Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 49
MINNINGAR
enda lagði hún metnað sinn í að taka
með þeim hætti á móti fólki að heim-
sóknin væri eftirminnileg. Fór þar
ætíð saman eðlislæg gestrisni henn-
ar og sá metnaður sem hún bar fyrir
brjósti gagnvart bæjarfélaginu sínu
á Akranesi.
Rannveig Böðvarsson lagði gjörva
hönd á mörg góð málefni og tók þátt
í ýmsum félagsmálum. Þótt ekki
vildi hún hafa mörg orð eða mikla
umfjöllun um ýmis verk sín þá lagði
hún hönd á plóg víða með framlagi
sínu og stuðningi bæði í verki og
með fjármunum og þann stuðning
veitti hún bæði aðilum á Akranesi og
víðar. Fyrir allan velvilja hennar og
óeigingjarnt framlag standa margir
í þakkarskuld við þessa merku konu
og fyrir hönd þeirra allra eru henni
færðar hjartans þakkir.
Það eru tímamót í lífi samfélags
þegar kvödd er kona sem varið hef-
ur ævi sinni í þágu bæjarfélagsins á
Akranesi og notið þar meðbyrs en
einnig erfiðra stunda og vökunótta.
Við leiðarlok blandast saman annars
vegar söknuður og sorg, en hins veg-
ar djúp virðing og einlæg þökk fyrir
það sem Rannveig Böðvarsson hefur
gefið af sér í þágu þeirra sem einlæg
umhyggja hennar bauð henni. Megi
englar alheimsins syngja henni öll
sín fegurstu ljóð og minning um
starf hennar og líf skína björt um
ókomna tíð.
Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi.
Rannveig var mikill höfðingi.
Þannig minnist ég góðrar vinkonu
sem nú hefur kvatt. Rannveig var
einstaklega kær vinur og ráðagóð,
sannkallaður höfðingi sem hélt vel
utan um sinn stóra hóp fram til þess
síðasta. Á glæsilegt heimili hennar
var ætíð gaman að koma og þar átt-
um við oft skemmtilegar umræður
um sjávarútveg eða önnur lífsins
mál. Hún sá stundum heiminn sér
nær og skildi ekki í furðulegum hlut-
um er gerðust hinum megin við fló-
ann, enda þar menn sem eru sínir
eigin gæfusmiðir.
En fyrir mér er Rannveigu best
lýst þegar hún hringdi í mig haustið
1983 þegar ég var nýráðinn forstjóri
BÚR. Ég hafði þá aldrei að útgerð
komið og mörgum innan sjávarút-
vegsins þótti ekki gæfulegt að koma
úr bókaútgáfu í fiskvinnslu. Þá stóð
upp ráðagóði höfðinginn Rannveig
og bauð mér upp á Skaga til að hitta
sig og synina. Þú verður að læra
hvernig hann lítur út rauði fiskurinn
áður en þú byrjar. Þetta var að sjálf-
sögðu karfinn, sem var okkar ær og
kýr, en ég hafði ekki vit á. Þannig
kom hún mér strax til bjargar og
það hef ég alltaf metið mikils við
hana, sem og vinskap þann er mynd-
aðist milli fjölskyldna okkar.
Síðustu árin var Rannveig mikill
og traustur vinur föðurbróður míns,
Sveins Björnssonar, og áttu þau
góðar stundir saman og Rannveig
annaðist hann í hans veikindum af
mikilli hlýju og umhyggju.
Höfðinginn á Vesturgötunni hefur
kvatt, en andi hennar og höfðings-
skapur lifir. Far þú í friði, Rannveig
mín. Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til allrar stórfjöl-
skyldunnar.
Brynjólfur Bjarnason.
Nú er fallin frá á Akranesi Rann-
veig Böðvarsson eftir erfið og lang-
varandi veikindi.
Ég kynntist Rannveigu fyrst að
ráði árið 1991 þegar fyrirtækin
Heimaskagi hf., S.F.A. og HB & Co
sameinuðust. Við það færðist vinnu-
staður minn á skrifstofur HB hf.
Þá var Rannveig í fullu fjöri, þó að
sykursýkin hefði tekið sinn toll. Hún
kom dag hvern á skrifstofurnar,
sótti póstinn og það sem fara átti í
banka og sinnti ýmsum snúningum
fyrir skrifstofuna.
Alltaf var hún tilbúin að spjalla ef
tóm gafst til, bæði um gamla og nýja
tíma og ekki var djúpt á gamansem-
inni.
Hún sagði mér frá lífi sínu með
manni sínum Sturlaugi H. Böðvars-
syni, útgerðarmanni og erilssömu
starfi sem gestgjafi á mannmörgu
heimili. Hún sagði frá ferðum þeirra
hjóna um lönd og höf – s.s. þegar þau
fóru með Queen Elisabeth yfir Atl-
antshafið.
Vorið 1976 lést Sturlaugur langt
um aldur fram og sama ár lagðist
heimili Rannveigar í rúst eftir ket-
ilsprengingu í hitakerfi hússins.
Komst hún þá naumlega af ásamt
dóttur sinni Helgu. Þetta allt og
fleira reyndi mjög á Rannveigu.
Hún bognaði en brotnaði ekki og lét
reisa húsið sitt að Vesturgötu 32 aft-
ur í upprunalegri mynd. Þrátt fyrir
áföllin hélt hún ávallt reisn sinni og
glæsileika.
Hún kynntist síðar öðlingsmann-
inum Sveini Björnssyni og áttu þau
mörg góð ár saman sem vinir og
ferðafélagar og lést hann í hárri elli í
skjóli hennar.
Eftir að Rannveig varð fyrir frek-
ari heilsubresti þurfti hún á meiri
aðstoð að halda. Hún gat ekki lengur
ekið bíl og varð það að ráði að ég að-
stoðaði hana við að fara sinna ferða
um bæinn, s.s. í sjúkraþjálfun, hár-
greiðslu og aldrei var varaliturinn
langt undan, þegar lagt var af stað.
Þetta ár hefur verið henni og fjöl-
skyldunni allri erfitt.
Henni varð að ósk sinni að búa á
fallega heimilinu sínu eins lengi og
kostur var.
Hún var lögð inn á Sjúkrahúsið á
Akranesi 14. september, þá þrotin
að kröftum eftir ítrekaða heilablóð-
tappa.
Rannveig var mikil fjölskyldu-
manneskja og var henni ávallt efst í
huga velferð barnanna sinna sex og
þeirra fjölskyldna.
Um leið og ég votta fjölskyldu
Rannveigar og öðrum ástvinum
dýpstu samúð vil ég þakka henni
innilega fyrir samfylgdina.
Megi Rannveig Böðvarsson hvíla í
friði.
Svava.
Gengin er frú Rannveig Böðvars-
son, fyrrverandi stjórnarformaður
Haraldar Böðvarssonar hf. Ég hitti
Rannveigu nokkrum sinnum eftir að
ég kom til starfa hjá HB Granda á
síðasta ári. Ekki fór á milli mála að í
Rannveigu fór glæsileg og virðuleg
ættmóðir, ekki einasta stórrar fjöl-
skyldu heldur einnig heils fyrirtækis
til margra ára. Þá leyndi sér ekki af
hve miklum áhuga hún vildi hag hins
sameinaða HB Granda sem bestan.
Þótt ýmislegt hafi breyst í rekstri
fyrirtækisins á liðnum mánuðum eru
afkomendur hennar enn meðal
starfsmanna HB Granda og hafa þar
áunnið sér traust og virðingu sam-
starfsfólks síns.
Fyrir hönd HB Granda hf. sendi
ég börnum Rannveigar og afkom-
endum öllum innilegar samúðar-
kveðjur.
Eggert Benedikt
Guðmundsson.
Í dag er frú Rannveig Böðvarsson
borin til grafar hér á Akranesi.
Rannveig var glæsileg kona sem
allir tóku eftir hvar sem hún kom.
Hún og maður hennar Sturlaugur
Böðvarsson heitinn, sem féll frá allt-
of snemma, mörkuðu stór spor í
sögu Akraness. Ekki bara í atvinnu-
málum, heldur líka í menningar- og
íþróttamálum og þá ekki síst knatt-
spyrnunni, þar sem ég þekki best til.
Þessi stuðningur var með margvís-
legum hætti og eru ekki margir sem
vita hve mikill hann hefur verið í
reynd. Þegar t.d. Georg heitinn
Kirby knattspyrnuþjálfari kom til
ÍA tóku Rannveig, Sturlaugur og
fjölskylda þeirra hann og hans fjöl-
skyldu næstum því í fóstur þau ár
sem hann starfaði hér á Skaganum.
Rannveig hefur alla tíð haft mikinn
metnað fyrir hönd Skagamanna og
Akraness.
Með þessum skrifum er ekki ætl-
unin að rekja ævisögu Rannveigar,
það gera aðrir betur, heldur leyfi ég
mér fyrir hönd knattspyrnu- og
íþróttahreyfingarinnar allrar hér á
Akranesi að þakka frú Rannveigu
allan stuðning í gegnum árin.
Persónulega þakka ég samveru-
stundir með henni og hennar fjöl-
skyldu, um leið og ég votta aðstand-
endum hennar samúð mína.
Guð blessi minningu Rannveigar.
Gunnar Sigurðsson,
Akranesi.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar ást-
kæru unnustu minnar, dóttur okkar, systur, dóttu-
rdóttur, tengdadóttur og mágkonu,
ÖNNU MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Björtuhlíð 8,
Mosfellsbæ.
Guð blessi ykkur öll.
Ólafur Jónsson,
Elín S. Bragadóttir, Guðmundur Konráðsson,
Konráð Guðmundsson,
Ingi Steinn Guðmundsson,
Bragi Þór Guðmundsson, Helga Jónsdóttir,
Andri Ísak Bragason,
Dóra Halldórsdóttir,
Jón Ólafur Ólafsson, Anna Sigríður Jónsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Þórshöfn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 3B á Hrafn-
istu Hafnarfirði fyrir hlýja og góða ummönnun.
Sigurveig Tryggvadóttir, Jón Jakobsson,
Freyja Tryggvadóttir, Ólafur Friðriksson,
Kristján Sigfússon,
Helena Kristjánsdóttir,
Sigfús Kristjánsson,
Rúnar Óli Aðalsteinsson
og fjölskyldur.
Elsku, elsku afi. Ég
sakna þín svo mikið
að ég fer næstum því
að gráta.
Skemmtu þér vel með nýju vin-
unum þínum.
Ég ætla að setja blóm hjá kist-
unni þinni. Ég bið að heilsa.
Þinn afastrákur
Ásmundur.
Þegar þið mamma kynntust þá
sagðir þú við hana að þú værir ekki
með blátt blóð í æðum heldur með
þorskablóð. Þú værir ekki með
neina sérstaka hæfileika en þú
værir duglegur til vinnu og myndir
sjá til þess að hún og börn ykkar
myndi aldrei skorta neitt. Þú stóðst
svo sannarlega við þessi orð, réttir
mömmu alltaf launaumslagið óopn-
að og treystir hennir 100% fyrir
öllu. Þú vannst á daginn í málning-
unni, spilaðir í hljómsveit um helg-
ar, æfðir fótbolta á sama tíma sem
þú varst að byggja hús yfir fjöl-
skylduna þína. Í þá daga var öll
steypa handhrærð. Þú varst ásamt
Rikka valinn í landsliðið, fyrstu ut-
anbæjarmennirnir sem hlotnaðist
slíkur heiður. Þú komst reyndar
aldrei af varamannabekknum og
þolinmæðin þraut fljótt hjá þér og
þú hættir. Fannst þetta algjör
tímaeyðsla að sitja svona meðan
tíminn var betur nýttur til að mála.
Fannst út að hægt væri að mála
heila stofu meðan þú sast á bekkn-
um. Þú varst mikið hreystimenni
og skrokkurinn á þér var alltaf 20
árum yngri en lífaldur þinn. Áður
ÁSMUNDUR
GUÐMUNDSSON
✝ Ásmundur Guð-mundsson mál-
arameistari fæddist
í Vogatungu í Borg-
arfirði 12. septem-
ber 1921. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 9. septem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð í
kyrrþey að ósk hins
látna.
en þú veiktist hljópst
þú upp á 5. hæð í
blokkinni og varst í
kapp við sjálfvirku
ljósin. Við systkinin
áttum ekki sjens í
þig. Besta afmælis-
gjöfin sem þú hefur
fengið var grein sem
Ólafur Haukur Árna-
son skrifaði í Morg-
unblaðið þegar þú
varðst 60 ára. Þú
varst svo lánsamur að
fá minningargreinina
fyrir fram sagðir þú.
Fékkst að njóta í lifandi lífi að ein-
hver talaði vel um þig og sá kostina
þína. Svo skrifaði Ólafur m.a-
.:„...Ásmundur Guðmundsson hefur
svo lengi sem kynni okkar hafa
staðið og vafalaust miklu lengur
verið sannur skapbætir og gleði-
gjafi vinum sínum og kunningjum.
Hann er manna orðglaðastur og
orðheppnastur. Hann er mann-
þekkjari án þess að vita af því sjálf-
ur og nægilega mikill lífsspekingur
til að þykjast einfaldari en hann er.
Hann finnur af eðlisávísun hvað
lyftir mönnum úr deyfð og drunga,
hressir þá, kætir og bætir. Bjart-
sýni og barnsleg gleði eru fylgi-
nautar Ásmundar, lífsviðhorf hans
skyldari léttu svifi flugla himinsins
en þunglamalegri og blindri
heimsku moldvörpunnar. Í orðræðu
hans slær gneistum af snilli dæmi-
sagna og þversagna mannsins...“
Börn þín, barnabörn og barna-
barnabörn munu reyna að halda við
arfleifð þinni að láta gott af okkur
leiða í samfélaginu.
Kristbjörg og Einar.
Jæja, pabbi minn, nú er þessum
kafla lokið. Eitthvað annað tekur
við sem við vitum ekkert um en ég
veit allavega að Gunna og Gróa
taka vel á móti þér. Gróa verður
búin að baka vínarbrauð með
bleiku kremi og þunnar pönnukök-
ur með sykri. Gunna verður búin að
laga tertuna frægu. Þú mátt vera
sáttur og stoltur af þínu lífi þótt þú
hafir verið langt frá því að vera
fullkominn. Enda stærðir þú þig
aldrei af eigin verkum, en lést sam-
ferðamenn þína vita hvað þú værir
vel giftur og ættir æðisleg börn.
Það eru ekki til margar sögur af
þér sem barni, en ég veit að þú
varst getinn við eld forboðinnar
ástar. Þú áttir ekkert að fæðast.
Forlögin höguðu því þannig að fjöl-
skylda sem hafði tvístrast vegna
föðurmissis sameinaðist á nýjan
leik uppi á Akranesi og skildi vel
örvæntingu móður þinnar. Þau
tóku þig að sér og litu á þig sem
sameiningartákn fjölskyldunnar.
Með þeim ólst þú upp við mikinn
kærleik, guðstrú og gleði. Enda
varð útkoman einn mesti gleðigjafi
sem uppi hefur verið á Íslandi.
Sama hvar þú komst alltaf var þér
tekið fagnandi enda sýndir þú sam-
ferðamönnum þínum einlægan
áhuga, varst orðheppinn þannig að
fólk veltist um af hlátri. Þú reyndir
aldrei að vera fyndinn og varst allt-
af jafn hissa hvað fólk hló og jafn-
vel náði ekki andanum á milli setn-
inga sem ultu út úr þér.
Þú varst mikill hæfileikamaður,
ekki bara í samskiptum heldur líka
í tónlist og íþróttum. Þú gerðir allt-
af lítið úr því og sagðir þetta vera
99% vinnu og 1% hæfileika. Þú
trommaðir á alla diskana og glösin
meðan mamma var að gera matinn
kláran. Það var alltaf ákveðin at-
höfn áður en kartöflurnar og fisk-
urinn voru borin á borð og við sát-
um með andakt og þótti þú
galdramaður að ná slíkum takti úr
diskunum og ef þú fórst í svaka
stuð og gleymdir þér þá léstu
fölsku tennurnar glamra í takt.
Ef þú bíður enn á biðstofunni til
að halda ferð þinni áfram veit ég að
þú ert kominn í góðra manna hóp
og hafir þú fyrirhitt einhverja sem
ekki eru sáttir við að hafa yfirgefið
þetta tilverustig ertu örugglega að
hjálpa þeim að sætta sig betur við
hlutskiptið. Ég heyri þig í anda
rökræða við þá og ef einhverjir eru
þarna sjálfstæðismenn eins og þú,
þá verðurðu ekki í vandræðun. Þú
sýnir þeim sennilega fram á að það
hafi ekkert vit verið í því að halda
þessu lífi áfram úr því að Davíð
væri hættur í pólitík.
Ebba.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út-
för hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandend-
ur senda inn. Þar koma fram upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, fæddist, hvar og
hvenær hann lést, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningar-
greinar