Morgunblaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
NÁLGUNAR BANN ERU
MJÖG LJÓT ORÐ, ELLA
NÁLGUNAR-
BANN ER EITT
ORÐ, ASNINN
ÞINN
ELLA, HVAÐ SEGIRÐU UM AÐ ÉG
STÖKKVI YFIR TIL ÞÍN OG TJÁI ÞÉR
TILFINNINGAR MÍNAR MEÐ NOKKRUM
LJÚFUM HARMONIKKUTÓNUM?
ÞÚ HATAR MIG...
ÞÚ FYRIRLÍTUR MIG... ÞÚ
SKAMMAST ÞÍN FYRIR MIG
ÉG HEF ALDREI
SAGST SKAMMAST
MÍN FYRIR ÞIG EKKI?
FÖRUM ÞÁ AFTUR
YFIR ÞENNAN LISTA
SAMAN
LÍKAR
ÞÉR ILLA
VIÐ MIG?
ÞÁ VERÐURÐU AÐ LEGGJA
MJÖG HART AÐ ÞÉR Í STARFI,
KALVIN
NEI, ÞÚ
ÞARFT AÐ
GERA ÞAÐ
ÉG?
JÁ, ÉG ÆTLA
BARA AÐ
ERFA ÞIG
PABBI, ÉG ÆTLA AÐ
VERÐA MILLI ÞEGAR ÉG
VERÐ STÓR
HELGA! ÞINN HJÁLPFÚSI EIGINMAÐUR ER
KOMINN AFTUR!
HVAÐA GAGN ER Í
HJÁLPFÚSUM EIGINMANNI EF
HANN ER ALDREI HEIMA?
ÁÐUR EN ÉG MÆLI
BLÓÐÞRÝSTINGINN HJÁ
ÞÉR ÞÁ ÞARF ÉG AÐ VITA
HVERSU LANGT ER Á MILLI
HJARTASLAGA HJÁ ÞÉR
ÉG Á TVÖ GÆLUDÝR,
HJARTAÐ MITT FÆR ALDREI
TÍMA TIL AÐ HVÍLA SIG!
ÉG ÆTLA AÐ SLÁ GRASIÐ,
SNYRTA TRÉN OG SETJA UPP
NÝJA HENGIRÚMIÐ
ÉG ÆTLA ÚT AÐ SNYRTA
GARÐINN Í GÓÐA VEÐRINU
HVERNIG
DIRFISTU AÐ KOMA
HINGAÐ?!!
ÉG VARÐ AÐ
SEGJA ÞÉR AÐ
PUNISHER VÆRI
AÐ LEITA AÐ
OKKUR
ÚFF, ÉG ER SVO
MÓÐUR AF ÞVÍ AÐ
HLAUPA UPP STIGANN
MÁ ÉG EKKI FÁ
MÉR VATNSGLAS?
EKKI SNERTA ÞESSA HURÐ!
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 6. október, 279. dagur ársins 2005
Umferðin er enda-laus uppspretta
umkvörtunarefna.
Víkverji er þar síst
barnanna bestur,
hann getur látið um-
ferðina fara óstjórn-
lega í taugarnar á sér,
hvort heldur sem er
aðra bílstjóra, gatna-
kerfi, vegafram-
kvæmdir o.s.frv. Og
þessa dagana hefur
Víkverji allt á hornum
sér í umferðinni og
ætlar hér að fá útrás
fyrir gatnagremju (e.
road rage) sína.
Eiginlega vill Víkverji kenna
Garðbæingum um allt sem miður fer
í tilveru hans um þessar mundir.
Nema vitaskuld þá þætti sem eru
Seðlabanka Íslands að kenna en það
er allt, allt önnur saga.
Víkverji þarf nefnilega að aka í
gegnum Garðabæ á leið sinni til
vinnu. Það er gott og blessað, Garða-
bær er um margt ágæt bæjarfélag,
þar býr margt skínandi skemmtilegt
fólk og þar eru mörg snotur hús. En
þegar kemur að umferðinni er
Garðabær algerlega út úr kortinu.
Það er sama hvernig Víkverji reynir
að komast framhjá Garðabæ, hvort
sem hann fer austan megin eða vest-
an, alltaf skal hann
lenda í umferð-
arteppu. Ljósin á
gatnamótum Vífils-
staðavegar og Reykja-
nesbrautar eru
skemmtiatriði út af
fyrir sig, þó Víkverja
sé reyndar sjaldan
skemmt þegar hann á
leið þar um. Samt eru
þessi gatnamót hátíð
borin saman við gatna-
mót Vífilstaðavegar og
Hafnarfjarðarvegar,
þaðan sem bílaorm-
urinn hlykkjar sig inn í
nærliggjandi sveit-
arfélög, í báðar áttir, á álagstímum.
Víkverja er fyrirmunað að skilja
hvers vegna Garðbæingar taka ekki
á sig rögg og gera eitthvað í mál-
unum. Víkverja er stórlega til efs að
hér á landi fyrirfinnist fjölfarnari
leið. Samt hefur þessi óáran við-
gengist til fjölda ára. Víkverji gerir
sér grein fyrir því að það eru mörg
aðkallandi verk og peningarnir
stundum af skornum skammti. En
Víkverji hvetur Garðbæinga til að
taka sér nágranna sína, Hafnfirð-
inga, til fyrirmyndar í þessum efn-
um, hvar hefur verið gerð gríðarlega
bragarbót á umferðarmannvirkjum
síðustu misseri.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tónlist | Tónlistarfélag Borgarfjarðar hefur 39. starfsár sitt með tónleikum
Ólafs Kjartans Sigurðarsonar barítonsöngvara og Jónasar Ingimundarsonar
píanóleikara í Borgarneskirkju í dag kl. 20.
Þeir Ólafur Kjartan og Jónas munu flytja blandaða efnisskrá. Eins og
þeirra er von og vísa verður komið víða við, íslensk, ensk og þýsk sönglög,
ljóð og óperuaríur. Af höfundum má nefna Emil Thoroddsen, Sigvalda
Kaldalóns, Tsjajkovskíj, Giordano og Mozart.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur en 1.000 krónur fyrir börn og eldri borgara.
Morgunblaðið/Jim Smart
Söngur í Borgarneskirkju
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Hver sem ekki tekur sinn kross og fylgir mér er mín ekki verður. (Matt. 10,
38.)