Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 1

Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 1
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550 Akureyri Strandgata 3 S. 464-4450 Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 aðeins 3 dagar eftir! Freysi er Íslenskur aðall Andri Freyr Viðarsson úr Capone á XFM situr fyrir svörum | 62 Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Cayman S adrenalínsprautan  Konur á móti karlmönnum í kappakstri Íþróttir | Munum væntanlega ekki stjórna leiknum  Verðum að nýta öll sóknarfærin STOFNAÐ 1913 271. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Washington. AFP, AP. | George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að þarlendum yf- irvöldum og bandamönnum þeirra hefði tekist að afstýra að minnsta kosti tíu alvarlegum hryðjuverk- um í heiminum frá 11. sept- ember 2001. Bush sagði að yfirvöld hefðu hindrað þrjú „alvar- leg samsæri al-Qaeda“ um hryðjuverk í Bandaríkjun- um. Talsmaður forsetans sagði síðar að stjórn lands- ins hefði áður skýrt frá tveimur samsæranna. Forsetinn sagði að auk þess hefði tekist að hindra að minnsta kosti fimm tilraunir af hálfu al-Qaeda til að kanna skotmörk í Bandaríkj- unum eða lauma hryðjuverkamönnum til landsins. Bush skýrði frá þessu í ræðu í Washington. Hann varði innrásina í Írak og sagði að hún hefði ekki valdið hatri meðal múslíma í garð Bandaríkjanna, heldur notuðu íslamskir of- stækismenn Íraksstríðið sem afsökun til að berjast fyrir íslömsku ríki í Mið-Austurlöndum og víðar. „Ófriðarseggirnir telja að nái þeir einu landi á sitt vald fylki fólkið sér um þá og það geri þeim kleift að steypa hófsömum stjórnvöldum af stóli í þessum heimshluta og stofna róttækt, íslamskt heimsveldi sem nái frá Spáni til Indónesíu,“ sagði Bush. Hafa afstýrt tíu hryðju- verkum George W. Bush KAÞÓLSKA kirkjan í Bretlandi hefur gefið út rit þar sem hún gagnrýnir bókstafstrú og kennir að sumar ritningargreinar Bibl- íunnar séu ekki sannar í bók- staflegum skilningi. Erkibiskupar kaþólsku kirkj- unnar í Bretlandi segja í ritinu að menn eigi ekki alltaf að búast við „algerri vísindalegri eða sögu- legri nákvæmni“ þegar þeir lesa Biblíuna, að því er fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins The Times. Biskuparnir nefna sköp- unarsöguna í 1. Mósebók sem dæmi um ritningargreinar sem geti ekki verið „byggðar á sögu- legum staðreyndum“. Þegar menn lesi Biblíuna eigi þeir að hafa hugfast að hún sé „Guðs orð mælt á tungu manna“. Biskuparnir vara ennfremur við því að bókstafstrú geti verið „hættuleg“. „Til að mynda þegar þjóð eða hreyfing sér í Biblíunni staðfestingu á eigin yfirburðum og telur sig jafnvel hafa heimild frá Biblíunni til að beita aðra ofbeldi.“ Kaþólskir erkibiskupar í Bretlandi hafna bókstafstrú ÞRÁTT fyrir að tekið sé að hausta og kaldir vindar næði um höfuðborgina eru vegafram- kvæmdir enn í fullum gangi og þó svo að í kuldagalla. Útlit er fyrir áframhaldandi votviðri í dag. Fer veður kólnandi eftir því sem líður á helgina og jafnframt bætir í vind. blautt hafi verið í gær náði regnið ekki að slá á styrk þessara ungu manna sem unnu hörð- um höndum í Vesturbæ Reykjavíkur, dúðaðir Morgunblaðið/ÞÖK Vegavinna í Vesturbænum HLUTHAFAR í Skulason Limit- ed, sem Morgunblaðið hefur rætt við, keyptu hlut í félaginu í von um skjótan gróða þegar félagið færi á markað, sem ekki hefur orðið neitt af. Flestir segjast hafa keypt í gegnum hlutabréfasala með að- setur á Spáni. „Mér var lofað því að hlutabréf- in myndu hækka úr 10 pensum á hlut í 18 pens á hlut þegar fyr- irtækið yrði sett á markað í Lond- ekki kunna neina skýringu á því hvers vegna hluthafar, sem rætt var við í gær og eru á hlutafélaga- skrá í Bretlandi, hefðu keypt hlutafé í gegnum spánskt fyrir- tæki. Hann hefði ekki gert samn- ing við önnur fyrirtæki um sölu á hlutafé í Skulason. Sagðist hann raunar hafa komist að ýmsu sem hann vissi ekki áður eftir að rann- sókn hófst. „Ég held að við séum fórnarlamb mjög undarlegra að- stæðna,“ sagði hann. forsvarsmanna félagsins. Einn sagði að hann hefði gert sér grein fyrir því að fjárfesting sem þessi væri ekki áhættulaus, en hann hefði vonast til þess að fá um 20– 50% hagnað á um einu ári. Sjö manns hafa verið handtekn- ir í Bretlandi vegna þessa fjár- svikamáls sem talið er að nemi 326 milljónum króna. Einn hinna handteknu er af íslenskum upp- runa, þótt hann sé ekki íslenskur ríkisborgari lengur. Jóhannes B. Skúlason fram- kvæmdastjóri Skúlason segist on,“ sagði einn hluthafinn við Morgunblaðið í gær. Sumir hlut- hafanna keyptu tvisvar, fyrst fyrir um tveimur árum en svo aftur fyr- ir nokkrum mánuðum. Þeir sögðu að í síðara skiptið hefði verið talað um að fyrirtækið væri á leið á markað, og þeir haft vonir um talsverðan gróða þegar það yrði. Tveir hluthafanna sögðust hafa reynt að hringja í Skulason Limit- ed undanfarið þar sem þeir voru farnir að undrast hvers vegna ekkert virtist vera farið að gerast, en sögðust ekki hafa náð í neinn Hluthafar í Skulason Ltd. keyptu hluti í von um skjótan gróða Var lofað hækkun hluta- bréfa úr 10 pensum í 18  Telur fyrirtækið | 6 Eftir Brján Jónsson og Rúnar Pálmason New York. AP. | Yfirvöld í New York-borg juku öryggisviðbúnaðinn í jarðlestum og lestastöðv- um borgarinnar í gær vegna trúverðugra upp- lýsinga um að hryðjuverkamenn væru að und- irbúa sprengjuárás á næstu dögum. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, og lögreglustjórinn Raymond Kelly skýrðu frá þessu á blaðamannafundi í gærkvöldi. Þeir sögðu þetta nákvæmustu upplýsingar sem þeir hefðu fengið til þessa um yfirvofandi árás eftir hryðjuverkin 11. september 2001. Heimildarmaður fréttastofunnar AP sagði að fram hefðu komið upplýsingar um hvar og hvenær sprengjuárásin yrði gerð. Áætlað er að á hverjum virkum degi noti um 4,5 milljónir manna jarðlestar New York-borg- ar. Óttast sprengjuárás í New York ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.