Morgunblaðið - 22.09.2005, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn
á Akureyri
á Eyrarlandsveg
og Skólastíg
Upplýsingar
í síma 461 1600
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjavík | Borgarholtsskóli hlaut
umhverfisviðurkenningu Reykjavík-
urborgar við hátíðlega athöfn í gær,
en hún hefur verið veitt hvert ár síð-
an 1997 í tilefni af umhverfisdegi
Sameinuðu þjóðanna. Þau fyrirtæki
sem hlotið hafa verðlaunin fram til
þessa eru: Prentsmiðjan Oddi, Olíu-
verslun Íslands, Árvakur – útgáfu-
félag Morgunblaðsins, Hjá GuðjóniÓ
prentsmiðja, Mjólkursamsalan, Far-
fuglaheimilið í Reykjavík, Umslag
ehf. og á síðasta ári Skeljungur hf.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
hefur umsjón með framkvæmd um-
hverfisviðurkenningarinnar og skip-
aði starfshóp sem sá um úttekt á
þeim fyrirtækjum sem tilnefnd voru í
ár. Að þessu sinni bárust 13 tilnefn-
ingar og eftir mat á fyrirtækjunum
komu fjögur þeirra sérstaklega til
álita en það voru:
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
Borgarholtsskóli, Parlogis hf. og
Plastprent hf.
Við val á því fyrirtæki sem hljóta
skyldi viðurkenninguna í ár hafði
starfshópurinn það að leiðarljósi að
fyrirtækið bæri af öðrum á einhvern
hátt og til að koma til álita við veit-
ingu viðurkenningarinnar þyrfti fyr-
irtækið að hafa skarað fram úr á einu
eða fleiri eftirtalinna sviða: Umhverf-
isstefnu og umhverfisstjórnunar,
hreinni framleiðslutækni, vinnuum-
hverfi, lágmörkun úrgangs, meng-
unarvörnum, vöruþróun og framlaga
til umhverfismála. Þá þyrfti viðkom-
andi fyrirtæki að uppfylla ákvæði
laga og reglna á sviði umhverf-
isverndar og jafnvel ganga lengra en
reglur segja til um. Það þyrfti að sýna
frumkvæði og marka stefnu um að
efla áhuga og árvekni starfsmanna
um umhverfismál og fleira.
Ungt fólk menntað til framtíðar
Að mati starfshópsins sýndu öll
fyrirtækin sem heimsótt voru lofs-
verða viðleitni í starfi að umhverf-
ismálum. Þó skaraði Borgarholtsskóli
fram úr. Eitt helsta framlag skólans
til umhverfismála er í formi mennt-
unar ungmenna sem síðar munu
starfa í atvinnugreinum sem geta
haft í för með sér mengun, s.s. málm-
smíði, bifreiðasmíði og bílamálun. Í
náminu er lögð áhersla á að efla
ábyrga afstöðu nemenda til umhverf-
isins og að temja þeim vinnubrögð
sem geta komið í veg fyrir neikvæð
áhrif á umhverfið. Sérstaklega er
hugað að kunnáttu starfsmanna skól-
ans jafnt sem nemenda í öllu er varð-
ar umhverfismál eins og fram kemur
í áfangalýsingum. Kennarar og aðrir
starfsmenn eru styrktir til þátttöku á
námskeiðum og ráðstefnum sem lúta
að umhverfismálum, bæði til eflingar
kennslu og bættrar eftirfylgni um-
hverfisvænnar stefnu. Þá er vinnu-
umhverfi nemenda og starfsmanna
jafnt innan dyra sem utan til fyr-
irmyndar auk þess sem aðgengi fyrir
fatlaða nemendur er til prýði.
Þá má einnig nefna að skólinn tek-
ur þátt í sérstökum verkefnum fé-
lagasamtakanna Gróður fyrir fólk í
landnámi Ingólfs. Einnig eru öll efni
til ræstingar vistvæn og lögum og
reglum um efnanotkun og förgun
spilliefna fylgt í hvívetna. Innra um-
hverfisstarf, t.d. flokkun og end-
urnýting á sorpi, er til fyrirmyndar
og skráð í bókhald. Allir starfsmenn
og nemendur eru virkir þátttakendur
og er vel búið að allri flokkunar-
aðstöðu og má nefna að tóm prent-
hylki eru látin af hendi rakna til Ör-
yrkjabandalags Íslands sem eru þar
endurnýtt.
Starfshópurinn telur það mik-
ilvægt framlag til framtíðar að skóli
leggi áherslu á gott og heilnæmt um-
hverfi nemenda og kennara bæði inn-
an- og utanhúss ásamt því að vera í
fararbroddi varðandi meng-
unarvarnir og notkun á vistvænum
efnum. Borgarholtsskóli sýnir gott
fordæmi í umhverfismálum og er til
fyrirmyndar fyrir skóla sem og önnur
fyrirtæki.
Borgarholtsskóli fær Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkur
Umhverfisstarf og
menntun til fyrirmyndar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðurkenning Ólafur Sigurðsson skólameistari tók við viðurkenningunni úr
hendi Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra í Ráðhúsinu í gær.
HIÐ árlega Akureyrarhlaup UFA
var haldið um helgina í sólskini en
nokkrum vindi. Rannveig Odds-
dóttir og Bjartmar Birgisson
komu fyrst í mark á hálfmaraþoni
í flokkum kvenna og karla. Helga
Björnsdóttir og Guðmann Elísson
sigruðu í 10 km hlaupi og Hall-
dóra Sigríður Halldórsdóttir og
Elvar Örn Sigurðsson 3 km
skemmtiskokki. Góð þátttaka var í
10 km hlaupi og hálfu maraþoni
en minni í skemmtiskokkinu en
undanfarin ár.
Konur úr Soroptimistaklúbbi
Akureyrar notuðu tækifærið,
hlupu og kynntu um leið meg-
inmarkmið Evrópusambands
Soroptimista 2003–2005 „Konur
vinna að friði“. Soroptim-
istaklúbbur Akureyrar hefur m.a.
fengið áhrifafólk á Eyjafjarð-
arsvæðinu til að árita og styðja
friðarboðskap sambandsins.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Akureyrarhlaup Þátttakendur leggja af stað frá Akureyrarvelli.
Rannveig og Bjart-
mar fyrst í mark
Akureyrarhlaup UFA
GUÐMUNDUR Jóhannsson, for-
maður umhverfisráðs, á ekki von á
öðru en að Samskip verði veitt lóð
á hafnarsvæðinu á Oddeyrartanga.
Fyrirtækið sótti um 8.000 fer-
metra lóð undir framtíðaraðstöðu
við Laufásgötu og Gránufélags-
götu. Guðmundur sagði að á þessu
svæði væru fyrirtæki sem væru
mjög frek á flutninga og nefndi
þar Norðlenska, Strýtu, Bústólpa,
Brim og Eimskip. Guðmundur á
ekki von á því að þessi fyrirtæki
fari af svæðinu næstu 20–30 árin.
„Ég sé því engin teikn á lofti um
að þetta svæði verði tekið undir
íbúðabyggð á meðan ég lifi. Það
eru heldur engin áform uppi um
stórkostlegar byggingar á svæð-
inu, uppkaup eða niðurrif húsa.
Það er því ekkert verra að Sam-
skip setji þarna niður skemmu og
að flutningafyrirtækin séu þarna
bæði.“
Gert ráð fyrir
íbúabyggð á svæðinu
Umhverfisráð fjallaði um erindi
Samskipa á síðasta fundi sínum,
sem vísaði því til umsagnar stýri-
hóps um Akureyri í öndvegi, þar
sem þetta svæði var skilgreint sem
hluti af samkeppnissvæðinu um
skipulag miðbæjarins. Guðmundur
á jafnframt sæti í stýrihópnum en
hann sat ekki síðasta fund um-
hverfisráðs. Hann sagði að jafn-
framt væri verið að skoða breyt-
ingar á legu Hjalteyrargötunnar
og tengja hana Laufásgötu austan
við húsnæði Súlna. Þungaflutning-
arnir færu því þá leiðina til norð-
urs. Einnig á að breyta gatnamót-
um Hjalteyrargötu og Strandgötu
aftur, þannig að farið verði upp
Strandgötu að Glerárgötu vegna
flutninga austur um land.
Ragnar Sverrisson, forsvars-
maður verkefnisins Akureyri í
öndvegi, er ekki sammála því að
lóðin sem Samskip sótti um verði
tekin undir atvinnustarfsemi. Í öll-
um verðlaunatillögum um skipulag
miðbæjarins og í þeim tillögum
sem keyptar voru sé gert ráð fyrir
íbúðabyggð og eða útivistarsvæði á
þessu svæði við Oddeyrartanga.
Ragnar sagði í Morgunblaðinu á
þriðjudag, að það myndi koma sér
verulega á óvart og sé í raun frá-
leitt að taka ákvörðun á þessu stigi
um viðbót við athafnasvæði á þess-
um stað, við það sem Eimskip hef-
ur nú. Nær væri að finna þessum
fyrirtækjum stað á strandlengj-
unni norðan bæjarins þar sem
flutningar frá sjó og landi liggja
beint við.
Samskip fái lóð á
Oddeyrartanga
Formaður umhverfisráðs
FJÖLÞJÓÐLEG ráðstefna um
byggða- og svæðaþróunarmál hefst á
Akureyri í dag, 22. september en
hún fer fram á Hótel KEA og í Ket-
ilhúsinu. Yfir 30 þátttakendur frá 7
þjóðlöndum flytja erindi eða taka
þátt í kynningum. Meginviðfangs-
efni ráðstefnunnar er félagslegar
breytingar og þróun á landsbyggð-
arsvæðum sem og einnig hlutverk og
möguleikar ferðaþjónustu á norð-
lægum landsbyggðarsvæðum.
Ráðstefnan er að hluta haldin
samhliða samnorrænni ráðstefnu á
vegum Ferðamálaseturs Íslands um
rannsóknir á ferðamálum og rekstri
ferðaþjónustufyrirtækja. Meginstef
þessarar ráðstefnu er menning og
samfélag, náttúra, efnahagslíf,
stefnumótun og markaðsmál.
Samanlagður fjöldi gesta á báðum
ráðstefnunum er um 120 manns.
Ráðstefnur
um byggða-
og ferðamál
KFC vill norður | Eigendur veit-
ingastaðarins KFC hafa sótt um að
fá úthlutað 3–4000 fermetra lóð und-
ir nýjan veitingastað á Akureyri.
Umhverfisráð hefur fjallað um er-
indið og tekið jákvætt í það, en vísaði
því þó til stýrihóps um verkefnið
„Akureyri í öndvegi“ til nánari skoð-
unar. Fram kemur í erindi KFC að
óskastaðsetning væri við Gler-
árgötu, á svæðinu frá Glerártorgi að
Samkomuhúsi.
LEGIÐ hefur fyrir frá því skipulag
flugvallarsvæðisins í Vatnsmýrinni
var samþykkt árið 1999 að samgöngu-
yfirvöld eru að leita að stað fyrir æf-
inga- og einkaflug, og því ætti um-
ræða um að Reykjavíkurflugvöllur
hverfi úr Vatnsmýrinni ekki að koma
þeim sem stunda slíka starfsemi á
flugvellinum sérstaklega á óvart.
Þetta er mat Dags B. Eggertsson-
ar, formanns skipulagsráðs Rvk., sem
bendir á að þótt framkvæmdir við
slíkan völl séu ekki hafnar hafi hann
verið á samgönguáætlun árið 2003.
„Það kemur mér því mikið á óvart ef
mönnum er ókunnugt um að það hef-
ur lengi verið stefnan að æfinga- og
einkaflugið flytjist á annan stað, enda
gilda ekki sömu rök um staðsetningu
þess og um innanlandsflugið hvað
varðar þjónustu við landsbyggðina.“
Samráð ekki tímabært
Sagt var frá því í Morgunblaðinu
um síðustu helgi að um 400 störf væru
í uppnámi hyrfi Reykjavíkurflugvöll-
ur úr Vatnsmýrinni, og forsvarsmenn
smærri flugrekenda gagnrýndu að
ekkert samráð hefði verið haft um
brotthvarf vallarins.
Dagur segir borgina nú eiga í við-
ræðum við samgönguráðuneyti, flug-
málastjórn og hagsmunaaðila í innan-
landsflugi um að kanna hugsanlegar
breytingar á Reykjavíkurflugvelli og
önnur flugvallarstæði í grennd við
höfuðborgina. „Að þeirri frumathug-
un lokinni er stefnt að því að vinna
frekar með allt að þrjá kosti sem
álitnir eru raunhæfir. Þó svo að við
ætlum sannarlega að reyna að vinna
þetta markvisst og hratt munum við
þegar þar að kemur kalla fleiri hags-
munaaðila úr fluginu að borðinu.“
Æskilegt væri að flugvallarstæði
sem verður fyrir valinu henti bæði
fyrir innanlandsflug og æfinga- og
einkaflug, svo ekki þurfi að starf-
rækja þrjá flugvelli á SV-horninu,
segir Dagur. Mest áhersla sé þó lögð
á hagsmuni innanlandsflugs og þar
með tengsl landsins alls við borgina.
Einka- og æfingaflug
úr Vatnsmýrinni