Morgunblaðið - 06.10.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 41
UMRÆÐAN
ÞÆTTIRNIR
VINSÆLUSTU
· First Series
· Second Series
· Series 5
· Series 6
· Season 5
· Season 6
· Season 3
· Season 4
· Season 1
· Season 2
· Year One
· Year Two
NÝ SEND
ING
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ HEFUR væntanlega ekki farið
framhjá neinum sem fylgst hefur með
þróun ferðaþjónustunnar hér á landi
á undanförnum
árum hversu mikil
gróska hefur verið
á flestöllum svið-
um. Menning-
artengd ferða-
þjónusta er þar
engin undantekn-
ing og hefur verið
virkilega gaman
að fylgjast með
hversu mikil
gróska og nýsköpun hefur átt sér stað
í þeim geira. Það sem er enn ánægju-
legra er að þessi þróun á sér stað um
allt land og á mjög fjölbreytilegan
hátt. Má þar t.d. nefna Hvalasafnið á
Húsavík, Vesturfarasetrið á Hofsósi,
Síldarminjasafnið á Siglufirði,
Galdrasafnið á Ströndum, Samgöngu-
safnið á Skógum, Stríðsminjasafnið á
Reyðarfirði og Sögusafnið í Perlunni í
Reykjavík.
Það eru sennilega færri sem vita að
Íslendingar, með Rögnvald Guð-
mundsson í broddi fylkingar, eru að
leiða nokkur fjölþjóðleg Evrópuverk-
efni þar sem menning og menningar-
arfleifð eru höfð að leiðarljósi ásamt
því hvernig hægt sé að spyrða þessa
þætti saman við atvinnuuppbyggingu
á þeim svæðum er verkefnin ná til.
Eitt af þessum verkefnum er Dest-
ination Viking – Sagalands, en þar er
unnið með norræna sagnaarfleifð og
hvernig hægt sé að styrkja sagna-
hefðina og
tengja hana betur ferðaþjónust-
unni. Að verkefninu koma um 20 að-
ilar frá
7 löndum sem landfræðilega liggja
frá Skotlandi í austri um Orkneyjar,
Hjaltlandseyjar, Færeyjar, um
strendur norðurhluta Svíþjóðar, Nor-
egs að Íslandi og Grænlandi og enda
loks í norðausturhéruðum Kanada í
vestri (Nýfundalandi og Labrador).
Meginþemu verkefnisins eru fimm,
– Sagnahefð, þar sem meg-
ináherslan hefur verið lögð á að þjálfa
einstaklinga við okkar fornu list að
segja sögur á lifandi og skemmtilegan
hátt þannig að eftir því sé tekið.
– Fornar leiðir, þar sem þekktar
fornar leiðir eru merktar og þeim
gerð góð skil.
– Söfn með sögualdaáherslum, til-
gátuhús og lifandi söfn frá þessum
tíma.
- Viðburðir, að móta viðburði er
tengjast þessu tímabili þannig að ein-
falt sé að selja þá og kynna.
– Sameiginleg útgáfa, þar sem
safnað er saman öllu er hér að framan
er talið og það kynnt fyrir áhugasöm-
um kaupendum. Meðal annars mun
fljótlega koma út bók um verkefnið
sem og sögukort.
Í verkefninu hafa þátttakendur
sett sér skýr markmið og síðan hafa
þeir hist á um sex mánaða fresti í
einskonar þjálfunarbúðum þar sem
ákveðið þema hefur verið sett í hvert
skipti. Þar hafa allir þátttakendur
þurft að skýra frá gangi sinna mála
og hvernig gangi að ná settum mark-
miðum. Fundir þessir hafa verið
haldnir á mismunandi stöðum, í flest-
um þátttökulöndunum.
Síðasti fundur var haldinn ekki alls
fyrir löngu á Nýfundnalandi og gafst
greinarhöfundi tækifæri til að slást
með í för og kynnast mjög svo áhuga-
verðu og vel útfærðu verkefni ásamt
því að skoða sögutengda staði þar um
slóðir. Það er skemmst frá því að
segja að frændur vorir í vestri hafa
náð að fanga anda liðinna tíma og sett
þá fram á trúverðugan og lifandi hátt.
Sérstaklega í ĹAnse aux Meadows,
þar sem talið er að norrænir menn
hafi komið fyrst að landi í Norður-
Ameríku um árið 1000 undir forystu
Leifs heppna. En þar hafa verið reist
nokkur tilgátuhús sem byggð eru rétt
við rústir þær er þar fundust á sjö-
unda áratug síðustu aldar. Þar
skammt undan hefur einnig verið
komið fyrir litlu víkingaþorpi, Nor-
sted, með allri þeirri aðstöðu sem tal-
ið er að menn hafi haft á þeim tíma,
s.s. bátalægi, járnsmiðju, kirkju og
langhúsum. Heimamenn hafa síðan af
því atvinnu að klæðast þess tíma föt-
um og leika nokkra af forfeðrum okk-
ar og ferst það nokkuð vel úr hendi,
enda hefur fólkið hlotið sérstaka
þjálfun til verksins.
Verkefni það sem hér hefur verið
fjallað um hefur verið styrkt af Norð-
urslóðaáætlun Evrópusambandsins
(Northern Periphery Program NPP)
og þar á bæ eru menn það ánægðir
með árangurinn að góðar líkur eru á
áframhaldandi verkefni sem kemur
til með að byggjast á svipuðum hug-
myndum en þó sem sjálfstætt fram-
hald.
Hægt er að fræðast nánar um
verkefnið á meðfylgjandi heimasíðu.
http://www.sagalands.org
ELÍAS BJ. GÍSLASON,
forstöðumaður upplýsinga-
og þróunarsviðs
Ferðamálaráðs Íslands.
Menningartengd ferðaþjónusta,
víkingar þá og nú
Frá Elíasi Bj. Gíslasyni:
Elías Bj. Gíslason
Jónína Benediktsdóttir: Sem
dæmi um kaldrifjaðan sið-
blindan mann fyrri tíma má
nefna Rockefeller sem Hare
telur einn spilltasta mógúl
spilltustu tíma...
Sturla Kristjánsson: Bráðger
börn í búrum eða á afgirtu
svæði munu naumast sýna getu
sína í verki; þeim er það fyr-
irmunað og þau munu trúlega
aldrei ná þeim greindarþroska
sem líffræðileg hönnun þeirra
gaf fyrirheit um.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar