Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Samkvæmiskjólar og -jakkar Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207 www.ljósmynd.is Fermingarmyndartökur Tilboðsmyndatökur Fjölskyldumyndatökur Pantið tímanlega Fræðslufundur Fræðslufundur fyrir ömmur, afa og ættingja barna með athyglisbrest og ofvirkni. Fjallað verður um: Hvernig einkenni athyglisbrests og ofvirkni hjá barni hefur áhrif á alla fjölskylduna. Fyrirlesari Gylfi Jón Gylfason, sálfræðingur. Fimmtud. 20. október kl. 20.00 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Allir velkomnir. Hverfisgötu 6, sími 562 2862 S O K K A B U X U R Hreinn og mjúkur ullar- og bómullarfatnaður, ullarinnlegg fyrir brjóstagjöfina, ullargærur og allt sem þarf og að sjálfsögðu heilsuhornið fyrir alla fjölskylduna! Skólavörðustíg 41, sími 551 2136 – www.thumalina.isAllt fyrir mömmu og litla krílið Ljósakrónur Borðstofuborð Íkonar Skrifborð www.simnet.is/antikmunir — Nýkomnar vörur— Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977. LEIÐTOGAR stjórnmálaflokkanna virðast yfirleitt vera þeirrar skoðunar að niðurstaða fjölmiðlanefndar um eign- arhlutdeild í fjölmiðlum sé sá grunnur sem áfram verði byggt á. Samkomulag hafi náðst um þá málamiðlun. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali við Morgunblaðið að hann teldi að málamiðlunin, sem náð- ist í fjölmiðlanefnd um 25% eignarhlut hvers aðila í fjöl- miðlum, sé of há. Réttara væri að miða við lægra hlutfall. Ekkert nýtt komið fram Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra og formaður Framsóknarflokks- ins, minnti á að niðurstaða fjölmiðla- nefndarinnar hafi verið sú að miða við 25% eignarhlutdeild í fjölmiðlum. Fulltrúar allra flokka hafi staðið að þeirri niðurstöðu. „Við viljum byggja framhaldið á því. Við teljum að það hafi ekkert nýtt kom- ið fram í málinu sem kallar á breyt- ingar á þeirri niðurstöðu,“ sagði Hall- dór. Sáttargjörð við fólkið í landinu „Við í Samfylkingunni tókum heils- hugar þátt í fjölmiðlanefndinni með það að markmiði að ná sameiginlegri niðurstöðu sem gæti verið grundvöllur lagasetningar,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar- innar. Hún sagði og að í nefndinni hafi náðst sáttargjörð. „Hún er ekki bara á milli flokkanna, sem sátu í nefndinni, heldur leit ég á þetta sem sáttargjörð stjórnmálamanna við fólkið í landinu og við skulduðum fólkinu þessa sátt- argjörð. Að það væri ekki stöðugt verið að troða illsakir við fjölmiðlana.“ Ingibjörg Sólrún sagði að nefndarmenn hafi allir lagt sig fram í þessu máli. Menntamálaráðherra hafi sagt að nefndarálitið væri söguleg niðurstaða, sem löggjöf yrði byggð á. Það hafi forsætisráðherra einnig sagt. „Ef Geir H. Haarde ætlar að gera það að sínu fyrsta verki að rjúfa þessa sáttargjörð þá fer hann illa af stað sem formaður Sjálfstæðisflokksins.“ Krafa setur málið í uppnám „Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að halda sig við þá kröfu að hlutfallið fari verulega niður fyrir það, sem fjölmiðla- nefndin náði sem lendingu, held ég að sé verið að setja málið í talsvert upp- nám,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Hann taldi að allir stjórnmálaflokkarnir hafi teygt sig í sáttaátt í starfi fjölmiðla- nefndarinnar. Menn hafi síðan talið álit nefndarinnar vera grunn að ákveðinni sátt um málið. „Ef einn flokkur ætlar að fara að setja skilyrði um eitt- hvað annað en þar náðist sátt um held ég að málið sé komið á nýtt stig. Og ekki kannski auðvelt að vinna málið upp á nýtt þegar einn aðili mætir að borðinu með fyrirfram ákveðin skilyrði. Mér finnst svolítið að Sjálfstæðisflokk- urinn sé að setja þetta mál í uppnám á nýjan leik.“ Best að reyni á það á hvað menn geti sæst Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs, sagðist hafa lesið úr orðum Geirs H. Haarde viðleitni til „diplómatískrar stöðutöku“. „Annars vegar vill hann að sjálfsögðu virða og tala í samræmi við ályktanir landsfundarins. Hins vegar gerir hann sér grein fyrir því vonandi, að það er ekki spennandi fyrir stjórn- arflokkana að leggja upp í nýjan fjöl- miðlaleiðangur með allt upp í loft.“ Geir hafi haldið til haga sjónarmiði landsfundarins um að hlutfallið væri of hátt, en greinilega verið á þeim nótum að ná verði samkomulagi um málið. „Ég held að best sé að það reyni á það í framhaldinu, verði frekara samstarf um málið milli flokkanna, á hvað menn geti sæst ef það er ekki niðurstaða fjölmiðlanefndarinnar.“ Steingrímur sagði að VG hefði þótt niðurstaða fjölmiðla- nefndarinnar alveg viðunandi, með þeim fyrirvörum sem voru almennt gerðir. Áfram byggt á niður- stöðu fjölmiðlanefndar Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Halldór Ásgrímsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Guðjón A. Kristjánsson Steingrímur J. Sigfússon BORGARSTJÓRINN í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna end- urvakningar Kvennafrídagsins næst- komandi mánudag. Segist borgar- stjóri fagna þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar eru og að allt of hægt gangi að jafna launamun kynjanna. Borgarstjóri lýsir yfir stuðningi við almenna þátttöku kvenna í aðgerð- unum. Konur meðal starfsmanna Reykjavíkurborgar eru hvattar til þátttöku eftir því sem aðstæður leyfa og beinir því til stjórnenda á vinnu- stöðum borgarinnar að bregðast já- kvætt við óskum kvenna um að leggja niður vinnu í þeim tilgangi. Hvetur borgarstjóri konur einnig til þess að komast að samkomulagi við starfsmenn og stjórnendur um til- högun og segir að stjórnendur verði að meta hverju sinni að hve miklu leyti hægt verði að koma til móts við óskir starfsmanna þannig að nauð- synleg þjónusta skerðist ekki. Erlendir fjölmiðlar sýna áhuga Í breska blaðinu The Guardian birtist í gær grein eftir Önnudís Run- ólfsdóttur þar sem saga Kvennafrí- dagsins er rakin og sagt frá því að leikurinn verði endurtekinn mánu- daginn 24. október næstkomandi. Segir í greininni að mörgum finnist ekki nóg hafa áunnist á þessum 30 ár- um og að konur á Íslandi hyggist koma með potta og pönnur í vinnuna og berja á þau til að skapa eins mik- inn hávaða og mögulegt er en hvort yfirvöld heyri í þeim eigi eftir að koma í ljós. Á Ísafirði mun kröfuganga hefjast frá Silfurtogi kl. 15 og í framhaldi af göngunni verður haldin baráttuhátíð í tali og tónum. Hvetur undirbúnings- hópur kvennafrísins á Ísafirði konur til að klæðast litskrúðugum og glað- legum klæðnaði og að þær hafi með sér viðeigandi háreystibúnað. Hátíðar- og baráttufundur mun fara fram í Sjallanum á Akureyri kl. 15 og eru allar konur í Eyjafirði hvattar til að mæta og sýna samtöðu í verki. Fundurinn verður öllum opinn og eru foreldrar hvattir til að sækja börn sín á leikskóla um kl. 14.08 svo konur sem þar starfi geti einnig átt möguleika á að sækja fundinn. Stúdentaráð Háskóla Íslands skor- ar á allar stúdínur og starfskonur Háskóla Íslands að leggja niður störf klukkan 14.08 þann 24. október næst- komandi, kvennafrídaginn, og lýsa þannig andúð sinni á þeim kyn- bundna launamun sem til staðar sé á Íslandi. Stúdentaráð hvetur einnig alla stúdenta og starfsmenn Háskóla Íslands til að sýna samstúdínum og samstarfskonum sínum stuðning í verki. Borgarstjóri segir allt of hægt ganga að jafna launamun Hvetur konur hjá borginni til þátttöku í aðgerðunum KAPIL Sibal, vísinda- og tæknimálaráðherra Indlands, verður í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra í dag og á morg- un. Í tengslum við fund ráð- herranna verða undirritaðir samningar um menningar- og vísindasamstarf Íslands og Indlands. Kapil Sibal mun einnig eiga fundi með Ólafi Ragnari Gríms- syni, forseta Íslands, Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og Einari Kristni Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra. Í heimsókninni mun Sibal heimsækja fjölmargar íslensk- ar stofnanir og fyrirtæki. Vísindaráð- herra Ind- lands hingað LÖGMAÐUR Reykjavíkurborgar hitti í gær fulltrúa stóru olíufélag- anna þriggja og ræddi við þá um bótakröfu borgarinnar vegna ólög- legs samráðs félaganna í viðskipt- um. Fleiri fundir verða haldnir á næstunni, að sögn Helgu Jónsdótt- ur borgaritara. Lögmaður borgarinnar í þessu máli er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. Helga sagði að hann hefði greint frá því að viðræðum væri ekki lokið og að halda þyrfti fleiri fundi fyrir lok næstu viku. Reykjavíkurborg krefst 150 milljóna króna í skaðabætur auk dráttarvaxta og innheimtukostnað- ar. Borgin og olíu- félögin ræða bótakröfu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.