Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 23
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Umhverfissjónarmið eru í vaxandi mælifarin að ráða ríkjum varðandi fram-leiðslu og sölu þvottaefnis og er nú ver-
ið að taka í notkun hér á landi nýja reglugerð,
að tilskipan Evrópusambandsins, sem leggur
auknar kröfur á hendur þvottaefnisframleið-
endum varðandi niðurbrot þvottaefna. Níels
Breiðfjörð Jónsson, sérfræðingur hjá Umhverf-
isstofnun, segir að hertar kröfur komi ekkert
sérstaklega við Íslendinga þar sem þau þvotta-
efni, sem hér eru á markaði, innlend sem er-
lend, séu að heita má öll umhverfisvæn. Hér áð-
ur fyrr hafi af og til verið á markaði ýmis
ókræsileg efni, en nú orðið værum við í góðum
málum, kannski með örfáum undantekningum.
Af hreinsiefnum eru það tjöruleysarnir sem eru
óumhverfisvænastir.“
Litaður og hvítur þvottur
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að
tauþvottaefni eru af tveimur grunngerðum,
annars vegar fyrir litaðan þvott og hins vegar
fyrir hvítan þvott. Þvottaefni fyrir hvítan þvott
eru þó ekki bara fyrir hvítan þvott því þau inni-
halda bleikingarefni, sem eru peroxíðgjafar, og
bleikja þvottinn, brjóta niður óhreinindi og sótt-
hreinsa svo þvottinn líka. Gallinn við þau
þvottaefni, sem ætluð eru „hvítum þvotti“, er
einmitt bleikingin því hún brýtur niður lit-
arefnin í tauinu, eins og margir þekkja af eigin
raun. Þessi þvottaefni henta því einkum á ljósan
þvott og mjög óhreinan þvott, segir Níels og
bætir við að t.d. Vanish-þvottaaefnið, sem aug-
lýst hafi verið mikið að undanförnu, sé nánast
hreint bleikingarefni. „Að auki innihalda þessi
þvottaefni svokölluð „opt-
ísk“ bleikingarefni í litlu
magni, en nóg til að þvott-
urinn verður skjannahvítur
þar sem efnin setjast í þræðina
í tauinu og endurkasta ljósinu.“
Svokölluð „color“-þvottaefni
innihalda á hinn bóginn engin bleik-
ingarefni, en þeim mun meira af
þvottavirkum efnum og efni til að
hindra að litur leysist úr þvott-
inum. Sterklitaðar flíkur geta
oft auðveldlega látið lit og
litað þær flíkur, sem ver-
ið er að þvo samtímis,
en þessi hjálparefni
hjálpa til við að halda
litnum á sínum stað.
Þessi þvottaefni ráða á
hinn bóginn ekki við erf-
iða bletti eða mikil
óhreinindi. Þá verður að
grípa til bleikingarþvottaefnanna eða sér-
stakrar bleikingar, að sögn Níelsar.
Rétt skömmtun þvottaefna
Þegar kemur að skömmtun þvottaefna er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að
þvottaefni eru samansett úr sápuefnum, sóda
og burðarefnum til að bera óhreinindin eftir að
sápuefnin hafa losað þau úr þvottinum. Algeng-
asta burðarefnið er fosfat, sem í eðli sínu er
áburður og hefur dregið úr notkun þess erlend-
is og önnur burðarefni hafa komið í staðinn, að
sögn Níelsar.
„Víða erlendis er svokallað hart vatn, sem
inniheldur uppleyst kalk úr jarðlögum þar. Þeg-
ar tauþvottaefni er sett út í vatn, sem inniheldur
uppleyst kalk, tengist hluti burðar- og sápuefn-
anna við uppleysta kalkið og nýtist því ekki við
ÞVOTTAEFNI
TENGLAR
...................................................................
www.ust.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
þvottinn. Því þarf að nota stærri skammta af
þvottaefnum á þessum svæðum. Hjá okkur á Ís-
landi er allt vatn mjúkt með hörku undir 0,5, en
í Kaupmannahöfn t.d. liggur harka vatnsins á
bilinu 13 til 20. Af þessum ástæðum þurfum við
miklu minni þvottaefnisskammta hér á landi til
að þvo þvottinn okkar en Kaupmannahafn-
arbúar. Hins vegar er rétt að hafa það í huga að
ef skammtastærðir eru of litlar, getur það gerst
að þvottaefnið leysi upp óhreinindin, en er ekki
nægilega mikið til að halda þeim í lausn.
Óhreinindin falla því út aftur og þá miklu fín-
deildari en þau áður voru og geta fest í þvott-
inum til frambúðar. Skammturinn þarf að vera
nógu stór til að þetta gerist ekki,“ segir Níels.
Þurfum minna af þvotta-
efni en aðrar þjóðir
Góð þvottaráð
TENGLAR
...............................................
www.washright.com
Forðist að setja of lítið af þvotti í vél-
ina: Gallinn er sá að sumar þvottavélar
nota sama rafmagn og vatnsmagn,
hver sem hleðslan er. Ef safnað er í
heila vél er rafmagns- og vatnsnotkun
sú sama og þvotturinn verður alveg
jafn hreinn.
Notið meira þvottaefni ef fatnaður er
mjög óhreinn: Þvottaefni á að mæla
eftir því hversu óhreinn þvotturinn er.
Með því að fylgja leiðbeiningum á um-
búðum næst bestur árangrur sem hlífir
jafnframt umhverfinu. Framleiðendur
eru sífellt að bæta vöru sína og því
kunna þessi fyrirmæli að breytast.
Líttu því á leiðbeiningarnar, jafnvel
þótt þú notir alltaf sömu tegund.
Notið lægsta hitastig, sem mælt er
með: Margir halda að hátt hitastig sé
nauðsynlegt til að þvotturinn verði
hreinn. Í raun eru flest nútíma þvotta-
efni ætluð til nota við lágt hitastig.
Þvottur við hátt hitastig sóar orku.
Dragið úr umbúðanotkun: Öll vitum
við að framleiðsla umbúða gengur á
náttúruauðlindir. Geymið endurnýt-
anlegar umbúðir og kaupið áfyllingar
þegar það býðst. Innihaldið er það
sama en minni pappi og/eða plast fer í
ruslatunnuna og út í umhverfið. Farið
með notaðar umbúðir í flokkunarstöð
ef slík þjónusta er í boði.
Framleiðendur
þvottaefnis í Evrópu
hafa gert áætlun um
að draga úr áhrifum
þvottaefnis á um-
hverfið. Fyrirtæki,
sem taka þátt í áætl-
uninni, hafa þetta
merki á vörum sínum.