Morgunblaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 27
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
FYRIR um ári var fyrsta Maður
lifandi-verslunin opnuð í Borgar-
túni í Reykjavík. Í dag verður önn-
ur slík verslun opnuð í Hæðasmára
6 í Kópavogi. „Sala á lífrænum
vörum hefur aukist stöðugt hjá
okkur alveg frá upphafi og til að
geta þjónað viðskiptavinum okkar
enn betur ákváðum við að hefja út-
rás til Kópavogs,“ segir Hjördís
Ásberg, framkvæmdastjóri Maður
lifandi-verslananna. „Viðtökurnar á
tilbúnum réttum og allri fram-
leiðslu úr eldhúsinu hafa líka verið
langt umfram væntingar frá upp-
hafi og því nauðsynlegt að stækka
eldhúsið til að auka magnið og fjöl-
breytnina. Við höfum frá fyrsta
degi lagt mikla áherslu á það sem
við búum til sjálf sem eru t.d. til-
búnir réttir, salöt, vefjur og sósur.“
Hjördís segir að með annarri
nýrri og ennþá stærri verslun
skapist svigrúm til að auka fram-
boðið enn frekar og bjóða upp á
meira úrval af hollustu. „Við höfum
líka stóreflt eigin innflutning í
fyrirtæki sem heitir Bio-vörur og
Maður lifandi eignaðist fyrr á
árinu.
Þannig getum við stöðugt verið
að bjóða nýjar og spennandi vörur
sem ekki hafa sést áður og við
náum líka að þjónusta betur hópa
og einstaklinga með ýmsar sérþarf-
ir. Í verslunum Maður lifandi er
lögð áhersla á að sneiða hjá hvítum
sykri, hvítu hveiti og eingöngu er
seld lífræn mjólk og engar vörur
með msg eða aspartam. Það er
sama hugmyndafræði í báðum búð-
unum og sömu vörur verða í boði,
en það verður áherslumunur í
rekstrinum. Námskeiðahald og
fyrirlestrar á sviði heilbrigði og
hollustu verða t.d. meira í Borgar-
túninu.“
Vinsældir lífrænna vara eru stöð-
ugt að aukast að sögn Hjördísar.
„Fólk er alltaf að átta sig á því bet-
ur og betur hvað mataræðið skiptir
gríðarlega miklu máli fyrir heil-
brigði og líðan. Það vill forðast
aukaefni jafn í matvöru og snyrti-
vöru og það er mikil vakning í þá
átt.“
Stefnt er að því að opna verslun-
ina í Hæðarsmáranum fyrir hádegi
í dag. „Þetta er tæplega 600 fer-
metra húsnæði á einni hæð og það
er gott aðgengi að húsinu sem
hentar vel undir þessa starfsemi,“
segir Hjördís að lokum.
VERSLUN | Maður lifandi í Kópavoginn
Stöðugt að bæta
við nýjum vörum
Morgunblaðið/Sverrir
Hjördís Ásberg fyrir utan nýju Maður lifandi-verslunina í Kópavogi.
Í LJÓS hefur komið að Bónus-
remúlaði með best fyrir dagsetn-
inguna 09.01.06 eða fyrr inniheldur
örveruna Bacillus cereus yfir við-
miðunarmörkum. Krydd sem notað
hefur verið í framleiðsluna reyndist
innihalda þessa örveru.
Varan hefur eingöngu verið til
sölu í verslunum Bónuss. Hefur sala
á umræddu remúlaði verið stöðvuð
og eru mengaðar framleiðslulotur
þess nú hvergi í sölu.
Bónus beinir því til viðskiptavina
sinna að skila remúlaðinu til versl-
ana Bónuss. Ekki er talið að varan
geti verið hættuleg neytendum.
Innköllun á
Bónus-remúlaði
ÖRVERUR
Rafmengunarmælar
Fyrirtækið Símabær býður nú til
sölu rafmengunarmæli. Þessi litli
mælir á að finna hugsanlega raf-
mengun í hýbýlum manna og dýra,
en rafsegulsvið myndast á flestum
þeim stöðum þar sem rafmagns-
notkun fer fram. Tæki þetta nemur
rafmagnsmengun frá t.d. símum,
tölvum, rafmagnstenglum, köplum
og öðrum búnaði sem getur sent frá
sér rafsegulbylgjur. Eins getur
mælirinn gagnast við leit að raflögn-
um í veggjum til að koma í veg fyrir
óhöpp við t.d. borun. Notkun mælis-
ins er einföld en hann gefur upp
styrk mengunar í Mg (milligauss).
Mælirinn kostar 2.990 krónur.
Nánari upplýsingar á www.sima-
baer.is.
Súkkulaði með perlupúkum
Nói – Síríus hefur hafið fram-
leiðslu á nýju súkkulaðistykki sem
heitir Púkó og þar er sameinað sí-
gilt súkkulaði frá Nóa- Síríusi og
brakandi perlupúkar sem smella í
munni.
NÝTT
Fréttasíminn
904 1100