Morgunblaðið - 06.10.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 29
MENNING
TVÆR systur komu fram í Salnum á
laugardaginn og fluttu franska tón-
list. Þetta voru þær Þóra og Gunn-
hildur Einarsdætur, en tónlistin var
eftir Fauré, Debussy og Ravel, auk
hinna minna þekktu tónskálda Tour-
nier, Caplet og Cannon, sem reynd-
ar var af fransk-ensku bergi brotinn.
Þóra söng og Gunnhildur spilaði
með á hörpu, en hún lék einnig
nokkur einleiksverk. Óvenju vegleg-
ur bæklingur fylgdi með hverjum
miða inn í Salinn, en fyrir utan söng-
textann með þýðingum var þar ekki
aðeins að finna fróðleik um tón-
skáldin, heldur suma textahöfund-
ana líka, sem verður að teljast til
fyrirmyndar.
Skemmst er frá því að segja að
þetta voru frábærir tónleikar. Syst-
urnar voru glæsilegar á sviðinu og
mjúkur, tær hörpuleikur Gunnhildar
féll fullkomlega að fínlegri sópr-
anrödd Þóru. Eins og flestir vita er
það einstaklega falleg rödd; svo fal-
leg að það skipti eiginlega ekki máli
hvað hún söng, hún gerði allt vel.
Túlkun hennar á hálfgerðum gam-
ansöngvum Cannons var sérlega líf-
leg og blæbrigðarík; lag eftir Tour-
nier og tvö lög eftir Caplet voru
seiðmögnuð, sömuleiðis jafnmörg
lög eftir Fauré. Fimm grísk þjóðlög í
útfærslu Ravels voru jafnframt svo
full af allskonar tilfinningum án þess
að maður yrði var við yfirborðs-
mennsku að það var ekki annað
hægt en að hrífast með.
Auðvitað hefði lítið verið varið í
tónleikana ef Þóra hefði sungið ein
og óstudd. Harpan átti drjúgan hlut
í dagskránni og sennilega var það í
síðastnefndu lögunum sem hún kom
best út; þetta er jú ævafornt hljóð-
færi og hörpuútsetningin, sem er
eftir Carlos Salzedo, gaf tónlistinni
tímalausan blæ sem átti prýðilega
við gríska þjóðlagatextana frá eynni
Chios.
Harpan hljómaði líka ágætlega
ein og sér; þrjár píanóprelúdíur eftir
Debussy voru verulega sannfærandi
þótt önnur prelúdían, Sporin í snjón-
um, hljómi óneitanlega betur á píanó
eins og hún var upphaflega hugsuð.
Það var helst Une Chatelaine en sa
tour eftir Fauré sem hefði mátt vera
safaríkari; verkið var dálítið litlaust í
meðförum hörpuleikarans og hefðu
snarpari andstæður og betur mótuð
sönglína verið til bóta. Að öðru leyti
voru þetta framúrskarandi tónleikar
sem verða án efa lengi í minnum
hafðir.
Fögur frönsk tónlist
Morgunblaðið/Árni Torfason
Systurnar Gunnhildur og Þóra Einarsdætur.
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Tónlist eftir frönsk tónskáld í flutningi
Þóru Einarsdóttur (sópran) og Gunn-
hildar Einarsdóttur (harpa). Laugardagur
1. október.
Söng- og hörputónleikar
Jónas Sen
HEIÐURSVERÐLAUNUM Mynd-
stefs, myndhöfundasjóðs Íslands,
verður úthlutað í fyrsta sinn 31.
október næstkomandi. Forseti Ís-
lands afhendir verðlaunin sem
nema samtals einni milljón króna.
Landsbanki Íslands er fjárhags-
legur bakhjarl heiðursverð-
launanna og leggur til helming
verðlaunafjárins en hinn helming-
urinn kemur úr sjóðum Myndstefs.
Heiðursverðlaun Myndstefs eru
veitt fyrir afburða framlag til
myndlistar, framúrskarandi mynd-
verk eða sýningu. Allir myndhöf-
undar á Íslandi koma til greina svo
framarlega sem þeir hafa það sem
meginatvinnu að skapa myndverk.
Jafnframt er það skilyrði sett að
verkin, sem tilnefnd eru, séu ný eða
nýleg enda er verðlaununum ekki
ætlað að heiðra sérstaklega ævi-
starf myndhöfunda.
Í ljósi þess að myndir og mynd-
verk skipa sífellt mikilvægari sess í
fjölmiðlun og allri þjóðfélags-
umræðu þótti stjórn Myndstefs,
höfundarréttarsamtaka myndhöf-
unda, tímabært að koma á sér-
stökum heiðursverðlaunum sam-
takanna. Innan vébanda Myndstefs
eru á fjórtánda hundrað manns í
sex aðildarfélögum: Sambandi ís-
lenskra myndlistarmanna, Ljós-
myndarafélagi Íslands, Félagi ís-
lenskra teiknara, Félagi grafískra
teiknara, Arkitektafélagi Íslands
og Félagi leikmynda- og búninga-
höfunda. Einnig eiga aðild að
Myndstefi allmargir erfingjar að
myndhöfundarétti.
Auglýst var eftir tilnefningum
vegna verðlaunanna í sumar frá að-
ildarfélögum Myndstefs sem og frá
einstökum félagsmönnum. Fjöl-
margar ábendingar bárust og fer
nú þriggja manna dómnefnd yfir
tilnefningar. Dómnefnd skipa Val-
gerður Bergsdóttir myndlist-
armaður, Guðmundur Ingólfsson
ljósmyndari og Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Landsbanka Íslands. Dómnefndin
velur sex myndhöfunda sem koma
til álita sem heiðursverðlaunahafar
Myndstefs 2005 og verða nöfn
þeirra tilkynnt um miðjan október
2005. Í framhaldi af því velur dóm-
nefndin verðlaunahafann og verða
úrslitin tilkynnt við hátíðlega at-
höfn í Listasafni Íslands mánudag-
inn 31. október nk. þar sem forseti
Íslands afhendir heiðursverðlaun-
in.
Heiðurs-
verðlaun
Myndstefs
Fréttir á SMS Ármúla 10 • Sími: 5689950
Með hverri DUX 12:12 + dýnu 90cm eða stærri
fylgir DUXIANA Royal luxsus gæsadúnsæng að
verðmæti kr 34.980 (160x200cm = 2 sængur)
Sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð
verður í versluninni 7og 8 okt.w
w
w
.is
ak
w
in
th
er
.c
om
Kr 252.350 90x200cm
Dúnmjúkt hausttilboð
Aðeins dagana 6-7 og 8 okt