Morgunblaðið - 22.09.2005, Qupperneq 41
ÍBÚÐ VIÐ MIÐBORGINA ÓSKAST
- T.D. Í 101 SKUGGI, VIÐ KLAPPARSTÍG
EÐA SKÚLAGÖTU
Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm sérhæð á framan-
greindum svæðum. Afhendingartími eftir samkomulagi. Sterkar
greiðslur í boði.
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson
SÉRHÆÐ VIÐ ÆGISÍÐU EÐA
Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST
STAÐGREIÐSLA
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu
svæði. Rýming samkomulag. Staðgreiðsla.
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson
ÍBÚÐ VIÐ ÞORRAGÖTU ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir íbúð við Þorragötu. Rýming er sam-
komulag. Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 41
DAGBÓK
Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins held-ur á föstudag fund í tilefni af 40 árastarfsafmæli stofnunarinnar. Yfirskriftfundarins er Fiskur er heilsufæði en
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri RF, segir svo frá:
„Þetta er þriðja árið í röð sem við höldum svo-
kallaðan haustfund en á þeim fundum tökum við
fyrir efni sem við teljum mikilvægust á hverjum
tíma. Í þetta sinn horfum við til þess hvernig
hægt er að efla markaðssetningu á fiski og fisk-
afurðum til framtíðar og horfum til þeirra atriða
sem skipta neytendur hvað mestu máli í þeim
efnum en það eru: heilsa, verð þægindi og
ánægja.“
Áhrif fisks á heilsuþætti
Sjöfn segir þannig heilnæmi fisks sem matar
ekki hafa fengið nægilega athygli. „Menn vita að
fiskur hefur gott næringargildi og þekkja
omega-3 fitusýrur og lýsið en kannski ekki mikið
meira. Færri vita t.d. að rannsóknir hafa sýnt
sérstök áhrif fisks á ýmsa heilsuþætti en t.a.m.
eru ákveðin efni í fiski sem hafa bein áhrif til
batnaðar á hjarta- og kransæðasjúkdóma.“ Í því
sambandi nefnir Sjöfn erindi Margrétar Geirs-
dóttur sem fjalla mun um sérstaka jákvæða verk-
un sæbjúgna en alls taka tíu til máls á fundinum
á föstudag.
„Íslenski markaðurinn hefur að mínu mati ver-
ið vanmetinn. Fiskútflutningur er einn af burðar-
ásum þjóðfélagsins en heimamarkaðurinn skiptir
ekki síður máli. Ef við eigum sterkan heima-
markað sem lítur á fisk sem heilsufæði hjálpar
það okkur vitaskuld við markaðssetningu á fiski
erlendis,“ segir Sjöfn um þá hlið fundarins sem
fjalla mun um markaðssetningu fisks.
Meðal þeirra sem ræða munu það efni er Þór-
ólfur Árnason frá Icelandic Group.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins var stofnuð
sem hluti af Rannsóknarstofnun atvinnuveganna
árið 1965. Stofnunin vinnur með leiðandi aðilum
að þróun afurða, aukinni nýtingu í vinnslu og
aukningu gæða. „RF er rekin sem hvert annað
fyrirtæki, í samræmi við markmið og stefnu sem
mörkuð er af stjórn og stjórnendum og árangur
og hagkvæmnisjónarmið í rekstri höfð að leið-
arljósi,“ segir Sjöfn. Þannig kemur RF að bestun
vinnuferla, bættri meðhöndlun fisks og hönnun
nýrra afurða og vinnsluferla. Einnig kemur RF
að öryggi og heilnæmi sjávarfangs og heldur
þannig m.a. utan um upplýsingar um aðskotaefni
og heilsuþætti í fiski, næringarefnainnihald o.fl.
Málfundurinn verður sem fyrr segir á föstudag
á Grand hóteli. Fundurinn hefst kl. 13.15 og
stendur til 16.15 og eru allir velkomnir.
Málþing | Fiskur sem heilsufæði og markaðssetning innanlands rædd á hádegisfundi
Heilsufæðan fiskur
Sjöfn Sigurgísladótt-
ir er fædd 1963. Hún
lauk B.Sc.-prófi í mat-
vælafræði frá Háskóla
Íslands árið 1986,
meistaraprófi í mat-
vælafræði frá DalTech-
háskólanum í Halifax
árið 1991 og dokt-
orsprófi í matvælafræði
með áherslu á vinnslu-
ferla sjávarfangs frá
Háskólanum í Björgvin
2001. Sjöfn starfaði á Iðntæknistofnun Ís-
lands 1991–2000, en var forstöðum. mat-
vælasviðs Hollustuverndar ríkisins frá 2000–
2002. Hún hefur gegnt starfi forstjóra
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins frá
2002. 70 ÁRA afmæli. Í dag, 22. sept-ember, er sjötug Jórunn Þor-
gerður Bergsdóttir frá Hofi í Öræf-
um, fyrrverandi starfskona í eldhúsi á
Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Auglýst eftir
öldruðum
ÉG hlustaði af athygli þegar
fjallað var um í fréttunum að fyr-
irtæki væru farin að beina spjót-
um sínum að eldri borgurum í
svona minni stöðugildi. Þetta var
svona 3–4 klst. vinna á dag, 2–3
daga í viku. Og var róið á þau mið
að hvetja eldra fólk, jafnvel sem
var komið á ellilífeyri og lífeyr-
isgreiðslur, til að sækja um.
Ég velti því fyrir mér hvers
vegna væri svona miðað sér-
staklega á þennan hóp? Það hlyti
auðvitað að vera vegna þess að
þeim hefði ekki tekist að ráða
yngra fólk í þessar stöður. En
samt fannst mér þetta stinga í
augun, var ekki nóg að þessir
eldri borgarar væru búnir að
vinna segjum svona að jafnaði sín
40–50 ár og komnir á sín eft-
irlaun? Eitthvað í mér sagði mér
að þetta væri ekki eins og það
ætti að vera. Hver var hvatinn að
baki því að falast eftir eldri borg-
urum? Var hann að gera þeim
greiða? Hjálpa þeim að komast út
á meðal fólks? Eða bara að ráða
fólk í vinnu? Ég fékk einhvern
veginn það fyrra á tilfinninguna,
að fyrirtækin væru að upplifa sig
sem bjargvætti eldra fólksins, svo
þeim leiddist nú ekki til dauða.
Hvarflar það ekki að þeim að
lífeyrisþegar eigi líf sem er inni-
haldsríkt og þeir eigi sér áhuga-
mál? Síðan efast ég ekki um að
þeir sem auglýstu eftir starfsfólki
vissu vel að það yrði skerðing á
öllum lífeyrisgreiðslum til þessa
fólks, en hvort það hafi þótt nauð-
synlegt að segja frá því er annað
mál. Að ríkið hirti síðan allt að
85% af laununum um mán-
aðamótin var síðan sjokk sem líf-
eyrisþeginn mátti höndla eins og
hann vildi, það kom ekki þeim við.
Ágústa Ísleifsdóttir.
Samdægurs?
ÉG lenti í því að gleyma snyrti-
tösku á hóteli í London. Ég
hringdi í DHL á mánudagsmorgni
og bað þá um að sækja töskuna og
koma henni til Íslands á þeim 24
tímum sem er sá sendingartími
sem DHL lofar á heimasíðu sinni
undir fyrirsögninni: Samdægurs.
Góðan daginn.
Svo líður og bíður en á fimmtu-
dagsmorgni fæ ég tölvupóst frá
DHL á Íslandi þar sem mér er
sagt að ekki hafi tekist að ná í
pakkann sökum anna! Ég hafði
samband við Fed Ex sem lofaði
mér að ná í þetta og koma þessu
til mín á 24 tímum en á sömu
stundu fæ ég símtal frá DHL þar
sem þeir segja mér að það sé ver-
ið að ná í pakkann.
Nú er laugardagur og pakkinn
ekki kominn, þeir hjá DHL halda
að þetta verði komið á mánudag,
168 klst. seinna!
Ég held ég skipti við Fed Ex
næst.
Andrea.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
50 ÁRA afmæli. 28. september nk.verður fimmtugur Hlífar Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri, Gils-
bakka 10, Fjarðabyggð. Hann og eig-
inkona hans, Inga Magnúsdóttir, taka
á móti gestum á Rauða torginu, Norð-
firði, laugardaginn 24. september frá
kl. 19.
Snyrtileg 70 fm 2ja herb. íbúð á 4. hæð
í lyftuhúsi fyrir eldri borgara í Bólstað-
arhlíð 45. Íbúðin skiptist í hol m. skáp,
rúmgóða stofu m. svölum í n-austur,
eldhús m. snyrtilegri innréttingu og
tengi fyrir uppþvottavél, baðherherb.
m. sturtu og glugga, svefnherb. m.
góðum skápum og sérgeymslu innan
íbúðar. Öll þjónusta er í húsinu. Hús-
vörður, mötuneyti, þrif á sameign og
margt fleira. Íbúðina má aðeins selja
félagsmönnum í samtökum aldraðra.
Tekið verður á móti gestum í dag,
fimmtudag, frá klukkan 19-21.
Allar nánari upplýsingar veita
sölumenn DP FASTEIGNA í síma
561 7765 // 822 2307 // 690 3111.
BÓLSTAÐARHLÍÐ 45, ÍBÚÐ 0401 - OPIÐ HÚS
Flókagata - laus strax
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Í einkasölu rúmgóð og björt 64 fm íbúð í kjallara. Nýlegt eldhús og baðherbergi.
Parket. Endurnýjuð skólplögn. Garðurinn verður allur nýstandsettur á kostnað
seljanda. Göngufæri í miðbæinn. Frábær staðsetning. Verð 14,0 millj.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5
Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4 Dd6 7. De2
Rc6 8. Rb3 Be7 9. Bd2 a6 10. O-O-O
Rf6 11. Kb1 b5 12. Bd3 Bb7 13.
Hhe1 O-O 14. g4 g6 15. g5 Rh5 16.
Be4 Hfe8 17. Bc1 Dc7 18. Rbxd4
Rxd4 19. Hxd4 Bxe4 20. Dxe4 Bc5
21. Hd3 Had8 22. Hc3 Db6 23. Re5
Hd5 24. Rg4 Hed8 25. Hf3 H8d7 26.
a3 Bf8 27. Hh3 Bg7 28. Hg1 Dd4 29.
Df3 Kf8 30. Re3 H5d6 31. Hg4 Da7
32. Hgh4 Db7 33. De2 Dh1 34. Hxh5
gxh5 35. Dxh5 Hd1 36. Rxd1 Hxd1
37. Hf3
Í þessari stöðu, sem kom upp á
minningarmóti Stauntons sem lauk
fyrir skömmu í London, stóð Jonath-
an Levitt (2441) fyrir þeirri spurn-
ingu hvort hann ætti með svörtu
gegn David Howell (2471) að taka
biskupinn á c1 eða verja f7 reitinn
með 37...Hd7. Hann kaus að leika
37... Hxc1+ og það reyndist rétt
ákvörðun eftir 38. Ka2 Ha1+ 39.
Kb3 Hxa3+! 40. Kxa3 svartur hefði
mátað eftir 40. bxa3 Db1#. 40...
Da1+ 41. Kb4 Da4+ 42. Kc5 Bd4+
43. Kd6 Db4+ 44. Kc6 Dc5+ 45. Kd7
Da7+ 46. Kd6 De7+ 47. Kc6 Ke8! og
hvítur gafst upp þar sem hann getur
ekki komið í veg fyrir með góðu móti
að svartur máti í næsta leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.