Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 61

Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 61                                                                                                 ! "#  $ %! && !  # ' & (      &&! )  " & *# +% (  , % -.-/   # 0  1 ( & ' &  &' & ( 2(  SVARTNÆTTIÐ grúfir yfir Dag- renningu, hún fjallar um ógnartíma í lífi manns, bið manndrápara eftir af- tökustundinni. Myndin, sem gerist í Teheran, hefst á því að verkamað- urinn Mansour (Yari) verður yfir- manni sínum að bana. Mansour er fluttur í fangelsi þar sem hann verður að láta sér lynda að þreyja löngum stundum eftir dómsorðinu. Sam- kvæmt boðum Kóransins hefur fjöl- skyldufaðir fórnarlambs morðingja ákvörðunarvald yfir lífi hans, en skömmu eftir fangelsun Mansour deyr móðir hins myrta og samkvæmt heilögum orðum Kóransins ber fjöl- skyldunni að syrgja í 40 daga. Á með- an má ekkert hreyfa við málum Mansour. Yfir Dagrenningu er sviðsettur heimildarmyndablær en Rahmanian hefur eingöngu fengist við gerð slíkra mynda til þessa og getið sér gott orð fyrir. Innihald þessa fyrsta, leikna verks leikstjórans getur tæpast verið sammannlegra og alþjóðlegra, en myndin fjallar fyrst og fremst um þjáningu allra sem við sögu koma. Fortíð morðingjans er sögð í aft- urhvörfum, Mansour á að baki ósköp hversdagslegt, þyrnum stráð líf. Hann kvænist konu í heimahögunum, sem er smábær í norðri, og atvinnu- leysi hrekur þau til höfuðborgarinnar ásamt foreldrum hans. Þar lýkur svo með skelfingu þessu lífshlaupi sem tæpast er hafið. Til að bæta enn á ömurleikann, eins og hann sé ekki nægur, gengur kona Mansours með barn og fæðir stúlku sem Mansour fær að sjá á meðan hann bíður snörunnar. Dag- renning er tekin í illræmdu fangelsi þar sem stálgrár nöturleikinn nístir merg og bein, dauðinn er greinilega betra hlutskipti en að draga fram lífið í þeirri óvissu sem frumraunin sýnir á óvæginn og yfirþyrmandi hátt. Gálgafrestur KVIKMYNDIR Regnboginn: AKR 2005 Leikstjóri: Hamid Rahmanian. Aðalleik- endur: Hossein Yari, Zabi Afshar. 85mín. Íran. 2005. Dagrenning (Daybreak/Dame sobh)  Sæbjörn Valdimarsson FRANSKI leikstjórinn Olivier Assayas verður gestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í kvöld en nýjasta mynd hans Hrein (Clean) er sýnd á hátíðinni. Assayas svarar spurningum áhorfenda á sýn- ingu Háskólabíói kl. 20 í kvöld. Hrein var tilnefnd til Gullpálmans á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2004 og vann verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku. Maggie Cheung hreppti jafnframt verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki. Ennfremur verður Stuart Samuels viðstaddur sýningu á mynd sinni Midnight Movies: From the Margin to the Mainstream í Tjarn- arbíói kl. 23. Assayas á AKR www.filmfest.is TÓNLISTARMAÐURINN Krist- ján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, og gamla Lucky One- bandið eru nú að leggja upp í langferð til Kína til að taka þátt í sjöundu Alþjóðlegu listahátíðinni í Shanghai. Í tilefni af Kínaferðinni verða haldnir tónleikar á Nasa í Reykja- vík fimmtudaginn 13. október. Þeir munu taka lög af öllum ferli KK þar sem blúsinn, spilagleðin og krafturinn ræður ríkjum og nokkuð víst er að lög eins og „Lucky One“, „True to you“, „Wake me“, Álfablokkin og Þjóð- vegur 66 verða á efnisskránni ásamt ótal fleiri lögum. Miðaverð er 1.000 kr. Forsala er hafin á midi.is og í verslunum Skífunnar. Miðasala verður einnig við inn- ganginn á tónleikadag. Húsið verður opnað kl. 20 og tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21.30. Bandið skipa þeir: KK: gítar, munnharpa og söngur. Eyþór Gunnarsson: hljómborð, ásláttur og raddir. Þorleifur Guðjónsson: bassi og raddir. Þorsteinn Ein- arsson: gítar og raddir. Sigurður Flosason: saxófónn og ásláttur. Erik Qvick: trommur. Tónlist | Tónleikar KK og Lucky One á NASA á fimmtudaginn Það kvað vera fallegt í Kína Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir Lucky One verða KK til halds og trausts á NASA 13. október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.