Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 256. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Óhollustan oftar auglýst Börn hafa mikil áhrif á kaupvenjur foreldranna | Daglegt líf Viðskipti | Starfsemi í 25 löndum  Kostnaðarsamir refsitollar  Fjárfestirinn Gardell Íþróttir | Þjálfar Fylki Sveiflur í handboltanum Málið | Anna Clausen – Baltasar í Toronto  KissFM alltaf í loftinu Viðskipti, Íþróttir og Málið „MÉR líst mjög vel á þetta,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í lok blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í gær, þar sem tilkynnt var að tillaga Portus- hópsins um byggingu tónlistar- og ráðstefnu- húss og hótels við Reykjavíkurhöfn hefði verið valin. Portus-hópurinn er í eigu Landsafls hf., Nýsis hf. og Íslenskra aðalverktaka hf. Arkitektar Portus-hópsins eru teiknistofa Hennings Lar- sens í Danmörku og Batteríið ehf. Hönnunar- stjórn er í höndum Batterísins, dönsku arkitekt- anna og verkfræðistofunnar Rambøll Danmark. Verkfræðistofurnar Hnit og Hönnun eru tækni- legir ráðgjafar og Íslenskir aðalverktakar eru stýriverktaki. Útlit hússins er að miklu leyti verk listamannsins kunna Ólafs Elíassonar og Vladimir Ashkenazy er sérlegur listrænn ráð- gjafi varðandi tónlistardagskrá hússins fyrstu árin, en með tillögu Portus voru lagðar fram hugmyndir að metnaðarfullri tónlistardagskrá hússins. Einkenni bygginganna verður gler- hjúpur sem liggur eins og dregill yfir tónlistar- og ráðstefnuhúsið, og er hannaður af Ólafi Elí- assyni. Hann mun gefa húsinu ljós og lit, sem tekur breytingum eftir tíma dags jafnt sem árs- tíðum. Portus-hópurinn reiknar með að stofn- kostnaður við tónlistarhúsið og ráðstefnumið- stöðina verði rúmlega 12 milljarðar króna. Þorgerður Katrín kvaðst afskaplega stolt að fá að upplifa þennan dag, og þann merka áfanga sem náðst hefur í byggingu hússins. „Við erum að móta og skapa þá glæsilegu umgjörð sem tónlistin í landinu á svo sannarlega skilið. Við eigum glæsilega tónlistarmenn, bæði á sviði sí- gildrar tónlistar og popptónlistar. Ég vona bara að við uppbyggingu hússins verði það haft hug- fast að þessi höll tónlistarinnar verði hús fólks- ins,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri sagði að mikil alúð hefði verið lögð í undirbún- ing verkefnisins, og þakkaði öllum sem hlut áttu að máli. „Þetta er stór og söguleg stund. Í höf- uðborginni mun rísa miðstöð menningar og ferðaþjónustu sem jafnframt verður glæsilegt kennileiti til framtíðar,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir. „Mér finnst stórkostlegt að sjá hvernig þetta hefur verið útfært,“ sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og fyrrum menntamálaráð- herra. Björn átti stóran þátt í ákvarðanatöku um byggingu tónlistarhússins. „Mér finnst þetta hafa gengið eftir með glæsibrag, og vera jafnvel glæsilegra en ég átti von á. Þessi bygging á eft- ir að verða mikil lyftistöng fyrir menningarlífið, en ekki síður fyrir Reykjavíkurborg, og landið allt. Þetta mun lyfta landinu öllu upp á nýtt list- rænt stig og tónlistarhúsið mun verða eitt af byggingarundrum veraldar þegar upp verður staðið,“ sagði Björn Bjarnason. „Það er einróma álit okkar að vinningstillagan sé afar glæsileg í alla staði og að byggingin verði áhrifamikið kennileiti í ásýnd Reykjavíkur,“ sagði í umsögn matsnefndar um tillögu Portus-hópsins. „Höll tónlistarinnar verði hús fólksins“ Tónlistarhúsið við höfnina vígt 2009. Kostnaður áætlaður rúmir 12 milljarðar Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is  Tónlistarhús | 10, 24–27  Kynningarmyndband á mbl.is ÓLAFUR Elíasson annast listræna hönnun Tónlistarhússins, og Vlad- imir Ashkenazy ásamt umboðs- manninum Jasper Parrott annast listræna ráðgjöf með tilliti til tón- leikadagskrár í húsinu. Samkvæmt hönnunartillögum Ólafs mun húsið líta út fyrir að verða klætt í einskonar kápu úr gleri. Segir hann framkvæmdina kostnaðarsama og flókna. „Hún er ekki útópísk,“ segir hann. Vladimir Ashkenazy segir marga möguleika geta orðið að veruleika með til- komu Tónlistarhússins, sem ekki hafa verið færir vegna að- stöðuleysis. „Ég tel mikilvægt að öll stig íslenskrar menningar fái eitt- hvað fyrir sinn snúð. Þannig er hægt að koma landinu virkilega á kortið í tónlistarlífinu,“ segir hann. Listrænir ráðgjafar Vladimir Ashkenazy Ólafur Elíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.