Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.10.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 283 . TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Eiga sama áhugamál Íslensk feðgin hanna húsgögn í Svíþjóð | Daglegt líf Úr Verinu og Íþróttir í dag Úr verinu | Síldin selst vel  Alþjóðlegt bann við botntrolli? Íþróttir | Þórey Edda setur markið hátt  Logi Geirsson byrjaður að æfa á ný  Thierry Henry á skotskónum SADDAM Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, á að koma fyrir rétt í dag, sakaður um glæpi gegn mannkyninu, en mögulegt er þó að réttarhöld- unum verði frestað um hríð að ósk lögfræðings hans. Sjónvarpað verður frá réttarhöldunum og fréttamenn fá aðgang en almenningi verður ekki hleypt í salinn sem talið er að sé einhvers staðar í Bagdad. Einræðisherrann fyrrver- andi og sjö liðsmenn hans, sem einnig eru ákærðir, verða í stálbúrum með hljóð- nemum. Þeir munu svara til saka vegna fjöldamorða á 143 sjía-múslímum frá bæn- um Dujail árið 1982. Fimm dómarar dæma í málinu. „Réttarhöldin munu taka þann tíma sem þörf er á til að hlýða á vitni og málflutning ákærðra og rannsaka málsgögn,“ sagði dómsforsetinn, Raed al-Juhi. „Hinir ákærðu munu fá nægan tíma til að verja sig.“ Traustar vísbendingar eru sagðar vera fyrir hendi um sekt sakborninganna en Saddam lét í valdatíð sinni myrða mörg hundruð þúsund sjíta og Kúrda. Var m.a. beitt eiturgasi til að myrða um 5.000 Kúrda, aðallega konur og börn, í bæn- um Halabja árið 1988. Fleiri ákærur munu verða birtar síðar en oft mun vera erfitt að rekja skip- anir um verstu ódæðin beint til Saddams. Amnesty og fleiri alþjóðleg mannréttinda- samtök óttast að brotin verði ákvæði um sann- gjarna málsmeðferð í réttarhöldunum. Niðurstöðum seinkar Niðurstöður í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Írak um stjórnarskrána verða sennilega ekki birtar fyrr en eftir nokkra daga, að sögn kjör- nefndar. Hyggst hún fara vandlega yfir kjör- gögn frá nokkrum svæðum þar sem kjörsókn þótti óeðlilega mikil eða úrslitin ótrúverðug. Saddam fyrir rétt Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Saddam Hussein HÆKKUN vaxta af íbúðalánum úr 4,15% í 4,35% er ein af þeim forsendum sem greiningardeild KB banka gengur út frá í nýrri spá deildarinnar um þróun á fast- eignamarkaði á næstu tólf mán- uðum. Um er að ræða vexti af nýjum lánum, en vextir af eldri lánum kvæmdir á árunum 2007 til 2009 og enn fremur sé því spáð að fólki á húseignaraldri fjölgi um 50 þús- und fram til ársins 2020. Það muni kalla á mikla útþenslu höf- uðborgarsvæðisins á þeim tíma. Verðþróun fasteigna á þessu tímabili muni þó velta að miklu leyti á lóðaúthlutunum sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu, að mati greiningardeildar KB banka. að markaðurinn myndi lækka í niðursveiflunni 2007 og 2008. Það hefði alltaf gerst í niðursveiflu í efnahagslífinu. Telur horfur vera góðar Hins vegar sagði hann að þeg- ar til lengri tíma væri litið séu horfur hins vegar mjög góðar á fasteignamarkaði og í bygging- ariðnaði. Ákveðið hafi verið að leggja út í töluverðar stórfram- haldast óbreyttir. Þá spáir deild- in því að fasteignaverð muni hækka um 6% á næstu 12 mán- uðum. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka, sagði á ráðstefnu sem bankinn hélt í gær um horfur á fasteigna- markaði, að markaðurinn hefði nú náð nokkru jafnvægi eftir miklar hækkanir síðustu tólf mánuði. Þá væri nánast öruggt Spá því að vextir af íbúða- lánum hækki í 4,35% Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is STARFSMENN Fosskrafts í Fljótsdal vinna nú hörðum höndum í stöðvarhúshelli Kára- hnjúkavirkjunar við að steypa undir og utan um vélbúnað sem kemur ofan á risastóra járnsnigla. Steypt er látlaust frá morgni til kvölds en alls starfa nú um 130 manns hjá Fosskrafti. Þeim gæti eitthvað fjölgað þegar vinna hefst á ný næstu daga við fóðrun tveggja fallganga niður í stöðv- arhúsið. Sú vinna lagðist niður fyrir um mánuði vegna gjaldþrots Slippstöðvarinnar. Aðrir verk- þættir eru á áætlun og er enn stefnt að því að gangsetja fyrstu túrbínu virkjunarinnar af sex í apríl árið 2007. Setja á hverfla stöðvarhússins nið- ur næsta vor. | 9 Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Steypt undir vélbúnað við Kárahnjúka MIKILL flutningur hefur verið á aflamarki innan krókaaflamarks- kerfisins frá því sóknardagakerfið var lagt niður. Þannig hafa verið fluttar heimildir sem svara til 1.840 tonna af þorski frá Vest- fjörðum á síðasta fiskveiðiári. Langmest hefur verið flutt á Reykjanesið, eða ígildi 2.900 tonna af þorski. Mestur þorskkvóti í krókaafla- markskerfinu er nú í Grindavík, 3.200 tonn, en næst kemur Gríms- ey með ríflega 2.000 tonn, þá Ólafsvík með 1.700 tonn, Bolung- arvík með tæp 1.200 tonn og Höfn í Hornafirði með 1.100 tonn. Bátum í krókaaflamarkskerfinu hefur fækkað mikið að undan- förnu, en jafnframt hafa þeir stækkað. Eru þeir rúmlega 100 færri en fyrir ári. Skýringin er sú að með aflagningu sóknardaga- kerfisins hafa aflaheimildir verið sameinaðar á stærri bátana og þeir smærri verið úreltir. | B1 Miklar afla- heimildir fluttar frá Vestfjörðum SÝNING Vesturports á Woyzeck í Barbican-listamiðstöðinni trónir efst á lista Nicholas de Jongh, gagnrýnanda Evening Standard, yfir áhugaverðustu sýningarnar í London þessa viku. Gagnrýnandinn setur Woyzeck í fyrsta sæti en aðrar sýningar á listanum eru ekki af verri end- anum; Grafskrift fyrir George Dil- lon eftir John Osborne með Jos- eph Fiennes í aðalhlutverki, söngleikurinn um Mary Poppins, uppfærsla Trevors Nunns á Rík- harði II eftir Shakespeare með Kevin Spacey í aðalhlutverki og söngleikur Mel Brooks, Framleið- endurnir (The Producers), sem slegið hefur í gegn beggja vegna Atlantshafsins. Woyzeck í góðum félagsskap ♦♦♦ KOMIÐ hefur í ljós að ratsjá til hraðamæl- inga með leysigeisla, sem notuð er m.a. í Bretlandi og Noregi, sýnir stundum kolrang- ar niðurstöður. Vefsíða norska blaðsins Aft- enposten vitnar m.a. í breska fjölmiðla en þar kemur fram að tækið hafi gefið til kynna að bíll, sem hafði verið lagt í stæði, væri á 14 km hraða. Annars staðar var húsveggur á 27 km hraða. Hjólreiðamaður, sem í reynd var á þriggja km hraða, taldist vera á 20 km hraða. Enn fremur kom í ljós að tækið mældi stundum hraðann á bílum sem ekið var fram hjá en ekki þeim sem athyglinni var beint að. Félag norskra bíleigenda hefur gagnrýnt rat- sjármælingar lögreglunnar og efast um ná- kvæmni þeirra og gæði. „Rafmagnskaplar og endurkast geta brenglað niðurstöður mæl- inganna. Einnig hefur verið bent á að tækin hafa ekki náð að mæla hraða vélhjóls og hafa þá í staðinn mælt hraða bílsins aftan við hjól- ið,“ segir talsmaður félagsins, Egil Otter. Leysitækið sem notað er hjá umferðarlög- reglunni í Noregi til hraðamælinga heitir LTI 20.20. „Það er rétt, við notum þessa gerð,“ segir yfirmaður umferðarlögreglunnar, Roar S. Larsen. „En á döfinni er að kaupa ný tæki.“ Að sögn Jóns Friðriks Bjartmarz, yfirlög- regluþjóns hjá embætti Ríkislögreglustjóra, er eina hraðamælingatækið sem lögreglan hér á landi notar af gerðinni Pro Laser II. Kyrr í stæði en hraðinn 14 km ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.