Morgunblaðið - 07.10.2005, Qupperneq 54
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
SYKURPÚÐI! ÉG FÉKK ÞIG
TIL AÐ BROSA
MÉR FANNST ÉG HEYRA
VÆNGJAÞYT
ÉG SAGÐI HONUM AÐ GRÆNMETIÐ KÆMI
AF ÖKRUM ÞAR SEM VÖKVAÐ
VÆRI MEÐ STERKU ROMMI
HVERNIG
FÉKKSTU HRÓLF
TIL AÐ BORÐA
GRÆNMETI?
GAT VERIÐ AÐ
ÉG YRÐI
SEKTAÐUR!
ÞETTA ER
ÞAÐ LEIÐIN-
LEGASTA SEM
ÉG GERI
HÉR
KEMUR HANN.
TAKK FYRIR
AÐ BÍÐA MEÐ
MÉR
MÍN VAR
ÁNÆGJAN!
MIKIÐ ER NESTIS-
BOXIÐ MITT LÉTT
ÉG STEND HÉRNA OG BÍÐ
EFTIR SKÓLABÍLNUM. ÞAÐ
EINA SEM ÉG HEF AÐ GERA
ER AÐ HUGSA UM HVAÐ GÆTI
FARIÐ ÚRSKEIÐIS Í DAG.
ÆTLI ÞAÐ
VERÐI DEMBT
Á OKKUR
PRÓFI?
ÉG HELD
AÐ HANN SÉ
OF STÓR
EF ÞIÐ LENDIÐ Í MIKILLI
UMFERÐ ÞÁ ER NAUÐSYLEGT
AÐ VERA Á EINUM SVONA
ÖRYGGISINS
VEGNA?
NEI, VEGNA ÞESS
AÐ ÞIÐ GETIÐ HAFT
ÞAÐ HUGGULEGT UPPI
Á ÞAKI EF ÞIÐ LENDIÐ
Í UMFERÐARTEPPU
ENGINN
!
EN MIG LANGAR
BARA Í SMÁ VATN
AÐ DREKKA?
NEI
ÞAÐ FÆR
ENGINN AÐ FARA
ÞANGAÐ INN!
FÁÐU ÞÉR HELDUR
FERSKT LOFT
Dagbók
Í dag er föstudagur 7. október, 280. dagur ársins 2005
Víkverji hefur staðiðí flutningum og
dálitlum endurbótum
á nýja húsnæðinu. Það
var búið að hræða
hann þessi ósköp með
því að það væri nánast
vonlaust að fá iðn-
aðarmenn til að vinna
fyrir sig. Og ef iðn-
aðarmenn fengjust til
að koma, kíktu þeir í
bezta falli á aðstæður,
skildu eftir fáein verk-
færi og létu svo ekki
sjá sig aftur fyrr en
eftir einhverjar vikur
eða mánuði.
x x x
Skemmst er frá því að segja aðekkert af þessu hefur rætzt í til-
viki Víkverja. Samkvæmt ábend-
ingum vina og kunningja hefur Vík-
verji fundið áreiðanlega og
vandvirka iðnaðarmenn, sem koma
þegar þeir segjast ætla að koma, eða
hringja að minnsta kosti og láta vita
ef þeir koma ekki og nefna nýjan
tíma. Allt hafa þetta verið afbragðs
fagmenn; málarinn, pípulagn-
ingamennirnir, rafvirkjarnir og
smiðirnir og hugkvæmir að finna
ásamt Víkverja beztu lausnirnar á
því hvernig haga á endurbótunum.
Aukinheldur eru
þetta allt saman við-
kunnanlegustu menn,
hlæja að bröndurum
Víkverja, ávarpa hann
með gælunafni þótt
þeir þekki hann ekki
neitt og kalla hann iðu-
lega „kallinn sinn“,
sem Víkverja finnst
skemmtilega heim-
ilislegt. Skrifari tekur
nú upp hanzkann fyrir
iðnaðarmenn hvar sem
hann kemur.
x x x
Víkverji leyfir sér aðbenda á vef Sauða-
messunnar í Borgarnesi, sem haldin
verður á morgun. Þar er að finna
margvíslegan fróðleik um sauð-
kindina, en jafnframt orðabók, sem
útskýrir vel flókin hugtök í fjár-
málaheiminum. Áhættufé er t.d. fífl-
djarfar sauðkindur, handbært fé frá
rekstri eru kindur, sem menn hafa
gefizt upp á að reka og bera á hönd-
um sér og sparifé eru kindur, sem
ekki eru notaðar hversdags.
Sauda.vefurinn.is hlýtur að vera
einn skemmtilegasti vefur á landinu.
Það eina, sem stingur í augu eru
yfsilon-villurnar – en kannski eru
þær partur af gríninu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leiklist | Leikfélagið Hugleikur verður með mánaðarlegar skemmtidagskrár
í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur undir heitinu Þetta mánaðarlega. Fyrsta
dagskráin verður í kvöld og á laugardag og hefst kl. 21.
Hugleikur hefur undanfarin ár lagt áherslu á uppsetningu frumsaminna
einþáttunga og dagskráin einkennist af því. Fimm einþáttungar verða frum-
fluttir í októberdagskránni. Þeir eru Hefur einhver sagt þér hvað þú ert líkur
Robert Redford? eftir Jón Guðmundsson, Stefnumót eftir Þórunni Guð-
mundsdóttur, Helgin eftir Hrefnu Friðriksdóttur og tveir þættir eftir Nínu
Björk Jónsdóttur, Snemma beygist krókurinn og Snyrting.
Höfundar og leikstjórar eru úr röðum félagsmanna, en Hugleikur hefur
sem kunnugt er sérhæft sig í að sýna verk eftir innanfélagsmenn.
Þetta mánaðarlega
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Jesús svaraði: Eru ekki stundir dagsins tólf? Sá sem gengur um að degi
hrasar ekki, því hann sér ljós þessa heims. (Jóh. 11,9.)