Morgunblaðið - 15.10.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Vika í Danmörku
www.hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
28
90
9
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
„VIÐ flugum frá London til Kath-
mandu í Nepal, stoppuðum þar í
einn dag og flugum svo til Lhasa
sem er höfuðborg Tíbets. Hún er í
3.600 m hæð og þar vorum við í að-
lögun í fjóra daga til að venjast
loftslaginu og skoða okkur um.
Inni á hótelherberginu okkar voru
súrefnistæki, við þurftum aldrei að
nota þau en maður vaknaði þó
stundum á næturnar við súrefn-
isleysi,“ segir Freyr. Ferðin hjá
þeim tók í heildina fjórar vikur en
átján dagar af þeim tíma fóru í
hjólaferðina. „Eftir aðlögunina var
lagt af stað í hjólaferðina, leiðin
sem við fórum er þekkt og heitir
Friendship highway, eða Vináttu-
þjóðvegurinn, og er aðalleiðin frá
Lhasa til Kathmandu. Með út-
úrkrók hjóluðum við um 1.100 km í
heildina, dagarnir voru mislangir
en við hjóluðum allt upp í 110 km á
dag,“ segir Darri en hann átti ein-
mitt 35 ára afmæli á þessu ári og
var hjólaferðin afmælisgjöf til hans
frá fjölskyldunni. „Það er bresk
ferðaskrifstofa sem skipuleggur
þessa ferð og hafði mig langað
lengi í hana. Þegar ég fékk hana í
afmælisgjöf langaði mig að hafa
einhvern með mér sem ég þekkti
og datt þá einn í hug sem er jafn
brjálaður og ég og það er Freyr,“
segir Darri. Freyr hlær að vitleys-
unni í honum en segir þó að hann
sjái ekki eftir að hafa látið Darra
plata sig út í þetta.
Grunnbúðir Everest
Útúrdúrinn sem þeir tóku úr
leiðinni milli Lhasa og Kathmandu
var þegar þeir hjóluðu að grunn-
búðum fjallsins Everest sem eru í
5.200 m hæð. „Þetta var þriggja
daga útúrdúr, við tjölduðum við
munkaklaustur í 5.000 m hæð en
hækkuðum okkur svo um 200 m í
viðbót upp í grunnbúðirnar,“ segir
Darri. Freyr bætir við að það hafi
verið mjög erfitt að hjóla þann
spotta upp í búðirnar. „Loftið var
orðið svo þunnt. Maður varð eins
og gamalmenni sem hafði ekki
hreyft sig í tugi ára. Það þýddi
ekki að vera með keppnisskap í
þeim hjólatúr.“ Darri segir að í
5.000 m hæð sé súrefnið komið nið-
ur í 50% og þá skipti engu máli
hversu góðu formi menn séu í.
„Það var einstök upplifun að
koma að Everest, sérstaklega þar
sem við vorum búnir að sjá fjallið í
fjarska nokkrum dögum fyrr og
nálguðumst það alltaf meira og
meira.“
Miklir útivistarmenn
Darri og Freyr hjóluðu í tíu
manna hóp sem fylgdi tíu manna
starfslið og farangursbílar. „Það
voru tveir fararstjórar og var ann-
ar þeirra búinn að hjóla þetta
fimmtán sinnum, svo voru kokkar
og bílstjórar. Við sváfum í tjöldum
og það var eldað ofan í okkur alla
daga. Þannig séð var þetta lúx-
usferð því það var hugsað vel um
okkur og við þurftum aldrei að
hjóla með neinn farangur,“ segja
þeir. „Það var byrjað að hjóla
klukkan sjö eða átta á morgnana
því þegar sólin sest á kvöldin þá
verður mjög kalt. Hitinn gat farið
upp í 20°C á daginn en um leið og
sólin var sest þá féll hitinn og gat
farið niður í mínus 5-10°C á nótt-
inni.“
Freyr og Darri eru báðir með-
limir í Íslenska fjallahjólaklúbbn-
um og hafa farið saman í nokkrar
ferðir. „Við hjólum mikið innan-
lands og höfum farið saman í
fjallahjólaferðir til Noregs og
Bretlands. Svo stundum við mikið
af annarri útivist. Til að fara í
svona ferð eins og þessa þá verður
maður að vera í mjög góðu formi.
Okkur fannst við þokkalega und-
irbúnir þegar við fórum út en það
er ekki hægt að búa sig undir
þetta súrefnislausa andrúmsloft
sem við hjóluðum í. Það er okkur
minnisstætt fyrsta daginn, þegar
við vorum búnir að hjóla 80 km,
hvað við vorum orðnir þreyttir en
við venjulegar aðstæður hefði það
ekki verið neitt mál. Súrefnisleysið
dró svo úr manni þróttinn.“
Mannlífið og Potalahöllin
90% af hjólaferðinni eyddu þeir í
yfir 4.000 m hæð. „Landslagið sem
við hjóluðum í gegnum var hrjóstr-
ugt, fjöll og sandar og ekkert ólíkt
því að hjóla á hálendi Íslands.“
Aðspurðir hvað hafi verið minn-
isstæðast úr ferðinni þá svarar
Freyr því að það hafi verið mann-
lífið og umhverfið. Darren tekur
undir það með honum og bætir við
að honum hafi fundist mikil upp-
lifun að sjá Potalahöllina í Lhasa
en í henni bjó Dalai Lama áður en
Kína réðst inn í landið.
Einn dagurinn af ferðinni var
þeim einstaklega eftirminnilegur,
það var þegar þeir fóru að lækka
sig niður. „Á einum degi lækk-
uðum við okkur um 3.600 m, eftir
því sem neðar dró var meiri gróður
og meira súrefni og þá var ofsalega
gott að geta andað virkilega djúft,
maður vaknaði aftur til lífsins,“
segir Darri.
Þeir piltar eru ekki hættir í úti-
vistinni eftir þessa ferð því í byrj-
un næsta árs ætla þeir að taka þátt
í Vasa göngunni í Svíþjóð, en það
er 90 km gönguskíðakeppni sem
stendur yfir í einn dag. Þeir eru
líka byrjaðir að huga að næstu
hjólaferð en búast ekki við því að
fara í jafn erfiða ferð og þessa aft-
ur, a.m.k ekki á næstunni.
HJÓLAFERÐ| Inni á hótelherbergjunum voru súrefniskútar
Hjóluðu þjóðveg vináttunnar
Freyr og Darri eru hér kampakátir og halda á íslenska fánanum á milli sín við grunnbúðirnar
Freyr Franksson og Darri Mikaelsson eru miklir
útivistarjaxlar. Í maí fóru þeir í hjólaferð um Nepal
og Tíbet þar sem þeir komu m.a. við í grunnbúðum
Everestfjalls. Ingveldur Geirsdóttir hitti þá pilta
til að ræða þessa óvenjulegu hálendishjólaferð.
„Landslagið var hrjóstrugt, fjöll og sandar og ekkert ólíkt því að hjóla á hálendi Íslands,“ segja
Darri og Freyr. Hér horfir ein konan í Tíbet á þennan hjólahóp sem fer um landið hennar.
ingveldur@mbl.is
RUE Mouffetard heitir matargata mikil í París.
Þar á Hemingway alltaf að hafa keypt sér ost og
þangað fara Parísarbúar út að borða og á markað.
Gatan er í Latínuhverfinu og um hana er nýlega
fjallað á vef Aftenposten. Parísarbúar kalla götuna
La Mouffe og þar er nóg af veitingastöðum. T.d.
Le Cedre, líbanskur veitingastaður á nr. 6 og
Creperie Oroyona á nr. 36. Við götuna hafa einnig
aðsetur bakarar, slátrarar og ost- og fisksalar.
Auk líbanska staðarins eru veitingahús sem sér-
hæfa sig í matarmenningu frá Ítalíu, Japan, Kóreu
og Grikklandi við matargötu þessa í París. Og auð-
vitað ekta franskir staðir eins og L’Assiette Aux
Fromage á nr. 25 og Le Jardin d’Artemis á nr. 31.
Við endann á Rue Mouffetard er markaðstorg
og þar stendur kirkja frá tólftu öld, Saint-Médard.
Á torginu er líflegur ávaxta- og grænmet-
ismarkaður á hverjum virkum degi frá kl. 9 til kl.
13.30.
PARÍS
Matargatan La Mouffe