Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 15 ERLENT SKÓLABÖRN virða fyrir sér grameðlu á risaeðlusýningu sem opnuð var á safninu Palais de la Découverte í París í gær. Sýn- ingin nefnist „Veisla risaeðlanna“ og á að standa til 25. apríl á næsta ári. Náttúrufræðisafnið í London hannaði risaeðlurnar sem eru sýndar í fullri stærð í leit að fæðu. Reuters Risaeðlur í fæðuleit París. AFP. | Brasilísk börn verja að jafnaði lengri tíma fyrir framan sjónvarpið en jafnaldrar þeirra í Bandaríkjunum. Brasilíubörnin eru 3,5 klukkustundir á degi hverj- um fyrir framan skjáinn, banda- rísku börnin hálftíma skemur. Vin- sældir sjónvarpsstöðva sem einbeita sér að efni fyrir börn vex hratt á kostnað hefðbundinna stöðva. Börn í níu löndum tóku þátt í al- þjóðlegri könnun sem kynnt var á mánudag í Cannes í Frakklandi. Yngstu börnin í könnuninni voru á aldrinum 2–4 ára en þau elstu 11– 15 ára. Fram kemur að börn í Þýskalandi horfa einungis á sjón- varp í 1,5 stundir á dag en frönsk börn hálftíma betur. Börn í Indónesíu vörðu 3,1 stund fyrir framan sjónvarpið, börn í Suður- Afríku 2,6 stundum en spænsk börn einungis 2,5 klukkustundum fyrir framan sjónvarpið. Þá horfðu bresk börn á sjónvarp í 2,3 klukkustundir á hverjum degi. Sum glápa meira en önnur KENNETH Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, varð fyrir áfalli í gær er hann varð neðstur í fyrstu umferð leiðtogakjörs Íhalds- flokksins. Clarke fékk aðeins 38 atkvæði í fyrstu umferðinni og verður því ekki með í þeirri sem fram fer á fimmtu- dag. Þingmenn flokksins greiða at- kvæði í fyrstu tveimur umferðunum. Almennir flokksmenn munu síðan greiða atkvæði í desembermánuði um þá tvo sem ná að komast áfram. Flest atkvæði í gær fékk David Davies eða 62. Næstur kom David Cameron með 56 og þriðji varð Liam Fox með 42. Einn þessara þriggja mun síðan falla út eftir seinni umferðina á fimmtudag. Clarke sem er 56 ára hefur tví- vegis áður sóst eftir leiðtogaembætti Íhaldsflokksins. Hann nýtur umtalsverðrar alþýðu- hylli ef marka má skoðanakannanir. Stjórnmálaskýrendur sögðu að lé- legt gengi hans í gær mætti að lík- indum rekja til þess að hann hefði löngum upphafið ágæti Evrópusam- runans. Margir íhaldsmenn telja að nú þegar hafi of langt verið gengið í þeim efnum á vettvangi Evrópusam- bandsins. Clarke var reyndastur frambjóð- enda og sagði hann úrslitin „mikil vonbrigði“. Nú er þess beðið að hann lýsi yfir stuðningi við einn þeirra þriggja sem eftir standa. Búist er við að margir þeirra sem studdu Clarke í gær hyggist kjósa Cameron á fimmtudag. Kenneth Clarke Kenneth Clarke féll í fyrstu umferð leiðtogakjörsins Washington. AP, AFP. | Hæstiréttur Bandaríkjanna í Washington vís- aði á mánudag frá kröfu banda- rískra stjórnvalda um sektar- greiðslur frá tóbaksfyrirtækjum sem sökuð eru um að hafa blekkt neytendur með tilliti til hættunn- ar af reykingum. Ríkisstjórn Bandaríkjanna fór fram á skaða- bætur upp á 280 milljarða Banda- ríkjadala, eða yfir 9.000 milljarða íslenskra króna. Niðurstaðan þykir vera stórsig- ur fyrir tóbaksfyrirtækin en mál- ið gegn þeim var höfðað árið 1999. Málinu er þó ekki lokið því að alríkisdómari sem fjallað hefur um málið undanfarna níu mánuði á eftir að úrskurða hvort tóbaks- framleiðendur séu sekir um brot á lögum um sviksamlegt athæfi. Þótt hæstiréttur ákvæði í gær að fjalla ekki frekar um málið að sinni gæti því farið svo að málið yrði tekið upp að nýju á næsta ári. Úrskurður réttarins sneri eingöngu að skaðabótunum. Tóbaks- fyrirtæki vinna sigur ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.