Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 64
64 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍK
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur
fyrir stefnumótið. Með þeim stórgóða
John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
29. september til 9. október
Howl´s Moving Castle - Sýnd kl. 10.10
What Remains Of Us - Sýnd kl. 8
Le regard - Sýnd kl. 6
Clean - Sýnd kl. 8
Krisana - Sýnd kl. 6
Diane Lane John Cusack
A.G. Blaðið
GOAL! kl. 6 - 8
VALIANT kl. 6
THE 40 YEAR ..kl. 10.15
CINDERELLA MAN kl. 8 - 10.30
GOAL! kl. 8 - 10.15
VALIANT kl. 6
THE 40 YEAR ..kl. 5.30 - 8 - 10.15
VARÚÐ: Þú gætir farið úr kjálkaliðum af hlátri
Cinderella Man kl. 5.30 - 8.30 - 10
Charlie and.. kl. 5,45
Must Love Dogs kl. 6 -8 og 10.10
Strákarnir Okkar kl. 8 og 10
Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée
Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins.
Skelltu þér á
alvöru mynd.
Það er alltaf
hægt að þek-
kja myndir
sem eiga eftir
að keppa um
Óskarinn.
R.H.R / MÁLIÐ
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
ROGER EBERT
ROGER EBERT
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Óskarsverðlaunahafarnir Russell
Crowe og Renée Zellweger fara á
kostum í sterkustu mynd ársins.
Skelltu þér á
alvöru mynd.
Það er alltaf
hægt að þek-
kja myndir
sem eiga eftir
að keppa um
Óskarinn.
R.H.R / MÁLIÐ
Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”).Mynd eftir Ron Howard
(“A Beautiful Mind”).
Sýnd um helgina
FRUMSÝND Í DAG!
SIGGI Björns, trúbadorinn með rámu röddina,
slær upp sannkölluðum sveitatónleikum í kvöld.
Tilefnið er ný plata og tónleikarnir verða haldn-
ir í hlöðunni í Hvammsvík í Hvalfirði. „Þetta er
sveitaplata, textarnir eru sögur úr sveitinni og
fyrir brjálsemi er hún tekin upp, hljóðblönduð
og unnin í sveitinni af hreinræktuðum sveita-
mönnum,“ segir Siggi Björns um nýju plötuna
sína, Stories, sem kemur út í dag.
„Ég var búinn að ganga með þessa plötu í
höfðinu í töluverðan tíma og það stóð til að
leggja mikla vinnu og peninga í hana. Síðasta
haust fer ég svo í mína árlegu ferð á heimaslóð-
irnar vestur á Flateyri og ákveð þar að taka
hana upp í einum grænum. Það er hóað í heima-
menn, stofa læknisins er gerð að stúdíói og mál-
inu reddað.
Ég gæti ekki verið ánægðari með útkomuna.
Textarnir eru flestir sögur að vestan, stemmn-
ingin er nátengd þorpinu og það lokar einhvern
veginn hringnum að taka hana upp þar.“
Fólk hefur enn gaman af sögum
Siggi var vestfirskur sjómaður áður en hann
söðlaði um, flutti til Danmerkur og lagði tónlist-
ina fyrir sig. Núna er hann búsettur í Berlín en
flakkar um alla Evrópu og spilar. „Platan er
mjög persónuleg að því leyti að textarnir eru
meira og minna unnir upp úr persónulegum
reynslusögum, upplifunum og minningum.
Prógrammið sem ég hef verið með í gangi
undanfarið er mikið byggt upp á sögum, ég
spjalla við gestina og reyni að búa til stemningu
í kringum lögin,“ segir hann.
„Kannski stafar þetta af því að maður er bú-
settur erlendis og er alltaf að segja sögur að
heiman, en í það minnsta gengur þetta vel í
mannskapinn og það er gaman að vinna með
þetta form.“
Hlöðutónleikar í Kjósinni
Til að fylgja sveitaþemanu til streitu var
ákveðið að fagna útgáfunni með hlöðutónleikum
í Hvammsvík í Kjósinni. „Ég fæ til liðs við mig
félaga að vestan, Olavi Körre og Önund Páls-
son, og Einar Valur mun spila á bassa. Svo tök-
um við stefnuna norður og höldum tónleika á
Bjarkalundi á laugardaginn, Patreksfirði á
mánudaginn og Flateyri á þriðjudaginn. Ég
þarf svo að skreppa aftur út og spila nokkra
tónleika, en kem aftur í nóvember og túra þá al-
mennilega um landið.“
Tónlist | Siggi Björns sendir frá sér plötu
Olavi Knörr, eistneski tónlistarkennarinn á Þingeyri, ásamt Sigga Björns, en hann spilar með
Sigga í kvöld.
Túrar í nóvember
með sögur af fólki
LEIKARAPARIÐ Tom Cruise og Katie
Holmes á von á sínu fyrsta barni, að því er
tímaritið People greindi frá. Parið hefur verið
að hittast síðan í apríl og trúlofaðist í Eiffel-
turninum í París í júní. „Tom og Katie eru
mjög spennt, og raunar er öll fjölskyldan mjög
spennt,“ sagði Lee Anne Devette, talsmaður
Cruise, í samtali við tímaritið og bætti því við
að Holmes hefði aldrei liðið betur.
Þetta verður fyrsta barn Holmes, sem er 26
ára, en Cruise, sem er 43 ára, á fyrir tvö ætt-
leidd börn með Nicole Kidman, þau Connor
sem er 10 ára og Isabellu sem er 12 ára.
Cruise er nú við tökur á kvikmyndinni
Mission Impossible 3.
Talið er að Katie sé komin þrjá mánuði á leið
og er því von á barninu í vor. Ekki er vitað
hvort strákur eða stelpa er á leiðinni.
Fólk | Tom Cruise og Katie Holmes
Eiga von á barni í vor
Reuters
Katie Holmes og Tom Cruise eru hæstánægð
saman.
GÆRDAGURINN var viðburðaríkur hjá
hljómsveitinni Dr. Spock en þá keyrði hún
um höfuðborgarsvæðið og lék á palli flutn-
ingabíls fyrir framan vel valda staði. Til-
efnið var útkoma fyrstu plötu sveitarinnar,
Dr. Phil, sem er nú fáanleg í öllum betri
hljómplötubúðum. Fyrir hádegi herjaði
hljómsveitin á nokkra vel valda mennta-
skóla og eru þessar myndir teknar af henni
fyrir utan Menntaskólann í Hamrahlíð.
Seinna um daginn sótti hljómsveitin Frétta-
blaðið og Stöð 2 heim en hún leikur svo í
kvöld á Dillon upp úr klukkan 23.
Á vegum úti
Engum sögum fer af viðbrögðum skólastjórnar MH vegna óvæntrar heimsóknar Dr. Spock.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óttarr Proppé með gúmmíhanska á lofti.