. Mark- miðið með sjálfri útgáfunni segir Sigurður að reyna að víkka aðeins pólitísk- an sjóndeildarhring Íslendinga. „Það verður engin bylting upp úr henni enda er raunveruleg bylting ekki tímabundið átak heldur það þegar fólk breytir hegðunarmynstri sínu vegna þess að það er að læra nýjar leiðir til að um- gangast hvað annað,“ segir Sigurður. 500 kr. kostar inn á tónleikana, en þar koma fram sveitirnar Innvortis, Fighting shit, Myra, Mammút, Svavar Knútur, Gavin Portland, Viðurstyggð og Transsexual daycare og samfagna Sigurði vegna útkomunnar. Morgunblaðið/Arnaldur Útgáfufögnuður í Hellinum Mímí og Máni Kalvin & Hobbes KALVIN! HVAÐ ERTU AÐ GERA VIÐ GARÐINN OKKAR? GERA HRAÐA- HINDRANIR Svínið mitt TVISVAR SINNUM ÞRÍR ERU? © DARGAUD GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN ADDA, ÞÚ ÁTT AÐ VERA AÐ LÆRA EN EKKI LEIKA ÞÉR VIÐ RÚNAR RÚNAR ER AÐ HJÁLPA MÉR MEÐ MARG- FÖLDUNAR- TÖFLUNA EF ÞÚ KANNT EKKI MARGFÖLDUNAR- TÖFLUNA ÞÍNA VERÐUR KENNARINN REIÐUR! JÁ, JÁ ... 3X3 ERU ... GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN NÆSTA MORGUN JÆJA, NÚ SKULUM SJÁ HVORT ÞIÐ SÉUÐ BÚIN AÐ LÆRA MARGFÖLDUNAR- TÖFLUNA ADDA HVAÐ ER 3X4 GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN ...... ÚPS! HÚN VARÐ EKKERT SMÁ REIÐ OG ÉG FÉKK AUKA HEIMAVERKEFNI GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN GROIN OOO ... HÆTTU NÚ ... Dagbók Í dag er sunnudagur 26. júní, 177. dagur ársins 2005 Víkverji bókaði ferðmeð Icelandair til Evrópuborgar á dög- unum. Ætlunin var að dveljast á hóteli þar um tíma og skoða borgina. Breytingar á persónulegum högum Víkverja hafa hins veg- ar orðið til þess að hann neyðist til að hætta við ferðina. x x x Víkverji þóttist nokk-uð öruggur með sig enda keypti hann forfallatryggingu og aðstæðurnar þykja honum nógu slæmar til að hún ætti að virka. En þarna kom það niður á Víkverja að hafa ekki lesið skilmálana almenni- lega. Forfallatryggingin gildir nefni- lega aðeins ef einhver nákominn Vík- verja deyr eða þarf að leggjast inn á sjúkrahús. Ekki er nóg að ferðafélagi Víkverja veikist nema þá að Víkverji sé skráður í sambúð eða giftur við- komandi. Víkverji hugsaði með sér að þetta væri allt í lagi. Hann gæti breytt um áfangastað og heimsótt vinkonu sína í Berlín eða vini sína í Kaupmanna- höfn. En breytingar á áfangastað eru víst ekki leyfðar ef um netfargjald er að ræða. Víkverja datt þá það snjallræði í hug að láta einhvern nákom- inn sér sem hefði gott af smá fríi fá miðann. En nei og aftur nei. Nafna- breytingar eru heldur ekki leyfilegar. x x x Víkverji á bágt með aðskilja þessar ströngu reglur enda getur hann ekki séð að það muni nokkru fyrir Icelandair hver flýgur á flugmiðanum auk þess sem flugfélagið getur rukkað viðskiptavini sína fyrir hvers kyns breytingar. Víkverji situr því uppi með miða til borgar í Evrópu þar sem hann þekkir engan og nennir varla að hanga einn. Eina ráðið er að fresta fluginu þar til síðar en það þarf þá að vera innan árs og Víkverji á ægilega erfitt með að taka slíkar ákvarðanir. Víkverji vonar að Icelandair bæti þjónustu sína og þá sérstaklega í þeim tilfellum þar sem það breytir litlu öðru fyrir fyr- irtækið en að einhver starfsmaður þurfi að breyta upplýsingum inni í tölvu. Fyrirtækið getur eftir sem áð- ur rukkað fimm þúsund krónur fyrir herlegheitin. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Því að ef það, sem að engu verður, kom fram með dýrð, þá hlýtur miklu fremur hið varanlega að koma fram í dýrð. (II.Kor. 3, 11.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.