Morgunblaðið - 06.10.2005, Page 18

Morgunblaðið - 06.10.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Moskvu. The Washington Post. | Svetl- ana, 32 ára áfengissjúklingur, hafði haldið sér þurri mánuðum saman en dag einn fyrir tveimur árum varð hún að fá sér einn sopa. Í þetta skipti settist hún við símaborðið til að geta hringt og beðið um sjúkrabíl. Síðan fékk hún sér sopa af bjór. „Ég var dauðhrædd,“ sagði Svetl- ana, sem hélt að hún myndi kafna þegar bjórsopinn færi í blóðrásina. Hún vonaði bara að hún fengi nægan tíma til að hringja og að mennirnir í sjúkrabílnum gætu lífgað hana við. „Ég var algerlega viss um að eitt- hvað hræðilegt myndi koma fyrir mig,“ sagði Svetlana. „Deyrð ef þú drekkur“ Þremur mánuðum áður hafði Svetlana gengist undir meðferð sem felst í því að skjóta áfengissjúklingn- um skelk í bringu, gera hann dauð- hræddan við áfengi. Beitt er sál- fræðilegum aðferðum til að sannfæra sjúklinginn um að áfengi jafngildi dauða. Í tilviki Svetlönu beitti læknirinn fyrst sefjun og gaf henni öflugt lyf sem getur ráðist á öndunarfærin en virkar aðeins í skamman tíma. Læknirinn bauð henni síðan að dreypa á vodka. Svetlana fékk þá svima og gat ekki andað þar til lækn- irinn kom henni til bjargar og gaf henni súrefni. Læknirinn sagði Svetlönu að lyfið héldist í líkamanum og hún gæti ekki drukkið áfengi í eitt ár. „Og þú deyrð ef þú drekkur á þeim tíma.“ Áður en Svetlana fór heim krafðist læknirinn þess að hún undirritaði yf- irlýsingu þess efnis að hann bæri ekki ábyrgð á dauða hennar drykki hún áfengi næstu tólf mánuðina. Sefjunarmáttur að dvína „Ég trúði honum vegna þess að við höfðum öll heyrt sögur um fólk sem gekkst undir þessa meðferð og dó þegar það drakk,“ sagði Svetlana, sem vildi ekki láta eftirnafns síns getið þar sem vinnufélagar hennar vita ekki að hún er áfengissjúklingur. Hundruð þúsunda manna í Rúss- landi og fleiri fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna hafa gengist undir slíka meðferð á síðustu tuttugu ár- um. Þessari aðferð hefur einnig verið beitt gegn hvers konar fíkn á síðustu árum, til að mynda spilafíkn, og læknar óttast nú að sefjunarmátt- urinn sé að minnka. Netið á drjúgan þátt í þeirri þró- un. Til eru margir spjallþræðir þar sem fjallað er um skeikulleika með- ferðarinnar. Á vefsíðum er hægt að fá upplýsingar um aðferðir til að ganga úr skugga um hvort viðkom- andi áfengissjúklingur hafi fengið lyfleysu eða lyf sem getur valdið hastarlegum veikindum blandist það áfengi. Eina úrræði margra Áfengisneyslan hefur aldrei verið meiri en nú í Rússlandi. Á ári hverju deyja um 50.000 manns af völdum áfengiseitrunar, að sögn rússneskra sérfræðinga. Flestum áfengissjúklinganna gefst ekki kostur á neinni lang- tímaráðgjöf og samtök á borð við AA, sem byggja starfsemi sína á reynslusporunum tólf, eiga enn langt í land með að ná til þeirra sem þurfa á hjálp að halda. Fyrrnefnd innrætingarmeðferð er því eina úrræðið sem mörgum Rúss- um stendur til boða. Eftir að hafa beðið í hálfa klukku- stund án þess að veikjast kláraði Svetlana bjórflöskuna og opnaði aðra. Þar með hófst látlaus drykkja í fjóra mánuði. Nú, tveimur árum síð- ar, er Svetlana í AA-samtökunum og hefur ekki drukkið áfengi í sextán mánuði. Skjótvirk og ódýr Upphaf innrætingarmeðferð- arinnar er rakið til sovéska geðlækn- isins Alexanders Dovzhenkos. „Að- ferð Dovzhenkos byggist í meginatriðum á sefjun: þú deyrð ef þú drekkur,“ sagði Andrej Jermos- hín, sem stundar sállækningar með einkaráðgjöf en beitir ekki lengur þessari aðferð. „Hún er skjótvirk og ódýr.“ Alexander Nemtsov, geðlæknir við rannsóknastofnun í Moskvu, kvaðst einnig hafa beitt þessari að- ferð. Hann hefði þá venjulega sagt sjúklingunum að hann hefði breytt taugaendum í munni þeirra þannig að þeir myndu veikjast heiftarlega drykkju þeir áfengi. Hann gaf þeim staðdeyfingarlyf og setti síðan raf- skaut með mjög lítinn straum í munn þeirra til að telja þeim trú um að þeir gætu ekki lengur drukkið áfengi án þess að stofna lífi sínu í hættu. „Ég var leikari miklu fremur en læknir,“ sagði Nemtsov. „Þetta hafði frábær áhrif á þau. Þetta er ein teg- und sállækninga, skjótvirk, óbein sállækning.“ Gerð dauðhrædd við áfengi Eins spors meðferð við áfengissýki í Rússlandi byggist á sefjun Reuters Heimilislaus Rússi heldur á sér hita með vodkasopa. ’Ég var algerlega vissum að eitthvað hræðilegt myndi koma fyrir mig.‘ ÍBÚAR í Líberíu í Afríku munu kjósa sér nýjan forseta 11. þessa mánaðar og eru alls 22 menn í framboði. Meðal þeirra er knatt- spyrnukappinn kunni, George Weah, og er hann talinn sig- urstranglegur af mörgum. Borg- arastyrjöld geisaði í landinu linnu- lítið í 14 ár, frá 1989 til 2003, og kostaði það upp undir 200.000 manns lífið. AP Weah vill verða forseti HRAUNHÓLAR - GARÐABÆR Vorum að fá í sölu 160,2 fm einbýlishús ásamt 70,6 fm bílskúr, sem að hluta hefur verið breytt í íbúð, á einstökum stað inn- an höfuðborgarsvæðisins. Húsið stendur á óvenju stórri lóð í jaðri hraunsins. Eign sem vert er að skoða. Nánari uppl. á skrifst. FM síma 550 3000, einnig fmeign- ir.is 7932. Miðasölusími: 551 1200 Miðasala á netinu: www.leikhusid.is Frábær og fyndin fjölskylduskemmtun! NORSKA ríkisútvarpið, NRK, ákvað í gær að hunsa úrskurð dómstóls í Ósló á þriðjudag um lögbann og senda út sjónvarpsþátt, Brennpunkt, um lögreglurannsókn í svonefndu NOKAS-bankaránsmáli. Greint er í þættinum frá hlut kaup- sýslumannsins Christer Tromsdal í málinu. Hann segir afbrotamenn í tengslum við ræningjana hafa haft samband við sig og viljað fá aðstoð við peningaþvætti, að sögn Aftenposten. Segist Tromsdal, sem óttast nú um líf sitt, hafa haft samband við lögregluna og var ákveðið að leggja gildru fyrir ræningjana. „Þeir vildu koma miklu fé úr landi,“ segir hann í þættinum. Að sögn Tromsdal gerði lögreglan mistök í rannsókninni og fór svo að útsendari ránsmanna skaut á hann og særði í desember í fyrra. Hann segir einnig að NRK, sem fékk að fylgjast með málinu, hafi brotið samning um að leyna því hver hann væri og fékk lögmann sinn til að krefjast lögbanns. En yfirmaður NRK, John G. Bern- ander, ákvað að hunsa dómstólinn og segir að úrskurðurinn sé tilraun til ritskoðunar. Talsmenn norska fjölmiðlasam- bandsins vilja ekki tjá sig um ákvörð- un NRK. Réttur fréttamiðla til að meðhöndla efni sitt án utanaðkom- andi afskipta sé grundvallaratriði. Það sé hins vegar mat hvers fjölmiðils fyrir sig hvort mál sé svo mikilvægt að hann vilji eiga á hættu refsingu vegna brota á landslögum. Lögbann gegn fréttaþætti hunsað Brussel. AP. | Um helmingur Evrópumanna ætlaði að greiða atkvæði með evrópsku stjórnarskránni áður en Frakkar og Hollendingar settu framtíð hennar í upp- nám með því að fella hana. Kemur þetta fram í könnun, sem birt var í gær. Eurobarometer-könnunin, sem gerð var í 19 Evrópu- löndum í sumar, sýnir, að 48% ætluðu að samþykkja stjórnarskrána, 28% voru henni andvíg en 24% óákveð- in. Mestur var stuðningurinn í Belgíu, 71%, en minnstur í Bretlandi, 31%. Könnunin var ekki gerð á Spáni, Grikklandi, Ítalíu, Litháen, Ungverja- landi og Slóveníu en þar var búið að samþykkja stjórnar- skrána. Helmingur með stjórn- arskránni Madríd. AFP. | Hamed Abderrahm- ane, spænskur borgari sem látinn var laus í febrúar eftir tveggja ára vist í fangelsi Bandaríkjamanna í Guantanamao á Kúbu, var í gær dæmdur í sex ára fangelsi á Spáni. Er hann talinn hafa verið félagi í al- Qaeda-hópi en neitar sjálfur öllum tengslum við hryðjuverk og segist nú vera „píslarvottur“. Eitt af vitnunum í málinu var Sýrlendingurinn Imad Eddin Bar- akat Yarkas, öðru nafni Abu Dah- dah, sem hlaut 27 ára dóm í sept- ember fyrir samstarf við al-Qaedamenn. Abderrahmane segir vistina í Gu- antanamo hafa brotið sig niður. Hann er frá borginni Ceuta á norð- urströnd Afríku, gegnt Spáni, en hún er spænsk eign. Var hann handtekinn í Pakistan í október 2001 er hann reyndi að flýja landið eftir árásirnar 11. september sama ár á Bandaríkin. Tveim mánuðum síðar var hann afhentur Banda- ríkjamönnum í Afganistan og var þar í haldi þar til hann var fluttur til Guantanamo í febrúar 2002. „Spænski talíbaninn“ hlaut sex ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.