Morgunblaðið - 22.09.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 256. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Óhollustan
oftar auglýst
Börn hafa mikil áhrif á kaupvenjur
foreldranna | Daglegt líf
Viðskipti | Starfsemi í 25 löndum Kostnaðarsamir refsitollar
Fjárfestirinn Gardell Íþróttir | Þjálfar Fylki Sveiflur í handboltanum
Málið | Anna Clausen – Baltasar í Toronto KissFM alltaf í loftinu
Viðskipti, Íþróttir og Málið
„MÉR líst mjög vel á þetta,“ sagði Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í lok
blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í
gær, þar sem tilkynnt var að tillaga Portus-
hópsins um byggingu tónlistar- og ráðstefnu-
húss og hótels við Reykjavíkurhöfn hefði verið
valin.
Portus-hópurinn er í eigu Landsafls hf., Nýsis
hf. og Íslenskra aðalverktaka hf. Arkitektar
Portus-hópsins eru teiknistofa Hennings Lar-
sens í Danmörku og Batteríið ehf. Hönnunar-
stjórn er í höndum Batterísins, dönsku arkitekt-
anna og verkfræðistofunnar Rambøll Danmark.
Verkfræðistofurnar Hnit og Hönnun eru tækni-
legir ráðgjafar og Íslenskir aðalverktakar eru
stýriverktaki. Útlit hússins er að miklu leyti
verk listamannsins kunna Ólafs Elíassonar og
Vladimir Ashkenazy er sérlegur listrænn ráð-
gjafi varðandi tónlistardagskrá hússins fyrstu
árin, en með tillögu Portus voru lagðar fram
hugmyndir að metnaðarfullri tónlistardagskrá
hússins. Einkenni bygginganna verður gler-
hjúpur sem liggur eins og dregill yfir tónlistar-
og ráðstefnuhúsið, og er hannaður af Ólafi Elí-
assyni. Hann mun gefa húsinu ljós og lit, sem
tekur breytingum eftir tíma dags jafnt sem árs-
tíðum. Portus-hópurinn reiknar með að stofn-
kostnaður við tónlistarhúsið og ráðstefnumið-
stöðina verði rúmlega 12 milljarðar króna.
Þorgerður Katrín kvaðst afskaplega stolt að
fá að upplifa þennan dag, og þann merka áfanga
sem náðst hefur í byggingu hússins. „Við erum
að móta og skapa þá glæsilegu umgjörð sem
tónlistin í landinu á svo sannarlega skilið. Við
eigum glæsilega tónlistarmenn, bæði á sviði sí-
gildrar tónlistar og popptónlistar. Ég vona bara
að við uppbyggingu hússins verði það haft hug-
fast að þessi höll tónlistarinnar verði hús fólks-
ins,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri
sagði að mikil alúð hefði verið lögð í undirbún-
ing verkefnisins, og þakkaði öllum sem hlut áttu
að máli. „Þetta er stór og söguleg stund. Í höf-
uðborginni mun rísa miðstöð menningar og
ferðaþjónustu sem jafnframt verður glæsilegt
kennileiti til framtíðar,“ sagði Steinunn Valdís
Óskarsdóttir.
„Mér finnst stórkostlegt að sjá hvernig þetta
hefur verið útfært,“ sagði Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra og fyrrum menntamálaráð-
herra. Björn átti stóran þátt í ákvarðanatöku
um byggingu tónlistarhússins. „Mér finnst þetta
hafa gengið eftir með glæsibrag, og vera jafnvel
glæsilegra en ég átti von á. Þessi bygging á eft-
ir að verða mikil lyftistöng fyrir menningarlífið,
en ekki síður fyrir Reykjavíkurborg, og landið
allt. Þetta mun lyfta landinu öllu upp á nýtt list-
rænt stig og tónlistarhúsið mun verða eitt af
byggingarundrum veraldar þegar upp verður
staðið,“ sagði Björn Bjarnason.
„Það er einróma álit okkar að vinningstillagan sé afar glæsileg í alla staði og að byggingin verði áhrifamikið kennileiti í ásýnd Reykjavíkur,“ sagði í umsögn matsnefndar um tillögu Portus-hópsins.
„Höll tónlistarinnar
verði hús fólksins“
Tónlistarhúsið við höfnina vígt 2009. Kostnaður áætlaður rúmir 12 milljarðar
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Tónlistarhús | 10, 24–27
Kynningarmyndband á mbl.is
ÓLAFUR Elíasson annast listræna
hönnun Tónlistarhússins, og Vlad-
imir Ashkenazy ásamt umboðs-
manninum Jasper Parrott annast
listræna ráðgjöf með tilliti til tón-
leikadagskrár í húsinu.
Samkvæmt hönnunartillögum
Ólafs mun húsið líta út fyrir að
verða klætt í einskonar kápu úr
gleri. Segir hann framkvæmdina
kostnaðarsama og flókna. „Hún er
ekki útópísk,“ segir hann. Vladimir
Ashkenazy segir marga möguleika
geta orðið að veruleika með til-
komu Tónlistarhússins, sem ekki
hafa verið færir vegna að-
stöðuleysis. „Ég tel mikilvægt að öll
stig íslenskrar menningar fái eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Þannig er
hægt að koma landinu virkilega á
kortið í tónlistarlífinu,“ segir hann.
Listrænir
ráðgjafar
Vladimir
Ashkenazy
Ólafur
Elíasson