Morgunblaðið - 22.09.2005, Page 14

Morgunblaðið - 22.09.2005, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU VEIÐAR á norsk-íslenzku síldinni ganga ágætlega. Skipin eru þessa stundina við Svalbarða, en hafa ým- ist verið þar eða í Síldarsmugunni frá því um mitt sumar. Alls hefur verið tilkynnt til Fiskistofu um 130.000 tonna afla. Mest af því hefur verið unnið til manneldis um borð í vinnsluskipum. Heildarkvótinn er 157.000 tonn og því ljóst að langt er komið með að veiða hann. Gera má ráð fyrir að skipin, sem nú eru að veiðum hafi þegar bætt við nokkur þúsund tonn- um, sem tilkynnt verður um þegar þau landa. Það eru stóru vinnslu- skipin sem eru þarna að veiðunum og nú fer mun meira af síldinni til manneldis en áður. Mjög gott verð er fyrir síldina, en hár olíukostnaður vegur þungt þar á móti. Síldin fer nánast öll til Austur-Evrópu, Rúss- lands, Úkraínu og Póllands svo dæmi séu tekin. Gera má ráð fyrir að íslenzku vinnsluskipin séu búin að veiða og vinna um 90.000 tonn á ver- tíðinni. Í lok ágústmánaðar höfðu veiðzt 122.000 tonn af norsk-íslenzku síld- inni. Skipting eftir veiðisvæðum var þannig að á alþjóðahafsvæðinu í Síld- arsmugunni höfðu veiðzt tæplega 63.000 tonn, 38.000 tonn innan ís- lenzku lögsögunnar, 16.500 tonn við Svalbarða og 5.000 tonn innan fær- eysku lögsögunnar.Eins og áður sagði er heildaraflinn nú að minnsta kosti 130.000 tonn og hefur aflinn aldrei orðið meiri. Tvöföldun hjá Samherja Skip Samherja, Vilhelm Þor- steinsson og Baldvin Þorsteinsson, hafa hvort um sig veitt um 19.000 tonn af norsk-íslenzku síldinni í sum- ar. Vilhelm veiddi svipað magn í fyrra, en Baldvin var ekki að þessum veiðum þá, svo Samherji hefur þegar tvöfaldað veiðar og vinnslu á síld í sumar. Skipin eiga hvort um sig heimildir til að taka um einn túr til viðbótar því, sem þau hafa veitt nú þegar. Norðmenn settu 90.000 há- mark á síldveiðina á fiskverndar- svæðinu við Svalbarða í sumar og er það að nást og verður lokað fyrir veiðarnar á morgun. Auk íslenzku skipanna eru nú Þjóðverjar og Fær- eyingar á svæðinu. Kristján Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam- herja, segir að veiðarnar hafi gengið vel. Miklu máli skipti að skipin um- skipi afla sínum um borð í flutninga- skip á miðunum. Það sé að vísu dýrt en á móti komi að frátafir frá veiðum verða mjög litlar og olíueyðsla minni, en þegar sigla þarf með aflann í land reglulega um mörg hundruð mílna leið. Síldin gengur vestar Norskir fjölmiðlar skrifa mikið um það nú að norsk-íslenzka síldin geng- ur í mun minni mæli en áður inn á norsku firðina í ætisleit og til vet- ursetu. Síðustu árin hafa fiskifræð- ingar talið að allt upp í 8 milljónir tonna af síld hefðu haldið sig inni á fjörðunum í vetrarbyrjun. Nú geng- ur síldin miklu lengra vestur vegna hlýnandi sjávar og veiddist mikið af henni inni í íslenzku lögsögunni fyrr í sumar. Líklegt er að síldin taki upp sitt fyrra göngumynstur ef áfram hlýnar í sjónum. Hún gengur þá vestur að Íslandi og hefur þar einnig vetursetu áður en hún heldur upp að Noregi til að hrygna á vorin. Nú er búið að landa hér ríflega 46.000 tonnum af síld, að langmestu leyti til bræðslu. Afli íslenzkra skipa er 38.000 tonn, en erlend skip hafa landað um 8.500 tonnum. Síldar- vinnslan í Neskaupstað hefur tekið á móti 12.600 tonnum og HB Grandi á Vopnafirði er með 11.500. Til Krossaness hafa borizt 7.800 tonn, en aðrar verksmiðjur eru með minna. Metfrysting um borð í vinnsluskipunum Um 130.000 tonn veidd af norsk- íslenzku síldinni Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason Aflabrögð Þeir hafa verið fengsælir skipstjórarnir hjá Samerja í sumar. Hér eru Arngrímur Brynjólfsson og Guðmundur Þ. Jónsson um borð. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÁRLEG haustráðstefna Svæð- isskrifstofu um málefni fatlaðra fer fram í dag og morgun í Gull- hömrum í Grafarholti en að þessu sinni eru fundurinn helgaður þeirri grósku sem einkennir fötl- unarrannsóknir hér á landi. Á ráð- stefnunni verða kynntar rann- sóknir sem ekki hafa verið kynntar á einum og sama vett- vangi áður, en að auki mun Christy Lynch frá Írlandi kynna framsæknar hugmyndir sínar um þátttöku fatlaðra í íslensku at- vinnulífi. Lynch sem er iðjuþjálfi og sér- fræðingur í atvinnu með stuðningi hefur starfað við málefni fatlaðra í 29 ár og hefur unnið ötullega við að breyta lífsháttum þeirra, þar á meðal með hugmyndafræðinni „at- vinna með stuðningi“ sem lengi hefur þekkst á meðal sjúklinga sem glíma við geðraskanir. Hug- myndafræðin byggist á því að að gefa fólki sem glímir við einhvers- konar fötlun jafna möguleika á tækifæri í atvinnulífinu en Lynch segir verndaða vinnustaði úrelta sem og þau gildi og hefðir sem hafa verið við lýði þegar kemur að málefnum fatlaðra. Tími sé kom- inn til að hverfa frá vernd- unarsjónarmiðum í atvinnumálum fatlaðra og koma þeim til vinnu á almennum vinnumarkaði. Hann segir ástandið hér á landi ekki ósvipað því sem er að gerast í öðr- um löndum Evrópu, þar sem hug- myndafræðin er í raun enn í fæð- ingu en hefur vaxandi möguleika á að dafna. Mun fleira fólk sem glímir við fötlun gæti lagt sitt af mörkum á vinnumarkaðnum og um leið bætt lífsviðurværi sitt og öðlast aukna hamingju. Atvinna með stuðningi Stuðningur við einstaklinga sem glíma við fötlun hefur verið efldur hér á landi undanfarin ár og „at- vinna með stuðningi“ hefur verið starfrækt á Íslandi í um fimmtán ár. Hugmyndafræðin felur í sér einstaklingsmiðaða aðstoð við að finna launuð störf á almennum vinnumarkaði með áherslu á und- irbúning, stuðningi og eftirfylgd eftir þörfum. Þessi vinnubrögð njóta mikilla vinsælda víðsvegar um Evrópu en betur má ef duga skal, segir Christy Lynch. Vandinn liggur hjá vinnuveitendum Lynch segist vita ótal dæmi um jafnvel mikið fatlað fólk sem lifir góðu lífi í eigin húsnæði og vinnur annað hvort allan eða hálfan dag- inn. Í viðræðum sínum við fatlaða einstaklinga heyri hann ætíð að þeir vilji það sama og aðrir, ganga í skóla, finna sér starf og lifa gæfuríku lífi. Það að færa fatlaða á þægilegan en einangraðan stað fjarri ábyrgð og kröfum þjóð- félagsins eigi því ekki rétt á sér og með áætlun á borð við „atvinnu með stuðningi“ sé fötluðum ein- staklingum sýnd sú virðing sem þeir eigi skilið og gert jafn hátt undir höfði og öðrum. „Fatlaðir vilja fá tækifæri til að starfa á jafnréttisgrundvelli, þegar það svo fæst kemur í ljós að þeir standa sig yfirleitt vel og leggja sig ætíð fram í vinnu. Flestir sem ég hef rætt við vita hvernig það er að vera útskúfaður af vinnumark- aðnum og vinna því af krafti til að halda vinnunni,“ segir Christy Lynch en bætir við að stærsta vandamálið liggi hjá vinnuveit- endum sem óttast að hafa fatlaða einstaklinga í vinnu. Fyrirtækin þekki ekki og skilji ekki fötlun nægilega vel og útskúfi þá fötl- uðum sem starfskraft. Fyrirtæki eru þó að verða með- vitaðri um það að fjölbreytni kem- ur þeim til góða. Eins er það vax- andi vandamál í hinum vestræna heimi að erfiðlega gengur að finna fólk til að vinna einföld störf sem gefa ekki mikið í aðra hönd og að mati Lynch er mikið af fötluðu fólki sem gæfi mikið fyrir slík störf. Christy Lynch heldur fyrirlestur um málefni fatlaðra Fatlaðir vilja tækifæri á vinnumarkaðnum Morgunblaðið/Ásdís Christy Lynch vill að fatlaðir komist á vinnumarkaðinn. Eftir Andra Karl andri@mbl.is Gerði upp hertrukk Bílar á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.