Morgunblaðið - 15.10.2005, Qupperneq 51
Classic Rock | Fótboltinn í beinni alla
helgina.
Grand Rokk | Megas, Súkkat og Megasukk
kl. 23.
Kaffi Sólon | Dj Brynjar Már & Dj Andrés
skemmta um helgina – Brynjar Már.
Lundinn | Hljómsveitin Tilþrif spilar.
Sjallinn, Akureyri | Í svörtum fötum.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur. Frítt inn til mið-
nættis.
Kvikmyndir
Kvikmyndasafn Íslands | Pólska kvik-
myndin Amator eða Áhugamaður frá árinu
1979, eftir mynd Krystof Kieslowski, er á
dagskrá kl. 16. Sýningar fara fram í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, á þriðju-
dagskvöldum kl. 20 og er sama mynd end-
ursýnd á laugardögum kl. 16. Miðaverð er
kr. 500.
Mannfagnaður
Átthagafélag Þórshafnar | Vetrarfagnaður
verður haldinn laugardaginn 22. október, í
sal Ferðafélagsins, Mörkinni 6, Reykjavík.
Húsið opnað kl. 19 og borðhald hefst kl. 20.
Miðasala verður 19. október kl. 17–19, í
Mörkinni 6. Tekið er við peningum og kred-
itkortum (ekki debetkortum). Einnig má
hafa samband við Evu í síma 847–0109.
Borgfirðingafélagið í Reykjavík | Félagið
efnir til afmælishófs á Hótel Sögu 19. nóv.
Allir Borgfirðingar velkomnir. Dagskráin
hefst kl. 19. Miðasala í síma 822 5609 fyrir
1. nóv.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist, fyrsti
dagur í fjögurra daga keppni verður í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14, 16. október kl. 14.
Fréttir
OA–samtökin | OA fundur fyrir matarfíkla
kl. 11.30–12.45, í Gula húsinu Tjarnargötu
20. Nýliðamóttaka kl. 11.
Fyrirlestrar
Nafnfræðifélagið | Nafnfræðifélagið heldur
fund kl. 13.30, í húsi Sögufélags í Fischer-
sundi. Dr. Jón Axel Harðarson flytur fyr-
irlestur: Mannanöfn og menningarsaga:
Yngvar, Gunnar, Ævar og Garðar. Fjallað
verður um menningarsögulegt gildi manna-
nafna og forsaga nafnanna í titli athuguð.
Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Kamilla Jó-
hannsdóttir flytur fyrirlesturinn Meðvituð
tölva? Um forsendur slíks kerfis. Þar leitast
hún við að varpa ljósi á forsendurnar er
þurfa að vera til staðar til að tölva geti öðl-
ast meðvitund og skoða tengsl meðvit-
undar, hugsunar og gervigreindar frá mis-
munandi skilgreiningum á hugtakinu.
Fyrirlesturinn er kl. 14–15.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur | Muk-
unda Raj Pathik háskólakennari í Kat-
mandu heldur opinberan fyrirlestur kl.
12.15, í Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist
Tungumálaástandið í Nepal og verður flutt-
ur á ensku. Í fyrirlestrinum fjallar Pathik um
þau tungumál sem töluð eru í Nepal og
stöðu nepölsku meðal þeirra.
Kynning
Lýðheilsustöð | Frítt til Evrópu fyrir reyk-
lausa er keppni ætluð ungu fólki á aldrinum
15–20 ára. Allir sem verða reyklausir frá 10.
nóvember 10. desember eiga þess kost að
vinna utanlandsferð. Hægt er að skrá sig til
leikswww.lydheilsustod.is.
Námskeið
Áttun | Námskeið í streitustjórnun verður
15. október kl. 10–16, Suðurlandsbr. 10, 2. h.
Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur fjallar
um aðferðir við höndlun streitu og að ná
jafnvægi undir álagi. Skráning: info@life–
navigation.com eða gsm 663 8927. Upp-
lýsingar: www.lifenavigation.com.
ReykjavíkurAkademían | Hvernig eiga
uppteknir afar og ömmur að rækta sam-
bandið við barnabörnin. Umsjón: Jón
Björnsson sálfræðingur. Námskeiðin verða
19., 26. okt. og 2. nóv. kl. 20–22. Sjá nánar:
www.akademia.is.
Ráðstefnur
OA-samtökin | Helgina 28.–30. október
verður haldin OA ráðstefna í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, Reykjavík. Þar
munu m.a. þrír OA félagar frá Bandaríkj-
unum segja frá reynsu sinni. Einnig verður
fjallað um 12 spora kerfið, þjónustu og trún-
að o.fl. Nánari uppl. er að finna á heimasíðu
samtakanna: www.oa.is.
Útivist
Þingvellir | Gönguferðin hefst við Flosagjá
kl. 13 og gengið með Öxará þar sem urr-
iðinn og hrygningarstöðvarnar verða skoð-
aðar. Jóhannes Sturlaugsson mun kynna
rannsóknir sína og stórurriðann í Þingvalla-
vatni. Hægt er að hafa samband við Jó-
hannes í 664 7080 til að fá nánari upplýs-
ingar um efni göngunnar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 51
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Bergmál, líknar- og vinafélag | Opið
hús sunnudaginn 16. október kl. 16 í
Blindraheimilinu, Hamrahlíð 17, 2.
hæð. Gestur fundarins er Steinunn
Friðriksdóttir, formaður Styrks.
Fjöldasöngur í umsjá Gunnars Guð-
mundssonar. Veislustjóri: Þóranna
Þórarinsdóttir. Matur að hætti Berg-
máls. Þátttaka tilkynnist í síma
552 1567, 864 070 og 820 4749.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Framsögn á mánudögum 13.30–
15. Skráning stendur yfir í Bænahóp-
inn. Aðstaða til frjálsrar hópamynd-
unar. Handverkstofa Dalbrautar
21–27 býður upp á fjölbreytta starf-
semi kl. 8–16 með leiðbeinanda. Upp-
lýsingar í síma 588 9533.
Félag eldri borgara, Kópavogi,
ferðanefnd | Haustfagnaður FEBK og
FEB á Akranesi 29. okt. Skráning fer
nú fram í félagsmiðstöðvunum. Síð-
asti skráningar- og greiðsludagur að-
göngumiða er 17. okt. Miðarnir eru
seldir á skrifstofu FEBK, Gullsmára,
mán. 17. okt, kl. 10–11.30 einnig í Gjá-
bakka mán. 17. okt. kl. 15–16. Rúta fer
á Akranes.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Hljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi. Menningarhátíð FEB verður í
Borgarleikhúsinu 19. okt. kl. 14. Fjöl-
breytt dagskrá. Miðar seldir í Borg-
arleikhúsinu og skrifstofu FEB, sími
588 2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
opin listmunasýning Einars Árnason-
ar „Hjáverk í amstri daga“. Á mánud.
17. okt. kl. 10–11 er Herdís Jónsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, á staðnum, m.a.
blóðþrýstingsmæling í boði. Fimmtu-
daginn 3. nóv. er leikhúsferð í Borg-
arleikhúsið á „Lífsins tré“, skráning
hafin á staðnum og í síma 575 7720.
Hraunsel | Dansleikir á föstudögum,
tvisvar í mánuði fram að áramótum.
Ef undirtektir verða góðar þá verður
því haldið áfram eftir áramótin. Sex
dansleikir eru því framundan og
munu hljómsveitirnar Caprí-tríó, Sig-
hvatur Sveinsson, „Hrókur alls fagn-
aðar“ og Tríó Guðmundar Stein-
grímssonar leika tvisvar sinnum hver.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Gönuhlaup alla föstudaga kl.
9.30. Út í bláinn alla laugardaga kl.
10. Fullkominn skilnaður 6. nóv. kl.
20. Nánari upplýsingar í síma
568 3132.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg |
Söngur og sund á sunnudegi kl. 13–
14. Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söng-
kona, leiðir sönginn í Gerðubergi og á
eftir skella allir sér í sund í Breið-
holtslaugina. Við fáum góða gesti í
heimsókn. Næsta sunnudag er gest-
urinn hjá okkur Valgeir Guðjónsson.
Verð 500 kr. hvert skipti.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík |
Kirkjukaffi verður í safnaðarheimili
Bústaðakirkju sunnudaginn 16. okt.
eftir messuna kl. 14. Viðlagasjóð-
snefnd.
Kirkjustarf
Garðasókn | „Konur eru konum best-
ar.“ Námskeið þetta er haldið í sam-
ráði við Leikmannaskóla þjóðkirkj-
unnar, sr. Petrína Mjöll Jóhannsdóttir
hefur umsjón með námskeiðinu sem
er haldið í safnaðarheimili Garða-
sóknar, Kirkjuhvoli, 17. og 24. október
kl. 20–23. Námskeiðsgjald er 1.000
kr. Skráning í síma 565 6380 og
895 0169.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 20. www.gospel.is.
Einmana fugl á Bakkatjörn
ÉG bý í Vesturbænum og fer oft út
að Bakkatjörn á Seltjarnarnesi að
gefa fuglunum. Í sumar verptu þar
álftahjón og komu upp 5 ungum.
Það birtist að ég held mynd af þeim
í Morgunblaðinu. Ég ákvað að
skoða þá og hafði með mér brauð.
Þeir komu til mín og þáðu brauðið
og hef ég gefið þeim brauð í allt
sumar. Seinni partinn í sumar
hurfu síðan álftahjónin með 4 unga
en hröktu einn unga frá sér. Í allt
haust hef ég komið og gefið honum
og öndunum brauð.
Ég skora á þá sem ráða ríkjum í
Seltjarnarnesi að láta þennan fugl
ekki vera þarna einan og einmana í
vetur. Ég velti þeim möguleika fyr-
ir mér að þeir sem ráða ríkjum á
Seltjarnarnesi flytji hann niður á
Tjörn þar sem hann getur verið
innan um sína líka. Veit ég að fleiri
hugsa svona. Ég vona að Seltirn-
ingar geri eitthvað í þessu máli.
Fuglavinur.
Ánægð með Iceland
Express
ÉG kom heim frá Kaupmannahöfn
23. sept. sl., bókaði mig inn með
þeim fyrstu til að fá sérstakt sæti
því ég er með bilaðan fót. En þegar
ég kom í vélina var sætið sem ég
fékk bara venjulegt. Þá talaði ég
við flugfreyjuna sem heitir Hulda
Halldórsdóttir. Hún var fljót að
bjarga góðu sæti. Hún var sér-
staklega kurteis og hjálpsöm, án
þess að vera uppáþrengjandi eða
væmin.
Takk fyrir góða þjónustu.
Ánægður farþegi.
Jólin byrja í desember
ÞAÐ er miður október og jólaaug-
lýsingarnar eru byrjaðar. IKEA
ríður á vaðið og minnir á að haldið
verður upp á fæðingu frelsarans
eftir rúma tvo mánuði. Það skal
gera með vörum frá IKEA. Þá
verða jólin hlý og notaleg og allir
verða ánægðir með jól frá IKEA.
Jólabarn.
Perla er týnd
PERLA, 6 mánaða gömul hvarf 9.
október frá heimili
sínu í Engjaseli
Reykjavík. Hún er
svört og hvít, frek-
ar mikið loðin. Efri
hluti höfuðs, aftari
hluti baks og stórt
skottið er svart.
Annað er hvítt. Einnig má sjá upp-
lýsingar um hana á www.katt-
holt.is. Hún var ólarlaus. Þeir sem
hafa orðið hennar varir vinsamlega
hafið samband við Hrefnu í síma
587 0170 eða 897 2276.
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H v e R A f o l d 1 - 3 , g R A f A R v o g I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Nýtt koRtAtÍMAbIl
Ný SeNdINg
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
VARLA þarf að segja mörgum Ís-
lendingum hvar Gamla bíó er stað-
sett. Húsið er svo samofið sögu
síðustu 80 ára og hefur hýst
fjöldann allan af menningar-
viðburðum eins og bíósýningar,
tónleika, leiksýningar og baráttu-
fundi að ógleymdri Íslensku óp-
erunni sem átt hefur þar heima
síðustu 23 árin. Arkitektúr Einars
Erlendssonar myndar umgjörð um
starfsemi hússins.
Þó er það svo að framhlið húss-
ins vill hverfa í gráan hversdags-
leikann. Þeir sem stika Ingólfs-
strætið taka sjaldan eftir hinni
fallegu framhlið, jónískum súlunum
og öðrum formum. Þetta er alla-
vega skoðun nokkurra listamanna
sem allir hafa alist upp og/eða
stundað sína vinnu í nágrenni
hússins.
Í dag opnar á Næsta bar, gegnt
Gamla bíói, myndlistarsýning þessa
hóps. Þar gefur að líta hugmyndir
listamannanna um útlit hússins
eins og hver og einn sér það fyrir
sér. Hvernig húsið, að þeirra mati,
fengi notið sín sem best og gæti
þannig styrkt þá starfsemi sem þar
fer fram. Opnunin hefst kl. 17.00 á
Næsta bar með söng Hönnu Dóru
Sturludóttur sópransöngkonu sem
flytur nokkur lög við undirleik
Kurt Kopecky, tónlistarstjóra Ís-
lensku óperunnar. Sýningin verður
opin á opnunartíma Næsta bars
næstu fjórar vikurnar.
Myndlistarmennirnir sem taka
þátt í sýningunni Gamla bíó – höll
minninganna eru Ásgeir Lárusson,
Daníel Magnússon, Guðjón Sig-
valdason, Guðmundur Bjartmars,
Gylfi Gíslason, Jón Óskar, Re-
bekka Silvía Ragnarsdóttir, Sigríð-
ur Ágeirsdóttir, Sóley Anna Ben-
ónýsdóttir og Stella
Sigurgeirsdóttir, að ógleymdum
teikningum Einars Erlendssonar
arkitekts.
Tilbrigði við útlit
Gamla bíós
ÞORBJÖRG Þorvaldsdóttir og
Karen Ósk Sigurðardóttir opna
sýningar í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu í dag klukkan 15.
Á sýningu Þorbjargar eru ný
verk sem líta má á sem nokkurs
konar sjálfsmyndir. Líkön af öllum
húsunum sem hún hefur búið í
mynda ímyndaðan bæ, þar sem
allar götur eru göturnar hennar,
öll húsin hennar. Í gegnum lítinn
glugga á vegg horfum við inn í lít-
ið herbergi fullbúið nostursamlega
gerðum húsgögnum og búnaði. Á
veggina er varpað myndum af her-
bergjum í fullri stærð þannig að
það er eins og opnist inn í annan
heim. Í tómu herbergi dansar lítil
stúlka við dúkkuna sína.
Á sýningu Karenar eru blýants-,
blek og pennateikningar unnar á
árinu 2005. „Í verkum sínum túlk-
ar Karen á persónulegan hátt til-
finningar sínar á líðandi stundu.
Teikningarnar eru nostursamlega
unnar fígúratífar sjálfsmyndir.
Teiknaðar á síðkvöldum við skrif-
borðið,“ segir í kynningu.
Sýningarnar standa til 6. nóv-
ember.
Listasafn ASÍ opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.00–
17.00.
Aðgangur er ókeypis.
Þorbjörg og Karen Ósk
sýna í Listasafni ASÍ
Frá sýningu Þorbjargar Þorvaldsdóttur í Listasafni ASÍ.