Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 3

Morgunblaðið - 19.10.2005, Side 3
Nýir tímar í Reykjavík www.gislimarteinn.is Prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík fer fram dagana 4. og 5. nóvember. Prófkjörið er opið öllum félagsmönnum flokksins 16 ára og eldri sem hafa skráð sig fyrir 1. nóvember. Skráning fer fram á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is. Leysum umferðarhnútana Fólk gerir þá sjálfsögðu kröfu að komast greiðlega leiðar sinnar í borginni. Við eigum að leysa umferðarhnútana, hvort sem það er með mislægum gatnamótum, umferð í stokkum, brúm eða göngum. Sundabraut og mislæg gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut eru forgangsmál. Almenningssamgöngur eiga að vera raunhæfur valkostur í borginni. Búum til bestu skólana Við eigum að stuðla að fjölbreytni í skólakerfinu. Sama fjárframlag á að fylgja nemendum í sjálfstæðum skólum og nemendum í skólum borgarinnar. Með þeirri hvatningu sem fylgir heilbrigðri samkeppni leysum við úr læðingi metnað og áræði þess frábæra fagfólks sem heldur utan um menntun barnanna okkar. Þannig bætum við og eflum alla skólana í Reykjavík. Frá fortíð til framtíðar Reykjavíkurborg er þjónustufyrirtæki. Góð þjónusta snýst um að hlusta á fólk og bregðast við óskum þess. Alls staðar í kringum okkur sjáum við nútímavæðingu í rekstri og þjónustu, með endurnýjun, nýsköpun og nýrri tækni. Borgin hefur ekki fylgt þessari þróun. Við gerum kröfu um ábyrga fjármálastjórnun og skilvirkt stjórnkerfi. Með nýju fólki og nýrri hugsun getum við tekið skrefið frá fortíð til framtíðar. Gerum betur við aldraða Okkur ber skylda til að auðvelda fólki að takast á við breyttan takt í lífinu þegar aldurinn færist yfir. Spýtum í lófana, fjölgum þjónustuíbúðum og hjúkrunarrýmum, eflum heimahjúkrun og lækkum fasteignagjöld hjá eldri borgurum. Við búum í ríku þjóðfélagi og eigum ekki að samþykkja að hækkandi aldur leiði til verri kjara. Það á að vera gott að eldast í Reykjavík. Húsnæði að óskum borgarbúa Við eigum að skipuleggja framtíðina í borginni í samræmi við þarfir íbúanna. Við þurfum margfalt fleiri einbýlishúsalóðir en þær 14 sem úthlutað var á síðasta ári. Á Geldinganesi og í Örfirisey má skipuleggja byggð fyrir þúsundir íbúa og fullnægja þannig þörf fyrir nýtt húsnæði í Reykjavík næstu árin. Þá skapar Vatnsmýrin ótakmarkaða möguleika og mun gera Reykjavík að skemmtilegri borg. Borg fjölskyldunnar Við eigum að gera stórátak í að bæta umhverfi okkar. Fólk velur sér framtíðarheimili með hliðsjón af því hvort umhverfið sé hreint og vistlegt. Fyrirtæki setjast að þar sem starfsfólkinu líður vel. Við þurfum góða aðstöðu fyrir íþróttafélög, aðlaðandi skólalóðir, skemmtileg og hrein opin svæði og leikvelli sem hvetja til útivistar fjölskyldunnar og laða fólk að borginni okkar. framtíðarsýn gísla marteins í borgarmálum veljum leiðtoga til framtíðar gísla martein í 1. sætið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.