Morgunblaðið - 26.06.2005, Side 54

Morgunblaðið - 26.06.2005, Side 54
54 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Skráðu þig á bíó.is Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 & 10.20 Miðasala opnar kl. 13.30 INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ Eru allir klárir í ævintýralega fyndið ferðalag? Það sem getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis! Frábær gamanmynd fyrir alla fjölskylduna sem fór beint á toppinn í USA Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 kl. 2, 5, 8 og 10 B.i 10 ÁRA kl. 2 og 5 Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.30 B.i 14 ára Fréttablaðið  MORGUNBLAÐIÐ SJ. blaðið  x-fm AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir „Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM Frá leikstjóra Bourne Identity „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV Blaðið  Missið ekki af svölustu mynd sumarsins með heitasta pari heims! kl. 8 og 10.30 YFIR 25.0 00 GESTIR FRUMSÝNING Hinn eini rétti hefur aldrei verið eins rangur! Frábær gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. Blaðið  „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  „Skotheld frá A-Ö Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM ÞÞ - FBL kl. 2.40 og 5.20 B.i 10 ÁRA SJ. blaðið  Kvikmyndir.com  MORGUNBLAÐIÐ Fréttablaðið  x-fm AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 37.000 gestir INNRÁSIN HEFST 29. JÚNÍ Blaðið  ÞÞ - FBL „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV  Missið ekki af svölustu mynd sumarsins með heitasta pari heims! Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 SÖNN ÁST HEFUR ALDREI VERIÐ EINS SVÖRT! Frábær gamanmynd með Aston Kutcher sem fór beint á toppinn í USA Frá leikstjóra Bourne Identity Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i 14 ára I I YFIR 25.0 00 GESTIR TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU Bourne Identity   Blaðið  ÞÞ - FBL „Skotheld frá A-Ö Afþreying í hæsta klassa“  K&F - XFM „Þrælgóð skemmtun“ Ó.Ö.H - DV    Fyrir tveimur árum komút platan 22 Ferðalögþar sem hinir lands-kunnu tónlistarmenn Kristján KK Kristjánsson og Magnús Eiríksson stilltu saman strengi sína og tóku upp á sína arma gömul og góð íslensk dæg- urlög. Útkomunni var vel tekið svo ekki sé meira sagt og seldist platan í yfir 17 þúsund eintökum og er enn að. Þeir félagar segja viðtökurnar hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Þetta sýnir að fólki þykir vænt um þessi gömlu lög og vill hjálpa okkur að varðveita þau,“ segir Maggi. „Ég vissi ekki hvað er mikil þjóðarsál í þessum lögum. Ég er nefnilega ekki alinn upp á Ís- landi,“ segir KK. „Ég varð bara klökkur þegar ég sá hvað lögin höfðu mikil áhrif á fólk á tón- leikum. Þetta eru perlur úr gull- kistunni okkar allra og við erum búnir að taka þær og fægja þær aðeins.“ Næsta föstudag kemur í versl- anir platan Fleiri ferðalög þar sem leikurinn er endurtekinn, þeir Maggi og KK leika með sínu lagi þekktar dægurlagaperlur. „Frá upphafi var ákveðið að gera þrjár plötur með þessum lög- um sem hafa lifað svona lengi með þjóðinni,“ segir KK. „Fyrsta plat- an innihélt mest lög frá fimmta áratugnum, þessi er frá þeim sjötta og sú síðasta verður svo frá sjöunda áratugnum og jafnvel lengra.“ „Við lítum á plöturnar sem hluta af stærra verkefni. Þetta verða allavega þrjár plötur ef við ætlum að gera þessu sæmileg skil,“ segir Maggi. KK segir þessa hugmynd hafa upphaflega komið frá Magga en honum hafi ekki litist á verkefnið í fyrstu. „Ég var alveg skíthræddur við þetta. Ég hélt að það væri ekki hægt að gera þetta flott,“ segir KK. „Manni fannst þessi lög hallær- isleg þegar maður var unglingur svo þetta voru bara fordómar. En það kom mér á óvart hvað þetta kom vel út hjá okkur. Plöturnar sýna að það er hægt að taka gamla fordóma og gera eitthvað gott úr þeim.“ „Ég vona bara að við höfum um- gengist þessi lög með vinsemd og virðingu,“ segir Maggi. Upptökurnar á Fleiri ferðalög- um fóru fram í sumarhúsi upp- tökustjórans Óskars Páls Sveins- sonar við Meðalfellsvatn. „Við tókum upp í mars og apríl og þurftum að keyra yfir ísilagða á til að komast á áfangastað,“ seg- ir KK. „Það var mikil stemning að vera í sveitasælunni og ég er sannfærður um að það hafi skilað sér á plötuna.“ Þeir KK og Maggi leiða nú blaðamann gegnum ferðalögin á plötunni og við gefum þeim orðið. Kveikjum eld Maggi: „Þetta er gamalt og gott skátalag. Til eru tveir textar við lagið en við héldum okkur við þennan þar sem þetta er útilegu- og grillplata.“ Hreðavatnsvalsinn Maggi: „Þetta lag varð alveg rosalega vinsælt þegar það kom út. Stefán frá Möðrudal sagði mér einhverju sinni að hann hefði frumflutt lagið í Hallorms- staðaskógi með höfundinum og þeir hefðu þurft að spila það 25 sinnum þá helgina vegna vin- sælda.“ Dalakofinn Maggi: „Við náðum þessari dalkofastemningu alver frábær- lega vel uppi við Meðalfellsvatn finnst mér. Næsti bústaður við þann sem við tókum upp hét reyndar Dalakofinn og þar hefur örugglega verið Dísa. Eigandinn var aldrei við meðan á upptökum stóð, annars hefðum við örugglega kíkt í heimsókn.“ Ó, vertu sæt við mig Maggi: „Bandarísku höfund- arnir neituðu á sínum tíma að leyfa íslenska þýðingu á textanum. Þeir hafa kannski verið hræddir um að við eskimóarnir í norðri myndum snúa þessu upp í tómt klám. En bannið mun vera fallið niður núna og við ákváðum að hljóðrita það með hinum upp- runalega íslenska texta.“ Ástartöfrar Maggi: „Þetta lag varð líka geysilega vinsælt þegar það kom fyrst út. Ég held að það hafi unnið dægurlagakeppni SKT.“ Lóa litla á Brú Maggi: „Þetta er gamalt amer- ískt rokklag sem heitir „Won’t you Wear My Ring“. Elvis Presley gerði þetta heimsfrægt og síðan kom þessi ágæta íslenskun á text- anum sem Haukur Morthens gerði þekktan hér á landi.“ Fornar ástir KK: „Reyndar er þetta fyrsta Perlur úr gullkistu landsmanna Morgunblaðið/Sverrir „Við vonum að við höfum umgengist lögin með vinsemd og virðingu.“ Maggi Eiríks og KK gefa út fleiri ferðalög. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Tónlist | Fleiri ferðalög KK og Magnúsar Eiríks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.