Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT TÓNLISTARHÚS
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
E
itt algengasta vanda-
málið við stofnun nýrra
tónlistarhúsa er að allt
fjármagnið fari í að
reisa bygginguna sjálfa,
og lítið sem ekkert hugað að dag-
skránni sjálfri – því sem á að gerast í
húsinu. Þau mistök höfum við oft séð
gerð,“ segja þeir Vladimir Ashkenazy
og Jasper Parrott, umboðsmaður hjá
HarrisonParrott-umboðsskrifstofunni
í London, í samtali við Morgunblaðið.
Til stendur að þeir setji saman veglega
dagskrá í Tónlistarhúsinu í Reykjavík
sem spanna mun nokkur ár eftir að
húsið verður opnað og er Ashkenazy
titlaður listrænn ráðgjafi þess, en hann
er, sem kunnugt er, einn elsti og ötul-
asti talsmaður byggingar tónlistarhúss
á Íslandi og því afar metnaðarfullur
fyrir hönd verkefnisins.
„Það vill oft gerast að þegar húsið er
loksins tilbúið er oft búið að þurrausa
alla sjóði, og þá þarf í hendingu að
hefjast handa við að útvega fjármagn
til að reka það. Byggingin sjálf er oft á
tíðum mjög vel heppnuð, en fjár-
magnið sem á að fara í innihald hennar
er ekki til. Spenningurinn sem verður
til hjá almenningi yfir nýju og glæsi-
legu húsi og umhverfi er fljótur að
koðna niður ef ekki eru spennandi
hlutir að gerast í húsinu. Fyrir vikið
dettur staðallinn niður, sem leiðir af
sér minni trú á húsið. Að lokum er hús-
ið ekki lengur í stakk búið til að fylgja
þeim háleitu markmiðum sem lagt var
upp með,“ segir Parrott. „Portus-
hópurinn hefur lagt á það ríka áherslu
að fjármagn sé tryggt í minnst þrjú ár
eftir að húsið er opnað til að gera
mögulega þá fjölbreyttu starfsemi sem
húsið getur hýst. Að grunnur sé lagður
að föstum áhorfendahópi og fjöl-
breyttum viðburðum á viðráðanlegu
verði, þannig að í lokin sé það að fara í
húsið og upplifun þar orðin hluti af
menningu fólksins. Þá getur orðið til
mjög eðlileg þróun í virkni hússins,
sem þá getur leikið stórt hlutverk í
samfélaginu öllu.“
Dagskrá í þrjú ár
Parrott segir þá Ashkenazy þekkja
mörg dæmi um hvort tveggja, annars
vegar þar sem ekki hafi verið veitt
nægt fé til rekstrar hússins að lokinni
byggingu þess og þá hafi húsum jafn-
vel verið lokað, en hins vegar þar sem
rétt hafi verið staðið að málum. Þar
hafi húsin orðið að ótrúlega öflugum
kröftum innan samfélagsins og þannig
segjast þeir vonast til að verði með
þetta hús. „Ég tel að við getum boðið
upp á mjög metnaðarfulla og vel
heppnaða dagskrá í að minnsta kosti
þrjú ár,“ bætir Ashkenazy við. „Og ef
við tökum vandaðar ákvarðanir, þar
sem ekki er öllu hrúgað á fyrsta árið
heldur byggt upp yfir þrjú ár, tel ég að
við getum vakið svo mikinn áhuga á
þessu húsi meðal styrktaraðila að
framhaldið komi af sjálfu sér.“
Portus-hópurinn hefur skuldbundið
sig til að verja 1,2 milljörðum króna í
svonefndan bakhjarlsstuðning til að
setja upp dagskrá í Tónlistarhúsinu
næstu árin eftir að það verður opnað,
til viðbótar við önnur framlög. „Það
verður að sjálfsögðu ekki greitt út í
einni greiðslu, heldur yfir nokkurra
ára tímabil, kannski 100–150 milljónir í
einu. En jafnvel í hinum dýra heimi al-
þjóðlega þekktra listamanna eru það
miklir peningar, sem geta keypt hing-
að mikið hæfileikafólk,“ segir Kjartan
Gunnarsson, varaformaður stjórnar
Landsbankans, og Ashkenazy og
Parrott samsinna þeirri staðhæfingu.
Parrott bætir við að tímasetningin á
byggingu Tónlistarhússins sé hárrétt,
því um þessar mundir sé mikið rætt á
alþjóðlegum vettvangi hið stóra hlut-
fall listamanna sem Ísland hafi getið af
sér, ekki síst á tónlistarsviðinu. „Sé
innlendu hæfileikafólki stillt upp við
hlið erlendra stórstjarna tel ég að mik-
ill áhugi geti vaknað og staðallinn jafn-
vel hækkað enn hér á landi. Sé vel
staðið að viðskiptum listanna; sem
snúast til dæmis um kynningu og
markaðssetningu á viðburðum, mennt-
un yngra fólks og því að byggja upp
dyggan neytendahóp, er framtíðin
sjálfbær,“ segir Parrott og Kjartan
skýtur því að að 50 milljónir verði enn-
fremur lagðar í sérstakan tón-
menntasjóð ætlaðan börnum.
Ashkenazy segir ótímabært að tala
um ákveðna viðburði sem gætu átt sér
stað í húsinu, en skálduð dagskrá húss-
ins fyrir tónleikaárið 2009–2010 sem
fylgdi tillögu Portus-hópsins er einkar
glæsileg. Yrði hún að veruleika myndi
tónlistarfólk á borð við Sigur Rós,
Lundúnafílharmóníuna, Andrea Bo-
celli ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Skólakór Kársness stíga á sviðið í
Tónlistarhúsinu árið 2009. Upp úr ára-
mótum kæmu þar svo fram Cecilia
Bartoli og Stuðmenn. Þótt enginn við-
burðanna í hinni skálduðu dagskrá sé í
raun og veru fyrirhugaður gefa þeir
nokkra mynd af því hvernig þeir
Ashkenazy og Parrott sjá dagskrána
fyrir sér. „Ég tel að ég og Parrott, sem
hefur áralanga reynslu af skipulagn-
ingu viðburða, ættum að geta sett upp
heildstæða dagskrá, sem væri líka fjöl-
breytt, allt frá einsöngstónleikum til
sinfóníuhljómsveita. Tónleikaárið ætti
að geta verið mjög skemmtilegt og
fjölbreytt,“ segir hann. „Ég vil ekki
hljóma drambsamur, en ég tel að það
sé erfitt að finna tvíeyki sem hefur
jafnmikla þekkingu á því sem er að
gerast í tónlistarheiminum í dag og
okkur tvo. Og líka góð sambönd, því
það skiptir ekki síður máli í listheim-
inum. Listamenn geta verið mjög opn-
ir fyrir nýjum hlut á borð við tónlistar-
hús af þessu tagi í Reykjavík séu réttu
mennirnir talsmenn þess.“
Ashkenazy nefnir að hann hafi get-
að fengið marga fræga tónlistarmenn
til að leika á Listahátíð í Reykjavík á
árum áður, en hann var einn af frum-
kvöðlunum að baki stofnunar hennar,
sem margir hverjir hafi leikið endur-
gjaldslaust fyrir hans orð. Nú geti
hann haldið áfram að bjóða fólki að
koma, og það sé ennfremur hægt að
greiða því laun. „En það mun taka
þessi boð alvarlega ef rétti maðurinn
býður því,“ segir hann.
Ashkenazy og Parrott taka það
fram að ekki standi til að leggja ein-
göngu áherslu á „heldri“ tónlist-
arflutning í húsinu, heldur bjóða þar
velkomna alls konar tónlist. „Ég tel að
tónlistin sem ég einbeiti mér að, sem
ég kýs að kalla alvarlega en ekki klass-
íska, sé ein upphafnasta tjáning
mannshugans. En ég vil ekki líta niður
á það besta sem gerist í léttari tónlist,
jafnvel í poppi eða djassi. Ef við erum
vandlátir í vali og vinnum með fólki
sem hefur mikla þekkingu á þeim
geira tel ég að það geti verið þess virði.
Ég tel að það sé mikilvægt að öll stig
íslenskrar menningar fái eitthvað fyrir
sinn snúð. Þannig er hægt að koma
landinu virkilega á kortið í tónlistarlíf-
inu. Þeir sem að þeim málum vinna
standa sig vel eins og er, en hús á borð
við þetta kallar á ennþá meiri athygli,“
segir Ashkenazy.
Gerir landið enn
meira aðlaðandi
Hann segir erfitt að bjóða stór-
stjörnum úr tónlistarheiminum upp á
þær aðstæður sem eru í boði hérlendis
um þessar mundir. Hið nýja tónlistar-
hús muni breyta því. „Margir tónlist-
armenn, sérstaklega í hljómsveitum,
líta á salinn sem þeir leika í sem sinn
Stradivarius. Að húsið sé gott skiptir
miklu máli,“ segir Parrott.
Þeir segjast telja að Tónlistarhúsið
og íslenskt samfélag muni mynda góða
og aðlaðandi heild; margir listamenn
muni kjósa að koma fram í húsinu ekki
einungis vegna hússins sjálfs eða
þeirra sem að því standa, heldur einnig
vegna sérstöðu Íslands og hins ís-
lenska samfélags í heiminum. Hins
vegar geti Tónlistarhúsið laðað að
ferðamenn og Íslendinga samtímis, og
heimsókn þangað þannig orðið ómiss-
andi hluti af dvöl á Íslandi. „Þetta hús
mun gera það að verkum að Reykjavík
ber höfuð og herðar yfir margar stór-
borgir í Evrópu í þessum skilningi,
þótt ég nefni engin nöfn,“ segir Ashke-
nazy og segir að hönnun hússins virð-
ist mjög vönduð og heppileg í alla
staði. „Með tilkomu þessa húss mun-
um við geta gert marga hluti sem við
gátum ekki gert hér á landi áður fyrr
vegna aðstöðuleysis. Með tilkomu hins
nýja húss eru möguleikar framtíð-
arinnar mjög miklir.“
Vladimir Ashkenazy er listrænn ráðgjafi
Miklir möguleikar í nýju húsi
Morgunblaðið/Kristinn
„Við getum boðið upp á mjög metnaðarfulla og vel heppnaða dagskrá í að
minnsta kosti þrjú ár,“ segja Vladimir Ashkenazy og Jasper Parrott.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Stóri tónleikasalurinn séður af sviði. Salurinn verður viðarklæddur og tekur 1.800 manns í sæti. Þar verða tónleikar með tónlist af öllum gerðum.