Morgunblaðið - 07.10.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 43
MINNINGAR
✝ Sigurður ÞórirÞórarinsson
fæddist á Grímstað-
arholtinu hinn 16.
janúar 1944. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 27. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Þórarinn Sig-
urðsson, f. 8. janúar
1915, d. 13. janúar
1987, og Laufey
Svava Bjarnadóttir,
f. 15. febrúar 1912,
d. 25.júní 1960. Systur Sigurðar
eru: 1) Vilhelmína Kristín, f. 13.
ágúst 1937, eiginmaður hennar er
Sigurður Óskarsson og búa þau í
Garðabæ. 2) Sólrún, f. 24. janúar
mundsson. Dætur þeirra eru
Harpa Ýr og Helena Ósk. Þau búa
á Akureyri. 2) Sif, f. 29. júní 1973,
í sambúð með Rúnari Jóhannes-
syni, sonur þeirra er Sigurður
Tumi, dætur Sifjar eru Hólmfríð-
ur Brynja og Eyrún Tara. Þau eru
búsett á Dalvík. Fóstursonur Sig-
urðar, sonur Hólmfríðar, er Sig-
urður Lúther Gestsson, f. 17. jan-
úar 1970. Sambýliskona hans er
Valgerður Guðbjörnsdóttir, dóttir
þeirra er Valgerður Selma, sonur
Sigurðar Lúthers er Birgir Þór.
Sigurður starfaði lengst af sem
píanóleikari, m.a. með Lúdó sext-
ett og Stefáni, og með Hljómsveit
Finns Eydals. Einnig spilaði hann
um árabil í Þjóðleikhúskjallaran-
um.
Síðastliðin 19 ár starfaði hann á
geðdeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Sigurður Þórir verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
1950, eiginmaður
hennar er Jón Gísla-
son, þau búa á Hálsi í
Kjós.
Hinn 9. júní 1972
kvæntist Sigurður
eftirlifandi eigin-
konu sinni Hólmfríði
Sigurðardóttur, f. 23.
september 1939. For-
eldrar hennar voru
Siguður Lúther Vig-
fússon, f. 30. septem-
ber 1901, d. 15. nóv-
ember 1959, frá
Fosshóli, og Gyða Jó-
hannesdóttir, f. 14. ágúst 1914, d.
24. júní 2000. Sigurður og Hólm-
fríður eignuðust tvær dætur. Þær
eru: 1) Svava, f. 21. ágúst 1971.
Eiginmaður hennar er Hilmar Sæ-
Elsku pabbi minn. Síðustu þrjár
vikur hafa verið svo erfiðar. Ekki
grunaði mig að eftir aðgerðina ættir
þú bara eftir tvær vikur hér hjá okk-
ur, en ég er þakklát fyrir þennan
tíma og þakka guði fyrir að þú skulir
ekki þjást lengur. Minningarnar
streyma um hugann og af mörgu er
að taka. Ég minnist þín sitjandi við
píanóið, en þar áttir þú þínar bestu
stundir og gladdir marga með hæfi-
leikum þínum. Þú varst frábær smið-
ur og ég sé fyrir mér herbergið mitt
fyrir 25 árum, en þú hafðir smíðað
allt sem þar var inni, rúm, hillur og
skrifborð. Mikið var ég stolt þegar
vinkonur mínar voru að dást að
þessu öllu, því strax þá gerði ég mér
grein fyrir því hvað þú varst hand-
laginn og gerðir allt svo vel sem þú
tókst þér fyrir hendur. Mikið snyrti-
menni varstu pabbi minn og ekki
vafðist það fyrir þér að takast á við
húsverkin og þú hentist um með ryk-
suguna, enda ótrúlega léttur á fæti.
Elsku pabbi, þú varst svo stoltur
þegar þú leiddir mig inn kirkjugólfið
og að sjálfsögðu sást þú um alla tón-
listina í veislunni. Enn og aftur fyllt-
ist hjarta mitt stolti yfir því hve frá-
bær faðir þú varst. Þú varst líka svo
góður afi og varst barnabörnum þín-
um mjög góður.
Elsku pabbi minn, ég veit þú hefð-
ir ekki viljað að ég skrifaði neina lof-
ræðu um þig, en þetta er það sem
býr í brjósti mér, ásamt öllum hinum
yndislegu minningunum um þig.
Elsku pabbi, ég veit að þú ert á
betri stað núna og að þér líður vel og
það er mér mikils virði. Ég lofa,
pabbi minn, að ég mun hugsa vel um
mömmu í hennar veikindum og hlúa
vel að henni eins og ég var búin að
lofa þér.
Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig.
Þín elskandi dóttir
Svava.
Elsku pabbi, ég trúi því varla enn
að þú sért farinn frá mér. Þú hefur
verið mín stoð og stytta í gengum líf-
ið, og minn besti vinur. Á milli okkar
er sérstakt sambandi feðgina, ég er
mikil pabbastelpa og höfum við alltaf
getað talað saman um alla hluti, allt-
af sástu það á mér ef mér leið illa, og
oft gat ég aðeins talað við þig.
Á stundum sem þessari fara í
gegnum hugann margar minningar.
Ég með þér í Þjóðleikhúsinu kvöld
eftir kvöld, sitjandi undir píanóinu
hjá þér hlusta á þig spila.
Þú að smíða innréttingar í her-
bergi okkar systranna, þú varst frá-
bær smiður.
Þú að spila á píanóið og ég lítil
stelpa að spila á blokkflautuna.
Grjónagrauturinn þinn, enginn
gerir eins góðan graut og þú.
Jólagjafirnar sem ég fékk bara frá
þér, alltaf eitthvað sem mig langaði
mest í.
Ég að syngja með þér á hesta-
mannamóti.
Þegar þið mamma fóruð til Sví-
þjóðar og þú keyptir alveg eins
gallasmekkbuxur og peysu á mig og
þig.
Allar ferðirnar sem ég keyrði þig í
vinnuna, þá var mikið rætt um til-
finningar og lífið.
Síðasti afmælisdagurinn þinn 16.
janúar þegar þú hélst á nafna þínum
Sigurði Tuma undir skírn, þú varst
svo stoltur af honum.
Þú varst mikill dýravinur. Ég trúi
því að Bangsi og Svali taki nú vel á
móti húsbónda sínum, nú getur þú
aftur farið með þá í göngutúra.
Mig langar að kveðja þig, elsku
pabbi, með þessum texta sem ég
held mikið upp á:
Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín
var.
Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar.
Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins og
þú,
Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt.
Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sól í gleði.
Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt þú lékst þér á þinn hátt.
Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín
var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson.)
Við lofum því að hugsa vel um
mömmu og höldum minningunni um
þig á lífi.
Elsku pabbi, takk fyrir allt, stór
hluti af mér fer með þér.
Þín litla stelpa
Sif.
Elsku Siggi minn. Þú varst minn
besti vinur og félagi og alltaf var gott
að leita til þín. Þú gast alltaf gefið
mér ráð og leiðbeint mér í lífinu. Ég
var ungur strákur þegar ég fór að
vera með Svövu þinni og þið Lilla
tókuð svo vel á móti mér í fjölskyld-
una. Oft sátum við tímunum saman
og ræddum um allt milli himins og
jarðar og þá var sjómennskan alltaf
efst á baugi. Ég er svo þakklátur fyr-
ir þann tíma sem við áttum saman og
ég lofa því að hugsa vel um Svövu og
afastelpurnar þínar eins og þú baðst
mig um í veikindum þínum.
Elsku Siggi, þú þarft ekki að hafa
áhyggjur af Lillu. Við skulum hugsa
vel um hana. Ég vil að lokum þakka
þér fyrir allt, Siggi minn.
Þinn besti vinur og tengdasonur
Hilmar.
Elsku afi minn. Það er sárt að
kveðja þig svona snemma, en ég er
svo heppin því ég á svo margar
minningar um frábæran afa og vin
sem létta mér lífið á þessum erfiðum
tímum. Öll jólin okkar saman, við að
taka upp gjafir, þú sitjandi á koppn-
um mínum og í snjóþotunni og við
hlæjum svo innilega. Gönguferðirn-
ar okkar þegar ég var yngri. Ef poll-
ar urðu á vegi okkar varstu alltaf á
undan mér að hoppa í þá og ég stóð
með glampa í augunum yfir afa mín-
um og fór svo að hoppa með þér og
við skemmtum okkur svo vel og öðr-
um sem urðu á vegi okkar.
Ég man þig afi minn sitjandi við
píanóið að spila og ég syng með. Þær
voru ófáar stundirnar okkar sem við
áttum saman við píanóið og ein af
þeim er þegar ég söng og þú spilaðir
í brúðkaupi mömmu og pabba. Mikið
varstu stoltur af afastelpunni þinni
þá. Eftir að ég varð eldri og fór að
vinna í Brynjubúð komstu oft til mín
í búðina og að sjálfsögðu fékkstu, afi
minn, alltaf ís með þér heim. Þá kom
alltaf þetta yndislega bros sem yljar
mér um hjartarætur.
Elsku afi minn. Takk fyrir allar
þessar yndislegu minningar. Ég
geymi þær vel í hjarta mínu.
Þín afastelpa
Harpa Ýr.
Elsku afi minn. Ég skil ekki af
hverju allir eru svona sorgmæddir
þessa dagana, en þegar ég verð eldri
og mér verða sagðar sögur af þér
skil ég af hverju það var.
Elsku afi, takk fyrir þennan stutta
tíma sem við áttum saman.
Þín afastelpa
Helena Ósk.
Elsku besti afi. Hér er lítil kveðja
frá okkur systkinunum.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
(Ásmundur Eir.)
Elsku amma, við biðjum góðan
Guð að styrkja þig á þessari sorg-
arstundu og blessa allar minning-
arnar um góðan afa.
Elsku afi, takk fyrir að vera alltaf
svona góður við okkur. Minning þín
lifir í hjarta okkar.
Kveðja.
Hólmfríður Brynja, Eyrún
Tara og Sigurður Tumi.
Nú kveðjum við samstarfsmann
okkar í nær tvo áratugi, en 1986 tók
til starfa samhentur hópur á nýrri
geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. Sigurður var einstakur
maður og hafði hlýlega framkomu
þannig að öllum leið vel í návist hans,
bæði samstarfsfólki og sjúklingum.
Hann hafði góðan húmor og fór vel
með hann, þannig að öllum var ljóst
hvenær honum var alvara. Í góðra
vina hópi var hann skemmtilegur fé-
lagi.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú kominn er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Við vitum að ástvinamissir er sár,
en það er þó mikil gæfa að eiga
minningar um góðan mann.
Við sendum fjölskyldu Sigurðar Þ.
Þórarinssonar innilegar samúðar-
kveðjur.
Samstarfsfólk á geðdeild FSA.
Sigurður Þórarinsson tónlistar-
maður er látinn rúmlega sextugur að
aldri.
Það eru ótal minningar er sækja á
mann þegar maður fréttir af andláti
góðs vinar í gegnum hartnær 50 ár.
Við Siggi vorum ekki háir í loftinu
þegar við vorum að byrja okkar tón-
listarnám rétt innan við fermingu.
Það voru áhugasamir drengir að
læra á harmóniku við skóla Karls
Jónatanssonar.
Þar kom strax fram hvað Siggi var
gæddur miklum tónlistarhæfileikum
sem síðar átti eftir að gagnast fleiri
samferðamönnum hans á tónlistar-
brautinni.
Við vorum áhugasamir piltar sem
stofnuðum okkar fyrstu alvöru
hljómsveit ári 1959, City kvintett.
Við æfðum í húsakynnum Góðtempl-
ara Gúttó og að sjálfsögðu var fyrsta
ballið að Jaðri fyrir ungmennahreyf-
ingu þeirra.
Á þessum árum voru ekki margar
hljómsveitir fyrir yngstu kynslóðina
og nutum við mikilla vinsælda.
Leiðir skildu í bili er Siggi fór til
liðs við Ludo sextett árið 1961 en ári
síðar byrjaði ég einnig þar.
Við áttum margar góðar stundir
saman á þessum árum og er við hitt-
umst, sem var alltof sjaldan, voru
þessir gömlu góðu dagar rifjaðir upp
og það skemmtilega dregið fram í
dagsljósið.
Við gömlu spilafélagarnir kveðj-
um góðan vin með söknuði og biðjum
góðan guð að geyma hann.
Við vottum Lillu konu hans og
börnum og barnabönum dýpstu
samúð. Megi góður guð vernda ykk-
ur í sorginni og vera ykkur styrkur.
Blessuð sé minning um góðan
dreng.
Arthur Moon.
SIGURÐUR ÞÓRIR
ÞÓRARINSSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir,
JÓN INGI RAGNARSSON
húsgagnasmiður,
lést mánudaginn 27. júní síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ingibjörg Ásdís Torfadóttir,
Ingi Þór Jónsson,
Arnheiður Ragnarsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VALGERÐUR PÁLMADÓTTIR
frá Rauðamýri,
andaðist á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar þriðjudaginn 4. október.
Höskuldur Guðmundsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Einar Róbert Árnason,
Oddur Guðmundsson, Kolbrún Pálsdóttir,
Steinunn Jakobína Guðmundsdóttir, Gunnar Valur Jónsson,
Anna Guðmundsdóttir, Benedikt Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORLEIFUR S. KRISTJÁNSSON
frá Norðureyri
við Súgandafjörð,
áður til heimilis
á Traðarstíg 5, Bolungarvík,
verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík
á morgun, laugardaginn 8. október, kl. 14.00.
Fjölskylda hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, og langafi,
PÉTUR JÓHANNESSON
húsasmíðameistari,
Kársnesbraut 105,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag,
föstudaginn 7. október, kl. 11.00.
Elínborg Magnúsdóttir,
Jóhannes Pétursson, Þuríður Ingólfsdóttir,
Sólborg Anna Pétursdóttir, Þórður Friðriksson,
Magnús Rúnar Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.