Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 3
Nýir tímar
í Reykjavík
www.gislimarteinn.is
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík fer fram dagana 4. og 5. nóvember.
Prófkjörið er opið öllum félagsmönnum flokksins 16 ára og eldri sem hafa skráð sig fyrir 1. nóvember.
Skráning fer fram á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is.
Leysum umferðarhnútana
Fólk gerir þá sjálfsögðu kröfu að komast greiðlega leiðar sinnar í borginni.
Við eigum að leysa umferðarhnútana, hvort sem það er með mislægum
gatnamótum, umferð í stokkum, brúm eða göngum. Sundabraut og
mislæg gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut eru forgangsmál.
Almenningssamgöngur eiga að vera raunhæfur valkostur í borginni.
Búum til bestu skólana
Við eigum að stuðla að fjölbreytni í skólakerfinu. Sama fjárframlag
á að fylgja nemendum í sjálfstæðum skólum og nemendum í skólum
borgarinnar. Með þeirri hvatningu sem fylgir heilbrigðri samkeppni
leysum við úr læðingi metnað og áræði þess frábæra fagfólks sem
heldur utan um menntun barnanna okkar. Þannig bætum við
og eflum alla skólana í Reykjavík.
Frá fortíð til framtíðar
Reykjavíkurborg er þjónustufyrirtæki. Góð þjónusta snýst um að hlusta
á fólk og bregðast við óskum þess. Alls staðar í kringum okkur sjáum við
nútímavæðingu í rekstri og þjónustu, með endurnýjun, nýsköpun og nýrri
tækni. Borgin hefur ekki fylgt þessari þróun. Við gerum kröfu um ábyrga
fjármálastjórnun og skilvirkt stjórnkerfi. Með nýju fólki og nýrri hugsun
getum við tekið skrefið frá fortíð til framtíðar.
Gerum betur við aldraða
Okkur ber skylda til að auðvelda fólki að takast á við breyttan takt í lífinu
þegar aldurinn færist yfir. Spýtum í lófana, fjölgum þjónustuíbúðum og
hjúkrunarrýmum, eflum heimahjúkrun og lækkum fasteignagjöld hjá
eldri borgurum. Við búum í ríku þjóðfélagi og eigum ekki að samþykkja
að hækkandi aldur leiði til verri kjara. Það á að vera gott að eldast
í Reykjavík.
Húsnæði að óskum borgarbúa
Við eigum að skipuleggja framtíðina í borginni í samræmi við þarfir
íbúanna. Við þurfum margfalt fleiri einbýlishúsalóðir en þær 14 sem
úthlutað var á síðasta ári. Á Geldinganesi og í Örfirisey má skipuleggja
byggð fyrir þúsundir íbúa og fullnægja þannig þörf fyrir nýtt húsnæði
í Reykjavík næstu árin. Þá skapar Vatnsmýrin ótakmarkaða möguleika
og mun gera Reykjavík að skemmtilegri borg.
Borg fjölskyldunnar
Við eigum að gera stórátak í að bæta umhverfi okkar. Fólk velur sér
framtíðarheimili með hliðsjón af því hvort umhverfið sé hreint og vistlegt.
Fyrirtæki setjast að þar sem starfsfólkinu líður vel. Við þurfum góða
aðstöðu fyrir íþróttafélög, aðlaðandi skólalóðir, skemmtileg og hrein
opin svæði og leikvelli sem hvetja til útivistar fjölskyldunnar og laða fólk
að borginni okkar.
framtíðarsýn gísla marteins í borgarmálum
veljum leiðtoga til framtíðar
gísla martein í 1. sætið