Morgunblaðið - 22.09.2005, Side 26

Morgunblaðið - 22.09.2005, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. V erkefnið er að byggja og reka tón- listarhús með hljómburði í hæsta gæðaflokki og fyrsta flokks aðstöðu fyrir gesti og listamenn, ásamt fyrsta flokks ráðstefnuaðstöðu í ráðstefnumiðstöð.“ Þannig mæltist Ólafi B. Thors stjórnarformanni Austurhafnar ehf í upp- hafi blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í gær, þar sem kynnt var það ferli sem nú hefur leitt til þess að gengið verður til samninga við Portus-hópinn um byggingu og rekstur tónlistar- húss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Reykja- víkurhöfn. Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist að ári, og að þeim ljúki haustið 2009. Ólafur lýsti því að ákveðið hefði verið á sínum tíma að bygging og rekstur hússins yrðu einka- framkvæmd, og að jafnframt hefði verið afráðið að gera sérleyfissamning um verkið með aðferð- um samningskaupa við að velja framkvæmda- raðila, og taldi þá aðferðafræði hafa gefist mjög vel. Þær aðferðir fólu í sér að eftir að tillögum var skilað inn, var farið yfir þær, þær ræddar og gagnrýndar og hópunum gefinn kostur á að betr- umbæta, endurskoða og lagfæra með hliðsjón af þeim þörfum sem Austurhöfn taldi þurfa að upp- fylla. Ólafur sagði samvinnu þá sem náðst hefði milli rekstrarmanna, arkitekta, framkvæmda- manna og hönnuða við það ferli, hafa leitt til betri heildarlausna en fengist hefðu með hefð- bundnum aðferðum. „Þetta er ekki síst því að þakka, hversu gífurlega vinnu allir umsækjendur í ferlinu lögðu í það. Þeir lögðu allir ómetanlegan skerf til þessa verks, þótt einn standi að endingu uppi sem sigurvegari.“ Reykjavíkurborg ákvað að binda ekki deili- skipulag byggingasvæðisins fyrr en ljóst yrði hvernig lokatillögur um byggingarnar litu út, til að gefa hönnuðum þeirra sem mest frjálsræði. Ólafur sagði að nú riði á að samþykkja deiliskipu- lag fyrir svæðið, með hliðsjón af verðlaunatillög- unni, svo hefja mætti framkvæmdir hið fyrsta. Ólafur lagði áherslu á að með tillögu Portus væri ekki um að ræða byggingu á húsi, heldur stórkostlega uppbyggingu hafnarsvæðisins, sem myndi gjörbreyta ásýnd miðborgarinnar. Allt miðast við fyrsta flokks hljómburð Aðaltónleikasalur mun rúma 1.800 áheyrendur, en tvískiptur ráðstefnusalur mun rúma 700 áheyrendur í bíóuppröðun eða 500 í skólastofu- uppröðun. Í tengslum við ráðstefnusalinn verður P Í s i A f u u L a f t a i sýningaaðstaða. Í kammermúsíksal, sem jafn- framt verður æfingasalur Sinfóníuhljómsveit- arinnar verður pláss fyrir 450 áheyrendur, en mörg minni fundaherbergi verða í húsinu. Tveimur stærstu fundaherbergjunum verður hægt að slá saman, þannig að úr verði einn salur fyrir kammermúsík eða einleikstónleika, sem rúmar 180 áheyrendur. Ólafur lagði áherslu á að hönnun þessa salar yrði miðuð við fyrsta flokks hljómburð, að tillögu hljómburðarsérfræðinga frá Artec fyrirtækinu, sem hefur verið Austur- höfn til ráðgjafar um hljómburð. Hótelið verður svipað að stærð og tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Alls geta byggingarnar numið á milli 80 og 90 þúsund fermetrum. Að meðtöldum kostnaði við lóðir og bílastæði hafði Austurhöfn, að sögn Ólafs, gert ráð fyrir að stofnkostnaður við tónlistar- og ráðstefnu- miðstöð gæti orðið 8,5 milljarðar. Þær áætlanir voru þó gerðar áður en nokkrar teikningar lágu fyrir til grundvallar því mati, og voru einungis byggðar á forsögn um stærð. Þau tvö tilboð sem komust lengst; tilboð Portus, og tilboð Eign- arhaldsfélagsins Fasteignar og Klasa gerðu ráð fyrir að stofnkostnaður yrði annars vegar 12 milljarðar og hins vegar um 9 milljarðar. Engu að síður byggðust þau bæði á því að árlegt fram- lag Austurhafnar yrði óbreytt, eða 600 milljónir á ári. Hæsta einkunn í fimm flokkum af átta Matsnefnd var skipuð til að meta tillögur, en hana skipuðu Stefán Baldursson, Kristrún Heim- isdóttir og Orri Hauksson. Matsnefnd til að- stoðar voru hópar sérfræðinga og ráðgjafa. Stefán Baldursson kynnti niðurstöðu mats- nefndarinnar og í máli hans kom fram að mjótt hefði verið á munum milli lokatillagnanna, enda hefði valið staðið á milli tveggja glæsilegra lausna. Vinningstillaga Portus-hópsins hlaut hæstu einkunn í fimm af átta matsflokkum, þ.e. byggingarlist, lausn á rekstri bílastæða, fyrir við- skiptaáætlun, fyrir fjárhagslegan og stjórn- unarlegan styrk og fyrir metnaðarfulla dagskrá og starfsemisáætlun. „Er það einróma álit mats- nefndarinnar að vinningstillagan sé afar glæsileg í alla staði og að byggingin verði áhrifamikið kennileiti í ásýnd Reykjavíkur,“ sagði Stefán. Hann sagði Portus-hópinn öflugan og fjárhags- lega sterkan; tillagan fæli í sér stjórnkerfi sem tryggði listrænan metnað og ágæta aðstöðu fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og væri því í fullu samræmi við öll menningarleg meginmarkmið verkefnisins. Stóri tónleikasalurinn verður konsertsalur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun einnig hýsa aðra stærr „Hlýlega vafi Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HAMRABORGIN VIÐ HÖFNINA Tilkynnt var á blaðamannafundií gær að tillaga Portus-hópsinsað tónlistarhúsi, ráðstefnu- miðstöð og hóteli við Reykjavíkur- höfn hefði orðið fyrir valinu. Þetta hús mun ekki aðeins marka tímamót í íslensku þjóðlífi heldur mun það hafa í för með sér byltingu. Þessi bylting mun ekki aðeins eiga sér stað í ís- lensku menningarlífi og þaðan af síð- ur mun hún verða einskorðuð við höf- uðborgarsvæðið. Hún mun koma öllu landinu til góða. Umræðan um tónlistarhús hefur staðið um áratugi og hafa margir lagt hönd á plóginn í þeirri löngu baráttu. Nú hefur hún skilað sér í tillögum að glæsilegri hamraborg við höfnina. Listamaðurinn Ólafur Elíasson er hönnuður byggingarinnar. Hann vinnur með gler og mjúkar línur. Birta mun gegna stóru hlutverki í ásýnd hússins, hvort sem verður að degi til eða næturlagi. Húsið verður klætt glerkápu, sem mun vísa í ís- lenskt stuðlaberg, en um leið verður það gagnsætt og opið þannig að það laði að í stað þess að hrinda frá. Gler- kápan verður úr tvöföldum kristals- laga gluggum í stálramma sem munu endurvarpa ólíkri birtu eftir því hvernig hún fellur á þá. Hið nýja tónlistarhús mun valda byltingu í íslensku tónlistarlífi. Ís- lenskt tónlistarlíf hefur vissulega verið líflegt og gróskumikið, en það hefur engu að síður liðið verulega fyrir skort á húsnæði við hæfi. Þá vekur sérstaka ánægju að ekki er að- eins hugsað fyrir því að reisa húsið, heldur er þegar farið að huga að því hvað skuli vera á boðstólum í húsinu og er sérstaklega við hæfi að tónlist- arsnillingurinn Vladimir Ashkenazy skuli hafa verið fenginn til þess að hafa umsjón með þeim þætti. Margir nafntogaðir listamenn hafa lagt leið sína til Íslands fyrir tilstilli Ashkenazys og áhrif hans eru ótví- ræð. Hið nýja hús mun valda byltingu í Reykjavík. Miðbærinn hefur verið stórt vandamál í Reykjavík. Þrátt fyrir að þar hafi ýmislegt gerst á und- anförnum árum hefur hann verið að koðna niður. Verslun hefur færst þaðan í verslunarklasana og það hef- ur gert mannlífið fátæklegra en áður. Einkum hefur þó vantað svipmikinn arkitektúr til að skapa kjölfestu í miðju bæjarins – arkitektúr, sem gæti orðið einkennismerki borgar- innar eða jafnvel landsins rétt eins og óperan í Sydney er orðin samnefnari fyrir Ástralíu, kúpullinn á þýska þinginu er einkennismerki Berlínar eða Pompidou-safnið minnir sam- stundis á París. Með framsæknum arkitektúr og djörfum vinnubrögðum er hægt að ná slagkrafti og áhrifum, sem eru langt umfram það að reisa eitt hús. Nýtt tónlistarhús verður til þess að renna stoðum undir þá upp- byggingu, sem átt hefur sér stað í miðborginni undanfarið, þar á meðal í Skuggahverfinu. Það mun laða að fólk og því hafa margfeldisáhrif á starfsemina í miðbænum. Með hinu nýja tónlistarhúsi myndi ásýnd borgarinnar gerbreytast og verða heilsteyptari. Húsið mun skapa eðlilega tengingu við höfnina og haf- ið, sem að vissu leyti hefur rofnað í núverandi skipulagi. Það mun setja svip á sundurlausa miðborg. Þá verð- ur ekki síst glæsilegt að koma til Reykjavíkur af hafi og sigla inn í höfnina þegar nýtt tónlistarhús verð- ur risið og trónir á bakkanum. Húsið mun valda byltingu í ís- lensku þjóðlífi. Metnaðurinn að baki tónlistarhúsinu er í þágu þjóðarinnar allrar. Orð Ashkenazys í Morgun- blaðinu í dag segja sitt um það: „Þetta hús mun gera það að verkum að Reykjavík ber höfuð og herðar yfir margar stórborgir í Evrópu í þessum skilningi, þótt ég nefni engin nöfn,“ segir Ashkenazy og segir að hönnun hússins virðist mjög vönduð og heppileg í alla staði. „Með tilkomu þessa húss munum við geta gert marga hluti sem við gátum ekki gert hér á landi áður fyrr vegna aðstöðu- leysis. Með tilkomu hins nýja húss eru möguleikar framtíðarinnar mjög miklir.“ Sá forsmekkur, sem teikningar og myndir af tónlistarhúsi, ráðstefnu- miðstöð og hóteli við Reykjavíkur- höfn gefa, var glæsilegur. Ef vel tekst til verður ekki aðeins hægt að segja að húsið hleypi lífi í þjóðlífið, það verður engu líkara en húsið sjálft verði lifandi. Húsið mun endurspegla árstíðir og veðurfar. Hin glæsilega tillaga opnar augun fyrir því tóma- rúmi, sem nú verður fyllt upp í. Reiknað er með að framkvæmdir við húsið geti hafist að ári og að þeim ljúki haustið 2009. Aðaltónleikasalur mun rúma 1.800 áheyrendur, en tvískiptur ráðstefnu- salur mun rúma 700 áheyrendur í bíó- uppröðun eða 500 í skólastofuuppröð- un. Í tengslum við ráðstefnusalinn verður sýningaaðstaða. Í kammer- músíksal, sem jafnframt verður æf- ingasalur Sinfóníuhljómsveitarinnar, verður pláss fyrir 450 áheyrendur, en mörg minni fundaherbergi verða í húsinu. Tveimur stærstu fundaher- bergjunum verður hægt að slá sam- an, þannig að úr verði einn salur fyrir kammermúsík- eða einleikstónleika, sem rúmar 180 áheyrendur. Mikil áhersla verður lögð á að tryggja vandaðan hljómburð. Reykjavíkur- borg ákvað á sínum tíma að binda ekki deiliskipulag byggingarsvæðis- ins fyrr en ljóst yrði hvernig loka- tillögur um byggingarnar litu út. Þetta var gert til þess að gefa hönn- uðum þeirra sem mest frjálsræði. Á blaðamannafundinum þar sem verk- efnið var kynnt í gær kom fram að nú riði á að samþykkja deiliskipulag fyr- ir svæðið, með hliðsjón af verðlauna- tillögunni, svo hefja mætti fram- kvæmdir hið fyrsta. Það er óhætt að taka undir það um leið og rétt er að leggja áherslu á að haga verður gerð umferðarmannvirkja með þeim hætti að húsið einangrist ekki og eðlileg tenging og aðkoma verði að tónlistar- húsinu. Niðurstaðan, sem kynnt var í gær, ber vitni vönduðum vinnubrögðum. Ferlið hefur verið langt, en nú hefur verið ákveðið að hefjast handa í sam- ræmi við tillögur að húsi, sem ekki mun aðeins gerbreyta íslensku tón- listar-, menningar og þjóðlífi heldur bylta því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.