Morgunblaðið - 22.09.2005, Page 30

Morgunblaðið - 22.09.2005, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN KYNFERÐISBROTAKAFLI hegningarlaga er í endurskoðun um þessar mundir í umboði Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Refsiréttarnefnd hefur skilað breytingartillögum til ráðherra og frumvarp þess efnis fylgir vonandi í kjölfarið og verður lagt fyrir Al- þingi bráðlega. Af mörgum mik- ilvægum atriðum sem vert væri að nefna varðandi fyrirhugaðar breyt- ingar vilja V-dags samtökin vekja athygli á einu atriði sem varðar nauðganir og hvernig þær eru skil- greindar í lögum. Nauðgun er ekki alltaf nauðg- un skv. hegningarlögum Ef einstaklingi er þröngvað til samræðis án samþykkis hans er ekki alltaf um nauðgun að ræða skv. skilgreiningu löggjafans. Til að um nauðgun sé að ræða þarf of- beldi eða hótun um það að koma til við verknaðinn og fellur brotið þá undir nauðgunarákvæði 194. gr. hegningarlaga. Dæmi um kynferð- isbrot sem fellur utan skilgrein- ingu löggjafans á nauðgun er mis- neyting skv. 196. gr. hegningarlaga þar sem oftast er um það að ræða að samræði eða önnur kynferð- ismök er haft við ein- stakling sem sökum svefndrunga, ölvunar eða ástands að öðru leyti getur ekki sporn- að við verknaðinum eða skilið þýðingu hans. Kynferðisbrot sem framið er gegn einstaklingi undir slík- um kringumstæðum er ekki talið vera nauðgun, því greinarmunur er gerður á því hvort gerandi býr til aðstæðurnar sem hann svo notfær- ir sér t.d. með lyfjagjöf eða að ger- andi notfærir sér aðstæður, t.d. að einstaklingur er rænulaus vegna lyfjanotkunar. Spyrja má hvers vegna löggjafinn leggi áherslu á þennan greinarmun við skilgrein- ingu á afbrotinu, sérstaklega með tilliti til þess að hann gerir ekki alltaf slíkan greinarmun sbr. t.d. 248. gr. í auðgunarbrotakafla hegningarlaga. Skilgreining lag- anna og upplifun þolenda Ef tilgangur laga í réttarríki er m.a. að taka raunsætt á ann- mörkum sem verða í samfélagi má spyrja hvort áhersla löggjaf- ans á verknaðaraðferð kynferðisbrots sé í samræmi við upplifun þolenda. Þolendur eru margir og því er erfitt að alhæfa um upplifun þeirra þar sem hún er mismun- andi. Eitt dæmi má þó nefna í þessu samhengi sem sótt er til Stígamóta þar sem staðið er fyrir nauðsynlegri ráðgjöf fyrir þol- endur kynferðisbrota. Hjá ráð- gjöfum Stígamóta er ekki föst vinnuregla að spyrja þolendur um hvernig kynferðisbrotið var framið og þolandanum er í sjálfsvald sett hvort hann lýsi því náið. Reynslan hefur sýnt að það eru alls ekki all- ir þolendur sem hafa þörf fyrir að ræða hvernig kynferðisbrotinu var framfylgt. Hvorki þolendum né ráðgjöfum á þessum vettvangi finnst nauðsynlegt að tilgreina verknaðaraðferð brotsins til að reyna að vinna úr þeim margþætta sársauka sem hlýst af kynferð- isbroti. Af þessu dæmi má leiða að því líkum að upplifun þolenda sé ekki í samræmi við áherslu lög- gjafans á aðgreiningu kynferð- isbrota á grundvelli verknaðar- aðferðar. Það má einnig velta því fyrir sér hvort það samræmist þeim hagsmunum sem kynferð- isbrotakafla hegningarlaga er ætl- að að vernda að þeir þolendur sem telja sig réttilega verða fyrir nauðgun, þ,e. með því að vilji þeirra er brotinn á bak aftur og haft er samræði við þá án sam- þykkis þeirra, fái ekki viðurkenn- ingu löggjafarvaldsins þess efnis og að brotið sé kallað öðru nafni en það er í raun og veru. Ein grein fyrir sama brot Í kynferðisbrotakafla hegning- arlaga væri við hæfi að hafa ein- ungis eina lagagrein sem tekur á nauðgunarbroti. Mismunandi verknaðaraðferð nauðgunar gæti þá skorið úr um hvar innan refsi- rammans brotið lægi skv. reglum réttarins hverju sinni í samræmi við þá dómaframkvæmd sem um það skapast. Verknaðaraðferð nauðgunar væri þá hægt að nota við ákvörðun um þyngd refsingar en ekki eins og nú er, til að skera úr um hvort nauðgun hafi átt sér stað eða ekki. Ef ein ný nauðgunargrein yrði búin til væri hægt að vona að dóm- ar fyrir kynferðisbrot þyngdust, þar sem dómar í kynferðisbrota- málum virðast ekki vera í sam- ræmi við réttarvitund almennings. Spjótum þess efnis ber hins vegar ekki að beina að dómstólum þar sem þeim ber að dæma eftir lögum og dómafordæmum til að sann- girnis gæti á milli ákærðra. Ef vilji er fyrir hendi er það hins vegar löggjafinn sem getur haft áhrif á þróun refsinga í nauðgunarmálum með því t.d. að búa til nýja nauðg- unargrein. Löggjafinn hefur áður brugðist við með þeim hætti og er dæmi um slíkt þegar lagagreinar um fíkniefnabrot voru endurskoð- aðar m.a. til að þyngja refsingar. Margt hefur breyst til hins betra með aukinni umræðu um kynferðisbrot og víðtækari skiln- ingi á því hvað felst í slíkum brot- um. Þó er ljóst að í núverandi lög- gjöf er of mikil áhersla lögð á tæknileg atriði sem valda því að þolendum er mismunað eftir því hvernig nauðgun er framin. Það er því fagnaðarefni að dóms- málaráðherra endurskoði kynferð- isbrotakafla hegningarlaga og í þeirri mikilvægu vinnu sem fram- undan er vona V-dags samtökin að þar verði þolendum nauðgana ekki mismunað. Nauðgun er nauðgun Hildur Sverrisdóttir fjallar um nauðganir ’Það er því fagnaðar-efni að dómsmálaráð- herra endurskoði kyn- ferðisbrotakafla hegningarlaga. ‘ Hildur Sverrisdóttir Höfundur er laganemi og framkvæmdastjóri V-dagsins. FYRIR rúmu ári var Bolli Skúla- son Thoroddsen kjörinn formaður Heimdallar með loforðinu um að í félaginu fengju að starfa „ekki bara fáir útvaldir, heldur allir félagsmenn, sem áhuga hafa“. Það lof- orð hefur nú heldur betur verið svikið. Stjórn Bolla Thor- oddsen hefur valið fulltrúa Heimdallar á komandi þing SUS, fólk sem lítið eða ekkert hefur starfað innan Heimdallar en um leið hafnað fólki sem hefur gefið vinnu sína og peninga til fé- lagsins um árabil. Um þetta val hefur frá 1987 verið farið eftir viðmið- unarreglum sem sett- ar voru þá og miðast við að þeir sem gegnt hafa trúnaðarstörfum fyrir Heimdall og Sjálfstæðisflokkinn hafa forgang sem fulltrúar á þing sam- bandsins. Viðmiðunarreglur ekki virtar Núverandi stjórn Heimdallar virðist ætla að sleppa því að virða þessar viðmiðunarreglur í ár. Þeir hafa núna raðað á listann sam- kvæmt því hverjir hafa verið að duglegir að mæta á þeirra fáu fundi undanfarið árið. Hversu lýð- ræðislegt er það að gefa fé- lagsmönnum þau skilaboð að þeir verði að mæta á fund til þeirra til að fá inngöngu. Ef einstaklingur er búinn að vera duglegur í flokks- starfinu undanfarin fimm ár á hann þá ekki skilið að sitja þingið sem setur stefnu sambandsins næsta ár- ið? Núverandi stjórn hefur við- urkennt að hafa hringt í fólk og beðið það að sækja um þingsetu. Ekki fengu allir þetta umtalaða símtal heldur einungis vinir og kunningjar núverandi stjórnar. Ég veit til þess að það eru ein- staklingar að fara á þingið sem ekki hafa sinnt flokksstarfinu held- ur einungis mætt á skemmtanir Heimdall- ar. Er það þá nóg að fara og drekka bjór með stjórninni til þess að vera þingfulltrúi stærsta aðildarfélags SUS? Loforð svikin! Bolli Thoroddsen og stjórn hans lofuðu opn- ari Heimdalli síðasta haust en ekki get ég séð að þeir standi við það. Hvers vegna hefur þeim sem sóttu um verið meinað að sjá listann yfir þá 150 sem komust á þingið? Fjölmargir ein- staklingar sem gegnt hafa trúnaðarstörfum fyrir Heimdall og flokkinn voru settir sem varamenn á þing- ið. Hefði ekki verið nær að hleypa þeim á þingið og leyfa ný- græðingunum sem stjórnin telur vera svo áhugasama að vera varamenn? Ef þessir einstaklingar sem þið teljið svo áhugasama eru jafn áhugasamir og stjórnin segir hvers vegna þurfti þá að hringja til að fá þá til að koma á þingið? Að lokum vil ég skora á Bolla Thoroddsen og stjórn hans að birta tafarlaust listann sem inniheldur nöfn þeirra 150 aðalmanna sem eru að fara á þingið. Ef ekkert er að fela get ég ekki séð betur en að listann megi birta þegar í stað. Hvert nafn skal svo vera útskýrt og staða þess á listanum rökstudd. Opnari og lýðræðis- legri Heimdallur? Hanna Kristín Skaftadóttir fjallar um svikin loforð stjórnar Heimdallar Hanna Kristín Skaftadóttir ’… ég skora áBolla Thorodd- sen og stjórn hans að birta taf- arlaust listann sem inniheldur nöfn þeirra 150 aðalmanna sem eru að fara á þingið.‘ Höfundur er viðskiptafræðinemi. NÚ síðsumars liggur fyrir árs- hlutauppgjör Hafnarfjarðarbæjar fyrir fyrri hluta ársins 2005. Nið- urstöður þess árshlutareiknings sýna með skýrum hætti, líkt og árs- reikningur ársins 2004, að fjármál og rekstur sveitarfélagsins er enn á ný að eflast og styrkj- ast verulega. Afkomu- tölur eru enn jákvæðari en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Rekstr- arafkoma samstæðu Hafnarfjarðarbæjar á fyrstu sex mánuðum ársins er jákvæð um 285 milljónir króna, sem er betri árangur en gert var ráð fyrir. Starfsmenn bæjarins og bæj- arstjórn eru á fyrri hluta ársins að ná höfuðmarkmiðum fjármálastjórn- unar í öllum lykilatriðum. Rekstur bæjarfélagsins fyrir fjármagnsliði er jákvæður um 340 milljónir og veltufé frá rekstri nemur 467 milljónum króna. Eigið fé hækkar enn á ný og nemur nú 5.178 milljónum króna 30. júní. Afkomutölur þessar fylgja eftir góðum árangri á síðasta ári og um leið eru framkvæmdir í Hafnarfirði meiri en áður þekkist og jafnframt er íbúafjölgun í bænum stöðug og vaxandi. Ráðist var í stjórnsýslubreytingar á árinu 2002 og 2003 sem miðuðu að því að styrkja innviði í rekstri bæj- arfélagsins og um leið lagt upp með að nýta stjórnendateymi á nýjan hátt. Með aukinni þekkingu og bætt- um hugbúnaði vegna fjármálastjórn- unar hafa stjórnendur bæjarins haft mun meiri yfirsýn yfir rekstrarþætti sinna stofnana en áður. Stjórnendur á öllum sviðum, stórum sem smáum, hafa sinnt þessum verkum af fag- mennsku og hafa nú fjárhagsnið- urstöður komið mun oftar og fyrr fram en áður og um leið gert allt fjár- málaeftirlit og aðhald virkara. Það var ákveðin áhætta en um leið fram- sýni sem sýnd var við markvissa stefnu um mikinn framkvæmda- hraða er varðar ný deiliskipulagssvæði og þéttingu byggðar. Það var höfuðmarkmið okk- ar að gott framboð á byggingarsvæðum væri fyrir íbúðir og atvinnu- húsnæði væri til staðar. Bæjarstjórn Hafn- arfjarðar stóð að fullu á bak við þær ákvarðanir og sá árangur sem nú er að nást er m.a. vegna þeirra nýbygg- ingarsvæða sem hægt hefur verið að úthluta á sl. tveimur árum auk m.a. farsællar lausnar á Norðurbakka- málum fjárhag Hafnarfjarðarbæjar í hag. Eftirspurnin og ásókn hefur verið mikil eftir lóðum í Hafnarfirði og nú er haldið áfram á sama hraða í skipu- lagsvinnunni. Til eru núna skipulögð ný svæði, fyrir um hundruð íbúða og atvinnuhúsnæðis, á Völlum, í Sel- hrauni og brátt verður Ásland, ofan Kaldárselsvegar, einnig kynnt. Lækkun erlendra skulda um 2,3 milljarða Við endurskoðun fjárhagsáætl- unar er mikilvægt að geta þess að við stefnumörkun fjárhagsáætlunar sl. vetur var lögð áhersla á varfærni í tekjuáætlun ársins, enda nokkur óvissa ríkjandi í þeim tekjuspám sem sveitarfélög studdust við. Tekjuauki er nú nær 200 milljónum og kemur hann því að hluta á móti hagræðing- artillögum sem gert hafði verið ráð fyrir í rekstrinum. Auk þess verður um sérstök viðbótarframlög að ræða mest til skólamála, íþrótta- og æsku- lýðsmála og félagsmála. Þrátt fyrir jákvæða þróun í tekjuþáttum má enn og aftur minna á að sveitarfélög á landinu hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna þeirra breytinga sem urðu með skattkerfisbreyt- ingum mál til að ræða á fjár- málaráðstefnu sveitarfélaga um miðjan nóvember. Þá liggur fyrir heildarmat á kostn- aðarauka vegna launaþróunar á árinu. Þær breytingar sem gerðar eru nú á fjárhagsáætlun Hafn- arfjarðarbæjar eru til að mæta þess- um breyttu aðstæðum en þær hafa engin áhrif á heildarniðurstöðu áætl- unarinnar eins og hún var upp- haflega samþykkt. Stefnt er að já- kvæðri afkomu. Áhættunefnd fjármála- og stjórn- sýslusviðs og bæjarráð hafa á þess- um tímapunkti einnig talið að rétt eigi að nýta tækifærið til að nið- urgreiða erlend lán sveitarfélagsins og um leið skuldbreyta hluta af er- lendu lánasafni. Þessi ákvörðun er byggð á samþykktri stefnu Hafn- arfjarðarbæjar vegna skuldastýr- ingar lána og á þennan hátt er bætt afkoma í rekstri bæjarins notuð til að greiða niður skuldir bæjarfélagsins fyrir um 900 milljónir króna. Þá er fyrirhugað að endurfjármagna er- lend lán Hafnarfjarðarbæjar vegna Vatnsveitu og Fráveitu Hafn- arfjarðar fyrir allt að 1.400 milljónir króna. Lánasjóður sveitarfélaga mun annast endurfjármögnunina. Við þessar breytingar hjá Hafnarfjarð- arbæ lækka erlend lán um 2,3 millj- arða úr 7.300 milljónum króna í 5.000 milljónir króna, eða um tæp 32%. Allar þessar niðurstöðurnar sýna jákvæða þróun í rekstri sem ásamt endurmati ýmissa rekstrarþátta m.t.t. samlegðar og hagræðingar endurspegla þessar jákvæðu aðgerð- ir bæjarfélagsins. Stöðug uppbygg- ing er nú í Hafnarfirði og er íbúa- fjölgun í Hafnarfirði með því mesta á landinu. Bæjarfélagið er vel í stakk búið að taka á móti auknum íbúa- fjölda án þess að þurfa að ráðast í miklar fjárfestingar. Sú öfluga upp- bygging og miklu framkvæmdir bæj- arfélagsins og byggingariðnaðarins jafnt sem íbúa í bænum munu áfram styrkja og efla bæjarfélagið til marks um að Hafnarfjörður sé eitt öfl- ugasta og framsæknasta sveitarfélag landsins. Enn eitt framfaraspor í fjár- málum Hafnarfjarðarbæjar Gunnar Svavarsson fjallar um pólitíkina í Hafnarfirði ’Allar þessar nið-urstöður sýna jákvæða þróun í rekstri sem ásamt endurmati ým- issa rekstrarþátta m.t.t. samlegðar og hagræð- ingar endurspegla þess- ar jákvæðu aðgerðir bæjarfélagsins.‘ Gunnar Svavarsson Höfundur er forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.                 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.