Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég gleymi aldrei fyrstu sögunni sem ég heyrði af Hæli í Flókadal, en söguna sagði faðir minn sem var vinnumaður þar eins- og ég varð síðar. Sagan er sú að hann hefði verið beðinn um að fara að reyta arfa í kartöflugarðinum sem þótti ekki til virðingar í píra- mída verka á sveitabæ. Hann hlýddi þó. Á leiðinni sér hann mykjuskán á túninu og lætur til- JAKOB GUÐMUNDSSON ✝ Jakob Guð-mundsson fædd- ist á Hæli í Flókadal 31. maí 1913. Hann lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi 26. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Reykholtskirkju laugardaginn 8. október. finningar sínar í ljós og dúndrar einsog at- vinnumaður í knatt- spyrnu. Mykjan þeyttist þó ekki um túnið einsog fyrir var lagt heldur var fyr- irstaða sem braut eina litla strákatá. Þetta var þá klettur í túni en ekki mykja. Ég var 7 ára þegar ég fór í mína fyrstu sumardvöl á Hæli í Flókadal. Vinir mínir úr fótboltanum í Ár- manni vorkenndu mér það þeim fannst ekkert benda til þess að ég þyrfti á Hæli að halda. Ég reyndi að útskýra að bærinn héti í raun Hæll en á Hæli var ég að fara. Ég var þar átta sumur eftir það. Betri maður í dag eftir að Jakob kenndi mér lífsins gildi og um prinsessur heimsins. Jakob hafði þann eigin- leika að láta mann áreynslulaust þykja vænt um sig. Gildi hans voru áreynslulaus. Hann var bara Jakob og þegar eftir góðan hádegisverð frú Ingu, að hann sagði „jæja“ vissi maður að kominn var tími til að fara aftur til vinnu. Jakob bar virð- ingu fyrir náttúrunni og dýrunum og þeim þurfti að sinna að kost- gæfni. Skyldan við búið var númer eitt. Hann var snillingur og góður maður sem með þolinmæði og kænsku lét mann aldrei finna fyrir hversu lélegur bóndi maður var í raun. Þetta veit ég vegna þess að bróðir minn, Bjarni, sem var þarna 11 sumur var betri vinnumaður en ég en samt trúði ég því að ég væri jafn góður. Jakob gerði ekki mun á mönnum. Það var mikið af góðu fólki á Hæli. Það var einsog að það sogaði að sér manngæsku. Allir sem voru þar eru í hjarta sínu þakklátir fyrir að gefa þeim tækifæri til að þrosk- ast með gildi sem erfitt er að finna í dag. Ég elska ykkur öll sem hjálp- uðuð mér til að vera Lalli. Ég veit að dvöl mín á „Hæli“ gerði mig að betri manni. Lárus Halldórsson. Árið 1945, í nóvem- ber, auglýsti ég eftir húsnæði í Morgunblaðinu. Sama dag kom maður inn í verslun þar sem ég vann. Ég þekkti hann lítið, en vissi þó að hann var vestan úr Reykhólasveit. Þessi maður var Gunnar Þórðarson, sem nú er kvaddur hinstu kveðju. Hann bauð mér herbergi til leigu með aðgangi að eldhúsi. Ég tók þessu boði með þökkum og við Kristín fluttum inn í desember sama ár. Eftir það slitnaði aldrei samband okkar Kristínar við Gunn- GUNNAR GÍSLI ÞÓRÐARSON ✝ Gunnar GísliÞórðarson fæddist á Hallsteins- nesi í Gufudalssveit 10. apríl 1918. Hann lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 16. september síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Há- teigskirkju 23. sept- ember. ar og hans góðu konu Elísabetu Sveinsdótt- ur. Vinskapurinn hélst því í um hálfa öld. Það var mikið lán fyrir okkur hjónin að kynnast þessum heið- arlegu og vel gerðu hjónum. Samkomu- lagið var eins og best varð á kosið. Það fóru aldrei styggðaryrði á milli okkar alla tíð síðan, og voru þau hjónin okkar bestu vinir frá upphafi þessa tímabils. Gunnar var vel greindur, prúð- menni hið mesta, afskaplega orðvar og deildi ekki á aðra, samvisku- samur og vandaður í fyllsta máta. Hann var afar hógvær maður og virtist aldrei skipta skapi. Gunnar var og mikill reglumaður á vín og tóbak. Við Kristín áttum margar ánægjulegar og skemmtilegar stundir með þeim hjónum frá fyrstu kynnum okkar og margar góðar minningar frá liðinni tíð. Við sökn- um góðs og hugljúfs vinar okkar. Þó við höfum verið erlendis að mestu undanfarin ár, þá slitnaði aldrei sambandið á milli okkar. Við höfðum alltaf samband bæði sím- leiðis og með bréfaskriftum. Síðast heimsóttum við Gunnar í sumar á heimili hans á Dalbraut 18 í Reykjavík, þar sem hann bjó síð- ustu árin. Síðustu dagana lá hann á sjúkra- húsi og beið eftir lokastundinni, sáttur við guð og menn, þar sem hans elskulega kona beið hans hin- um megin við tjaldið til að taka á móti sínum ágæta eiginmanni. Gunnar var mikið snyrtimenni og hjá honum var allt í röð og reglu. Þau hjón Gunnar og Elísabet áttu fimm mannvænleg börn, sem öll eru gift og hafa komið sér vel fyrir í þjóðfélaginu, reglusamt og vel gert fólk. Við hjónin söknum góðs vinar sem við áttum sem betur fer sam- leið með í rúma hálfa öld, með þeim minningum sem best verður á kos- ið. Við þökkum þér, vinur, trygga og langa samleið. Við vottum börn- um hins látna og öðrum ættingjum innilegustu samúð okkar og biðjum þeim guðs blessunar. Gestur Guðmundsson, Kristín Katarínusardóttir. Sæl vertu, Kristín nafna mín. Svona heilsaði Jóhanna frænka mín mér ævinlega. Ég man að sem krakka fannst mér þetta skrýtið því hún hét jú ekki Kristín. Hún nafna mín kom á hverju sumri norður á Langanes, það var eins áreiðanlegt og að þrestirnir kæmu í blómagarðinn hennar ömmu. Við krakkarnir hlökkuðum alltaf mikið til komu hennar og það var hægt að ganga að því sem vísu að á fyrsta degi yrði fjallinu heilsað með virktum og næsta dag væri vaknað snemma, snúið á móti sólu, farið í jóga og haldið í fjall- göngu. Við stálumst nú stundum til að undirbúa okkur fyrir göng- una miklu og fórum í æfingaferðir. Hún frænka okkar var nefnilega hörku göngugarpur og ekki vildum JÓHANNA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR ✝ Jóhanna Mar-grét Þorsteins- dóttir fæddist á Syðri Brekkum á Langanesi í Norður- Þingeyjarsýslu hinn 7. september 1912. Hún andaðist á heimili sínu, Dal- braut 27, hinn 4. október síðastliðinn og var jarðsungin frá Áskirkju 13. október. við að hún stingi okk- ur af! Fyrsta stopp var alltaf í Bollanum og við látin gera önd- unaræfingar svo að örugglega væri nóg loft í lungunum fyrir gönguna upp á brún. Jóhanna stjórnaði hópnum eins og her- foringi, allt príl var stranglega bannað og ekki mátti koma ná- lægt hreiðrunum hans krumma. Henni frænku minni þótti óskaplega vænt um fjallið sitt og einu sinni sagði hún mér að þar væri búið í mörgum steinum. Þetta þótti mér undarlegt en mótmælti þó ekki, því ég bar mikla virðingu fyrir þessari nöfnu minni sem tók á móti mér þegar ég fæddist. Hún hafði líka tekið á móti mömmu og pabba og hlyti því að vera fjör- gömul! Sennilega hefur Jóhanna séð votta fyrir efasemdarsvip því daginn eftir bauð hún mér með sér í göngutúr upp á Kerlingu. Þar bankaði hún þremur höggum á stóran stein, spjallaði heillengi við íbúana og kynnti mig svo. Þarna bjó sem sagt sjálfur álfakóngur, í stóru höllinni sinni með útsýni yfir hafið og fjöllin. Ég man nú ekki al- veg hvað ég var gömul þarna en ég man hvað mér fannst þetta ótrú- lega merkilegt. Síðan hef ég verið sammála nöfnu minni. Það er sko fullt af íbúum í fjallinu og þegar ég fer á Langanesið labba ég iðu- lega upp á Kerlingu til að heilsa upp á álfakóng sem nú er orðinn ansi gamall. Fjallið þitt eina biður að heilsa. Þín nafna Kristín Jóhanna. Jóhanna Þorsteinsdóttir eða Jó- hanna ljósa eins og hún var alltaf kölluð á mínu æskuheimili er minnisstæð persóna. Hún var æskuvinkona og frænka föður míns, Jóhanns Friðrikssonar í Kápunni, og kom iðulega í lysti- túra á sumrin upp í sumarbústað- inn okkar sem hún kallaði Sum- arhótelið sitt; reið út í heiðinni, söng og fór með vísur, fékk sér í staupinu og síðast en ekki síst tók hún í spil. Mig minnir að það hafi verið hún sem kenndi okkur systr- um að halda rétt á spilum og taka áhættu; gat þó verið býsna tapsár. Jóhanna hló mikið, átti til að fara í jógastöðuna köttinn í miðju spjalli og blóta hressilega ef henni fannst spilamennskan ekki ganga nógu vel. Hún gaf sig að okkur systrunum, hélt okkur fínustu boð og bauð okkur með á sinn uppá- haldsstað, Þórsmörk, þar sem við fengum að gista í svítunni hennar. Hún kenndi mér að njóta náttúr- unnar og hafa gaman af lífinu – fyrir það er ég henni þakklát. Ingibjörg Jóhannsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, ÁRNI BJARNASON, Fögruhlíð 7, Hafnarfirði, andaðist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, laugar- daginn 15. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ruth Árnadóttir, Guðmundur Jónsson, Ása Bjarney Árnadóttir, Jón Örn Pálsson, Guðný Hildur Árnadóttir, Guðleifur Guðmundsson, Haraldur Árnason, Valgerður Bjarnadóttir, Árni Özur Árnason, Díana Ósk Pétursdóttir, Reynir Bjarnason, Guðný Bernhard, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir mín, amma okkar og langamma, SIGRÍÐUR GUÐRÚN BENÓNÝSDÓTTIR, Fossagötu 10, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt mánu- dagsins 17. október. Útförin verður auglýst síðar. Elísabet S. Magnúsdóttir, Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, Sigríður Erla Eysteinsdóttir, Jóhannes Hermannsson, Magnús Þór Gylfason, Elva Dögg Melsteð, Þóra Björk Eysteinsdóttir, Gunnar Wedholm Helgason, Helga Björg Gylfadóttir, Gunnar Theodór Eggertsson og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og tengda- móðir, EYDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Kveldúlfsgötu 14, Borgarnesi, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 17. október. Jarðarförin auglýst síðar. Þorsteinn G. Benjamínsson, Guðmundur Valgeir Þorsteinsson, Inga Dögg Þorsteinsdóttir, Kjartan Ásþórsson, Arnar Þór Þorsteinsson. Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, PÁLL SIGURÐUR STEFÁNSSON, Hnappavöllum, Öræfum, lést á hjúkrunarheimilinu Höfn, Hornafirði, aðfara- nótt mánudagsins 17. október. Þórður Stefánsson, Sigrún Bergsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og systkinabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN EIÐUR EIÐSSON, Holtsgötu 14c, Njarðvík, lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi mánudaginn 17. október. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 21. október kl. 13:00. Hrönn Kjartansdóttir, Kristján Stefánsson, Kjartan Kjartansson, Ingibjörg Pálsdóttir, Gylfi Kjartansson, Jóhannes Kjartansson, Hjördís Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.