Morgunblaðið - 15.10.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 27
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Í HÓTELI einu í Austurríki
hefur það ekki reynst gest-
unum nóg að drekka bjór held-
ur jukust vinsældirnar þegar
boðið var upp á bjórbað. Á vef
Aftenposten kemur fram að
brugghúsið Starkenberger eigi
nú hótel í Týról og þar bjóðist
gestum að baða sig í 40 gráða
heitum bjór í sjö pottum. Hver
pottur inniheldur 25 þúsund
lítra af bjór og er fyrir fjóra í
einu. Ölbaðið ku vera fullt af
vítamínum, m.a. fyrir húð og
hár.
Bjórbað er orðið vinsælt í
Austurríki eftir að bjórrann-
sóknarmaður datt ofan í bjór-
ker í bjórverksmiðju og komst
ekki úr því fyrr en eftir nokkr-
ar klukkustundir. Eftir sturtu
uppgötvaði hann að húðin var
sléttari og heilbrigðari en áður.
Samkvæmt vef Aftenposten
kostar um 1.200 norskar krón-
ur að leigja bjórpott til einka-
nota, þ.e. um 12 þúsund ís-
lenskar krónur.
Morgunblaðið/Kristinn
Bjórbað
AUSTURRÍKI
NOKKUÐ hefur ver-
ið um að fólk viti
ekki að það þurfi
tölvulesanleg
vegabréf til þess
að komast til
Bandaríkj-
anna og hafi
því ekki
komist
lengra en
að innrit-
unarborði í Leifsstöð.
Vill samgöngu-
ráðuneytið og Útlendingastofnun
koma því á framfæri að Íslendingar
á leið til Bandaríkjanna verði að
framvísa tölvulesanlegu vegabréfi
eða vegabréfi með áritun frá banda-
ríska sendiráðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá sam-
gönguráðuneytinu hefur það gerst
nokkrum sinnum undanfarið að fólk
hafi verið gert afturreka úr Keflavík
þar sem það skorti rétt vegabréf eða
vegabréfsáritun. Það hafi gerst sein-
ast í gær þegar eldri hjón gátu ekki
ritað sig inn í flug vegna þessa.
Flugfélaginu sem seldi þeim miðana
hefði láðst að láta þau vita af þessum
breytingum.
Útlendingastofnun hefur fengið
töluvert af kvörtunum frá fólki sem
hefur ekki getað ritað sig inn í flug
en ekki er vitað til þess að nokkur
hafi lent í þessu við komu sína til
Bandaríkjanna.
Hinn 26. júní síðastliðinn til-
kynntu bandarísk stjórnvöld að eng-
ar undanþágur yrðu veittar frá
þessu. Fyrir þann tíma var unnt fyr-
ir íslenska ríkisborgara að fá
eina undaþágu hvað þetta
varðar við komu til Banda-
ríkjanna.
Í dag er farþegum vísað til
síns heima geti þeir ekki fram-
vísað tölvulesanlegu vegabréfi
eða vegabréfi með áritun frá
bandaríska sendiráðinu.
BANDARÍKIN | Þarf tölvulesanleg vegabréf
Í NOREGI var nýlega kynnt til sög-
unnar vefslóðin www.skifaktor.no
sem á að þjóna Norðmönnum, Svíum
og Dönum þeim sem áhuga hafa á
ódýrum skíðaferðum.
Hægt er að leita eftir skíðaferðum
til ýmissa staða á Ítalíu, í Frakk-
landi, Austurríki og á Spáni og frá
nokkrum stöðum í Svíþjóð og Nor-
egi og Danmörku. Ferðirnar eru
með ýmsum ferðaskrifstofum og
lággjaldaflugfélögum.
Einnig er hægt að fá upplýsingar
um hina ýmsu skíðastaði.
Morgunblaðið/Emilía
Skíðaferðir
NETIÐ
www.skifaktor.no
Sumir Íslendingar
þurfa að snúa við í
Leifsstöð